Morgunblaðið - 04.03.2020, Page 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
✝ Bjarni ValgeirGuðmundsson,
forsetabílstjóri og
bifvélavirki, fædd-
ist í Reykjavík 21.
október 1934. Hann
lést á Landakoti 19.
febrúar 2020.
Bjarni ólst upp í
foreldrahúsum á
Fjalli í Sæmund-
arhlíð í Skagafirði
til tólf ára aldurs
og síðan á Botnastöðum í
Svartárdal í Húnavatnssýslu.
Foreldrar hans voru Guð-
mundur Jónsson, f. 6.3. 1904,
nú látinn, bóndi á Botnastöðum
og síðast starfsmaður Pósts og
síma í Reykjavík, og kona hans,
Anna Guðrún Bjarnadóttir, f.
f. 16.7. 1957. 2) Salbjörg, f.
11.4. 1966, maki Victor Rafn
Viktorsson. Börn hennar eru:
a) Óskar Örn Þórhallsson, maki
Hulda Soffía Jónasdóttir. b)
Júlíana Kristbjörg Þórhalls-
dóttir, maki Hlynur Friðfinns-
son, þau eiga Jörfa Snæþór og
Arneyju Þulu. c) Ólafía María
Aikman, maki Theodór Marvin
Magnússon. d) Freyja Rán Við-
arsdóttir. 3) Anna María, f.
22.4. 1969, gift Ólafi K. Ólafs-
syni. Börn hennar eru: a) Mar-
ey Jónasdóttir, gift Birgi Blön-
dahl Arngrímssyni, þau eiga
Brynju Blöndahl. b) Bjarni Val-
geir Ólafsson.
Bjarni flutti til Reykjavíkur
1951, hóf nám í bifvélavirkjun,
lauk sveinsprófi í þeirri iðn-
grein og starfaði síðan við
greinina í tuttugu og þrjú ár.
Hann hóf störf hjá forsetaemb-
ættinu 1980 og starfaði þar til
starfsloka.
Útför Bjarna var gerð frá
Bessastaðakirkju 2. mars 2020.
29.12. 1910, nú
látin, húsfreyja.
Bræður Bjarna:
Óskar, f. 1930, d.
1956, prentari í
Reykjavík; Gunn-
laugur, f. 1942,
múrarameistari á
Álftanesi; Jón Eyj-
ólfur, f. 1944,
húsameistari í
Ástralíu.
Hinn 24. maí
1958 kvæntist Bjarni Maríu
Birnu Sveinsdóttur, f. 18.3.
1936. Foreldrar hennar voru
Sveinn Erlendsson, bóndi á
Breiðabólstöðum á Álftanesi,
og kona hans, Júlíana K.
Björnsdóttir húsfreyja. Börn
Bjarna og Maríu eru: 1) Sveinn,
Þrjátíu og fjögur ár. Ég vildi
óska að árin hefðu verið fleiri en
þetta var sá skammtur sem við
fengum úthlutaðan. Hann afi
sýndi mér hvernig hægt er að
virkja þrjósku, nýta hana í bil-
anagreiningu og útsjónarsemi.
Vandamál voru alltaf eitthvað
til að leysa, hvort sem það var
að smíða kerru, laga bíla, sinna
viðhaldi á heimilinu eða kaupa
jólagjafir. Hann var reyndar
mjög lunkinn við að fá verktaka
í seinasta lið af þessari útlistun
og hef ég reynt að tileinka mér
slíkt hið sama.
Ein skemmtilegasta saga sem
ég á af honum afa og lýsir hans
karakter hvað best snýr að vís-
indatilraun sem fór allsvakalega
úr böndum.
Á yngri árum hafði ég á tíma-
bili mikinn áhuga á litbolta (pa-
intball) og vildi kanna hvort
hægt væri að smíða sprengjur
úr þeim boltum.
Ég tróð því fullt af litboltum
og flugeld í 500 ml plastflösku
og fór að sprengja. Út frá þeim
úrlausnarsjónarmiðum sem afi
hafði óafvitað kennt mér ákvað
ég að velja lokað rými til að sjá
hvers konar þekju málningin
myndi ná.
Ég hafði greinilega ekki
virkjað sömu aðferðafræði hvað
varðar öryggismál og ákvað að
partabíll sem afi átti væri upp-
lagður prófunarstaður. Kveikti í
þræði, beið eftir hvelli og kíkti
svo inn í bílinn.
Jújú, þekjan var góð og allt
leit vel út ... þar til reykur úr
áklæði á bílsætinu byrjaði að
fylla rýmið í bílnum.
