Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 19
varð ekki eins og upphaflega til stóð. Næstu árin skipti hún reglu- lega um lit en aldrei skildi ég (og mun líklega aldrei skilja) hvernig hægt er að fara í greiðslu og sofa síðan heila nótt, jafnvel nætur, án þess að skemma hárgreiðsluna. Sumir hafa einstaka hæfileika. Eitt af því sem við áttum sam- eiginlegt var lofthræðsla og það var vegna þess sem hún í eitt skiptið skammaði mig rækilega. Við vorum þá að keyra niður skarð í svissnesku Ölpunum þegar mér varð á að líta af veginum eitt augnablik þá titrandi við stýrið og hún sat beint fyrir aftan mig og passaði upp á að ég horfði á veginn og ekkert annað. Árið 1997 urðu mikil tímamót í fjölskyldunni þegar eiginkona mín sá auglýsingu í Velvakanda (Morgunblaðinu), en þá var norski hluti fjölskyldunnar að leita að ættingjum sínum hér á landi. Kon- an mín hringdi strax í símanúm- erið sem gefið var upp og lét svo móður sína vita að frændfólkið hennar í Noregi væri fundið. Strax við fyrstu heimsókn mynd- uðust sterk vina- og fjölskyldu- bönd sem hafa leitt til ótal ferða og árið 2000 ákváðu bræður tengda- móður minnar að sækja hana heim til Íslands. Sú heimsókn varð öllum gríðarlega dýrmæt og eftir það lét hún setja inn norska ætt- arnafnið Halsør. Tengdamóður minnar verður sárt saknað eftir 40 ára samfylgd. Ég votta börnum hennar, barna- börnum og barnabarnabörnum mína innilegustu samúð. Megi al- góður Guð blessa ykkur og minn- ingu Guðlaugar Halsør. Sveinbjörn. Elsku amma Lalla. Við horfum á eftir þér með söknuð í hjarta og þakklæti fyrir allar þær stundir sem við máttum eiga með þér og þær minningar sem eftir sitja. Þú varst okkur alltaf svo góð og kenndir okkur svo margt. Það eru oft litlu hlutirnir sem sitja hvað fastast eftir, eins og það hvernig traust þitt til Drottins birtist svo sterkt í orðunum „ef Guð lofar“. Þú treystir því að Guð væri við stjórnvölinn í lífi þínu og á þessum tímamótum treystum við því að þú sért nú í faðmi og umönn- un Jesú. Þær eru líka dýrmætar allar bænirnar sem þú kenndir okkur barnabörnunum þínum og fórst með með okkur þegar við vorum lítil og gistum hjá þér. Ég er þér þakklátur fyrir allt það sem þú kenndir okkur og fyrir þá trúarfyrirmynd sem þú hefur ver- ið mér. Ég man líka hvað þú varst alltaf dugleg að hringja í okkur. Þú sýndir í verki hversu dýrmæt fjöl- skyldan, og sérstaklega við barna- börnin þín, vorum þér. Það var alltaf gott að koma til þín í jólamat á annan í jólum og njóta dýrind- ismatarins sem þá var á boðstól- um. „Græna salatið“ þitt er fyrir löngu orðinn mikilvægur liður á jólamatseðli fjölskyldunnar. Við vorum alltaf velkomin í heimsókn til þín og þú tókst alltaf svo vel á móti okkur. Það er ekki hjá hverjum sem er sem maður fær að vera með lykla og getur bókstaflega boðið sjálfum sér í heimsókn hvenær sem er. Þær eru margar góðu minningarnar sem ég á frá heimsóknunum til þín og að gista hjá þér, bæði frá leikjum úti í garðinum, rólegheitalestri inni, góðu spjalli og spilum. Ég man líka hvað þú varst dugleg að leggja kapla og kenndir okkur nokkra góða sem maður grípur enn reglulega í. Við vitum að síðustu ár hafa verið erfið en þú hefur sýnt ótrú- legan styrk í gegnum þau veikindi sem hafa herjað á. Við trúum því og treystum að nú fáir þú að njóta friðar og hvíldar í faðmi Guðs á himnum. Megi Guð blessa þig og minninguna þína elsku amma Lalla mín. Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson. Minningarnar á ég margar um ömmu Löllu og minningarnar ylja þó að þær í dag kalli líka fram tár. Á margan hátt eru þetta góð tár eins og ég hef getað útskýrt það fyrir barnabarnabörnum ömmu Löllu minnar, þó að vissulega séu þetta sorgartár líka. Ömmu þótti afskaplega vænt um mig og mér þótti vænt um hana. Kærleikur hennar fór aldrei fram hjá mér og það hjálpar mér að takast á við sorgina sem ég stend frammi fyrir nú að hugsa til þess hvernig kær- leikur hennar birtist með ýmsum hætti strax frá upphafi. Ekki var mikið langferðarsnið á ömmu, þrátt fyrir það var hún ekki lengi að stökkva upp í flugvél til Dan- merkur þegar ég kom í heiminn. Þegar ég varð eldri og fjölskyldan flutt til Íslands hringdi hún nánast daglega í okkur, ekki bara til þess að heyra í mömmu, heldur og til þess að tala við okkur barnabörnin og heyra hvað væri að gerast í okkar lífi. Hún hafði alltaf áhuga á að heyra um okkur og í okkur. Þegar ég fór að eldast þá ræddum við ýmis mál og vorum ekki endi- lega sammála en gátum skipst á skoðunum. Það þótti mér vænt um. Þegar ég svo kvæntist og stofnaði mína eigin fjölskyldu tók hún okkur opnum örmum, meira að segja Mola, hundinn okkar sem ávallt var velkominn á heimilið í Keflavík. Og þrátt fyrir að berjast við málstol og önnur veikindi á síð- ari árum var eins og hún fengi aukaorku við það að heyra af okk- ur barnabörnunum sínum og oftar en ekki sást glitta í bros og gleði í augunum þegar barnabarnabörn- in komu í heimsókn eða fréttir af þeim bárust henni þó að annar tjáningarmáti væri oft á tíðum erf- iður síðustu misserin. En það eru ekki síst minning- arnar af heimsóknunum til ömmu sem ylja og minna á kærleika hennar í garð okkar barna- barnanna. Ekki eingöngu dekraði hún iðulega við okkur og gaf okk- ur nammi við góð tækifæri, heldur gaf hún okkur barnabörnunum það dýrmætasta sem hún gat gef- ið. Leiðsögn og fyrirmynd um mikilvægi bænarinnar og trúar- innar. Einhverjar mínar sterkustu minningarnar sem ég á um ömmu mína í dag eru einmitt þegar við báðum saman. Í gegnum bænina upplifði ég einnig hinn einlæga kærleika og þá umhyggju sem hún átti gagnvart mér. Fyrir þetta er ég þakklátur. Á degi þegar kær fjölskyldumeðlimur er kvaddur í síðasta sinn og með jafn endanleg- um hætti er fátt jafn mikilvægt og eiga þessar kærleiksminningar og finna þakklætistilfinningu í hjarta sér. Ég bið góðan Guð að blessa minningu hennar ömmu Löllu. Davíð. „Elsku hjartans kellingin mín.“ Þetta sagði amma oft við mig þeg- ar við töluðum saman. Amma mín og nafna var yndisleg kona. Hún var dugleg að passa mig þegar ég var yngri og þá brölluðum við margt saman. Það er margt sem stendur upp úr því hjá mér. Við fórum til dæmis oft niður í bæ í Keflavík eða í kaupfélagið að kaupa mat, t.d. Billy-pítsur eða sætabrauð, eins var amma dugleg að kaupa garn til að prjóna úr. Hún prjónaði fullt fyrir barna- börnin sín og allar dúkkurnar mín- ar. Ég var mjög áhugasöm um prjónadótið hennar og fannst ömmu það held ég nokkuð gaman. Allavega tók hún sig til þegar ég var einu sinni í heimsókn hjá henni og kenndi mér að prjóna. Ég er henni mjög þakklát fyrir það, enda hef ég prjónað margt síðan þá. Amma kenndi mér ekki bara að prjóna heldur kenndi hún mér líka að leggja kapal og spila Svarta- Pétur. Við sátum ófáum stundum inni í eldhúsinu hennar og spiluð- um saman eða þá að amma lagði kapal og ég fylgdist vel og vand- lega með til að geta lagt hann seinna sjálf. Amma kenndi mér líka margar góðar bænir sem hún fór alltaf með á kvöldin áður en ég fór að sofa. Amma var trúuð kona og fylgdi Guði. Hún hlustaði oft á útvarpsmessur og kvaddi fólkið sitt líka oft með orðunum „ef Guð lofar“, því amma trúði því að allt lífið væri í höndum Guðs. Amma hringdi líka reglulega, sérstaklega eftir heimsóknir okkar til hennar, til að athuga hvort við hefðum ekki örugglega