Morgunblaðið - 07.02.2020, Side 4

Morgunblaðið - 07.02.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum HEILDARLAUSNIR FYRIR FISKELDI maris.is 421 4426 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is M eð nokkuð varfærnislegu mati má líklega segja að þetta geti tvímælalaust orðið ein grunnstoð und- ir útflutningstekjur okkar Íslend- inga til framtíðar,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, um framtíðarhorfur fiskeldis á Íslandi. „Starfsemin er enn á upphafsstigum, að slíta barnsskónum ef svo má segja, en miðað við hvernig gengið hefur á undan- förnum tveimur til þremur árum má vænta þess að hið minnsta þau fjögur fyrirtæki sem hafa hafið slátrun séu komin fyrir vind og eigi þar af leiðandi tæki- færi til töluverðs vaxtar, auk þess sem fleiri fyrirtæki munu vonandi bætast í þann hóp,“ bætir hún við. Hún kveðst þó ekki vilja spá of langt inn í framtíðina eða hafa of miklar væntingar og leggur sér- staka áherslu á að uppbygging greinarinnar þurfi að vera skyn- samleg. „Ef við myndum fara upp í það sem gildandi áhættumat kveð- ur á um, 71 þúsund tonn í laxi, þá gætu útflutningsverðmæti þess far- ið í 55 til 60 milljarða króna. Þá er- um við kannski komin upp í fjár- hæðir sem eru 30 til 40 prósent af útflutningsverðmætum sjávaraf- urða. Það munar sannarlega um þær tekjur. Það sverfur að í öðrum atvinnu- greinum, eins og gengur og gerist, og af þeim sökum sérstaklega verðum við að fjölga stoðum undir útflutningsgreinar. Þannig að þeg- ar niðursveiflur koma í einhverjum atvinnugreinum, eins og til dæmis í sjávarútvegi eða ferðaþjónustu, þá séu aðrar atvinnugreinar sem grípa boltann og koma þannig í veg fyrir að samdráttur í efnahags- kerfinu verður meiri heldur en hann ella hefði orðið. Því fleiri at- vinnugreinar sem standa undir okkar útflutningi, því meiri verður sveiflujöfnunin, og þar af leiðandi stöðugra efnahagslíf,“ útskýrir framkvæmdastjórinn. Vaxtarverkir í stjórnkerfinu Fiskeldi hefur vaxið mikið á und- anförnum árum og voru um 26 þúsund tonn eldisafurða flutt út í fyrra. Þá nam útflutningsverðmæti afurðanna um 25 milljörðum króna sem er 89,4% aukning frá 2018. Á sama tíma er hins vegar áberandi að gögn sem fylgja tilkynningum um útgefin rekstrarleyfi fiskeldis- fyrirtækja sýna að sumar umsóknir um ný eða stækkuð leyfi hafa verið til meðferðar hjá opinberum stofn- unum í fjögur ár. Spurð hvort málsmeðferðartími og flækjustig leyfisveitinga haldi aftur af frekari vexti greinarinnar, svarar Heiðrún Lind: „Því miður verður ekki fram hjá því vandamáli litið og fáir geta mótmælt því að það eru vaxtarverkir í stjórnkerf- inu. Við viljum að sjálfsögðu vanda til verka, fara varlega og byggja starfsemina upp með skynsam- legum hætti, en stjórnsýslan hefur því miður verið illa búin undir þau nýju verkefni sem henni hafa verið falin í tengslum við fiskeldi. Það virðist fyrst og fremst fjármagn sem skortir, þannig að unnt sé að hafa starfsfólk til að afgreiða mál fljótt og örugglega, í samræmi við fresti eins og lög kveða á um. Ég nefni sérstaklega Skipulags- stofnun í þessu samhengi, þar sem umsóknir eru ekki afgreiddar inn- an lögbundinna fresta. Þetta hægir ekki aðeins á vexti starfseminnar, heldur veldur þetta beinlínis tjóni í starfsemi fyrirtækjanna. Það að ala fisk í sjó krefst mikils fjármagns og margra ára undirbúnings. Skortur á fyrirsjáanleika við af- greiðslu mála setur þennan mik- ilvæga þátt í uppnám.“ Hafa sýnt varfærni Það verður ekki hjá því komist að verða var við talsverða gagnrýni í garð fiskeldisins, sérstaklega hvað eldi í sjókvíum varðar og snýr hún aðallega að áhyggjum af því að eld- isfiskur sleppi úr kvíum og valdi erfðablöndun villtra laxastofna. Jafnframt eru áhyggjur af því hversu mikinn úrgang lífríkið í fjörðum landsins þolir. Innt álits á þessari gagnrýni kveðst Heiðrún Lind hafa skilning á því að ólíkir hagsmunir kunni að vegast á þegar uppbygging nýrrar atvinnu- starfsemi er annars vegar. „Ég held hins vegar að við eig- um að vera skynsöm og gera okkur grein fyrir þeim veruleika að eitt útilokar ekki annað. Ég tel að lög- gjafinn hafi í allri sinni nálgun á málið farið fram með mjög var- færnislegum hætti og við erum að grípa til allra þeirra ráðstafanna sem raunhæfar og skynsamlegar eru til þess einmitt að koma í veg fyrir spjöll á náttúru eða spjöll á villtum laxi. Þessi starfsemi fer í gegnum ótrúlega langt ferli frá því að ákveðið er að hefja hana og þar til fyrsta laxi er slátrað. Það má segja að ekkert land sé með jafn umfangsmikið kerfi í kringum sjókvíaeldi, sem allt miðar af því að takmarka áhættu. Fram fer mat á burðarþoli þeirra fjarða þar sem sjókvíaeldi er fyrirhugað, því næst er framkvæmt áhættu- mat, sem er óþekkt annar staðar í heiminum og miðar að því að koma í veg fyrir blöndun erfða við villtan lax þannig að honum stafi hætta af. Þá tekur nær undantekning- arlaust við umhverfismat. Þegar umhverfismati er síðan lokið taka við ýmiss konar skilyrði til starf- semi í starfs- og rekstrarleyfum. Þannig að ferlið er nokkuð langt og strangt. Allt miðar það hins vegar að því að við komum í veg fyrir erfðablöndun á villtum laxi og að það sé ekki þess háttar mengun í sjó, að öðrum lífverum stafi hætta af.