Ég hljóp því í pati til afa úti í
bílskúr og bankaði á hurðina.
Hann svaraði og sá að það var
eitthvað óæskilegt í gangi.
Ég sagði við afa: „Ööö, það er
smá vesen.“ Hann sá greinilega
að ég var í uppnámi og spyr:
„Hvað gerðir þú núna?“ Ég
svara: „Það gæti verið að ég
hafi kveikt smá í partabílnum
þínum.“
Hann svarar með stóískri ró:
„Þú ert nú meiri grallaraspóinn.
Kíkjum á þetta.“
Við löbbum í rólegheitum að
partabílnum, hann rífur upp
pakka af filterslausum Camel
og kveikir í rettu. Þarna blasir
við okkur alelda bíll og við horf-
um á hann brenna saman, bíð-
andi eftir sprengingu a la
James Bond-mynd. Háværustu
sprengingarnar voru þegar hjól-
barðarnir sprungu, okkur til
mikilla vonbrigða.
Hann sagðist alltaf ætla að
verða hundrað og tólf ára gam-
all. Hann snuðaði okkur því um
góð tuttugu og sex ár.
Mögulega eigingirni af okkar
hálfu að vilja rukka hann um
þau en það breytir ekki þeirri
staðreynd að árin sem við feng-
um voru að öllu leyti yndisleg
og mótuðu mig að þeim manni
sem ég er í dag.
Ég þakka því kærlega fyrir
þann tíma sem við fengum með
þér og vona að þú náir Tiger
þar sem þú ert núna.
Svo ég vitni í hann sjálfan:
„Sjáumst, karlinn minn.“
Óskar Örn
Þórhallsson.
Bréf til afa.
Þér líður betur þarna heldur
en hér veit ég. Allar minning-
arnar á ég um það þegar við
höfum verið saman eins og þeg-
ar ég átti afmæli og þú komst
og spilaðir á harmonikkuna fyr-
ir mig í pottinum eða þegar þú
spilaðir á píanóið og söngst fyr-
ir mig, líka þegar þú sótti mig í
skólann á græna jeppanum þín-
um, þegar þú horfðir á mig og
hlóst og brostir til mín og alla
molana sem við borðuðum sam-
an og dýfðum í kaffi við mat-
arborðið á Jörfa.
Þegar þú varst á spítalanum
vildi ég halda í höndina á þér og
bara horfa á þig, stundum þarf
maður ekki að segja neitt, þú
skilur mann svo vel. Ég mun
sakna þess að koma á Jörfa og
heyra þig segja: „Hvað segir
ást“ og horfa í ljósbláu fallegu
augun þín og sjá þig strjúka
skallann á þér og segja: „Jæja
það er bara svoleiðis“.
Þú varst alltaf stoltur af mér
og svo góður. Ég hef alltaf verið
svo heppin að eiga þig sem afa
minn.
Þú er svo góð fyrirmynd og
ég lít svo upp til þín en fyrir ut-
an þessa þrjósku sem er samt
bara þú, það er bara afi. Þú
munt alltaf eiga stóran part af
hjarta mínu, elsku afi minn.
Elsku afi minn, ég mun sakna
þín svo mikið, vildi að við gæt-
um verið aðeins lengur saman
en þú munt horfa á mig þaðan
sem þú ert þangað til ég verð
gömul og passa upp mig.
Þín afastelpa,
Freyja Rán.
Það er einatt lán að eignast
góða vini meðal samstarfs-
manna.
Bjarni V. Guðmundsson var
umsjónamaður og bílstjóri á
höfuðbólinu á Bessastöðum í tíð
okkar mæðgna, nágranni okkar
á Álftanesinu á Jörfa, hinum
megin við Bessastaðatjörn, og
við eigum um hann svo afar
góðar minningar.
Hann sinnti með ráðskonu
staðarins innkaupum til heim-
ilisins, ók heimasætunni í
barnaskólann á Álftanesi og
kenndi henni að keyra bíl úti í
Bessastaðanesi þar sem engin
var umferðin önnur en æðarfugl
og stokkendur á vappi.
Það voru oft skemmtilegar
skrafstundir á háu kollunum við
stóra framreiðsluborðið í gamla
eldhúsinu á Bessastöðum og
margar minnisverðar ferðir
farnar í heimsóknir út á land,
þar sem Bjarni oftar en ella ók
staðarjeppanum með áfastri
kerru sem hlaðin var trjá-
plöntum til gróðursetningar á
landsbyggðinni.
