Morgunblaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
SIXTBILASALA.IS
Dacia Duster - 2016
Tilboð: 1.190.000 Tilboð: 1.290.000 Tilboð: 1.290.000
128.000 km. - Dísel - Beinskiptur
Ásett verð: 1.990.000
Opel Mokka - 4x4 - 2015
134.000 km. - Dísel - Beinskiptur
Ásett verð: 1.890.000
Toyota Yaris - 2018
69.000 km. - Bensín - Beinskiptur
Ásett verð: 1.790.000
Toyota CHR - 2018
Tilboð: 3.190.000
48.000 km. - Hybrid - Sjálfskiptur
Ásett verð: 3.690.000
SsangYong Tivoli - 2016
Reykjavík
Krókháls 9
540 2035
Opið virka daga frá 9 - 18
Laugardaga frá 12 - 16
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 - 18
Bílabankinn
Eirhöfða 11
588 0700
Opið virka daga frá 10 - 18
Tilboð: 1.390.000
161.000 km. - Dísel - Sjálfskiptur
Ásett verð: 2.090.000
80
0.0
00
kr.
afs
lát
tur
60
0.0
00
kr.
afs
lát
tu
r
50
0.0
00
kr.
afs
lát
tu
r
50
0.0
00
kr.
afs
lát
tu
r
70
0.0
00
kr.
afs
lát
tu
r
740233 750054 590467 263596 445975
LÆKKAD VERD – ÓTRÚLEGT ÚRVAL!
Birt með fyrirvara um mynda og texta brengl
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
V
élsleðar, fjórhjól og sex-
hjól hafa fyrir löngu
sannað gildi sitt sem
ómissandi vinnutæki.
Guðmundur Skúlason, versl-
unarstjóri Storms á Kletthálsi, seg-
ir t.d. bændur, björgunarsveitafólk,
veiðimenn og landverði þurfa nauð-
synlega á þessum farartækjum að
halda og má áætla að um 40%
þeirra sem kaupa fjórhjól eða vél-
sleða séu fyrst og fremst að leita
að vinnutæki frekar en leiktæki.
„Einn bóndinn komst þannig að
orði við mig að það væri jafnmik-
ilvægt að eiga gott fjórhjól og að
eiga til mjólk í ísskápnum,“ segir
Guðmundur. „Þá hafa Lands-
virkjun, skógræktarfélögin og jarð-
verktakar tekið vélsleða, sexhjól og
fullbúna „buggy“-bíla í sína þjón-
ustu og nota t.d. til að sinna við-
haldi á háspennulínum. Það gildir
um buggy rétt eins og fjórhjól og
sexhjól að komast má nánast hvert
sem er á farartækinu en í buggy
geta tveir setið saman hlið við hlið,
eru varðir af veltigrind, í skjóli frá
veðri og vindum og geta m.a.s. ver-
ið með miðstöð svo þeim verði ekki
kalt.“
Spurður um muninn á eig-
inleikum fjórhjóla og sexhjóla segir
Guðmundur að sexhjólin ráði við
meira krefjandi aðstæður og hafi
líka þann kost að skilja eftir sig
minni ummerki. „Þannig er búið að
setja það í lög að sexhjól eru einu
farartækin sem nota má við hrein-
dýraveiðar, svo að sem minnst sjái
á landslaginu eftir að veiðimað-
urinn er farinn aftur heim til sín
með fenginn.“
Fjór- og sexhjól eru afskaplega
þörf farartæki en Guðmundur
bendir á að þegar snjórinn nær
ákveðinni dýpt drífi fjór- og sex-
hjólin skammt. Íslenskar aðstæður
kalli því á að eiga líka vélsleða, ell-
egar fjárfesta í beltabúnaði sem
setja má undir fjór- og sexhjólin:
„Það fer eftir notkun hvort hentar
betur að eiga beltabúnað eða sér
vélsleða,“ segir hann og minnir líka
á að framleiðendur bjóði upp á vél-
sleða, fjór- og sexhjól sem hafa
verið sniðin gagngert að vinnu á
meðan aðrar útgáfur henti meira
un. Þykir mörgum ómissandi að
eiga góða kerru, bæði til að koma
tækinu á verkstæði ef svo ber und-
ir, en líka til að ferja það á milli
staða ef ætlunin er að halda af stað
í ævintýri í öðrum landshluta.
