Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020
Litina hennar Sæju
færð þú í Slippfélaginu
GÆÐIN
Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið.
Votur
Volgur Ber
Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík,
Dalshrauni 11, Hafnarfirði
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ
Gleráreyrum 2, Akureyri
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is
ÆÐI – ÍKORNI, HUGSAÐI BJÖRN MEÐ
SÉR. ÉG HELD AÐ EKKERT EIGI EFTIR
AÐ TOPPA ÞETTA Í DAG.
„ÞÚ MISSTIR RÚÐUNA ÞARNA!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að elska bæði góðu og
slæmu hliðarnar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÚFF, MÉR ER ALDEILIS
AÐ FÖRLAST
PIRRA
ÉR ÞIG?
NEI ERTU
VISS?
JÁ
VÆRI ÞAÐ DÓNALEGT EF ÉG BIÐI
UM FLEIRI BRAUÐBOLLUR?
EKKI JAFNDÓNALEGT OG ÞAÐ VAR AF ÞÉR
AÐ KLÁRA ALLAR BOLLURNAR!
IG ÞIG?
rekstrartæknifræðingur, búsettur í
Mosfellsbæ. Kona hans er Hólm-
fríður Sigurðardóttir, f. 22.7. 1963.
Börn þeirra eru Ernir Hrafn og Mar-
grét Helga. Fósturdóttir Ólafs og
Helgu var Hafrún, f. 7.1. 1971, d.
15.12. 2005. Börn hennar eru Ólafía
Helga, Alexander Gunnar, Jóhann
Ingi, Hafsteinn Ari, Halldóra Fanný,
Elísabet og Rebekka.
Ólafur á tvo bræður. Þeir eru 1)
Magnús Gunnarsson arkitekt, f. 30.3.
1944, búsettur í Broadford á Isle of
Sky í Skotlandi, kvæntur Morag, f.
14.8. 1951. Börn þeirra eru Gréta,
Andri og Marteinn; 2) Gunnar Ingi
Gunnarsson, f. 14.4. 1948, raftækni-
fræðingur og fyrrverandi stjórnar-
formaður Verkís, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Vigdísi
Hallgrímsdóttir, f. 13.12. 1949. Börn
þeirra eru Inga Hrund og Ketill.
Foreldrar Ólafs voru hjónin Gunn-
ar Ólafsson, f. 21.6.1911, d. 29.12.
2003, skólastjóri í Neskaupstað, og
Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 6.6. 1911,
d. 26.1. 2001, bókavörður í Neskaup-
stað.
Ólafur J.
Gunnarsson
Ísleif Magnúsdóttir
húsfreyja í Gerði,
síðar vinnukona víða
Þorsteinn Jónsson
bóndi í Gerði í Hvolhr.,Rang.
Jónína Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Magnús Ólafsson
bifreiðarstjóri í Rvík
Ingibjörg Magnúsdóttir
bókavörður í Neskaupstað
Ingibjörg Magnúsdóttir
húsfreyja á Lækjarbotnum
Ólafur Þorsteinsson
bóndi á Lækjarbotnum
á Seltjarnarnesi og í
Þormóðsdal í Mosfellssveit
Steinar Magnússon
fv. skipstjóri hjá Eimskip
Guðbjörn Einarsson bóndi
og hreppstjóri á Kárastöðum
Einar Halldórsson bóndi og
hreppstjóri á Kárastöðum
Lárus Halldórsson
skólastjóri í Mosfellssveit
Jóhanna Margrét
Magnúsdóttir
húsfreyja á Kárastöðum
Halldór Einarsson
bóndi á Kárastöðum í Þingvallasveit
Jóhanna Margrét Halldórsdóttir
húsfreyja á Þverá í Miðfirði
Ólafur Halldórsson
bóndi á Þverá og
verkamaður í Rvík
Gróa Jónsdóttir
bústýra á Litlu-Fellsöxl
í Hvalfjarðarsveit
Halldór Ólafsson
verkamaður á Hvammstanga
Úr frændgarði Ólafs J. Gunnarssonar
Gunnar Ólafsson
skólastjóri í Neskaupstað
Ég hitti karlinn á Laugaveginumvið gamla tukthúsið. Hann
hallaði höfðinu eilítið aftur á bak til
vinstri þar sem hann horfði upp
Skólavörðustíginn og sagði með
sínum áherslum:
Hallgríms er kirkjan á holtinu
hátimbruð trúar af stoltinu;
full trausts og af vana
horfir á hana
mín kerling í kotinu á holtinu.
– Og snerist á hæl.
Anton Helgi Jónsson yrkir á
Boðnarmiði:
Þótt venjuleg rútína víki
en veiran og smithætta ríki,
ég kjark í mig tel;
nú kemur sér vel
mín króníska frestunarsýki.
Ingólfur Ómar Ármannsson veit
sínu viti:
Eitt er ráðið eitursnjallt
að engu vil þó rasa.
Sprækur nú ég spranga um allt
með spíraglas í vasa.
Philip Vogler svaraði:
Þótt sprækur Ómar springi brátt
sprellið frá ei bægir.
Þar COVID-sýking sækir dátt
sopinn varla nægir.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
segir að handþvottur sé besta
lausnin:
Oft af illu fallinn fer
fiðring stundum gefur.
Að vaska hendur vel á sér,
verndina bestu hefur.
Vel liggur á Guðmundi Halldórs-
syni:
Nú er ég orðinn nokkuð góður
nú hefur risið gengi mitt
nú er ég orðinn næs og rjóður
nú hef ég fengið morgunspritt
Ekkert raskar ró Péturs Stefáns-
sonar:
Mig þó þjaki þetta og hitt
og þankinn fyllist trega,
getur ennþá stund mér stytt
stakan yndislega.
Steinn Steinarr orti:
Þótt ég meini þetta og hitt
þér ég reyna vil að segja:
þú ert eina yndið mitt
uns ég seinast fer að deyja.
Hér er staka eftir Freystein
Gunnarsson:
Mjög er hún Anna mittisgrönn,
mig ei önnur gleðja kann.
Hana að spanna er sæla sönn
en sú er bönnuð ánægjan.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kirkjan á holtinu
og veiran