Morgunblaðið - 04.03.2020, Page 29

Morgunblaðið - 04.03.2020, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020 Þýski gjörningalistamaðurinn Ulay er látinn, 76 ára að aldri. Bana- mein hans var eitlakrabbamein. Ulay var þekktastur fyrir ögrandi samstarf sitt við serbnesku lista- konuna Marinu Abramovic en hún er þekktasti gjörningalistamaður samtímans. Utay og Abramovic voru par á áttunda og níunda áratugnum. Lengst af bjuggu þau í sendibíl og óku milli sýningastaða í Evrópu þar sem þau settu upp ögrandi og umtalaða gjörninga, sem oft tóku langan tíma og voru einnig hættu- legir. Í einum beindi hann lengi beittri ör í spenntum boga að hjarta hennar og í öðrum krupu þau andspænis hvort öðru og létu löðrunga ganga á víxl. Lokagjörn- ingurinn árið 1988 markaði skilnað þeirra en þá gengu þau af stað frá sitthvorum enda Kínamúrsins og eftir að hafa gengið hvort hátt í 3.000 km mættust þau á miðri leið og kvöddust, án þess að nema stað- ar, og héldu svo áfram. Eftir að hafa ekki sést í yfir 20 ár mætti Ulay óvænt á frægan út- haldsgjörning Abramovic í MoMA í New York árið 2010 og kom henni fallega á óvart. Árið 2015 höfðaði Ulay mál gegn Abramovic og sagði hana skulda sér fé. Hann vann málið en í kjöl- farið sættust þau og komu saman fram í kvikmynd um samstarf sitt. AFP Frumherji Ulay á sýningu Marinu Abramo- vic í MoMA, með bækur um hana. Gjörningalistamað- urinn Ulay allur Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Þegar Gyða, óútgefið skáld sem gengur með frábæra hugmynd að stórri skáldsögu í kollinum, fær rit- stíflu og ekkert gengur að koma sögunni á blað verður til Plan B. Hennar varaáætlun er að skrifa um sitt eigið líf á meðan á ritstíflunni stendur. „Þetta byrjar á því að hún opnar nýtt skjal í tölvunni þar sem hún fær útrás á meðan hún getur ekki skrifað skáldsöguna,“ segir Guðrún Inga Ragnarsdóttir höfundur skáld- sögunnar Plan B sem kom út í kiljuklúbbi Forlagsins í nóvember síðastliðnum og fór í almenna sölu í janúar. Þegar ritstífla Gyðu brestur ekki er sögunni vindur áfram finnst henni þurfa að lífga aðeins upp á frásögnina í Plani B. „Hún vill kom- ast áfram í skáldsögunni sjálfri en það er alltaf Plan B sem hefur yfir- höndina og það er þar sem hún nær að halda áfram og skrifa eitthvað. Þegar hún fer að gera sér grein fyr- ir því að það verður kannski ekkert úr skáldsögunni ákveður hún að reyna að gera eitthvað sjálf svo Plan B verði meira spennandi,“ seg- ir Guðrún en Gyða fer meðal annars til Kaupmannahafnar og endurnýj- ar kynnin við persónur óskrifuðu skáldsögunnar sem hún kynntist er hún starfaði í heimaþjónustu þar í borg og úr verður spennandi ferða- lag. Of löng til að byrja með Bókin er fyrsta skáldsaga Guð- rúnar en skrifin tóku sinn tíma. Hún fékk nýræktarstyrk Mið- stöðvar íslenskra bókmennta árið 2014 til að vinna að skáldsögunni sem er nú komin út. „Þá var ég byrjuð og komin svo- lítið áleiðis, ég hélt að þetta myndi taka mun styttri tíma og veit eigin- lega ekki af hverju ég var svona lengi að þessu,“ segir Guðrún og hlær. „En með svona bók með þetta flæði þá skrifaði ég hana bara út og hún varð allt of löng svo ég þurfti að stytta hana heilmikið eftir á. Það er líka hluti af því af hverju þetta tók svona langan tíma.“ Smásögur heilla Spurð segist Guðrún tengja að einhverju leyti við aðalsöguhetjuna í bók sinni. „Við eigum ýmislegt sameiginlegt. Margir spyrja mig hvort þetta sé ég og það er svo sem ekkert skrýtið því við erum báðar að skrifa og ég var sjálf að vinna í heimaþjónustu í Kaupmannahöfn,“ segir Guðrún og bætir við að flestar persónurnar eigi sér fyrirmynd í raunveruleikanum. „Ég vil þó helst ekki tengja mig of mikið við Gyðu þó að við eigum eitthvað sameigin- legt, við erum líka um margt ólíkar, sem betur fer.“ Guðrún hefur fengist við skrif lengi og lauk meistaranámi í ritlist frá Háskóla Íslands árið 2014 en hún var með þeim fyrstu sem lögðu stund á meistaranám í ritlist hér á landi. Þá hefur hún skrifað smásög- ur sem birst hafa í tímaritum auk þess að hún var ein sjö skálda sem stóðu að sameiginlegu ljóðabókinni Ég erfði dimman skóg sem kom út árið 2015. Á næstu misserum stefnir Guð- rún að því að vinna að smásagna- safni. „Mig langar að gera eitthvað úr þessum smásögum mínum og skrifa kannski nokkrar í viðbót. Ég hugsa að það verði svona það næsta.“ Eiga ýmislegt sameiginlegt  Plan B er fyrsta skáldsaga Guðrúnar Ingu Ragnarsdóttur  Fjallar um rithöfund sem fær ritstíflu  Guðrún hélt að skrifin myndu taka styttri tíma Morgunblaðið/Árni Sæberg Varaáætlun Guðrún Inga Ragnarsdóttir skrifar um skáldið Gyðu í fyrstu skáldsögu sinni sem kom út í janúar. Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is WHAT YOU CAN’T SEE CAN HURT YOU EL ISABETH MOSS FEBRUARY 28 T H E INV I S I B LE MAN SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell ADifferent Kind of Disaster Movie.  Rás 2  FBL m.a. ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN BESTA MYNDIN m.a. ÓSKARSVERÐLAUN4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.