Morgunblaðið - 04.03.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
England
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Chelsea – Liverpool ................................. 2:0
Reading – Sheffield United ............ (frl.) 1:2
WBA – Newcastle .................................... 2:3
C-deild:
Ipswich – Fleetwood ............................... 0:1
Ísak Snær Þorvaldsson var ónotaður
varamaður hjá Fleetwood.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Saarbrücken – Düsseldorf.............. (víti) 8:7
Schalke – Bayern München..................... 0:1
Danmörk
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Esbjerg – AGF ......................................... 1:4
Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn
með AGF.
Úkraína
Dynamo Kiev – Kolos Kovalivka ........... 2:0
Árni Vilhjálmsson lék allan leikinn með
Kolos Kovalivka.
Efstu lið: Shakhtar Donetsk 53, Dynamo
Kiev 42, Zorya Luhansk 40, Desna 36,
Oleksandriya 34, Kolos Kovalivka 26.
Pólland
Pogon Szczecin – Jagiellonia................. 1:2
Böðvar Böðvarsson var ekki í leik-
mannahópi Jagiellonia.
Þýskaland
RN Löwen – Leipzig ........................... 26:23
Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyr-
ir Löwen og Ýmir Örn Gíslason eitt. Krist-
ján Andrésson þjálfar liðið.
Magdeburg – Erlangen ...................... 24:20
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Magde-
burg er frá keppni vegna meiðsla.
Ludwigshafen – Lemgo...................... 29:36
Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk fyrir
Lemgo.
Bergischer – Füchse Berlín ............... 26:26
Ragnar Jóhannsson skoraði 3 mörk fyrir
Bergischer, Arnór Þór Gunnarsson ekkert.
Nordhorn – Hannover-Burgdorf ...... 24:32
Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.
Staðan:
Kiel 40, Flensburg 38, Magdeburg 37,
Hannover- Burgdorf 36, Füchse Berlín 35,
Rhein-Neckar Löwen 34, Melsungen 30,
Wetzlar 25, Leipzig 25, Lemgo 25, Göpp-
ingen 21, Stuttgart 21, Bergischer 20, Er-
langen 18, Minden 17, Ludwigshafen 15,
Balingen 15, Nordhorn 4.
Svíþjóð
Önnered – Sävehof.............................. 22:30
Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í
marki Sävehof, þar af 3 vítaköst.
Dominos-deild kvenna
Valur – KR ............................................ 84:77
Staðan:
Valur 24 22 2 2079:1577 44
KR 24 17 7 1838:1585 34
Skallagrímur 23 14 9 1566:1579 28
Keflavík 22 14 8 1615:1556 28
Haukar 23 13 10 1666:1597 26
Snæfell 22 7 15 1485:1717 14
Breiðablik 23 3 20 1493:1831 6
Grindavík 23 2 21 1469:1769 4
1. deild kvenna
Keflavík b – Fjölnir .............................. 71:88
Grindavík b – ÍR................................... 67:68
Njarðvík – Tindastóll ........................... 88:65
Staðan:
Fjölnir 20 16 4 1582:1280 32
ÍR 21 14 7 1422:1234 28
Keflavík b 20 13 7 1484:1394 26
Njarðvík 21 13 8 1451:1225 26
Tindastóll 21 8 13 1379:1548 16
Grindavík b 19 4 15 1088:1404 8
Hamar 18 2 16 1012:1333 4
1. deild karla
Vestri – Skallagrímur .......................... 99:80
Staðan:
Höttur 21 19 2 1827:1548 38
Hamar 20 17 3 1951:1738 34
Breiðablik 20 16 4 1978:1678 32
Vestri 19 12 7 1687:1531 24
Álftanes 20 10 10 1702:1744 20
Selfoss 20 8 12 1545:1607 16
Skallagrímur 21 3 18 1696:1972 6
Sindri 17 2 15 1370:1578 4
Snæfell 20 2 18 1585:1945 4
Svíþjóð
Nässjö – Borås ................................... 78:105
Elvar Már Friðriksson skoraði 20 stig
fyrir Borås, átti 4 stoðsendingar og tók 3
fráköst á 23 mínútum.
