Morgunblaðið - 07.02.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.02.2020, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is S jávarútvegssýningin Ice- Fish verður haldin í þrett- ánda sinn í Kópavogi í haust en fyrsta sýningin var haldin 1984. Marianne Rasm- ussen-Coulling, viðburðastjóri hjá Mercator Media, segir sýninguna hafa breyst mikið á þessum tíma og komst fyrsta sýningin fyrir á 5.000 fermetra svæði og var meiri- hluti sýnenda innlend fyrirtæki. „Þetta var aðallega fyrir íslenska markaðinn en sýningin höfðar nú til atvinnugreinarinnar á heims- vísu,“ segir hún og bendir á að um 13 til 14 þúsund gestir sækja sýn- inguna frá 52 löndum. Nú þegar eru tæpir 9 mánuði í að sýningin verður haldin hefur þegar tekist að bóka um 60% af sýningarplássinu, að sögn Rasm- ussen-Coulling. „Þetta er sam- bærileg bókunarstaða á sama tíma 2017. Við höfum fundið fyrir mikl- um áhuga meðal íslenskra og al- þjóðlegra fyrirtækja. Meðal ann- ars eru skipulagðir sýningarhópar frá Noregi, Danmörku, Færeyjum, Bretlandi, Kanada og í fyrsta sinn í sögu sýningarinnar verður spænskur skáli þar sem eru átta fyrirtæki, þar af eru sjö skipa- smíðastöðvar. Einnig er ein skipa- smíðastöð frá Spáni sem er ekki í þessum hópi.“ Vaxandi alþjóðlegur áhugi Hún segir skipuleggjendur hafa tekið sérstaklega eftir því að áhugi skipasmíðastöðva hafi aukist veru- lega og telur að það megi líklega rekja orsök þess til umfang ný- smíða íslenskra útgerða á undan- förnum misserum. Spurð hvort alþjóðlegur áhugi á IceFish fari vaxandi svarar Rasm- ussen-Coulling: „Tvímælalaust. Við sjáum þróun í þá átt. 2017 jókst þátttaka alþjóðlegra sýnenda um 41% og við sjáum nú aukna þátttöku fyrirtækja sem tengjast vinnslu og skipasmíðum. Þessi al- þjóðlegu fyrirtæki vilja koma til Íslands til þess að fá að verða þátt- takendur í þessum árangursríka geira.“ Viðburðastjórinn segir einnig áhuga erlendra aðila fela í sér tækifæri fyrir íslensk fyrir- tæki. „Þetta er auðvitað sýning þar sem íslenskum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum gefst tæki- færi til þess að sýna hvað þau geta gert á heimavelli, ekki bara ís- lenskum aðilum heldur einnig al- þjóðlegum gestum.“ En það er meira en bara að sýna sig og sjá aðra sem mun fara fram í Kópavoginum. „Við erum í sam- starfi við Enterprise Europe og Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem munu aðstoða aðila við að finna fyrirtæki sem bjóða það sem verið er að leita að og koma á fundum á meðan sýningu stendur. Árangur af þessu á síðustu sýningu var að haldnir voru yfir 90 fundir og við hyggjumst halda þessu áfram.“ Nýting í fyrirrúmi Að venju verða veiðar og tækniþróun fyrirferðarmiklar á IceFish þetta árið, en að þessu sinni verður einnig lögð áhersla á að koma til móts við vaxandi mik- ilvægi nýtingar afurða, að sögn Rasmussen-Coulling. „Það sem við erum að leggja áherslu á að þessu sinni er það sem við köllum virð- isaukagreinar sem snúa að vaxandi þætti fiskvinnslu, fiskeldi og nýt- ingu aukaafurða, en á því sviði hafa Íslendingar verið miklir brautryðjendur. Við viljum að sýn- ingin endurspegli þessar breyttu áherslur og munum halda sérstaka ráðstefnu um hvernig hægt er að hagnast á því sem áður hefur verið talið úrgangur.“ Þrátt fyrir að sýningin verði ef- laust fræðandi og skemmtileg, verður ekki hjá því komist að margir spyrji sig hvort sýninga sé þörf á 21. öldinni þegar tiltækar eru fjölbreyttar tæknilausnir sem einfalda samskipti. „Staðreyndin er sú að það fæst eitthvað með því að ræða saman augliti til auglitis sem stafrænn heimur getur ekki gefið okkur. Auk þess er það þann- ig í þessum stafræna heimi að allt sem við gerum byggist á að við verðum að ákveða fyrirfram hverju við viljum sækjast eftir. Hins veg- ar er raunin önnur á sýningum. Þar er ávallt eitthvað sem kemur manni á óvart og maður uppgötvar eitthvað sem maður vissi ekki af, þannig eru sýningar mjög frá- brugðnar því sem gerist á öðrum vettvangi,“ segir Rasmussen- Coulling. 500 fyrirtæki Spurð hvort hún geti eitthvað sagt um stærð sýningarinnar að þessu sinni, kveðst viðburðastjórinn al- mennt ekki spá svona langt fram í tímann, „en ef við lítum til sýning- arinnar sem við héldum síðast er- um við að tala um 250 bása og um 500 fyrirtæki. Miðað við að bók- unarstaðan er svipuð milli ára ger- um við ráð fyrir svipaðri stærð. Ef þessi bókunarhraði heldur áfram mæli ég með að fólk bíði ekki of lengi, því lengur sem beðið er því minna er úr að velja. Við er- um með 40% af sýningarrýminu eftir og ef fyrirtæki eru með sér- stakar óskir um hvar þau vilja vera staðsett er það núna sem þarf að gefa frá sér merki.