skilað okkur heil heim. Amma átti mikið af dönskum blöðum og var hún alltaf með putt- ann á púlsinum þegar kom að dönsku konungsfjölskyldunni. Hún átti líka „fjársjóðsbox“ þar sem hún geymdi fullt af skartgrip- um sem hún hafði átt í gegnum tíð- ina og þegar ég hafði verið dugleg að hjálpa til eða átti skilið smá- verðlaun fékk ég að fara og skoða þennan flotta fjársjóð ömmu og heyra sögur af hlutunum. Amma var mikil fjölskyldukona og bauð alltaf í jólaboð annan í jólum og var alltaf grænt salat á boðstólum, sem mun ávallt vera hluti af jóla- hefðinni minni. Það eru svo margar aðrar minn- ingar sem ég á um hana ömmu mína, sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu. Elsku amma mín, takk fyrir allt! Þín nafna og barnabarn, Guðlaug María. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 þau af siglingaferðum til Got- lands og Finnlands. Seinna Þegar pabbi var kominn á Skjól kom svo mamma með Árdísi systur á hverju sumri í mörg ár öllum til mikillar ánægju. Fráfall mömmu/ömmu núna markar líka tímamót í okkar lífi að því leyti að nú eru engir for- eldrar eða amma og afi að heim- sækja á Íslandi. En heimsóknirn- ar öll þessi ár og þau samskipti sem við gátum haft hafa gefið ömmubörnunum sterka tilfinn- ingu um rætur þeirra á Íslandi. Mínar sterkustu taugar eru og verða alltaf til Íslands. Það sýnir sig best þegar Ísland og Svíþjóð keppa í íþrótt eða söng þá held ég alltaf með Íslandi. Elsku mamma, mig langaði að kveðja þig með þessum línum og ég veit að þú fyrirgefur þótt ís- lenskan mín sé orðin dálítið bjög- uð, en þér var alltaf annt um að leiðrétta mig góðlátlega til að hjálpa mér að viðhalda mínu móð- urmáli og þú gafst mér alltaf ís- lenska bók um hver jól í þeim til- gangi. Ég vil enda á þessari litlu vísu sem þú sýndir mér, þegar við eitt kvöldið sem oftar, sátum í eldhús- inu í Sólheimunum og ræddum saman. Hún lýsir einfaldri og hnitmiðaðri lífsspeki sem finnst mér gott tákn fyrir þín lífsviðhorf. Aldrei skaltu að leiðum lesti leita í fari annars manns, aðeins grafa ennþá dýpra eftir bestu kostum hans. Geymdu ekki gjafir þínar góðum vini í dánarkrans. (HG) Elsku mamma og amma, við söknum þín sárt en minning þín lifir í hjarta okkar ætíð. Ágústa, Ívan, Daníel, Ómar og Mía. Nú þegar amma Gunna hefur kvatt okkur sem elskuðum hana vakna ótal minningar og sár söknuður. Þegar ég loka augun- um sé ég hana fyrir mér í eldhús- inu í Álfheimum eða Sólheimum, útvarpið stillt á rás eitt, kaffi í bolla og fíngerð sígaretta í ösku- bakka við gluggann. Hún brosir til mín og blikkar mig jafnvel, því það var oft eins og hún tæki heim- inn bara mátulega alvarlega. Afi Óli situr við eldhúsborðið og fylg- ist með hverri hreyfingu hennar. Stundum hnussar í henni yfir allri þessari athygli og hún lætur eins og hún fari í taugarnar á henni. Á sama hátt og það hnussar í henni af og til yfir útvarpsfréttum. En því fylgir bros til mín og svipur sem gefur til kynna að við skiljum báðar hvað hún meinar. Í návist ömmu Gunnu ríkti mikil ró. Heima hjá henni var eins og tíminn lyti öðrum lögmálum en annars staðar. Eins og þung slög klukkunnar inni í stofu, klukk- unnar sem afi Óli trekkti upp reglulega, hægðu á gangi tímans. Andrúmsloftið var notalegt, amma leyfði mér að vera í friði að lesa bækur, sauma og hlusta á plöturnar hans Ómars. Allt sem hún gerði virtist áreynslulaust. Ég varð aldrei vör við að það væri mikið að gera hjá henni, að hún væri að drífa sig að klára eitt- hvað. Heimilið var fínt og hún var alltaf vel til höfð, klædd í plíserað pils, bleika eða fjólubláa peysu, hárið nýbúið í lagningu. Ef ég var niðursokkin í það sem ég var að gera, truflaði