Morgunblaðið - 21.01.2020, Síða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
L
iðin eru 65 ár síðan Pálmi Jónsson var
að snæða kvöldverð með kollegum
sínum í mötuneyti starfsmanna á
Keflavíkurflugvelli þegar að borðinu
kom Guðmundur Einarsson, sem þá var fram-
kvæmdastjóri Sameinaðra verktaka á flugvall-
arsvæðinu, sem síðar varð hluti af Íslenskum
aðalverktökum. Var komið í óefni því vonsku-
veður var á Reykjanesinu og fannfergi, og sátu
fjölmargir bílar fastir á Keflavíkurveginum.
Guðmundur þurfti vaskan mann sem gæti
stýrt jarðýtu í gegnum mannhæðarháa skafl-
ana, losað fasta bíla og rutt þeim leið til
Reykjavíkur.
Pálmi, sem í dag býr með konu sinni Eddu
Vilhelmsdóttur á Sauðárkróki, bauð fram
krafta sína þótt hann væri lúinn eftir langan
vinnudag í malarnámu verktakanna í Stapa-
felli. „Mér reiknast til að þegar þetta var allt
afstaðið hafi ég verið vakandi í um 54 klukku-
stundir og er það ekki nokkuð sem ég hef
áhuga á að reyna aftur,“ segir Pálmi.
Hann vill ekki gera of mikið úr björguninni
en sumir telja að það hefði getað endað með
ósköpum ef enginn hefði komið til bjargar
þeim fjölmörgu ökumönnum sem sátu fastir á
veginum. „Þetta var á Þorláksmessu 1955 og
margir þeirra sem unnu á varnarliðssvæðinu
þurftu að komast til sinna heima í Reykjavík
til að fagna jólunum. Vegagerðin hafði aftur á
móti ákveðið að loka veginum frekar en að
hreinsa hann, og búið var að leggja vinnu-
vélum Vegagerðarinnar þvert á veginum til að
aftra bílum för,“ segir Pálmi söguna.
Smám saman bættist í halarófuna
Til að tryggja að verkið gengi vel fyrir sig
fengu Sameinaðir verktakar að láni stóra og
mikla jarðýtu sem var í eigu varnarliðsins, af
gerðinni Caterpillar D8, og fengu jafnframt
leyfi vegamálastjóra til að byrja að moka.
Pálmi segir her-jarðýtuna hafa hentað vel til
verksins enda hægt að halla tönninni á henni
til hliðar en ýturnar í malarnámunni voru
minni og með beina tönn.
Pálmi sá einn um verkið og enginn leysti
hann af, en moksturinn tók sinn tíma og fylgdi
mötuneytisbíll á eftir með hressingu handa
honum og öðru fólki í halarófunni. Á þessum
tíma var vegurinn út í Keflavík malarvegur
sem hlykkjaðist um hraunið og var á köflum
niðurgrafinn svo að snjórinn safnaðist auð-
veldlega upp. Í gömlum veðurgögnum má sjá
að gert hafði mikla snjókomu og skafrenning í
aðdraganda Þorláksmessu en svo tók veðrið að
skána og því fennti ekki aftur ofan í veginn eft-
ir að Pálmi hafði rutt snjónum burt.
Moksturinn tók tímann sinn og reiknast
Pálma til að hann hafi náð að ryðja um 5-6 km
kafla á klukkustund og var því ekki kominn til
Hafnarfjarðar fyrr en um miðja nótt. Framan
af þurfti að gera hlé á mokstrinum endrum og
sinnum til að losa fasta bíla og segir Pálmi að
þeir sem náðu að komast lengst hafi verið
komnir inn að Vogum. „Við höfðum keðju með-
ferðis og festum hana utan um dráttarkúlu, há-
singu eða hvað annað sem óhætt væri að taka í,
og festum hinn endann við ýtuna sem ég bakk-
aði til að draga bílana úr sköflunum.“
Báðu um aðstoð yfir talstöð
Morgunblaðið fjallaði um afrekið í grein 24.
desember og segir þar að bílalestin hafi verið
um 13 klukkustundir að komast frá Keflavík-
urflugvelli í bæinn, og fylgdu um 100 bílar í
halarófu á eftir jarðýtunni. Höfðu 15-20 bílar
setið fastir þegar ýtan lagði af stað, en svo
spurst út að verið væri að opna leiðina og þá
fleiri bílar lagt af stað í humátt á eftir hersing-
unni. Var það bíll sem sat fastur í snjónum sem
náði sambandi við Guðmund Einarsson yfir
talstöð og bað um aðstoð.
Þegar í bæinn var komið var verki Pálma
ekki lokið, heldur sneri hann gröfunni við og
hreinsaði veginn öðru sinni, í hina áttina, enda
þurfti hann hvort eð er að sækja sinn eigin
jeppa sem var lagt uppi á velli, aka svo aftur til
Reykjavíkur og þá fyrst að hann gat lagst til
hvílu. Pálmi man ekki hvort hann fékk greitt
sérstaklega fyrir moksturinn en hann minnist
þess að yfirmaður hans Guðmundur hafi verið
afskaplega þakklátur og komið í heimsókn til
hans á Sauðrárkróki árið eftir.
Saumnálar og hælboltar
Pálmi starfaði ekki lengi sem jarðýtustjóri.
Hann segir hafa verið krefjandi starf að sækja
möl í Stapafell og aðbúnaðurinn í stjórnklef-
anum verið allt annar en á vinnuvélum nú til
dags. Í framhaldinu lærði hann bifvélavirkjun
og rennismíði og fékk meistararéttindi í báð-
um iðngreinum. Minnist hann þess að hafa
sem stálrennismiður smíðað allt frá agn-
arsmáum saumavélanálum fyrir síldar-
pokasaumavélar á Raufarhöfn upp í hælbolta
fyrir Hallveigu Fróðadóttur, fyrsta dísiltogara
Íslands.
Hann sagði þó ekki með öllu skilið við jarð-
ýturnar og keypti sér sína eigin Caterpillar
D6C með holræsaplóg og notaði til að hjálpa
bændum um allt land að laga hjá sér mýr-
arnar. Páll kynntist konu sinni Eddu nokkru
eftir snjómokstursævintýrið og hreiðruðu þau
um sig á Sauðárkróki þar sem þau eignuðust
fimm börn. „Hún hefur lagt það á sig að búa
með mér allan þennan tíma og hugsar ósköp
vel um mig,“ segir Pálmi, sem reiknast til að
barnabörnin séu orðin um tuttugu talsins og
búa afkomendurnir hér og þar á landinu.
Sátu pikkföst á leið heim í jólafrí
Pálmi Jónsson var aðeins
22 ára gamall þegar hann
vann mikið þrekvirki á öflugri
jarðýtu og bjargaði fjölda
bíla sem sátu fastir á Kefla-
víkurvegi í vonskuveðri,
skömmu fyrir jólin 1955.
Ljósmynd / Ljósmyndasafn Reykjanesbæjar
Myndin sýnir jarðýtu við snjómokstur á Reykjanesi 1952. Engar myndir virðast til af jóla-mokstrinum 1955. Jarðýtan sem Pálmi notaði var
töluvert stærri en sú sem sjá má á myndinni, fengin að láni hjá bandaríska hernum. Pálmi ruddi leiðina til Reykjavíkur og aftur til baka.
Frétt Morgunblaðsins frá 24. desember 1955. Um allt land var færð með versta móti.
Ljósmynd/Þórarinn Sverrisson
Pálmi Jónsson fékk ekkert að hvíla
sig á meðan á mokstrinum stóð.