NBA-deildin
Cleveland – Utah .............................. 113:126
New York – Houston........................ 125:123
Orlando – Portland........................... 107:130
Atlanta – Memphis ............................. 88:127
Miami – Milwaukee ............................ 105:89
Chicago – Dallas ............................... 109:107
San Antonio – Indiana...................... 111:116
BIKARINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Í augum margra er eflaust hinn eig-
inlegi bikarúrslitaleikur kvenna í
handbolta árið 2020 síðari undan-
úrslitaleikur keppninnar sem fram
fer í Laugardalshöllinni í kvöld
klukkan 20.30.
Þar mætast Valur og Fram, liðin
sem hafa haft umtalsverða yfirburði
á Íslandsmótinu í vetur, rétt eins og
tvö undanfarin tímabil, og eru langt
á undan keppinautum sínum hvað
stigatölu varðar.
Valur vann fyrsta leik liðanna á
Íslandsmótinu í haust, 19:18 á Hlíð-
arenda, en Fram hafði betur í hinum
tveimur, 24:19 í Safamýri og 28:24 á
Hlíðarenda um síðustu helgi. Fram
er fimm stigum á undan Val í deild-
inni og á deildarmeistaratitilinn
næsta vísan en Valur hirti alla þrjá
titlana á síðasta tímabili.
Í leiknum um síðustu helgi fóru
þær Ragnheiður Júlíusdóttir og
Lovísa Thompson á kostum, skoruðu
11 og 10 mörk, og þær eru báðar til
alls líklegar í svona leik þegar allt er
undir.
Fyrri undanúrslitaleikurinn er á
milli KA/Þórs og Hauka, liða sem
eru hnífjöfn í fimmta og sjötta sæti
Íslandsmótsins, eygja bæði von um
að ná fjórða sæti og komast þar í úr-
slitakeppnina en eru fyrst og fremst
að slást um að forðast sjöunda sætið
og umspil um áframhaldandi keppn-
isrétt meðal þeirra bestu.
Rétt eins og toppliðin tvö mættust
þessi lið líka í deildinni um síðustu
helgi og þar höfðu Haukar betur á
Ásvöllum, 27:22. KA/Þór vann hins
vegar fyrstu viðureign liðanna í
deildinni á Ásvöllum í haust, 25:23,
en Haukar unnu á Akureyri í desem-
ber, 27:21. Á laugardaginn skoraði
Berta Rut Harðardóttir 10 mörk
fyrir Hauka og Ásdís Guðmunds-
dóttir 10 mörk fyrir KA/Þór þannig
að þær mæta heitar til leiks kl. 18 í
dag.
Valur er ríkjandi bikarmeistari og
hefur unnið bikarinn sjö sinnum.
Fram hefur hinsvegar unnið oftast,
eða 15 sinnum, síðast 2018. Haukar
hafa unnið fjórum sinnum, síðast
2007, en KA/Þór freistar þess að
komast í sinn fyrsta úrslitaleik.
Er úrslitaleikur-
inn í kvöld?
Undanúrslit bikarsins í Laugardalshöll
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Bikarinn Unnur Ómarsdóttir úr Fram og Anna Þyrí Halldórsdóttir úr KA/
Þór gætu mæst í úrslitaleiknum á laugardag, ef lið þeirra vinna í kvöld.
Chelsea komst í átta liða úrslit
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöld með sannfær-
andi sigri á Liverpool, 2:0, á Stam-
ford Bridge. Willian skoraði fyrra
markið á 13. mínútu og Ross Bark-
ley það síðara á 64. mínútu og
Chelsea nýtti ekki góð færi til að
skora fleiri mörk. Liverpool tapaði
þar með í þriðja sinn í síðustu fjór-
um leikjunum, í kjölfarið á ósigrum
gegn Watford í úrvalsdeildinni og
Atlético Madrid í Meistaradeildinni,
en inni á milli vann liðið mjög
nauman sigur á West Ham.
Chelsea skellti
Liverpool
AFP
Unnu Ross Barkley og Billy Gil-
mour fagna marki Barkleys.
