Morgunblaðið - 04.03.2020, Page 12

Morgunblaðið - 04.03.2020, Page 12
Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020 Tengsl allt að 22 af þeim hundrað dómurum, sem setið hafa við Mann- réttindadómstól Evrópu frá byrjun árs 2009, við ýmis hagsmunasamtök og stofnanir eru áhyggjuefni og til þess fallin að draga megi hlutleysi dómstólsins í efa í einhverjum úr- lausna hans. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Evrópsku réttarfars- miðstöðvarinnar, European Centre for Law and Justice, ECLJ. Skýrslan er afrakstur hálfs árs rannsóknarvinnu og eru þar dregin fram tengsl dómaranna við sjö hagsmunasamtök og stofnanir sem verið hafa aðilar að málum sem dómstóllinn hefur fengið til með- ferðar frá ársbyrjun 2009 fram á haust í fyrra. Samtök Soros áberandi Meðal þeirra samtaka sem nefnd eru í skýrslunni eru mannréttinda- samtökin Amnesty International, Human Rights Watch og Open So- ciety Foundation, samtök ung- versk-bandaríska auðkýfingsins George Soros, en starfsemi þeirra nær til rúmlega hundrað þjóða. Rannsóknarfólk ECLJ segir dómarana 22 ýmist hafa starfað fyr- ir eða gegnt stjórnunarstöðum hjá þeim samtökum og stofnunum sem talin eru upp í skýrslunni og eru flestir þeirra, tólf dómarar, sagðir hafa gegnt stöðum við samtök So- ros eða undirsamtök þeirra í ýms- um löndum áður en þeir tóku við embættum sínum við mannrétt- indadómstólinn. „Þessi mikla nærvera Open So- ciety og tengdra samtaka er óheppileg á marga vegu,“ segir á síðu ECLJ. „Alvarlegri er þó sú staðreynd að 18 þessara 22 dómara komu að málum þar sem fyrrver- andi vinnuveitandi þeirra var ýmist málshöfðandi eða stuðningsaðili hans,“ segir þar enn fremur og því bætt við að ECLJ hafi við rannsókn sína fundið 88 mál á tíu ára tímabili þar sem ástæða sé til að draga hlut- lægni dómara í efa. Málin geti verið fleiri Segir svo að í eingöngu tólf þess- ara mála hafi dómarar ákveðið að víkja sæti vegna tengsla þeirra við hlutaðeigandi samtök, en heildar- fjöldi mála sé þó varfærnislega áætlaður þar sem fjárhagsleg tengsl hagsmunasamtaka inbyrðis séu ekki skoðuð ofan í kjölinn og gætu vafamálin því verið mun fleiri. „Hér er um alvarlegt ástand að ræða sem gefur tilefni til að draga sjálfstæði dómstólsins og hlutlægni dómaranna í efa. Hér þarf að gera bragarbót tafarlaust,“ er niðurstaða ECLJ. Breski heimspekingurinn og rit- höfundurinn John Laughland ritar pistil um mál mannréttindadóm- stólsins á vef rússnesku sjónvarps- stöðvarinnar RT og segir tengsl dómaranna, við þau hagsmunasam- tök og stofnanir sem nefnd eru í skýrslu ECLJ, umtalsverð. Megi þar nefna áralanga setu í stjórnum eða framkvæmdaráðum samtakanna, kennslu við stofnanir sem þau hafi fjármagnað auk þess sem Laughland dregur sérstaklega fram launaðar stöður við Open So- ciety-stofnun Soros og tekur þar sem dæmi störf hins búlgarska Yonko Grozev, verjanda þriggja liðskvenna rússnesku pönksveitar- innar Pussy Riot á sínum tíma, en Grozev stýrði þá Open Society Jus- tice Initiative. Skömmu síðar tók hann við dómaraembætti. Tengsl oft ekki augljós Segir Laughland mörg hags- munasamtakanna hafa komið að fjölda mála við dómstólinn, svo sem mannréttindasamtökin The Hels- inki Foundation for Human Rights sem hafi komið að 32 málum á árinu 2017 einu. Í fjölda tilfella liggi tengsl hagsmunasamtaka við ein- stök