Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ að er freistandi að skoða velgengni Íslenska sjáv- arklasans og þykja eins og árangur verkefnisins hafi frá upphafi verið sjálfgef- inn; auðvitað hlyti það að leysa úr læðingi byltingu í nýsköpun að safna hópi frumkvöðla og fyrirtækja á einn stað, í húsi sem helgað er því að finna áhugaverð tæki- færi tengd sjáv- arútvegi. Auð- vitað hlytu áhugaverðar samræður að spinnast í kaffi- krónum, nýjar hugmyndir að kvikna og verða að verðmætum nýjum vörum á örskotsstundu. Þegar horft er um öxl virðist það hreinlega hafa verið óhjá- kvæmilegt að á stað eins og Sjávar- klasanum gerist galdrar þar sem tveir plús tveir verða fimm. En undraverður árangur Íslenska sjávarklasans kom alls ekki af sjálfu sér. Vanda þurfti til verka, beina starfinu innan klasans í réttan farveg, og með markvissum hætti skapa um- gjörð sem myndi hvetja fólk til dáða og virkja alla þá krafta sem hægt var að nýta bæði innan og utan klasans. Þór Sigfússon er stofnandi Ís- lenska sjávarklasans og eru núna lið- in átta ár frá því fyrstu nýsköp- unarfyrirtækin komu sér fyrir í húsi klasans í gömlu Bakkaskemmunni við Grandagarð. Húsið sem eitt sinn var hafnarskemma, svo kæligeymsla, fiskmarkaður, og flottrollaverkstæði, iðar í dag af lífi og er heimili um 70 fyrirtækja sem framleiða allt frá snyrtivörum og heilsudrykkjum yfir í hugbúnað og fiskeldistæki. Áhugi úr öllum áttum Í nýrri bók sem Þór hefur skrifað rekur hann sögu Íslenska sjávarklas- ans og fer í saumana á þeim áskor- unum sem þurfti að takast á við. Út- koman er rit sem bæði er forvitnileg sagnfræðileg heimild en líka gagnleg handbók um farsælt klasastarf. Bók- in heitir The New Fish Wave og er gefin út af Leete‘s Island Books í Bandaríkjunum. Þór segir að með rit- inu sé hann m.a. að bregðast við þeim mikla fjölda fyrirspurna sem Ís- lenska sjávarklasanum berast frá fólki í öllum heimshlutum sem langar að beita sömu nálgun til að örva ný- sköpun í sjávarútvegi og tengdum greinum. En hvað er það sem þarf? Hverju má þakka árangurinn? Þór segir að það hafi haft mikla þýðingu að ný- sköpun í sjávarútvegi var þegar kom- in nokkuð vel á veg á Íslandi og hefð fyrir athafnasemi, sköpunar- og til- raunagleði í greininni. „Þegar Sjávar- klasinn kemur til sögunnar getum við byggt á áratugalöngu starfi í átt að fullvinnslu afurða, og áratugalöngum rannsóknum á íslensku sjávarfangi. Með þetta veganesti áttum við auð- veldara með að setja okkur í stell- ingar til að gera enn betur, enda búið að ryðja brautina.“ En ef brautin hafði þegar verið rudd, þá má segja að Þór og félagar hafi mætt á staðinn með malbik- unarvél og búið til hraðbraut. Mátti greina, fljótlega eftir stofnun Sjáv- arklasans árið 2011, að starfsemin þar var tekin að breyta viðhorfi sam- félagsins til sjávarútvegsins og um leið lækka þröskuldinn fyrir fólk með góðar hugmyndir að láta þá þær reyna og setja sprotafyrirtæki á lagg- irnar. Þór minnist þess að þegar hann var að fara af stað hafi margir haft á orði við hann að það væri kannski betra að beina kröftunum í nýsköpun í öðrum atvinnugreinum, enda færi vægi sjávarútvegs minnkandi á með- an aðrir geirar væru í örum vexti. „Ég man eftir fundi sem ég tók þátt í með stofnendum um 50 nýsköpunar- fyrirtækja og sprotum í byrjun árs 2011. Þar bað ég gesti um að rétta upp hönd ef þeir hefðu hugmyndir sem tengdust hafinu og sjávarútveg- inum – en engin einasta hönd fór á loft. Þessu vildi ég breyta,“ segir hann. Áhrifin meiri en flestir héldu Meðal fyrstu verkefna Þórs var kort- leggja betur þjóðhagsleg áhrif sjáv- arútvegsins í samstarfi við dr. Ragn- ar Árnason hagfræðiprófessor. „Þegar aðeins var horft til veiðanna sjálfra leit út fyrir að greinin færi smám saman dalandi, en allt önnur mynd kom í ljós þegar sjávarhag- kerfið var skoðað í heild sinni, og ný- sköpunarfyrirtækin og stoðþjónustan tekin með. Blasti þá við að bæði var mikilvægi greinarinnar mun meira en flestir höfðu áttað sig á og sjáv- artengd starfsemi í örum vexti.