Fjölnir vann nokkuð torsóttan sig-
ur á SR, 6:2, á Íslandsmóti karla í ís-
hokkí í Egilshöllinni í gærkvöld.
Staðan var 2:2 þegar sjö mínútur
voru eftir. Falur Birkir Guðnason
gerði tvö mörk fyrir Fjölni, Viggó
Hlynsson, Michael Stoklosa, Krist-
ján Kristinsson og Ólafur Björnsson
eitt hver. Daniel Otuoma og Frant-
isek Matula skoruðu fyrir SR. SA á
eftir að fá bæði Fjölni og SR í heim-
sókn norður. SA hefur þegar tryggt
sér heimaleikjaréttinn í úrslita-
einvíginu við Fjölni, er með 36 stig
gegn 30. SR er án stiga.
Endaspretturinn
góður hjá Fjölni
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Skoraði Kristján Kristinsson gerði
eitt marka Fjölnis gegn SR.
Á HLÍÐARENDA
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Valur tryggði sér í gærkvöld sinn
annan deildarmeistaratitil í röð í
Dominos-deild kvenna í körfubolta
með 84:77-sigri á KR á heimavelli.
Valur náði mest 23 stiga forskoti og
stóð svo af sér gott áhlaup KR-inga
undir lokin. Ekki er hægt að segja
annað en að Valskonur séu vel að
titlinum komnar. Þær hafa aðeins
tapað tveimur leikjum af 22 og unn-
ið helstu keppinauta sína í KR fjór-
um sinnum.
Það kveikti í leikmönnum Vals að
tapa í undanúrslitum bikarsins, ein-
mitt gegn KR. Síðan þá hefur Vals-
liðið unnið risastóra sigra á Grinda-
vík, Snæfelli og Skallagrími. Það er
eldmóður í Valskonum og þær ætl-
uðu ekki að láta KR-inga stöðva sig í
gær. Helena Sverrisdóttir sýndi enn
og aftur hversu góð hún er, því hún
skoraði 23 stig og tók tíu fráköst. Þá
sprakk Kiana Johnson út í seinni
hálfleik og átti stærstan hlut í því að
Valur náði stóru forskoti, sem lagði
grunninn að sigrinum. Hallveig
Jónsdóttir gerir alltaf sitt og þá
verður Dagbjört Dögg Karlsdóttir
sterkari og sterkari. Valsliðið er
gríðarlega vel mannað og munu
sennilega fáir veðja gegn Val í úr-
slitakeppninni.
Horft framhjá deildartitlinum
Í körfubolta hér á landi eru flestir
sammála um að Íslandsmeistaratit-
illinn sé sá stærsti, síðan bikar-
meistaratitillinn og á eftir honum
deildarmeistaratitillinn. Áðurnefnd
Hallveig segir deildartitilinn hins
vegar mjög mikilvægan. „Mér finnst
svolítið lítið horft á þennan titil mið-
að við hversu mikilvægur hann er.
Þetta er erfiðasti titilinn til að vinna
og ég er mjög stolt af honum,“ sagði
Hallveig við Morgunblaðið. Hún við-
urkenndi sömuleiðis að bikartapið
gegn KR í síðasta mánuði hefði haft
áhrif á undirbúning Valsliðsins.
„Heldur betur, en við erum alls ekki
búnar að hefna fyrir neitt. Við mun-
um ekki gera það fyrr en við verð-
um Íslandsmeistarar,“ sagði Hall-
veig ákveðin.
KR þarf ekki að skammast sín
fyrir að lenda í öðru sæti á eftir liði
sem er jafn sterkt og Valur og þá
sérstaklega þegar Hildur Björg
Kjartansdóttir er ekki með vegna
meiðsla. KR mun sparka fastar frá
sér þegar hún verður heil heilsu.
Liðið hefur áður sýnt að það getur
unnið Val.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mikilvæg Dagbjört Dögg Karlsdóttir sækir að KR-ingum. Hún er mikilvægur hlekkur í Valsliðinu sem varði deildarmeistaratitil sinn í gærkvöldi.
Ekki búnar að hefna fyrir neitt