Skógur á hjólum. Hann var
viðræðugóður og glaðsinna og
þar á ofan afar tónhneigður,
söng lengi í kirkjukórnum okk-
ar á nesinu og spilaði prýðisvel
á harmonikku dillandi polka og
ræla heimamönnum til mikillar
ánægju.
Ég minnist Bjarna á Jörfa,
samstarfsmanns míns um ára-
bil, með mikilli hlýju og votta
Maríu hans, börnum þeirra og
fjölskyldunni allri einlæga sam-
úð.
Vigdís
Finnbogadóttir.
Þegar ég fékk fréttirnar um
að Bjarni Valgeir Guðmunds-
son, kær vinur og traustur, væri
látinn setti mig hljóða. Við Addi
kynntumst þeim Bjarna og
Maríu eftir að við fluttum á
Álftanesið og var það upphafið
að mörgum ánægjustundum
okkar saman. Bjarni var Hún-
vetningur og átti sterkar taugar
á æskuslóðir sínar og fór gjarn-
an til veiða í Svartárdalnum.
Tónlistin var honum í blóð borin
í orðsins fyllstu merkingu en
hann spilaði á píanó og harm-
onikku og þurfti ekki nótur.
Upp í hugann kemur þegar
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
kom til okkar í eldriborgara-
starfið á Álftanesi og setti upp
revíu með fólkinu, þau hjónin
Bjarni og Maja tóku að sjálf-
sögðu þátt í þessari uppsetn-
ingu ásamt fleiri félögum.
Bjarni spilaði á nikkuna það
sem Guðrún kom með og ef
hann þekkti ekki lagið þá lét
hann hana bara syngja laglín-
una og þá vafðist ekki fyrir hon-
um að spila það.
Bjarni var duglegur maður,
greiðvikinn og laghentur. Ég
held að hann hafi getað lagað
allar vélar og tæki og ef á þurfti
að halda þá smíðaði hann jafnt
úr timbri sem járni. Ég naut
greiðvikni Bjarna eins og svo
margir sem hann þekktu.
Mesta gæfan hans Bjarna var
hún Maja og áttu þau einstak-
lega fallegt hjónaband og hafa
þau haldið fallega utan um hóp-
inn sinn, börnin og fjölskyldur
þeirra.
Minningarnar um samveru-
stundir með þeim hjónum eru
dýrmætar og ég þakka af hjarta
fyrir samfylgdina, allar gleði-
stundirnar og trausta vináttu.
Guð blessi minningu Bjarna
Valgeirs Guðmundssonar.
Gréta
Konráðsdóttir.
Bjarni á Jörfa er látinn á átt-
ugasta og sjötta aldursári. Sátt-
ur, því hann hafði undanfarin
misseri glímt við hvimleiðan
svima og krankleika sem dró úr
honum allan mátt. Það hugnað-
ist honum ekki, höfðingjanum,
sem hafði alltaf lifað lífinu lif-
andi, verið með og mótandi. Nú
var kominn tími til að kveðja.
Hann hafði verið með sterk-
ustu stoðum mannlífs á Álfta-
nesi um langt árabil, frum-
kvöðull í félagsstarfi og virkur.
Okkur er minnisstætt þegar
hann ók um hreppinn til þess að
næla í söngraddir við stofnun
Álftaneskórsins, þar sem hans
fallega bassarödd átti eftir að
hljóma í kirkjunni um árabil. Í
Lionsklúbbnum var hann fljót-
lega gerður formaður og hafa
fáir stjórnað fundum af meiri
virðuleika og festu.
Bjarni fékk í vöggugjöf sindr-
andi blá augu og fagra ásjónu,
sem ásamt djúpri, mjúkri röddu
og séntilmannsfasi, sem hann
hafði áunnið sér, skópu honum
hlýju og virðingu hjá báðum
kynjum. Hann var sjarmör af
efstu gráðu. Hafði sinn stíl og
var mátulega kærulaus gagn-
vart því sem aðrir hugsuðu um
hann. Fékk sér vodka þótt aðrir
sötruðu léttvín og reykti sinn
Camel ef honum bauð svo við að
horfa. Þó kunni hann manna
best með vín að fara. Gleðimað-
ur var hann og ómissandi gleði-
gjafi þegar hann þandi nikkuna
í ferðalögum og á samkundum
þeirra félaga sem hann var í.
Bjarni og María Sveinsdóttir
Erlendssonar á Breiðabólsstöð-
um heitbundust ung að árum.
