Morgunblaðið - 04.03.2020, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
biljofur.is
Verkstæði // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
544 5151
Tímapantanir
Sigurðu Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Íþróttastarf í borginni er enn með
hefðbundnu móti en við höfum uppi
allar nauðsynlegar varúðarráðstaf-
anir. Neyðarstjórn Reykjavíkur-
borgar leggur línurnar í öllum við-
búnaði og samkvæmt því erum við
viðbúin því að loka þurfi íþrótta-
húsum, sundlaugum og öðru ef al-
varlegar aðstæður skapast,“ segir
Steinþór Einarsson hjá íþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkurborgar.
„Við erum einnig í nánu samstarfi
við íþróttafélögin úti í hverfunum
sem hafa upplýst til dæmis foreldra
um stöðuna, en upplýsingar skipta
öllu máli eins og málin blasa við okk-
ur nú,“ segir Steinþór ennfremur.
Íþróttafélög vara við
Á vefsetrum íþróttafélaga í
Reykjavík hefur verið vakin athygli
á leiðbeiningum sóttvarnalæknis í
tengslum við kórónuveiruna og fólk
hvatt til þess að fylgjast með upplýs-
ingum. Hafa einnig í huga að skil-
greiningar á svæðum með viðvar-
andi smit geta breyst hratt. Í
tilkynningu frá Árbæjarfélaginu
Fylki kemur fram að félagið hafi
gefið út til þjálfara að forðast óþarfa
snertingar milli iðkenda og starfs-
manna. Einnig að þjálfarar brýni
fyrir iðkendum að þvo sér reglulega
um hendur.
Hjá Reykjavíkurborg hefur verið
fundað reglulega síðan fyrir helgi
eða frá því Almannavarnir lýstu yfir
hættustigi vegna kórónuveirunnar.
Upplýsingamiðlun er aðalatriði að-
gerða og svo aukin þrif í húsum í
eigu borgarinnar. Í því skyni hefur
borgarráð samþykkt aukafjárveit-
ingu. Er þar sérstaklega horft til
þess að bæta hreinlæti á stofnunum
þar sem fólk er í viðkvæmri stöðu,
aldraðir, fatlað fólk og fleiri.
„Við vinnum með öllum sviðum við
að koma upplýsingum til stjórnenda
og síðan notenda, til dæmis nem-
enda í skólum og foreldra þeirra.
Svo er verið að vinna í að endurnýja
nauðsynlegar undanþágubeiðnir
vegna verkfalla en það er mikilvægt
að þær haldi áfram á velferðarsviði
og í sorphirðu,“ segir Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri
Samfélagið geti brugðist við
Á Norðurlandi eystra hefur verið
fundað stíft vegna aðsteðjandi hættu
vegna kórónuveirunnar og ýmsar
fyrirliggjandi viðbragðsáætlanir yf-
irfarnar. Lögreglan á svæðinu hefur
leitt þetta starf sem er unnið meðal
annars í samvinnu við sveitarfélögin
á svæðinu. Í gær hittust sviðsstjórar
Akureyrarbæjar vegna málsins.
„Við fylgjum þeim leiðbeiningum
sem almannavarnir og sóttvarna-
læknir hafa gefið út og hugum að
styrk innviða okkar og viðbrögðum
almennt. Ég tel samfélagið hafa alla
burði til geta brugðist við og mætt
vandamálum sem geta komið upp ef
veiran berst hingað,“ segir Ásthild-
ur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akur-
eyri, í samtali við Morgunblaðið.
Viðbúin að loka íþrótta-
húsum og sundlaugum
Upplýsingamiðlun og þrif Ráðstafanir á Akureyri
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sundhöll ÍTR í viðbragðsstöðu vegna kórónuveirunnar ef loka þarf laugum.
Ásthildur
Sturludóttir
Dagur B.
Eggertsson
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
Sextán manns á fimmtugs- og sextugs-
aldri hafa verið greindir hér á landi
með kórónuveiruna. Sjö ný tilfelli voru
greind á sýkla- og veirufræðideild
Landspítala í gær.
Fólkið smitaðist allt erlendis og er
ekki alvarlega veikt. Tólf komu með
flugi frá Veróna á Norður-Ítalíu og
fjórir með flugi frá München í Þýska-
landi eftir að hafa verið í Austurríki í
fríi. Allt fólkið er í einangrun en sá sem
fyrst smitaðist hefur verið útskrifaður
af Landspítala og er heima hjá sér í
sóttkví.
