Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
að er freistandi að skoða
velgengni Íslenska sjáv-
arklasans og þykja eins og
árangur verkefnisins hafi
frá upphafi verið sjálfgef-
inn; auðvitað hlyti það að leysa úr
læðingi byltingu í nýsköpun að safna
hópi frumkvöðla og fyrirtækja á einn
stað, í húsi sem helgað er því að finna
áhugaverð tæki-
færi tengd sjáv-
arútvegi. Auð-
vitað hlytu
áhugaverðar
samræður að
spinnast í kaffi-
krónum, nýjar
hugmyndir að
kvikna og verða
að verðmætum
nýjum vörum á
örskotsstundu. Þegar horft er um öxl
virðist það hreinlega hafa verið óhjá-
kvæmilegt að á stað eins og Sjávar-
klasanum gerist galdrar þar sem
tveir plús tveir verða fimm.
En undraverður árangur Íslenska
sjávarklasans kom alls ekki af sjálfu
sér. Vanda þurfti til verka, beina
starfinu innan klasans í réttan farveg,
og með markvissum hætti skapa um-
gjörð sem myndi hvetja fólk til dáða
og virkja alla þá krafta sem hægt var
að nýta bæði innan og utan klasans.
Þór Sigfússon er stofnandi Ís-
lenska sjávarklasans og eru núna lið-
in átta ár frá því fyrstu nýsköp-
unarfyrirtækin komu sér fyrir í húsi
klasans í gömlu Bakkaskemmunni
við Grandagarð. Húsið sem eitt sinn
var hafnarskemma, svo kæligeymsla,
fiskmarkaður, og flottrollaverkstæði,
iðar í dag af lífi og er heimili um 70
fyrirtækja sem framleiða allt frá
snyrtivörum og heilsudrykkjum yfir í
hugbúnað og fiskeldistæki.
Áhugi úr öllum áttum
Í nýrri bók sem Þór hefur skrifað
rekur hann sögu Íslenska sjávarklas-
ans og fer í saumana á þeim áskor-
unum sem þurfti að takast á við. Út-
koman er rit sem bæði er forvitnileg
sagnfræðileg heimild en líka gagnleg
handbók um farsælt klasastarf. Bók-
in heitir The New Fish Wave og er
gefin út af Leete‘s Island Books í
Bandaríkjunum. Þór segir að með rit-
inu sé hann m.a. að bregðast við þeim
mikla fjölda fyrirspurna sem Ís-
lenska sjávarklasanum berast frá
fólki í öllum heimshlutum sem langar
að beita sömu nálgun til að örva ný-
sköpun í sjávarútvegi og tengdum
greinum.
En hvað er það sem þarf? Hverju
má þakka árangurinn? Þór segir að
það hafi haft mikla þýðingu að ný-
sköpun í sjávarútvegi var þegar kom-
in nokkuð vel á veg á Íslandi og hefð
fyrir athafnasemi, sköpunar- og til-
raunagleði í greininni. „Þegar Sjávar-
klasinn kemur til sögunnar getum við
byggt á áratugalöngu starfi í átt að
fullvinnslu afurða, og áratugalöngum
rannsóknum á íslensku sjávarfangi.
Með þetta veganesti áttum við auð-
veldara með að setja okkur í stell-
ingar til að gera enn betur, enda búið
að ryðja brautina.“
En ef brautin hafði þegar verið
rudd, þá má segja að Þór og félagar
hafi mætt á staðinn með malbik-
unarvél og búið til hraðbraut. Mátti
greina, fljótlega eftir stofnun Sjáv-
arklasans árið 2011, að starfsemin
þar var tekin að breyta viðhorfi sam-
félagsins til sjávarútvegsins og um
leið lækka þröskuldinn fyrir fólk með
góðar hugmyndir að láta þá þær
reyna og setja sprotafyrirtæki á lagg-
irnar. Þór minnist þess að þegar hann
var að fara af stað hafi margir haft á
orði við hann að það væri kannski
betra að beina kröftunum í nýsköpun
í öðrum atvinnugreinum, enda færi
vægi sjávarútvegs minnkandi á með-
an aðrir geirar væru í örum vexti.
„Ég man eftir fundi sem ég tók þátt í
með stofnendum um 50 nýsköpunar-
fyrirtækja og sprotum í byrjun árs
2011. Þar bað ég gesti um að rétta
upp hönd ef þeir hefðu hugmyndir
sem tengdust hafinu og sjávarútveg-
inum – en engin einasta hönd fór á
loft. Þessu vildi ég breyta,“ segir
hann.
Áhrifin meiri en flestir héldu
Meðal fyrstu verkefna Þórs var kort-
leggja betur þjóðhagsleg áhrif sjáv-
arútvegsins í samstarfi við dr. Ragn-
ar Árnason hagfræðiprófessor.
