Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hátæknivæðing sjávarútvegsins hér á landi hefur vakið mikla athygli á undan- förnum misserum og er oft talað um að fjórða iðnbyltingin hafi hafið göngu sína af fullum krafti á Íslandi. Rætt er um hátækniþróun fiskvinnsluvéla á Íslandi af miklu stolti, en það hefur ekki alltaf verið svo að Íslendingar hafi tekið tækninni opnum örmum. Meðal annars var haft eftir Sighvati Bjarnasyni, forstjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í Morgunblaðinu í október 1960: „Ef nægur mannafli væri fyrir hendi mundi ég leggja flökunarvélarnar til hliðar, enda þótt það þurfi 25 menn til að afkasta jafnmiklu og ein þorsk- eða ýsuflökunarvél.“ Taldi hann að nýting hráefnis væri mun slakari er vélar væru notaðar. Þótti sumum ástæða til þess að svara þessum orðum Sighvats og varð nokkur umræða á síðum blaðsins um notagildi þessara véla. Tekist á um tæknina Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is F iskvinnsluvélar eru orðnar óhjákvæmilegur þáttur í ís- lenskum sjávarútvegi, en það var ekki alltaf raunin. Með fyrstu fiskvinnsluvélum á Ís- landi voru þær vel þekktu frá Baader í Lýbekk í Þýskalandi, sem verður 101 árs á þessu ári. Baader á Íslandi verður 61 árs á árinu og hefur fyrirtækið því fylgt þjóðinni á mesta hagsældarskeiði Íslands- sögunnar, ef til vill hafa Baader- vélarnar átt sinn þátt í þeim fram- förum. „Alvöruafköst hófust ekki fyrr en Baader kom til Íslands. Fram- an af var bara handflökun,“ segir Jón Valur Valsson, sölu- og mark- aðsstjóri Baader á Íslandi, en hann þekkir söguna vel enda barnabarn Ulrichs Marths sem flutti talsvert magn af þessum tækjum til Ís- lands frá Þýskalandi á sínum tíma. „Baader 99 var eiginlega komið fyrir í hverju einasta frystihúsi sem reist hefur verið á Íslandi. Þetta var upphafið að vélvæðing- unni.“ Tækni byggð á Baader „Baader kemur með hausingavél, flökunarvél og roðfléttivélar. Þetta er grunnurinn í allri fiskvinnslu og þessar vélar eru búnar að vinna nánast eins í þrjátíu eða fjörutíu ár. Allir sem hafa komið á eftir Baader á Íslandi byggja á þessari tækni. En svo koma stór fyrirtæki eins og Marel og Valka og þeir taka gjarnan við flakinu þegar bú- ið er að roðdraga og skera það nið- ur í réttar þyngdir og pakka því,“ útskýrir Kristján Leifsson, þjón- ustustjóri fyrirtækisins. „Það eru auðvitað sveiflur í þessu. Eftir að kvótakerfinu er komið á fara menn að frysta á sjó. Þá fara menn að flytja þessar gömlu Baader-vélar um borð í skipin og það voru uppgangstímar í mörg ár. Svo fyrir nokkrum ár- um hætta menn að frysta á sjó, þetta eru ekki nema þrjú eða fjög- ur skip sem frysta á sjó í dag en voru um 60. Nú er aflinn unninn í landi aftur,“ segir Kristján, sem starfað hefur hjá fyrirtækinu í um aldarfjórðung. Sinna útköllum víða Baader-vélar hafa margar hverjar verið í notkun í áratugi og smíð- aðar til að endast, að sögn Krist- jáns. Þetta veldur því að víða er ekki endilega verið að kaupa nýjar vélar, en það getur gert að verkum að það skortir varahluti í eldri vél- ar. Það er hins vegar ekki vanda- mál, þar sem fyrirtækið rekur um- fangsmikið renniverkstæði og getur smíðað varahluti eftir pönt- unum. Hann segir ekki óalgengt að beiðnir komi til fyrirtækisins utan úr heimi þar sem það getur tekið mun lengri tíma að fá varahluti frá framleiðandanum í Þýskalandi. Jón Valur segir hins vegar ekki einungis koma beiðnir um vara- hluti að utan heldur sé einnig sóst eftir þekkingu starfsmanna sem hann segir jafnvel vera fremstu sérfræðinga