mál langt í frá í augum uppi. „Til dæmis má það vera að lögmenn einna samtaka séu verjendur í máli þar sem fleiri samtök hafi uppi kröfur sem þriðju aðilar, en að lok- um sé það sami aðili sem fjármagn- ar öll samtökin, yfirleitt Soros,“ skrifar Laughland. Hann telur undirrót þeirrar stöðu, sem upp er komin sam- kvæmt skýrslu ECLJ, umfangs- mikil ítök Soros í „mannréttinda- iðnaði“ Eystrasaltsríkjanna og landa Balkanskagans sem svo til- nefni dómara við mannréttinda- dómstólinn gegnum aðild sína að Evrópuráðinu. 51 ekki gegnt dómarastöðu „Ekkert væri athugavert við að dómari hefði gegnt launaðri stöðu innan raða hagsmunasamtaka áður en hann tók við dómaraembætti, ef þessi sömu samtök væru ekki virk í að leggja mál fyrir dómstólinn, ým- ist sem málsaðilar, í lögmennsku fyrir hönd málsaðila eða sem sér- fróðir álitsgjafar, og dómarinn kæmi þá ekki að málum þeirra.“ Klykkir Laughland út með því að ekki sé skilyrði að dómarar við mannréttindadómstólinn hafi nokkra reynslu af dómstörfum. Af hundrað dómurum sem dæmt hefðu við dómstólinn frá því 2009 hefði 51 ekki gegnt dómarastöðu áður. Þeir hafi hins vegar í fjölda tilfella verið mannréttindaaðgerðasinnar á snærum Soros eða stofnana hans. „Afleiðingarnar verða þær að dómararnir sem þarna sitja hegða sér í raun ekki eins og dómurum er eðlilegt.“ Morgunblaðið/Þórður Meginland Mannréttindadómstóll Evrópu, sem hér sést, er í frönsku borginni Strassborg. Enginn er dómari í eigin sök – eða hvað?  Brotalöm talin á hlutleysi dómara MDE í minnst 88 málum Breski forsætisráðherrann Boris Johnson býr sig undir að draga Bretland út fyrir vébönd mannréttinda- löggjafar Evrópusambandsins samhliða því að leiðir skilur í kjölfar Brexit. Dagblaðið Telegraph greinir frá því að samningamenn Bretlandsmegin hyggist hafna væntanlegum áskilnaði í fríverslunarsamningi við ESB um að Bretland verði áfram aðili að mannréttinda- sáttmála Evrópu. Segir blaðið slíkt skref ekki verða tekið átakalaust í ljósi andstöðu við að Bretar segi sig frá sáttmálanum. Dominic Cummings, helsti ráðgjafi Johnsons, er hins vegar þeirrar skoðunar að þjóðaratkvæðagreiðslan um Brexit hafi í hugum flestra kjós- enda einnig snúist um brotthvarf frá sáttmálanum. Johnson boðar brotthvarf BRETLAND OG MANNRÉTTINDASÁTTMÁLINN Boris Johnson Lenny Messina heimsækir Fjallkonuna Spennandi 6 rétta matseðill undir áhrifum matargerðar Miðausturlanda BYRJAR Í DAG! Baladi eggaldin Furuhnetur | Granatepli | Tahini Pítubrauð Shish Barak Nauta-dumplings Skyr | Aleppo chili | Furuhnetur Grillaður Kolkrabbi Hvítar baunir | Chorizo | Harissa Bleikja Arak | Fennil | Karamelliseruð mjólk Lambarumpsteik Zataar kryddblanda | Mólassi Brennt eggaldin Halva Parfait Ristaðar möndlur | Pressaðar döðlur Lenny Messina ... ... starfar sem yfirmatreiðslumaður á veitinga- húsinu LOLA, sem hann rekur ásamt eiganda staðsins Michael Ginor. LOLA á Long Island hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga m.a. þann mikla heiður að fá umsögnina „excellent“ í New York Times. Staðurinn býður upp á sælkerarétti undir fjöl- breyttum áhrifum miðjarðarhafsmatarðgerðar. Hafnarstræti 1–3 > fjallkona.is FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR! Borðapantanir á fjallkona.is eða í síma 555 0950 4. – 8. MARS >8.900kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.