„Þegar aðeins var horft til veiðanna
sjálfra leit út fyrir að greinin færi
smám saman dalandi, en allt önnur
mynd kom í ljós þegar sjávarhag-
kerfið var skoðað í heild sinni, og ný-
sköpunarfyrirtækin og stoðþjónustan
tekin með. Blasti þá við að bæði var
mikilvægi greinarinnar mun meira en
flestir höfðu áttað sig á og sjáv-
artengd starfsemi í örum vexti.“
Þessar staðreyndir gat Sjávarklas-
inn kynnt fyrir allri þjóðinni, og sam-
hliða því beint kastljósinu að hverju
áhugaverðu nýsköpunarverkefninu á
fætur öðru. Lærði Þór snemma að
það væri lykilatriði í árangursríku
klasastarfi að geta reglulega bent á
nýja sigra og framfarir og hafa frum-
kvöðlarnir hjá Sjávarklasanum m.a.
verið reglulegir gestir á síðum Morg-
unblaðsins þar sem þau segja frá
mergjuðum uppfinningum, nýjum
vörum, framförum í hönnun tækja og
tóla, eða dýrmætum viðskiptatæki-
færum innan seilingar fyrir greinina.
Með þessu tókst að auka meðbyrinn
jafnt og þétt, og fá fleira hugmynda-
og hæfileikaríkt fólk til að skoða bet-
ur tækifæri tengd nýsköpun í sjávar-
útvegi.
Þá segir Þór að það hafi verið
ómetanlegt fyrir Íslenska sjávarklas-
ann að rótgróin fyrirtæki í greininni
og leiðtogar atvinnulífsins fylktu sér
á bak við starfsemina og voru boðin
og búin að vera sprotafyrirtækjunum
innan handar. Háskóla- og vísinda-
samfélagið tók Sjávarklasanum líka
opnum örmum og var það oft innan
háskólanna að góðum hugmyndum
var ungað út sem svo urðu að fyr-
irtækjum innan Sjávarklasans. „Ann-
að lykilatriði í árangrinum und-
anfarin átta ár er vaxandi framboð
samkeppnissjóða sem bæði hafa auð-
veldað fjármögnun nýsköpunarverk-
efna en líka hvatt fólk og fyrirtæki til
að vinna saman,“ segir Þór.
Loks rann það fljótlega upp fyrir
stjórnendum Sjávarklasans að það
efldi starfið ef allir gætu stefnt að
sameiginlegu markmiði. „Eins mikið
og það styrkir og eflir fyrirtækin í
klasanum að vinna reglulega stóra og
smáa sigra á sínu sviði þá er líka
brýnt að hafa heildarmarkmið sem
allir vilja ná. Í okkar tilviki varð það
rauður þráður í öllu starfi Sjávarklas-
ans að vinna jafnt og þétt að því að
fullnýta aflann, undir yfirskriftinni
100% fiskur.“
Vöxtur og útrás heldur áfram
Ævintýrið virðist vera rétt að byrja
og nú þegar Sjávarklasinn hefur
breitt svo mikið úr sér að fyllir alla
Bakkaskemmuna er Þór farinn að
leiða hugann að því að koma upp svip-
aðri starfsemi annars staðar á land-
inu. „Okkur berast beiðnir frá hinum
ýmsu löndum Evrópu, Suður-
Ameríku og vitaskuld Bandaríkj-
unum, þar sem athafnasömu fólki er
mjög í mun að koma í heimsókn til
okkar að kynna sér starfsemina svo
þau geti sett eitthvað svipað á lagg-
irnar á sínum heimamarkaði. Vonum
við að íslenska sjávarklasamódelið,
og þessi hugmyndafræði sem við höf-
um starfað eftir, muni verða til þess
að um allan heim veðri tekin skref í
þá átt að nýta auðlindir hafsins betur,
og af meiri virðingu fyrir náttúr-
unni,“ segir Þór. „Með því skapast
líka tækifæri til að byggja upp al-
þjóðlegt tengslanet, ekki aðeins til að
greiða leið íslenskra fyrirtækja út í
heim, heldur líka til að auðvelda okk-
ur að læra af öðrum þjóðum og efla
okkur á þeim sviðum þar sem aðrir
eru miklu færari.“
Gátu byggt á langri hefð
nýsköpunar og rannsókna
Bókin The New Fish
Wave fer yfir merkilega
sögu Íslenska sjávar-
klasans og nýtist um
leið sem handbók fyrir
alla þá sem vilja reka
nýsköpunarklasa með
góðum árangri.
Morgunblaðið/Eggert
Þór Sigfússon segir að góður stuðningur öflugra fyrirtækja og áhugi leiðtoga atvinnulífsins hafi skipt sköpum, sem og samstarf við háskóla- og vísindasamfélagið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það tók enga stund að fylla húsið af drífandi frumkvöðlum og hefur mikil verðmætasköpun átt sér stað hjá Sjávarklasanum.