Morgunblaðið - 04.03.2020, Page 27
LANDSLIÐIÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Kórónuveiran hefur ekki haft mikil
áhrif á Söru Björk Gunnarsdóttur,
landsliðsfyrirliða Íslands í knatt-
spyrnu, en hún er búsett í Þýska-
landi þar sem hún spilar með
Þýskalandsmeisturum Wolfsburg.
Sara, sem er 29 ára gömul, flaug til
Spánar á mánudagskvöldið síðasta
þar sem hún hitti fyrir íslenska
kvennalandsliðið sem tekur þátt í
alþjóðlegu móti á La Manga ásamt
Norður-Írlandi, Skotlandi og
Úkraínu en fyrsti leikur íslenska
liðsins er gegn Norður-Írlandi í
dag.
„Ég kom bara til Spánar í gær-
kvöldi (fyrradag) þannig að und-
irbúningurinn hefur kannski ekki
verið mikill hjá mér sem slíkur,“
sagði Sara í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Stelpurnar eru
búnar að taka eina góða æfingu og
svo tökum við daginn í dag (í gær) í
að undirbúa okkur eins vel og kost-
ur er fyrir leikinn gegn Norður-
Írlandi á morgun. Mér líst vel á ný-
liðana í hópnum og maður fær
tækifæri til þess að sjá þá aðeins
betur á æfingunni seinni partinn í
dag (í gær). Þar sem að ég spila í
Þýskalandi sé ég minna af þessum
leikmönnum sem spila heima á Ís-
landi. Þær hafa hins vegar staðið
sig það vel að þær eru komnar í
hópinn og það verður gaman að sjá
hvernig þær munu standa sig í
landsliðinu. Það er alltaf spennandi
að fá inn nýja leikmenn og það er
bara jákvætt fyrir íslenska kvenna-
landsliðið.“
Lítið umstang í Þýskalandi
Sara og liðsfélagar hennar í
Wolfsburg fengu fræðslufyr-
irlestur um kórónuveiruna sem nú
herjar á heimsbyggðina en Sara
segist hafa verið varari um sig en
vanalega á ferðalagi sínu til Spánar
á mánudag.
„Ég lenti ekki í neinu veseni á
ferðalagi mínu til La Manga en
maður var klárlega meira var um
sig en vanalega. Heilt á litið er
stemningin yfir kórónuveirunni í
Þýskalandi frekar róleg. Við hjá
Wolfsburg fengum fyrirlestur um
vírusinn og hvað væri best að gera
til þess að forðast smit og ég held
að það hafi róað mannskapinn. Pa-
nikkið hefur ekki verið mikið í
Þýskalandi og mun minna en ég
bjóst við. Þetta hefur vissulega
verið mikið í umræðunni í landinu
en umstangið í kringum þetta hef-
ur ekki verið mikið.“
Sara hefur verið talsvert frá
vegna meiðsla en hún spilaði sinn
fyrsta deildarleik um helgina í
tæpa þrjá mánuði þegar hún kom
inn á sem varamaður á 65. mínútu í
6:0-útisigri Wolfsburg gegn Jena.
Beinmar og bakslag
„Endurkoman hefur gengið upp
og niður hjá mér því satt best að
segja bjóst ég alls ekki við því að
vera svona lengi frá vegna meiðsla.
Ég var með beinmar í hnénu sem
var nánast horfið og ég ákvað samt
sem áður að spila ekki síðustu tvo
leiki síðasta árs til þess að hvíla vel.
Ég ætlaði svo að byrja árið af mikl-
um krafti og þá kom smá bakslag
hjá mér. Ég þurfti þess vegna að
vera þolinmóð en ég náði góðum
hálftíma um síðustu helgi sem var
mjög jákvætt fyrir mig.
Ég hafði ekkert spilað síðan í nóv-
ember á síðasta ári en þetta er allt
að koma og það eru mikilvægir
mánuðir framundan hjá mér og lið-
inu þar sem að maður vill standa sig
vel. Þetta er hins vegar allt á réttri
leið og ég er mjög spennt fyrir loka-
mánuðum tímabilsins.“
Mikilvægt að nýta tímann vel
Alþjóðlega mótið á La Manga er
hluti af undirbúningi íslenska liðsins
fyrir leikina gegn Ungverjalandi og
Slóvakíu í undankeppni EM sem
fram fara 9. og 13. apríl næstkom-
andi en Ísland er með 9 stig í efsta
sæti F-riðils eftir þrjá leiki, líkt og
Svíþjóð.