á sviði Baader-véla í heimi. „Það er lítil starfsmanna- velta hjá okkur og eru tveir með 40 ára reynslu hjá fyrirtækinu. Kristján er nýr, hann er bara bú- inn að vera hérna í 25 ár,“ segir hann og hlær. „Það er alltaf að aukast að beðið sé um menn frá okkur um allan heim,“ bætir hann svo við. Á renniverkstæðinu starfa sjö og nýtist það einnig til að þjónusta önnur fyrirtæki. „Langst af var það að vinna um helming fyrir okkur og helming fyrir utanað- komandi. Unnið mikið fyrir Össur, Marel og Völku,“ segir Kristján. Leita á erlend mið Enn er sóst í Baader-vélar en rekstrarumhverfi fyrirtækisins er nokkuð breytt frá því sem áður var, að sögn félaganna tveggja. Þeir segja talsverða endurnýjun á sviði síldveiða í gangi á Íslandi þessa dagana, en benda á að sala félagsins sé alls ekki bundin við að selja þýskar vélar hér á landi. Fyrirtækið framleiðir nokkrar teg- undir véla sjálft undir merkjum ÍS og eru þær í 80 til 90% tilfella fluttar til útlanda. „Við seljum til Bandaríkjanna, Kanada og Síle,“ segir Kristján. „Nýja-Sjálands, Ástralíu, Sádi-Arabíu og Ísraels,“ bætir Jón Valur við. Þeir segja eigin framleiðslu Baa- der á Íslandi stöðugt gegna stærra hlutverki og að mesta vinnan fari fram á nýjum mörkuðum, en fyrir- tækið hefur smíðað ÍS-vélar í um 30 ár. „Við erum meðal annars að sækja meira inn í Bandaríkin með okkar vélar og því fylgir talsverð vinna, sem tengist meðal annars reglugerðum sem þarf að uppfylla og slíkt,“ útskýrir Jón Valur sem jafnframt bendir á að kerfisbreyt- ingar sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á hafi haft nokkur áhrif á þessa hlið rekstrar Baader á Ís- landi. „Í kjölfar þess að ég byrjaði hjá fyrirtækinu fór að aukast salan á svokölluðum saltfiskhausara, en það var aðallega vegna breyttrar reglugerðar í Noregi sem gerði það að verkum að það þurfti að koma með alla hausa í land. Þá hættu allir að handhausa á smá- bátunum.“ Þetta varð til þess að talsverð eftirspurn myndaðist eftir haus- ingavélum í Noregi og tókst að selja slíkar þangað í tugatali, að sögn sölustjórans. „Við fluttum út á þessu tímabili vélar í gámavís, það komust einhverjar sex til átta vélar í hvern gám og fóru þeir frá okkur annan hvern mánuð,“ segir Kristján. Önnur tækifæri í laxinum Er spurt er að því hvort aukið fiskeldi skapi frekari vaxtarskilyrði svara þeir báðir tvímælalaust ját- andi. Kristján bendir á að fyrir um 10 árum þegar Baader kynnti nýja vél undir laxvinnslu hafi norsk fyrirtæki keypt gríðarlegan fjölda um leið. „Fyrir tveimur árum kom aftur ný vél og þá fór þetta aftur að ger- ast,“ bætir Jón Valur við. „Þar er verið að keyra á sjálfvirkni. Lax- inn er mataður í vélina sjálfkrafa og slægður. Svo er myndavélakerfi til þess að athuga hvort hann sé nógu vel slægður. Hann er með sjálfvirkum hætti settur í kassa og merktur, þannig að ef kúnni gerir athugasemd er hægt að fletta upp mynd af þessum fiski. Við erum að tala um kannski 170 tonn af laxi á dag og hægt er að finna þennan eina sem kvartað er yfir.“ Jón Valur bendir á að Arnarlax á Bíldudal noti þrjár sérhæfðar vélar frá Baader undir vinnslu á laxi. „Það eru allt önnur tækifæri í laxinum.“ Kjölfestan í vélvæðingu fiskvinnslu Morgunblaðið/RAX Kristján Leifsson og Jón Valur Valsson segja lykilinn að langlífi hins sögufræga fyrirtækis Baader vera starfsfólkið. Vélar frá Baader í Þýskalandi hafa fylgt íslenskum sjávarútvegi í meira en hálfa öld, en útflutningur verður stöðugt stærri hluti af rekstri Baader á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.