Morgunblaðið - 21.01.2020, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA og ÁREIÐANLEIKI
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
VÍKURVAGNAR EHF.
MIKIÐ ÚRVAL AF KERRUM
FYRIR IÐNAÐARMENNOGVERKTAKA
Meira af skjáum og myndavélum á
eftir að finna sér leið inn í bíla
Aston Martin á nýbyrjuðum áratug.
Byrjar það með þriggja mynda-
véla baksýnisspegli, sem Aston
Martin hefur þróað í samstarfi við
bandaríska fyrirtækið Gentex.
Tækni þessa sýndu bílsmiðurinn
og tæknifyrirtækið á
neytendarafeindatækjasýning-
unni CES í Las Vegas fyrr í janúar.
Hafði hún verið sett upp í nýju
stolti Aston Martin, Superleggera-
bílnum.
Baksýnisbúnaður af þessu tagi er
ekki alveg splunkunýr af nálinni,
hann er að finna á markaðnum.
Skjárinn er þó frábrugðinn öðrum
að því leyti til að vera í raun sam-
settur úr þremur myndskjáum, en
ekki einum skjá eins og annar bún-
aður. Birtist myndefni á tveimur
smærri skjáum á hvorum enda
spegilsins en þeir streyma inn á
hann efni frá myndavélum á hlið
bílsins. Þar á milli birtist svo
streymi úr bakkmyndavél aftan á
bílnum.
Af hálfu Gentex var lögð sérstök
áhersla á að myndkerfi þetta væri
pottþétt og léti ekki veður slá sig út
af laginu. Jafnvel þótt salt, snjór
eða rigning bylji á bílnum og taki
eina myndavélina úr umferð eru
hefðbundnir baksýnisspeglar enn
fyrir hendi og virka sem varabún-
aður.
agas@mbl.is
AFP
Minni skjáirnir tveir á hvorum kanti spegilsins fá myndir frá myndavélum á
hliðum bílsins. Stóri skjárinn sýnir hvað er að gerast beint aftur af bílnum.
Þrjár myndavélar
leysa baksýnis-
spegil af hólmi
Á neytendarafeindatækjasýning-
unni CES sem nýlokið er í Las Ve-
gas í Nevadaríki Bandaríkjanna
tróð Mercedes-Benz upp með all-
verulega framúrstefnulegan bíl,
sem vakti mikla athygli.
Hönnuðir Mercedes skópu far-
artæki þetta í samstarfi við James
Cameron, leikstjóra kvikmyndar-
innar Avatar, og til að hnykkja á
því samstarfi var bíllinn nefndur
AVTR, sem auk þess stendur fyrir
„háþróuð umsköpun farartækis“.
Aðstandendur segja AVTR tákn-
gera „tengslin milli manns, vélar og
náttúrunnar“. Í honum er að finna
allan þá nýju bíltækni sem Merce-
des er að þróa; gervigreind, sjálf-
akstur og rafdrifna aflrás. Varð-
andi síðasta þáttinn þá er gefið upp
að rafmótorinn verði 475 hestafla
og akstursdrægi bílsins þar með um
700 kílómetrar á fullri rafhleðslu.
agas@mbl.is
Avatar var hönnuðum Mercedes innblástur
Mercedes-Benz Vision AVTR-þróunarbíllinn kom í fyrsta sinn fyrir sjónir
almennings á CES-sýningunni í Las Vegas. Er þetta mögulega framtíðin?
Honda hefur þróað nýtt bílstýri sem
bílsmiðurinn segir helgað auknum og
endurbættum akstri. Aðeins þarf að
klappa því lítillega, þá hrekkur bíllinn í
gang.
Segja má að hér sé um að ræða
„snertistýri“ því það dugar að strjúka
því laust til að skipta um sjálfaksturs-
ham, en átta slíkir eru í boði.
Og til að keyra af stað og auka hrað-
ann þarf aðeins að ýta stýrinu fram. Og
að sama skapi er togað í stýrið til að
hægja ferðina og bremsa. Ekki fylgir
fregnum hvers lags blíðuhót þarf til að
fá stýrið til að snúa bílnum við.
Með öðrum orðum má segja að þetta
magnaða stýri sé miðpunktur tauga-
kerfis sjálfakstursbúnaðar framtíð-
arbíls. Ætli Honda mæti í fyllingu tím-
ans með það til leiks.
agas@mbl.is
Honda hefur tekist að finna hjólið upp aftur
Snertiskynsstýrið sem Honda hefur þróað fyrir bíla framtíðarinnar.