„Það er mikilvægt fyrir okkur að
fá þessa landsleiki á þessum tíma-
punkti. Það er langt síðan við stelp-
urnar hittumst síðast og við erum
þannig séð allar í sitthvorum lið-
unum. Við fáum ekki mikinn tíma
saman þegar að við hittumst undir
eðlilegum kringumstæðum og það
þarf þess vegna að nýta þennan til-
tekna tíma alveg í botn. Þessir þrír
leikir eru mikilvægir fyrir okkur all-
ar því þeir gefa okkur ákveðna
mynd af því hvar við stöndum sem
lið. Við erum ennþá á fullu í und-
ankeppni EM og þessir leikir gefa
okkur meðal annars tækifæri til
þess að skerpa á ákveðnum atriðum
fyrir seinni hluta undankeppn-
innar.“
Horfir til Evrópulanda
Sara verður samningslaus næsta
sumar og gaf hún það út á dögunum
að hún væri á förum frá Þýskalandi
en landsliðsfyrirliðinn á þó von á því
að spila áfram í Evrópu.
„Ég er að skoða mín mál og mun
taka ákvörðun um framtíð mína á
komandi vikum. Þetta er í bígerð ef
svo má segja en ég er með nokkur
tilboð í höndunum, ég get alveg við-
urkennt það. Planið er að halda sig í
Evrópu og ég er að horfa til Frakk-
lands, Englands og Spánar eins og
staðan er núna. Þetta eru þau lönd
sem mér finnst áhugaverðust fyrir
næstu skref á ferlinum,“ sagði Sara
Björk í samtali við Morgunblaðið.
Nýir leikmenn spennandi
Sara Björk er komin aftur á völlinn eftir meiðsli Ísland mætir Norður-
Írlandi á alþjóðlegu móti á Spáni í dag England, Frakkland og Spánn heilla
Morgunblaðið/Eggert
Spánn Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir mæta Norður-
Írum í fyrsta leiknum á Pinetar-mótinu á Spáni í dag.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
Seiko Hashimoto, ólympíu-
málaráðherra Japan og fyrrverandi af-
rekskona í bæði skautahlaupi og hjól-
reiðum, sagði í gær að til greina kæmi
að fresta Ólympíuleikunum í Tókýó um
vikur eða mánuði vegna kórónuveir-
unnar. Í gær voru um þúsund Japanir
smitaðir af henni og tólf látnir. Leik-
arnir eiga að standa yfir 24. júlí til 9.
ágúst en Hashimoto sagði að sam-
kvæmt samningi ættu leikarnir að fara
fram á árinu 2020 og því ætti að vera
svigrúm til að halda þá síðar á árinu ef
nauðsyn krefði.
Bjarki Már Elísson er áfram með
átta marka forskot á Hans Óttar Lind-
berg í einvígi þeirra um markakóngs-
titil þýsku 1. deildarinnar í handknatt-
leik. Bjarki skoraði 7 mörk fyrir Lemgo
í útisigri á Ludwigshafen í gærkvöld,
36:29, og Hans Óttar skoraði 7 mörk
fyrir Füchse Berlín sem gerði jafntefli,
26:26, við Bergischer á útivelli. Eftir
26 umferðir af 34 hefur Bjarki skorað
194 mörk í deildinni en Hans Óttar
186.
Elvar Már Friðriksson og félagar í
Borås unnu í gærkvöld sinn ellefta sig-
ur í röð í sænsku úrvalsdeildinni í
körfuknattleik en þeir eru með sex
stiga forskot á Luleå á toppi deild-
arinnar. Elvar skoraði 20 stig í leiknum
en Borås vann Nässjö auðveldlega á
útivelli, 105:78.
Páll Kristinsson var í gær kjörinn
formaður knattspyrnudeildar KR.
Hann tekur við af Kristni Kjærnested
sem hefur stýrt deildinni um árabil og
kveður með Íslandmeistaratitli karla
2019.
Erik Hamrén, þjálfari karlalandsliðs
Íslands í knattspyrnu, sagði við Fot-
bollskanalen í gær að landar sínir þeir
Janne Andersen, þjálfari Svía, og Lars
Lagerbäck, þjálfari Norðmanna, yrðu
sér innan handar við upplýsingar um
lið Rúmeníu fyrir umspilsleikinn á
Laugardalsvellinum 26. mars. Rúmen-
ar voru í riðli með Svíum og Norð-
mönnum í undankeppni EM.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari
Englands í knattspyrnu, sagði eftir
dráttinn í Þjóðadeild UEFA í gær að
riðill enska liðsins hefði getað verið
sterkari því það hefði getað dregist
gegn Þýskalandi eða
Króatíu úr fjórða
styrkleikaflokki. Ís-
land og Pólland voru
hin tvö liðin sem
komu til greina úr
þeim flokki. South-
gate tók við enska
liðinu eftir að það
tapaði 2:1 fyrir Ís-
landi á EM 2016 í
Frakklandi en Roy
Hodgson sagði
starfinu lausu
strax eftir leik-
inn.