Yfir 30 sýni voru rannsökuð á Land-
spítalanum í gær og samtals hafa um
230 sýni verið greind í heildina. Þá eru
vel yfir 300 einstaklingar í sóttkví á
landinu öllu.
Már Kristjánsson, yfirlæknir smit-
sjúkdómalækninga á Landspítalanum,
sagði á blaðamannfundi að einkenni
kórónuveirunnar og hinnar árlegu
inflúensu væru ekki ólík. Aftur á móti
væru til meðferðarmöguleikar og bólu-
efni við síðarnefndu sóttinni.
Veiran getur lifað á yfirborði
hluta í allt að níu daga
Beita þarf einangrun og sóttkví
þangað til búið verður að þróa bóluefni
gegn kórónuveirunni. Um 80% þeirra
sem greinast með COVID-19, sjúk-
dóminn sem umrædd veira veldur, fá
væg einkenni. Um 15% verða veik með
hita og einkenni hliðstæð inflúensu en
um 5% veikjast alvarlega. Mikilvægt
er að gæta vel að almennu hreinlæti
því veiran getur lifað á yfirborði hluta í
einn til níu daga. Már segir að ekki
megi tala veiruna niður þrátt fyrir að
hún sem slík sé ekki svo ógnvænleg.
Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur
hjá Rauða krossinum, segir nauðsyn-
legt að fólk hlúi að andlegri líðan sinni
og sinna nánustu. Umfjöllun getur
valdið kvíða og því er mikilvægt að
hans mati að foreldrar sýni sérstaka
aðgát í návist barna.
Langhlaup framundan
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn
hjá ríkislögreglustjóra, sagði á fundin-
um nauðsynlegt að horfa af yfirvegun
fram í tímann, þar sem um langhlaup
væri að ræða. „Við áttum von á því að
þetta dreifðist yfir lengri tíma heldur
en það hefur gert. En það minnir okk-
ur kannski á hversu smitandi þessi
veira er,“ sagði hann um útbreiðslu
veirunnar hérlendis.
Karls G. Kristinsson, yfirlæknir á
sýkla- og veirufræðideild Landspítal-
ans, segir álagið gríðarlega mikið á
deildinni. Sérþjálfuðum starfsmönnum
sem vinna við greiningu sýna hefur
fjölgað úr fjórum í átta. „Þetta fer að
jafnast á við svínaflensuna árið 2009.
Þetta er talsvert meira heldur en í
venjulegu inflúensuári, að fá þessa við-
bót ofan á allt hitt,“ sagði hann.
25.000 manna ráðstefnu frestað
Framkvæmdaaðili Verks og vits
hefur ákveðið að fresta sýningunni
sem átti að halda í Laugardalshöll 12.
til 15. mars fram í október. „Í ljósi að-
stæðna vegna COVID-19 setur fram-
kvæmdaaðili sýningarinnar heilsu og
hag sýnenda, þjónustuaðila og gesta
sýningarinnar í forgang,“ sagði í til-
kynningu.
Mikill áhugi var á sýningunni og
var uppselt á sýningarsvæðið. Yfir
100 fyrirtæki og stofnanir ætluðu að
kynna þar vörur sínar. Um 25 þúsund
gestir sóttu síðustu sýningu árið 2018.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra greindi frá því á Alþingi að rík-
isstjórnin horfði sérstaklega til ferða-
þjónustunnar þegar kæmi að
efnahagslegum áhrifum vegna
kórónuveirunnar og að bregðast
þyrfti við tjóni vegna fækkunar ferða-
manna.
Breiðist hraðar út en búist var við
Sjö ný tifelli kórónuveirunnar greind á Landspítalanum Yfir 200 sýni hafa verið greind Fer að
jafnast á við svínaflensuna Fólk hlúi að andlegri líðan sinni og sinna nánustu Verki og viti frestað
Morgunblaðið/Eggert
Faraldur Fulltrúar frá ríkislögreglustjóra og heilbrigðiskerfinu fóru yfir stöðuna á fundi með fjölmiðlum í gær.
Kórónuveirusmit á Íslandi