hún mig bara til að gefa mér hafragraut eða slátur og svo, þegar ég varð eldri, kaffi. Amma bar ómælda virðingu fyrir öllum lestri, öllu námi. Þeg- ar ég fór með þeim afa í bústaðinn þeirra á Eyrarbakka lá ég uppi á lofti og las, ótrufluð, heilu dagana. Ég þurfti aldrei að fara út og hreyfa mig, ekki ömmu vegna. Hún vissi sem var að það var nægilega mikið að hrærast um í kollinum á mér. Þegar ég var ell- efu ára gömul byrjaði ég að lesa sakamálasögur eftir Agöthu Christie og amma tók upp á því að lesa þær líka og spjalla við mig um þær. Ég veit ekki hvort hún áttaði sig á því hversu stolt ég var af því að lesa sömu bækur og full- orðin manneskja. En ég veit að hún naut lestursins, vegna þess að hún hafði dálæti á morðgátum þótt hún hryllti sig gjarnan þegar hún talaði um þær, en kímdi svo. Síðustu ár ömmu á Skjóli kynntist ég henni á annan hátt. Eftir því sem minnið gaf sig hlustuðum við meira á tónlist saman. Elvis, Haukur Morthens, Ellý Vilhjálms hljómuðu um her- bergið hennar og hún lokaði oft augunum, talaði um hvað lögin væru falleg, brosti eins og hún væri einhvers staðar annars stað- ar — einhvern tímann annars staðar, jafnvel — í örstutta stund. Það var ljúft að vera nálægt henni, það breyttist aldrei. Og hún brosti alltaf þegar hún sá mig. Guðrún Elsa Bragadóttir. Í dag, þegar við kveðjum Guð- rúnu systur mína og mágkonu, er margs að minnast. Oft var þess minnst, og haft gaman af, þegar ég smákrakki komst upp á loft í Einarshöfn, þar sem Guðrún og vinkona hennar voru að leika sér með lítið bolla- stell. Ekki fannst þeim ráðlegt að hleypa mér að borðhaldinu og lauk því með að ég reiddist og sópaði niður bollastellinu og möl- braut það. Ég reyndi svo að bæta fyrir brot mitt 50 árum seinna með því að gefa Gunnu lítið boll- astell og hafði hún gaman af. Þrátt fyrir þetta bernskubrek mitt vorum við Gunna mjög náin og fór alltaf vel á með okkur. Ég minnist þess að koma við hjá henni þegar hún vann í Ólabúð á Eyrarbakka, verslun Ólafs Helgasonar hreppstjóra. Man líka eftir henni að afgreiða í Har- aldarbúð í Reykjavík. Guðrún og Ólafur bjuggu fyrst á Njálsgötu 4A í Reykjavík og síð- ar í Álfheimum og Sólheimum. Þar komum við Edda oft og mót- tökurnar alltaf jafn hlýjar og rausnarlegar. Oft var mannmargt hjá foreldrum okkar í Einarshöfn á Eyrarbakka, þegar Gunna, Ólafur og börnin komu austur til að gista. Þá gistum við oft líka með okkar börn og mikill spenn- ingur í krökkunum að gista í flat- sæng. Við minnumst margra gleðistunda með Gunnu og Ólafi hér innanlands, á Spáni og ekki síst þegar þau heimsóttu okkur í Kaupmannahöfn. Gunna var gestrisin og vildi alltaf hafa fólk í kringum sig enda ætíð tekið vel á móti öllum. Hún var snillingur í matargerð og bakstri. Gunna var mjög lagleg kona og gætti þess alltaf að vera vel til höfð. Það vissu ekki allir að hún var mjög listhneigð, málaði olíumálverk og málaði á silki og postulín. Það hafði mikil áhrif á Gunnu þegar hún lærbrotnaði og endaði með að hún gat ekki lengur verið heima. Þá fékk hún inni á Skjóli þar sem vel var hugsað um hana. Hún kvartaði aldrei og sagði allt- af að sér liði vel. Við náðum að kveðja hana nokkrum dögum fyr- ir andlátið og þökkum fyrir að hafa átt góða systur og mágkonu. Við vottum börnum hennar og að- standendum innilega samúð. Jón Ingi og Edda Björg. Kynslóðir koma, kynslóðir fara, þessar línur koma upp í hugann við fráfall Guðrúnar Sig- urmundsdóttur. Kveðjustundir elstu kynslóðarinnar í fjölskyldu okkar hafa verið margar á und- anförnum árum. Guðrún var eig- inkona Ólafs, elsta bróður móður minnar og systkinanna frá Öl- versholtshjáleigu í Holtum. Mikil samheldni