Eitt
ogannað
Þýska handknattleiksfélagið
Magdeburg tilkynnti í gær að það
hefði framlengt samning sinn við
Gísla Þorgeir Kristjánsson, sem nú
er samningsbundinn félaginu til
ársins 2023. Hann kom til Magde-
burg frá Kiel í janúar en slasaðist á
öxl í fyrsta leiknum með liðinu í síð-
asta mánuði og spilar ekki meira á
þessu tímabili. „Gísli sýndi á þeim
tveimur vikum sem hann æfði og
lék með okkur að hann er gríð-
arlega efnilegur og hæfileikarík-
ur,“ sagði Bennet Wigert, íþrótta-
stjóri Magdeburg, á vef félagsins.
Sömdu við Gísla
á ný til 2023
Ljósmynd/Magdeburg
Magdeburg Gísli Þorgeir Krist-
jánsson verður þar næstu árin.
Knattspyrnumaðurinn Adam Örn
Arnarson gekk í gær til liðs við
norska félagið Tromsö og er því
kominn aftur til Noregs eftir hálft
annað tímabil með Górnik Zabrze í
Póllandi. Adam lék 13 leiki í pólsku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en
hafði aðeins komið við sögu í einum
bikarleik í vetur. Adam, sem er 24
ára bakvörður, lék áður með Aale-
sund í Noregi í þrjú ár og þar á
undan með Nordsjælland í Dan-
mörku. Tromsö féll úr úrvalsdeild-
inni síðasta haust og Adam leikur
því með liðinu í B-deildinni í ár.
Adam kominn
aftur til Noregs
Ljósmynd/aafk.no/Srdan Mudrinic
Noregur Adam Örn Arnarson er
kominn aftur á gamlar slóðir.
HANDKNATTLEIKUR
Coca Cola bikar kvenna, undanúrslit:
Laugardalshöll: KA/Þór – Haukar .......... 18
Laugardalshöll: Valur – Fram ............ 20.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Borgarnes: Skallagrímur – Snæfell.... 19.15
Smárinn: Breiðablik – Keflavík........... 19.15
Ásvellir: Haukar – Grindavík .............. 19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Samsung-völlur: Stjarnan – Valur........... 19
Í KVÖLD!
ÞJÓÐADEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Enska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir í
fyrsta skipti í mótsleik á Laugardalsvöllinn í
haust og þar er viðbúið að Englendingar verði
með í huga ósigurinn gegn Íslandi í 16-liða úrslit-
um Evrópukeppninnar í Nice fyrir fjórum árum.
Ísland og England eru í riðli með Belgíu, efsta
liði heimslista FIFA, og Danmörku í A-deild
Þjóðadeildarinnar 2020-2021 sem dregið var til í
Amsterdam í gær og því eru þrjú afar áhugaverð
landslið á leiðinni til landsins í september og
október þegar heimaleikir Íslands verða spil-
aðir.
Niðurröðun riðilsins liggur ekki fyrir en leikið
er dagana 3. til 8. september, 8. til 13. október og
12. til 17. nóvember, tveir leikir í hvert skipti.
Deildirnar og riðlarnir í Þjóðadeild UEFA 2020-
21 eru þannig skipuð:
A-deild
1: Holland, Ítalía, Bosnía, Pólland.
2: England, Belgía, Danmörk, Ísland.
3: Portúgal, Frakkland, Svíþjóð, Króatía.
4: Sviss, Spánn, Úkraína, Þýskaland.
B-deild
1: Austurríki, Noregur, Norður-Írland, Rúmenía.
2: Tékkland, Skotland, Slóvakía, Ísrael.
3: Rússland, Serbía, Tyrkland, Ungverjaland.
4: Wales, Finnland, Írland, Búlgaría.
C-deild
1: Svartfjallaland, Kýpur, Lúxemborg, Aserbaídsjan.
2: Georgía, N-Makedónía, Eistland, Armenía.
3: Grikkland, Kósóvó, Slóvenía, Moldóva.
4: Albanía, Hvíta-Rússland, Litháen, Kasakstan.
D-deild
1: Færeyjar, Lettland, Andorra, Malta.
2: Gíbraltar, Liechtenstein, San Marínó.
Úrslitakeppni sumarið 2021
Sigurlið riðla A-deildar leika til úrslita um
meistaratitilinn sumarið 2021, á heimavelli ein-
hvers þeirra. Botnlið riðlanna falla um deild
(nema hvað aðeins tvö lið falla úr C-deild) og sig-
urlið riðla í B-, C- og D-deildum fara upp í næstu
deild.
Árangur í Þjóðadeildinni getur hjálpað til í und-
ankeppninni fyrir HM 2022 í Katar. Tvö lið sem
ekki hafa tryggt sér sæti á HM eða í umspili fá
sæti í umspilinu út frá frammistöðu sinni í Þjóða-
deildinni.
Loks kemur England í Laugardal
Íslendingar eru einnig í riðli með Dönum og Belgum í Þjóðadeild UEFA í haust