Hjá stormi er Polaris í for-
grunni, bæði í fjórhjóla- og vél-
sleðadeildinni. Guðmundur segir
ekki hægt að nefna nein risavaxin
framfarastökk á undanförum árum
heldur batni farartækin jafnt og
þétt. „Það sem við sjáum m.a.
breytast er að tækin verða léttari
en á sama tíma sterkari og með
betri fjöðrun, samhliða því að þau
þurfa minna viðhald.“
Ekki fara strax í mesta aflið
Aðspurður hvaða mistök algengt
er að fólk geri við kaup á vél-
sleðum, eða fjór- og sexhjólum seg-
ir Guðmundur að það sé ágætt að
fá fyrst söluskoðun á tækinu, ef
það er notað, til að forðast að
lenda síðar í vandræðum vegna
slits og skemmda. Starfsfólk
Storms er líka alltaf boðið og búið
að veita gestum og gangandi ráð-
gjöf um hvers konar tæki þeir
ættu að fá sér miðað við óskir og
þarfir.
Þá vill Guðmundur meina að
sama góða reglan gildi um vélsleða
og fjórhjól og gildir um mótorhjól;
að fólk eigi að fikra sig smám sam-
an upp í kröftugri tæki, frekar en
að stökkva strax í fyrstu atlögu á
það stærsta og öflugasta sem vesk-
ið leyfir. „Ég er þakklátur fyrir
það uppeldi sem ég fékk hjá pabba
mínum sem leyfði mér ekki að
kaupa öflugri vélsleða fyrr en ég
gat gert allt það sem hægt var á
minna öflugum vélsleðum. Fékk ég
fyrst 38 hestafla sleða, og þurfti að
sýna að ég gæti notað hann rétt
áður en mér var treyst fyrir 70
hestöflum, og þannig koll af kolli.
Það gerir fólk að betri ökumönnum
að byrja á kraftminni tækjum, en
Íslendingum hættir til að vilja allt-
af það öflugasta sem þeir geta
fundið. Fyrir vikið er t.d. mjög lítið
flutt inn af aflminni vélsleðum, þó
að þeir séu að mörgu leyti frábær
farartæki og myndu henta mörgum
miklu betur en öflugustu sleðarnir
á markaðinum,“ segir Guðmundur
og bætir við að fólk sé ekki að
gera sér neinn greiða með ofur-
áherslu á hestöfl, þegar kemur að
vélsleðakaupum: „Það sem skiptir
mun meira máli er hvernig vélsleð-
inn lætur að stjórn, og hversu vel
hann fjaðrar. Aflið kemur svo ekki
fyrr en í þriðja sæti, og á það sama
við um fjórhjól, sexhjól og buggy-
bíla.“
Þarfasti þjónninn
Björgunarsveitir,
bændur, orkufyrirtæki
og skógræktarfélög
eru meðal þeirra sem
reiða sig á vélsleða,
fjórhjól og sexhjól.
Með þessi tæki, rétt
eins og mótorhjólin, er
góð regla að byrja
smátt og stökkva ekki
strax á bak vélsleða
eða fjórhjóli með mjög
öfluga vél.
Þau fjórhjól sem framleidd
eru í dag þykja frekar
þægileg í umgengni.
Velja þarf stærð og gerð
vélsleða með tilliti til þess
hvernig á að nota hann.
Guðmundur við vígalegan
vélsleða í sýningarsalnum.
til sports. „Það má t.d. kaupa sér-
staka vinnu-vélsleða sem eru gerð-
ir til að draga þunga hluti og hafa
bæði hátt og lágt drif. Breiðbelta
sleðarnir þykja henta betur sem
vinnusleðar, á meðan þeir stuttu
eru betur sniðnir að því að gera
alls kyns kúnstir í snjónum. Milli-
langir sleðar eru síðan valkostur
þeirra sem vilja tæki sem bæði
ræður við létta vinnu í brekkunum
og býður líka upp á fjör.“
Halda námskeið fyrir kaupendur
Eins og með öll vélknúin tæki
þarf að umgangast vélsleða, fjór-
og sexhjól rétt og vanda valið þeg-
ar kemur að kaupunum. Stormur
heldur sérstök námskeið þar sem
farið er yfir aðalatriðin hvað kem-
ur að viðhaldi og notkun tækjanna
en Guðmundu segir framleiðendur
hafa unnið jafnt og þétt að því að
lágmarka þörfina fyrir viðhald og
viðgerðir. „Vitaskuld fer viðhalds-
þörfin eftir notkun, og þeir sem
eru t.d. mikið að aka yfir grófa tor-
færu reyna meira á tækið þannig
að slit eykst og meiri hætta verður
á að eitthvað skemmist eða gefi
sig.“
Sinna þarf olíuskiptum í sam-
ræmi við leiðbeiningar framleið-
anda og þá þurfa vélsleðar, fjór- og
sexhjól að koma reglulega í skoð-