Morgunblaðið - 07.02.2020, Side 15

Morgunblaðið - 07.02.2020, Side 15
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 15 Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is L eifur Magnússon, sviðstjóri upplýsingatæknisviðs Fiski- stofu, segir forritið verða til mikils hægðarauka fyrir sjó- menn. Það sem skipti Fiskistofu þó mestu máli sé rekjanleiki gagnanna og auknir möguleikar til eftirlits með fiskveiðum. Eins og fram kemur á vef Fiskistofu skila stærri skip svo- kölluðum rafræn- um afladagbók- um til Fiskistofu. Flestallir smá- bátar undir tíu brúttótonnum hafa hinsvegar skilað afladag- bókum inn á pappírsformi. Nú verður hins vegar sú breyting á að sjómenn munu með tilkomu smáforritsins slá upplýsing- arnar beint inn í appið. Mikill áhugi Leifur segist nú þegar hafa orðið var við mikinn áhuga á appinu en skiljanlega gæti það tekið tíma fyrir einhverja að venjast notkun þess. Því verði boðið upp á aðlögunar- tímabil þar sem þeir sem það vilja geti haldið áfram að nota pappírs- dagbækurnar um sinn. „Ég sé fyrir mér að appið verði komið í fulla notkun í sumar þegar strandveið- arnar hefjast. Þá munu hundruð báta fara á sjó og gögnin byrja að streyma til okkar. Það verður stóra prófið,“ segir Leifur. Afladagbókin virkar þannig að eingöngu þarf að vera í síma- eða netsambandi við upphaf og lok veiðiferðar. Appið skráir sjálfkrafa staðsetningu bátsins við veiðar og skipstjórnarmenn skrá afla, ástand hans og meðafla með einföldum hætti í forritinu, ásamt því sem veiðarfæri eru skráð, veðurfar og fleira. Þá geymir appið gögn yfir fyrri veiðiferðir þannig að hægt verður að skoða aflabrögð aftur í tímann og sjá tölfræði um veið- arnar. Leifur segir að upplýsingarnar úr gömlu pappírsbókunum nýtist Fiskistofu í sjálfu sér ekki mikið, enda hafi sjómenn mjög rúman tíma til að skila bókunum inn. „Þegar við fáum þær til okkar staðfestum við móttöku þeirra og sendum þær svo til Hafrannsóknastofnunar. Þar eru upplýsingarnar slegnar inn í gagna- grunn, sem er tímafrekt ferli. Með nýja forritinu fáum við upplýsing- arnar til okkar áður en bátarnir koma að landi.“ Nýtist hafnarstarfsmönnum Leifur segir að upplýsingarnar sem koma úr appinu nýtist einnig hafnarstarfsmönnum sem vinna við vigtun aflans. Upplýsingarnar munu í framtíðinni streymi inn í þeirra kerfi og vigtarmenn geta borið þann afla sem skráður er í appið á leið í land saman við þann afla sem er vigtaður þegar í land er komið. „Appið getur líka látið vita ef til dæmis einn bátur af tíu, sem allir hafa verið að veiðum á sama svæði, eru með mjög ólíka aflasamsetn- ingu. Þá þarf að skoða það nánar.“ Leifur segir að Fiskistofa sé einn- ig með í smíðum kerfi fyrir þá aðila sem hafa leyfi til að endurvigta aflann í vinnsluhúsi. „Sumir vilja vigta aflann án íssins sem notaður er til kælingar á fiskinum, og hafa til þess sérstakt leyfi. Appið mun einnig nýtast inn í það kerfi.“ Þróun ríkisins tímaskekkja Gervigreind mun nýtast við að rýna í gögnin sem koma úr appinu að sögn Leifs. „Með því að nota t.d. gervigreind geturðu séð ýmislegt út úr gögnunum sem þú sæir ekki með eigin augum.“ Rafræna afladagbókin sem minnst var á hér að ofan, og stærri skipin í flotanum nota, er komin til ára sinna að sögn Leifs. Hann segir að nú í kjölfar smíðarinnar á appinu verði farið í að smíða sérstaka gátt fyrir stærri skipin sem taki við gögnum frá þeim. „Við ætlum að hætta að framleiða PC tölvuforrit og senda út á flotann. Það er komið talsvert af aðilum á markaðnum sem hafa áhuga á að þróa svona búnað. Það er tímaskekkja að ríkið sé að þróa og viðhalda svona stórum forritum og senda út um allt með tilheyrandi flækjum. Okkar hlut- verk er einfaldlega að taka við gögnunum, geyma þau, rýna í þau og opna á aðgang að þeim.“ Afladagbókin í fulla notkun í sumar Fiskistofa hefur látið smíða, í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og hugbúnaðarfyrir- tækið Stokk, smáforritið Afladagbókina. Leifur Magnússon Breytingarnar munu færa veiðar og eftirlit inn í 21. öldina og kemur gervigreind að úrvinnslu gagna. Það verður tvímælalaust búið að einfalda skil á afladagbókum þegar smá- forrit kemur í stað pappírs. Það er hins vegar ekki vitað hvernig tekið verður við þessari nýjung.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.