var með þeim systk- inum alla tíð. Ég var tíu ára þegar þau Ólaf- ur gengu í hjónaband. Hann hafði alltaf verið duglegur að koma austur í Fljótshlíð að heimsækja móður sína og systkini sem þar bjuggu. Þegar hann var kominn með fjölskyldu komu þau oft þeg- ar tilefni gafst til. Ættingjarnir að austan höfðu gjarnan viðkomu hjá þeim þegar farið var til Reykjavíkur. Ég man eftir heim- sóknum til þeirra bæði á Njáls- götuna og í Álfheima. Þau voru frumbýlingar í Álfheimum, tóku við íbúðinni ótilbúinni en smátt og smátt bjuggu þau sér og fjöl- skyldunni þar fallegt heimili. Þegar svo foreldrar mínir fluttu til Reykjavíkur 1962 keyptu þau íbúð í næsta stigagangi við þau. Þá urðu samskiptin enn meiri og aldrei féll á þau skuggi. Ég man eftir mörgum skemmtilegum veislum, fermingum og afmælum hjá þeim hjónum, þá hittist gjarnan öll stórfjölskyldan. Á þessum árum voru Álfheima- blokkirnar barnmargar og léku krakkarnir sér saman. Börnin okkar systra minnast þess að þau léku sér mikið við Ómar frænda sinn og fóru stundum með honum í sunnudagaskólann í Langholts- kirkju. Guðrún var falleg kona og hafði hlýja og góða nærveru. Hún var listfeng eins og heimili þeirra bar vitni um. Hún málaði fallegar myndir og allt lék í höndum hennar. Hún var hæglát og lá ekki hátt rómur en hafði sínar skoðanir í ýmsum málum. Guð- rún vann ekki utan heimilis á meðan að börnin voru lítil en um árabil unnu móðir mín og hún saman á Prjónastofunni Peysan. Seinna keyptu þau sér aðra íbúð við Álfheima, handan göt- unnar. Þau hjónin héldu sig við Heimahverfið og þegar kom að því að þau minnkuðu við sig hús- næði keyptu þau íbúð við Sól- heima. Foreldrar mínir gerðu það sama stuttu seinna og keyptu sér íbúð í næstu blokk. Það var góð tilfinning að vita af þeim í ná- grenninu og stundum var skroppið yfir í kaffisopa eða hjálpast að ef á þurfti að halda. Eftir að foreldrar mínir fluttu austur á Kirkjuhvol var það alltaf ein af óskum móður minnar þeg- ar hún kom til Reykjavíkur að heimsækja bróður sinn og mág- konu, ekki síður eftir að Guðrún var orðin ein á Skjóli. Þá gátu þær spjallað saman um liðna tíð. Við hjónum héldum áfram að líta inn hjá henni eftir að móðir mín kvaddi. Það gerðum við þó of sjaldan, eitt sinni minnti hún okk- ur á að það væri langt síðan við hefðum komið, með réttu. En hún gerði það á hlýjan hátt eins og hennar var lagið. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka Guðrúnu fyrir öll elskulegheitin sem hún sýndi mér og fjölskyldu minni alla tíð. Hún hefur átt góðrar heimkomu von, þau sem farin eru á undan henni hafa fagnað henni vel. Við Jón sendum börnum henn- ar, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum afkomendum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðrar konu. Erna M. Sveinbjarnardóttir. Ástkær bróðir okkar, ÓLAFUR GUÐJÓN EYJÓLFSSON, sjómaður og málari, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða þriðjudaginn 3. mars. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 14. mars klukkan 14. Systkini hins látna og aðstandendur Elskulegur bróðir okkar, frændi og vinur, JÓN INGI SIGURJÓNSSON, Jonni, frá Norðurkoti á Eyrarbakka, lést laugardaginn 7. mars. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna fer jarðarförin fram í kyrrþey. Systkini, frænkur og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA ÓLAFSDÓTTIR, Víðivöllum v. Elliðavatn, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 9. mars. Ólafur Kr. Guðmundsson Sigrún Konráðsdóttir Björn Ingi Guðmundsson Sigurður V. Guðmundsson Þórdís Guðmundsdóttir Guðmundur V. Guðmundss. Kolbrún Ýr Sigfúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.