“ Þessar staðreyndir gat Sjávarklas- inn kynnt fyrir allri þjóðinni, og sam- hliða því beint kastljósinu að hverju áhugaverðu nýsköpunarverkefninu á fætur öðru. Lærði Þór snemma að það væri lykilatriði í árangursríku klasastarfi að geta reglulega bent á nýja sigra og framfarir og hafa frum- kvöðlarnir hjá Sjávarklasanum m.a. verið reglulegir gestir á síðum Morg- unblaðsins þar sem þau segja frá mergjuðum uppfinningum, nýjum vörum, framförum í hönnun tækja og tóla, eða dýrmætum viðskiptatæki- færum innan seilingar fyrir greinina. Með þessu tókst að auka meðbyrinn jafnt og þétt, og fá fleira hugmynda- og hæfileikaríkt fólk til að skoða bet- ur tækifæri tengd nýsköpun í sjávar- útvegi. Þá segir Þór að það hafi verið ómetanlegt fyrir Íslenska sjávarklas- ann að rótgróin fyrirtæki í greininni og leiðtogar atvinnulífsins fylktu sér á bak við starfsemina og voru boðin og búin að vera sprotafyrirtækjunum innan handar. Háskóla- og vísinda- samfélagið tók Sjávarklasanum líka opnum örmum og var það oft innan háskólanna að góðum hugmyndum var ungað út sem svo urðu að fyr- irtækjum innan Sjávarklasans. „Ann- að lykilatriði í árangrinum und- anfarin átta ár er vaxandi framboð samkeppnissjóða sem bæði hafa auð- veldað fjármögnun nýsköpunarverk- efna en líka hvatt fólk og fyrirtæki til að vinna saman,“ segir Þór. Loks rann það fljótlega upp fyrir stjórnendum Sjávarklasans að það efldi starfið ef allir gætu stefnt að sameiginlegu markmiði. „Eins mikið og það styrkir og eflir fyrirtækin í klasanum að vinna reglulega stóra og smáa sigra á sínu sviði þá er líka brýnt að hafa heildarmarkmið sem allir vilja ná. Í okkar tilviki varð það rauður þráður í öllu starfi Sjávarklas- ans að vinna jafnt og þétt að því að fullnýta aflann, undir yfirskriftinni 100% fiskur.“ Vöxtur og útrás heldur áfram Ævintýrið virðist vera rétt að byrja og nú þegar Sjávarklasinn hefur breitt svo mikið úr sér að fyllir alla Bakkaskemmuna er Þór farinn að leiða hugann að því að koma upp svip- aðri starfsemi annars staðar á land- inu. „Okkur berast beiðnir frá hinum ýmsu löndum Evrópu, Suður- Ameríku og vitaskuld Bandaríkj- unum, þar sem athafnasömu fólki er mjög í mun að koma í heimsókn til okkar að kynna sér starfsemina svo þau geti sett eitthvað svipað á lagg- irnar á sínum heimamarkaði. Vonum við að íslenska sjávarklasamódelið, og þessi hugmyndafræði sem við höf- um starfað eftir, muni verða til þess að um allan heim veðri tekin skref í þá átt að nýta auðlindir hafsins betur, og af meiri virðingu fyrir náttúr- unni,“ segir Þór. „Með því skapast líka tækifæri til að byggja upp al- þjóðlegt tengslanet, ekki aðeins til að greiða leið íslenskra fyrirtækja út í heim, heldur líka til að auðvelda okk- ur að læra af öðrum þjóðum og efla okkur á þeim sviðum þar sem aðrir eru miklu færari.“ Gátu byggt á langri hefð nýsköpunar og rannsókna Bókin The New Fish Wave fer yfir merkilega sögu Íslenska sjávar- klasans og nýtist um leið sem handbók fyrir alla þá sem vilja reka nýsköpunarklasa með góðum árangri. Morgunblaðið/Eggert Þór Sigfússon segir að góður stuðningur öflugra fyrirtækja og áhugi leiðtoga atvinnulífsins hafi skipt sköpum, sem og samstarf við háskóla- og vísindasamfélagið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Það tók enga stund að fylla húsið af drífandi frumkvöðlum og hefur mikil verðmætasköpun átt sér stað hjá Sjávarklasanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.