Morgunblaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Toyota lætur sér ekki nægja að smíða farartæki til notk-
unar á jörðu niðri. Nei, nú skulu himnarnir gerðir að
vettvangi ferðalaga líka. Hefur japanski bílsmiðurinn
því fjárfest í sprotafyrirtæki til framleiðslu flugbíla.
Hefur Toyota fjárfest fyrir 394 milljónir Bandaríkja-
dollara, jafnvirði um 49 milljarða íslenskra króna, í
fyrirtæki að nafni Joby Aviation. Það hefur um skeið
verið að þróa rafknúið loftfar sem þarf ekki flugbrautir
til að athafna sig, heldur lendir og tekur á loft eins og
þyrla.
Með þessari fjárfestingu er Toyota stærsti fjárfest-
irinn í Joby, með 394 milljónir af 590. Mun japanski bíl-
smiðurinn leggja fyrirtækinu til þekkingu og búnað til
þróunar og smíði rafflugvélar Joby.
Á heimasíðu Joby kemur fram að flugtaxinn beri
fjóra farþega á allt að 322 km/klst. hraða samtals 241
kílómetra á fullri rafhleðslu. Staðhæft er að hann sé
hundrað sinnum hljóðlátari en hefðbundnar flugvélar í
flugtaki og lendingu og næstum hljóðlaus í farflugi.
Það er og talið flugtaxanum til tekna að rekstrar- og
viðhaldskostnaður hans verði smámunir í öllum sam-
anburði við önnur fyrirtæki í lofti eða á láði.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Toyota fjárfestir í flug-
bílsfyrirtæki. Árið 2017 lagði það 42,5 milljónir jena,
jafnvirði um 47 milljóna íslenskra, í japanska sprotafyr-
irtækið Cartivator sem vinnur að þróun tveggja manna
smáþyrlu að nafni SkyDrive.
agas@mbl.is
Toyota horfir til himna
Flugtaxinn sem Toyota mun
þróa með Joby Aviation.
Ný kynslóð af Toyota Land Crui-
ser, sem sumir hafa viljað kalla Ís-
landsjeppann sakir vinsælda hans
hér á landi í áratugi, verður kynnt
í ágúst í sumar.
Það er í sjálfu sér vart frétt en
það sem gerir viðburðinn að stór-
máli er að
tvíaflsrás verður í bílnum. Og
það sem meira er, hún verður sam-
bland af 3,5 lítra V6 bensínvél og
tveimur rafmótorum. Út úr henni
má ná 354 hestöflum. Frá þessu
skýrir japanski bílavefurinn bestc-
arweb.jp.
Með þessu víkur núverandi afl-
gjafi, hin 5,7 lítra V8-vél sem skil-
að hefur 381 hestafli að hámarki. Í
staðinn kemur sama tvíaflsrás og
er að finna í Lexus LC 500h og
Lexus LS500h.
Þetta þýðir að Land Cruiser
hinn nýi tapar nokkru af afli sínu
en með endurhönnun og léttari
efnum í grind og yfirbyggingu er
talið að náist að lækka bílþyngdina
nægilega mikið til að bíllinn verði
ekki fyrir hraðatapi.
Í meginatriðum verður Land
Cruiser áfram tiltölulega kassa-
laga, en þó er bent á líflegri og
dirfskufyllri hönnun nýjustu bíla
Toyota er gefi kannski vísbend-
ingar um að nýr Land Cruiser taki
einhverjum útlitsbreytingum. Þó
ekki nema bara væri til að leyfa
honum að komast út úr skugga
forveranna.
Framtíð Land Crusier á einum
öflugasta markaði bílsins til þessa,
Bandaríkjunum, er í nokkurri
óvissu. Innan við 4.000 eintök seld-
ust þar á nýliðnu ári, aðeins ögn
meira en árið 2018. Spurning er
hvort frumburður næstu kyn-
slóðar jeppans breyti því síðsum-
ars.
agas@mbl.is
Tvíaflsrás í Land Cruiser
Hinn trausti Land Cruiser fæst senn sem tvinnbíll. Hlaut að koma að því.
Breski ofursportbílasmiðurinn
McLaren hefur kynnt nýjan hraða-
fák til leiks. Er þar um að ræða 227
milljóna grip sem á vantar fram-
rúðu.
Bíllinn hefur fengið rammíslenska
konunafnið Elva og verður búinn
815 hestafla vél. Talið er að há-
markshraði bílsins verði eitthvað yf-
ir 320 km/klst.
Sérhver McLaren-bíll er mik-
ilfenglegur að hraða og getu, úrvals-
smíði sem ekki fæst fyrir lítið fé. Síð-
an er þar smíðaður svonefndur
„æðsti flokkur“; bílar sem enn meira
er lagt í og rutt hafa múra.
Nýjasti bíllinn í þessum flokki er
Elva, topplaus og tveggja sæta of-
urbíll með vélina í miðjum bíl. Fer
hann í sölu seint á þessu ári. Verður
hann þá í góðum félagsskap úrvals-
sportbílanna McLaren Senna og
Speedtail.
Afar óvenjulegt er svonefnt „virkt
loftstýrikerfi“ Elvu sem brúkar sér-
hönnuð loftop til að streyma lofti yf-
ir bílinn á þann veg að ökumaður og
farþegi eru varðir gegn höfuðskepn-
unum. Virkar þessi búnaður á
hraðabilinu 50 til 110 km/klst. Af
hálfu McLaren er því haldið fram að
kerfið komi í veg fyrir að ferða-
langar fái flugur framan í sig á ferð.
Til öryggis geta þeir alltaf brúkað
hjálm, já eða krossað við reitinn
framrúða þegar eintak af Elvu er
pantað.
agas@mbl.is
227 milljóna sportbíll
seldur án framrúðu
Flókin loftrás ver ökumann og farþega fyrir nátt-
úruöflunum í rúðulausum McLaren Elva-bílnum.
Verulegur völlur var á Ferrari á
nýliðnu ári og umsvifin það mikil
að talað er um að segja megi að
bækistöðvarnar í Maranello séu
eins og seðlaprentsmiðja, svo mik-
ill gróði rakist að ítalska sport-
bílasmiðnum.
Eitthvað er enn í að uppgjör
ársins 2019 liggi fyrir og verði
birt, en opinberlega hafa for-
sprakkar Ferrari sagst búast við
því að rekstrarafgangurinn verði
34%. Í það stefndi við uppgjör
þriðja ársfjórðungs.
Umsetningin og þénusta fyrstu
níu mánuðina var umfram spár.
Nam veltan 3,7 milljörðum evra,
jafnvirði um 510 milljarða ís-
lenskra króna.
Salan jókst álíka mikið eða 8%
hjá bæði bílum með V8- og V12-
vél. Hlutabréf í Ferrari höfðu
hækkað um 7,4% á árinu.
agas@mbl.is
Roma er nýjasta afurð Ferrari, var kynnt til sögunnar á nýliðnu hausti.
Seðlapressa í Maranello