Þóttu þau glæsilegasta par á
Álftanesi er þau svifu um dans-
gólfið eða völsuðu á skautum
um Bessastaðatjörn. Og það var
notalegt að fylgjast með hvernig
ást þeirra og gagnkvæm virðing
hélst alla ævi, oft með aðstoð
glettni og kímni sem geta gert
kraftaverk. Skap hafði Bjarni
eins og margir Skagfirðingar
forfeður hans, og þá spillti ekki
hvílík öndvegiskona Mæja er.
Bjarni hafði ýmsan starfa á
sinni tíð. Þegar lögboðinni
vinnuskyldu var lokið og Bjarni
kominn á áttræðisaldurinn reisti
hann sjálfur þeim hjónum sum-
arbústað við Úlfljótsvatn sem
fjölskyldan hefur notið síðan.
Golfáhuginn, sem Bjarni og
Mæja fengu á efri árum, átti
eftir að færa þeim margar gleði-
stundir innanlands og erlendis.
Fyrir nokkrum árum fékk ég
(Sigurður) hringingu frá
Bjarna. Hann spurði hvort ég
vildi leika golf á Havaí eða Flo-
rida. Ég sagði bara já. „Þá kem-
ur þú í bílskúrinn til mín á
morgun.
Doron verður líka.“ Ég mætti
á tilteknum tíma í bílskúrinn,
þar sem ægði saman verkfær-
um, olíudósum, tjökkum og alls
konar dóti sem Bjarni hafði
gegnum tíðina notað til viðgerða
og að græja hluti fyrir sig og
vini sína, ásamt flóru af litlum
plöntum í uppeldi. Þetta var allt
mjög hlýlegt og notalegt. Þarna
var líka golfhermir sem vinir
Bjarna, Viktorsfeðgar, höfðu léð
honum. Þetta var byrjunin á
dýrmætum gleðistundum sem
við Doron Elíasen áttum með
Bjarna næstu árin. Í hádeginu
beið alltaf kaffi og veitingar hjá
Mæju. Ótrúlegt hvað þarf lítinn
íburð til þess að skapa sælustu-
ndir.
Við Sigga minnumst Bjarna
með mikilli hlýju og þakklæti og
sendum innilegar samúðar-
kveðjur til Mæju, Denna, Sal-
bjargar, Önnu og fjölskyldunnar
allrar.
Sigríður og Sigurður G.
Thoroddsen.
Það er komið að leiðarlokum
og kveðjustund er við nú fylgj-
um vini okkar Bjarna V. Guð-
mundssyni síðasta spölinn.
Vinahópurinn, Matar- og ferða-
klúbburinn Smjattpattar, syrgir
og saknar en lítur til baka með
virðingu og þakklæti fyrir öll
árin sem við áttum samleið með
Bjarna á Jörfa, eins og hann
var oftast kallaður.
Á slíkri stundu sem þessari
lítum við yfir farinn veg og
minnumst allra stundanna sem
við áttum saman sem hópur.
Það var oft safnast saman við
matartilbúning, bæði heima við
og í þeim mörgu ferðalögum
sem við fórum saman um sveitir
Íslands. Það hefur alltaf verið
gott og uppbyggjandi að koma í
heimsókn til Maju og Bjarna á
Jörfa og má með sanni segja að
þau hafi verið kjarninn í hópn-
um. Maja og Bjarni skipulögðu
einmitt ógleymanlega ferð fyrir
Smjattpatta í Veiðivötn, en það
veiðisvæði var í miklu uppáhaldi
hjá honum. Bjarni var oft hrók-
ur alls fagnaðar og harmónikk-
an hans hljómaði og hvatti okk-
ur öll til söngs þegar við komum
saman, enda hafði Bjarni yndi
af tónlist, lék jöfnum höndum á
píanó og harmónikku.
Minnisstæð er sú stund þeg-
ar við Smjattpattar vorum á
einu af okkar mörgu ferðalögum
úti á landi og hópurinn var
óvænt beðinn um að syngja við
skírn í kirkju staðarins og
Bjarni lék á orgelið eins og ekk-
ert væri sjálfsagðara.
Bjarni var um tíma formaður
sóknarnefndar Bessastaðasókn-
ar og söng um áraraðir í Álft-
aneskórnum sem meðal annars
sér um söng við athafnir í
Bessastaðakirkju. Hann var
starfsmaður við forsetasetrið á
Bessastöðum og bílstjóri forseta
Íslands til margra ára og naut
mikils trausts og virðingar sem
slíkur.
Hann var félagslyndur og
mjög tryggur og hjálpfús vinur
vina sinna.