“ Er varðar áhyggjur af því að vöxtur greinarinnar sé of hraður segir hún það vissulega svo að það eigi að fara varlega, „en fram- leiðslumagnið verður að vera þann- ig að við getum tryggt afhending- aröryggi inn á stærri, hátt borgandi markaði eins og Asíu og Bandaríkin. Ef við ætluðum okkur til framtíðar að framleiða aðeins um 25 til 30 þúsund tonn mundi það ekki standa undir þeirri eft- irspurn sem kemur frá best borg- andi mörkuðunum. Ef við getum ekki tryggt jafna afhendingu allt árið um kring, þá fáum við einfald- lega ekki þessi viðskipti. Magnið þarf því að aukast ef við ætlum að vera raunhæfir keppinautar á þess- um mörkuðum sem eru best borg- andi.“ Þekking fylgi fjármagni Annar þáttur sem borið hefur á í umræðunni um fiskeldi hérlendis er eignarhald þeirra fyrirtækja sem í greininni eru, en norsk eld- isfyrirtæki eru þar stórtækir fjár- festar. Framkvæmdastjórinn telur þó ekki ástæðu til að óttast eign- arhald, þvert á móti fylgja því ýmsir kostir. „Þessi umræða skýt- ur alltaf upp kolli og er ekki sér einkenni fyrir eldi, heldur heyrist hún því miður um erlenda fjárfest- ingu í heild. Við höfum verið að reyna að glæða hér erlendar fjár- festingar, enda eru þær nauðsyn- legar. Í tilviki eldisins er þetta ekki bara í formi fjármagnsins sem hingað kemur til dreifðari byggða landsins, heldur er það líka þekk- ingin sem þessir erlendu aðilar búa yfir. Það væri óskandi að þeir sem hafa áhyggjur af starfsemi fiskeld- isins, gætu fagnað aðkomu er- lendra aðila. Þessir erlendu aðilar hafa farið í gegnum uppbyggingu í sínu heimalandi og þar af leiðandi einnig gert einhver mistök á þeirri vegferð. Þeir hafa þá jafnframt lært af þeirri reynslu og geta þá komið í veg fyrir að við gerum sambærileg mistök hér á landi,“ segir Heiðrún Lind og vísar til áratuga reynslu Norðmanna af fiskeldi. „Noregur hefur verið í eldisstarfsemi í sjó um áratuga skeið. Sú starfsemi var svo sann- arlega ekki fullkomnuð á fyrsta degi og enn er raunar verið að gera breytingar í samræmi við betri þekkingu og bætta tækni. Öll atvinnustarfsemi hefur áhrif á um- hverfi sitt, en sú þekking sem orð- ið hefur til í Noregi er af hinu góða og við fögnum því að henni sé miðlað áfram hingað í gegnum fjárfestingar erlendra aðila.“ Flutningskostnaður hærri Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram af þeim sem hafa mestar áhyggjur af umhverfisáhrifum eld- isins að eldinu væri betur komið í kvíum á landi. Landeldi getur þó kallað á mun hærri kostnað en það sem tíðkast í sjókvíum. „Á þessum tímapunkti er það óraunhæft. Við verðum auðvitað að vera opin fyrir allri þróun sem verður í þessu, en kostnaður við framleiðsluna á landi er töluvert hærri heldur en kostn- aður í sjó. Krafa um að færa sjó- eldi á land, leiðir í raun til þess að starfsemin verður óháð Íslandi. Það eru miklu meiri líkur á því, ef fiskeldi er skikkað á land, að það einfaldlega fari til annarra land- svæða sem eru nær þeim mörk- uðum sem laxinn er seldur á. Fyrsti risinn í landeldi er ein- mitt að hefja starfsemi núna í Flórída. Mér er það til efs að um- fangsmikið landeldi á Íslandi geti keppt við það, eins og staðan er í dag. Við erum eyja í miðju Atlants- hafi, og á þeirri staðsetningu verð- ur auðvitað aldrei breyting, þannig að flutningskostnaðurinn héðan er langtum hærri en flutningskostn- aður þeirra sem eru nær mörk- uðum eða hafa betri flutningsleiðir. Tækninni fleygir hins vegar fram og eins og ég sagði fyrr, þá eigum við að fylgjast vel með þessum til- raunum. Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Erlendri fjárfestingu fylgir þekking Mikill vöxtur hefur orðið í fiskeldi á undanförnum árum og telur fram- kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi greinina geta orðið hluta af grunnstoðum hagkerfisins enda sé það ávísun á aukinn stöðugleika að hafa fjölbreyttar útflutnings- greinar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, segir stjórnsýsluna hafa verið illa búna undir vöxt fiskeldisins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.