“ Ekki lengur bara fyrir íslenska markaðinn Sjávarútvegssýningunni IceFish vex fiskur um hrygg og mun í fyrsta sinn í sögu hennar vera spænskur skáli. Jafnframt verður áhersla lögð á leiðir til fullnýtingar afurða. Búast má við gestum frá 52 löndum á IceFish, að sögn Marianne Rasmussen-Coulling, viðburðastjóri hjá Mercator Media. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ etta fer af stað á þriðjudag í næstu viku. Þá munum við hitta SFS og afhenda þeim okkar kröfur og þeir af- henda sínar. Þetta verður fyrsti samningafundurinn, en við erum búin að eiga marga fundi á samn- ingstímanum,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands. Hann segir fundina á samningstímanum hafa verið um 40 og á þeim hafi verið ræddar ýmsar bókanir í kjarasamn- ingi sjómanna. „En það eru ekki efnislegar breytingar á samningi heldur bókanir í sambandi við hvíld- artíma, styttingu á samningum og einföldun.“ Spurður hvort hann sé vongóður um að samningar náist svarar for- maðurinn: „Við vorum nú samn- ingslausir í sex ár síðast, það eru bara komnir um tveir mánuðir núna. Við erum hóflega bjartsýnir. Okkur ber náttúrlega skylda til að reyna að ná samningi og það er markmiðið. Við erum tilbúnir í al- vöruviðræður og vonandi þeir líka. Það stendur ekki á okkur að setjast niður.“ Hann segist ekki getað tjáð sig um kröfur félagsins að svo stöddu, en að þær liggja fyrir og séu undir höndum samninganefndar. „Við vilj- um fá að koma þeim á framfæri við okkar viðsemjendur áður en við för- um að básúna um það í fjölmiðlum. En vissulega eru þetta kröfur sem eru þess eðlis að þær eru til hags- bóta fyrir sjómenn.“ Er spurt er hvort hætta sé á öðru sjómanna- verkfalli segir Valmundur ekki tímabært að tjá sig um það. „Það veit maður aldrei en við verðum að byrja að tala saman áður en við ákveðum eitthvað um það.“ Binda vonir við samanburð Samninganefnd Sjómannasambands Íslands skoraði nýverið á stjórnvöld að láta fara fram óháða rannsókn á söluvirði afurða í íslenskum sjávar- útvegi og hefur Norræna ráðherra- nefndin ákveðið að veita styrk af fjárlögum nefndarinnar til rann- sóknar á launakerfi í sjávarútvegi í norrænu ríkjunum. Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávar- útvegsráðherra, átti frumkvæði að úttektinni og sagði hann að leitast yrði „við að greina og lýsa launa- kerfi í sjávarútvegi í norrænu ríkj- unum, þróun þess og skiptingu fisk- veiðirentu milli sjómanna, eigenda skipa og handhafa aflakvóta. Þetta er jákvætt og gott. Ef við fáum einhvern raunhæfan saman- burð – hvernig sé gert upp við sjó- menn í Noregi, Færeyjum og á Ís- landi. Það á eftir að koma í ljós hvernig þetta verður. Það er stefnt á að kynna þetta í haust og við von- um að þessari vinnu verði lokið á þessum tíma og svo verða teknar ákvarðanir í framhaldinu á grund- velli þess sem við teljum okkur sjá út úr niðurstöðunum,“ segir Val- mundur. „Við treystum því að það hljóta að vera skattayfirvöld sem skoða milliverðlagningu, ef það sé rétt að menn séu að selja sjálfum sér út og svo á hærra verði áfram sem skilar sér ekki heim. Ég fullyrði ekki að svo sé,“ segir formaðurinn spurður um orðróm um óeðlilegan verðmun afurða sem atvinnuvegaráðuneytið hefur til athugunar. „Grunur hefur verið mjög sterkur og lengi í loft- inu. Menn hafa fullyrt þetta í okkar eyru. Við höfum ekki séð neitt á pappír sem styður þetta mál, en orðrómurinn er til staðar og ef hann er ósannur koma fram sann- anir um það að þetta sé í lagi.“ Grettistak í öryggismálum Valmundur kveðst vilja vekja sér- staka athygli á því að enginn hafi farist á sjó á síðasta ári sem er þriðja árið í röð. „Öryggi er númer eitt, tvö og þrjú á sjónum. Við höf- um lyft grettistaki í þessum málum sjómannasamtökin og ekki síst slysavarnaskóli sjómanna á undan- förnum áratugum. Það þótti ekkert tiltökumál fyrir um 40 árum þegar ég var að byrja á sjó að 20 færust á ári. Það var einhvern veginn í okkur að þetta væri bara svona, en auðvit- að var þetta hugsanavilla. Þetta á ekki að vera svona og við erum að ná árangri.“ Formaðurinn ítrekar mikilvægi öryggis á sjónum svo að sjómenn komist heilir heim. Hefja viðræður í næstu viku Kjaraviðræður Sjó- mannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hefjast á þriðjudag. Formaður sjómanna kveðst hóflega bjartsýnn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Valmundur Valmundsson, formaður SÍ, segir jákvætt að standi til að bera saman laun sjómanna á Norðurlöndunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.