Bjarni kunni góð skil á öllu
sem viðkom allskyns vélum og
tækjum, útsjónarsamur og
handlaginn smiður var hann,
sem sást glöggt er þau Maja
byggðu sér fallegan sumarbú-
stað í nágrenni Úlfljótsvatns.
Þar undi hann sér vel við smíð-
ar og ekki síst við silungsveiði í
vatninu.
Við vottum Maju og fjöl-
skyldu, okkar dýpstu samúð og
biðjum góðan Guð að blessa þau
og styrkja.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Helga og Birgir
Ásbjörg og Doron
Hulda og Sigurður Valur
Ragnheiður
Erla og Birgir.
Félagar í Álftaneskórnum
kveðja í dag kæran vin og söng-
félaga, Bjarna Valgeir Guð-
mundsson frá Jörfa á Álftanesi.
Bjarni var í hópi söngáhuga-
fólks sem stofnaði Álftanes-
kórinn árið 1981.
Þó að kórinn væri stofnaður
til þess að flytja aðallega ver-
aldlega tónlist tóku kórfélagar
fljótlega að sér að syngja við at-
hafnir í Bessastaðakirkju.
Fyrsta messan sem kórinn söng
í kirkjunni var haldin 20. janúar
1984 og síðan þá hefur kórinn
alltaf tekið mikinn þátt í kirkju-
starfinu.
Bjarni var einstaklega tón-
elskur maður, hafði góða bassa-
rödd og var mikill styrkur fyrir
kórinn. Hann var sjálflærður
harmonikkuleikari og lék einnig
á píanó. Bjarni var yfirleitt
hrókur alls fagnaðar þegar fé-
lagar í Álftaneskórnum komu
saman til gleðskapar og þá var
nikkan ósjaldan með í för.
Bjarni var hreinn og beinn í öll-
um samskiptum og sagði æv-
inlega hug sinn. Það var mikið
lán fyrir kórinn að eiga slíkan
félaga.
Bjarni var einstaklega vel
kvæntur maður og hafa kór-
félagar alla tíð notið þess að
hafa Maríu Birnu með í öllum
samverustundum og ferðum
kórsins. Bjarni hætti að syngja
með kórnum fyrir rúmum 5 ár-
um vegna heilsubrests en þau
Maja héldu áfram tryggð við
kórinn og skemmtu sér með
kórfélögum þegar tækifæri gáf-
ust eins lengi og heilsa Bjarna
leyfði.
Við þökkum kærum vini ára-
langa samfylgd og sendum
Maju og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur um leið og við
óskum þeim til hamingju með
að hafa átt þennan glaða sam-
ferðamann í lífi sínu.
F.h. Álftaneskórsins,
Sigrún Helgadóttir
og Sæbjörg Einarsdóttir.
Bjarni á Jörfa var eftirminni-
legur maður þeim sem kynntust
honum. Hann var ákaflega
sjarmerandi, gerði hlutina með
stæl, fallega tilhafður, svipurinn
meitlaður, broshýr, virðulegur.
Um Bjarna var ort:
Þín ásjóna er ráðsett bæði og reynd
hver rún ber svip af skapgerðinni
þægri,
frá augum stafar góðvilja og greind
en gleðin býr við munnvikið til
hægri.
Bjarni var félagsvera og vin-
margur, hafði góða bassarödd,
reykti camel, lék á harmonikku,
spilaði golf og var lengi virkur í
öllu félagslífi á Álftanesi. Svo
var hann mekaniker af guðs
náð, bílamaður og hagur smið-
ur.
Hans var sjaldnast getið
nema nafn Mæju fylgdi með;
þau hjónin eru Álftnesingum
einkar hugstæð fyrir margra
hluta sakir og eftirminnilegt
danspar á þorrablótunum á
Álftanesi.
Bjarni var félagi í Lions-
klúbbnum, kom til liðs við okkur
strax í upphafi, fyrir 35 árum
eða svo, og var virkur þar til
kraftana tók að þverra.
Hann varð fljótt formaður og
tók það hlutverk alvarlega og
gaf því sína persónulegu reisn.
Á löngum tíma gegndi hann
fjölmörgum trúnaðarstörfum
fyrir klúbbinn, var skemmtileg-
ur félagi, ötull í starfi og til-
lögugóður um öll hin stærri mál.
Við kveðjum Bjarna vin okk-
ar, þökkum honum allt og allt
og óskum Mæju, börnum þeirra
og fjölskyldum guðs blessunar.
F.h. Lionsklúbbs Álftaness,
Magnús Sigfússon
formaður.
Bjarni Valgeir
Guðmundsson
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017