Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 15
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 15
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
L
eifur Magnússon, sviðstjóri
upplýsingatæknisviðs Fiski-
stofu, segir forritið verða til
mikils hægðarauka fyrir sjó-
menn. Það sem skipti Fiskistofu þó
mestu máli sé rekjanleiki gagnanna
og auknir möguleikar til eftirlits
með fiskveiðum.
Eins og fram
kemur á vef
Fiskistofu skila
stærri skip svo-
kölluðum rafræn-
um afladagbók-
um til Fiskistofu.
Flestallir smá-
bátar undir tíu
brúttótonnum
hafa hinsvegar
skilað afladag-
bókum inn á
pappírsformi. Nú verður hins vegar
sú breyting á að sjómenn munu með
tilkomu smáforritsins slá upplýsing-
arnar beint inn í appið.
Mikill áhugi
Leifur segist nú þegar hafa orðið
var við mikinn áhuga á appinu en
skiljanlega gæti það tekið tíma fyrir
einhverja að venjast notkun þess.
Því verði boðið upp á aðlögunar-
tímabil þar sem þeir sem það vilja
geti haldið áfram að nota pappírs-
dagbækurnar um sinn. „Ég sé fyrir
mér að appið verði komið í fulla
notkun í sumar þegar strandveið-
arnar hefjast. Þá munu hundruð
báta fara á sjó og gögnin byrja að
streyma til okkar. Það verður stóra
prófið,“ segir Leifur.
Afladagbókin virkar þannig að
eingöngu þarf að vera í síma- eða
netsambandi við upphaf og lok
veiðiferðar. Appið skráir sjálfkrafa
staðsetningu bátsins við veiðar og
skipstjórnarmenn skrá afla, ástand
hans og meðafla með einföldum
hætti í forritinu, ásamt því sem
veiðarfæri eru skráð, veðurfar og
fleira. Þá geymir appið gögn yfir
fyrri veiðiferðir þannig að hægt
verður að skoða aflabrögð aftur í
tímann og sjá tölfræði um veið-
arnar.
Leifur segir að upplýsingarnar úr
gömlu pappírsbókunum nýtist
Fiskistofu í sjálfu sér ekki mikið,
enda hafi sjómenn mjög rúman tíma
til að skila bókunum inn. „Þegar við
fáum þær til okkar staðfestum við
móttöku þeirra og sendum þær svo
til Hafrannsóknastofnunar. Þar eru
upplýsingarnar slegnar inn í gagna-
grunn, sem er tímafrekt ferli. Með
nýja forritinu fáum við upplýsing-
arnar til okkar áður en bátarnir
koma að landi.“
Nýtist hafnarstarfsmönnum
Leifur segir að upplýsingarnar
sem koma úr appinu nýtist einnig
hafnarstarfsmönnum sem vinna við
vigtun aflans. Upplýsingarnar munu
í framtíðinni streymi inn í þeirra
kerfi og vigtarmenn geta borið þann
afla sem skráður er í appið á leið í
land saman við þann afla sem er
vigtaður þegar í land er komið.
„Appið getur líka látið vita ef til
dæmis einn bátur af tíu, sem allir
hafa verið að veiðum á sama svæði,
eru með mjög ólíka aflasamsetn-
ingu. Þá þarf að skoða það nánar.“
Leifur segir að Fiskistofa sé einn-
ig með í smíðum kerfi fyrir þá aðila
sem hafa leyfi til að endurvigta
aflann í vinnsluhúsi. „Sumir vilja
vigta aflann án íssins sem notaður
er til kælingar á fiskinum, og hafa
til þess sérstakt leyfi. Appið mun
einnig nýtast inn í það kerfi.“
Þróun ríkisins tímaskekkja
Gervigreind mun nýtast við að
rýna í gögnin sem koma úr appinu
að sögn Leifs. „Með því að nota t.d.
gervigreind geturðu séð ýmislegt út
úr gögnunum sem þú sæir ekki með
eigin augum.“
Rafræna afladagbókin sem
minnst var á hér að ofan, og stærri
skipin í flotanum nota, er komin til
ára sinna að sögn Leifs. Hann segir
að nú í kjölfar smíðarinnar á appinu
verði farið í að smíða sérstaka gátt
fyrir stærri skipin sem taki við
gögnum frá þeim. „Við ætlum að
hætta að framleiða PC tölvuforrit
og senda út á flotann. Það er komið
talsvert af aðilum á markaðnum
sem hafa áhuga á að þróa svona
búnað. Það er tímaskekkja að ríkið
sé að þróa og viðhalda svona stórum
forritum og senda út um allt með
tilheyrandi flækjum. Okkar hlut-
verk er einfaldlega að taka við
gögnunum, geyma þau, rýna í þau
og opna á aðgang að þeim.“
Afladagbókin í fulla notkun í sumar
Fiskistofa hefur látið
smíða, í samstarfi við
Hafrannsóknastofnun
og hugbúnaðarfyrir-
tækið Stokk, smáforritið
Afladagbókina.
Leifur
Magnússon
Breytingarnar munu
færa veiðar og eftirlit
inn í 21. öldina og
kemur gervigreind að
úrvinnslu gagna.
Það verður tvímælalaust
búið að einfalda skil á
afladagbókum þegar smá-
forrit kemur í stað pappírs.
Það er hins vegar ekki
vitað hvernig tekið verður
við þessari nýjung.