Morgunblaðið - 13.03.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020
Andrés Magnússon, blaðamaðurog fjölmiðlarýnir Við-
skiptablaðsins, sagði frá því í nýjum
pistli sínum að það hafi gerst á dög-
unum að Íslandsbanki hafi hafið eft-
irgrennslan um kynjahlutföll á
hverjum fjölmiðli. Þetta hefði kom-
ið í framhaldi af fyrirætlunum Ís-
landsbanka „að
hætta að eiga við-
skipti við fjölmiðla,
þar sem hlutföll
kynja á ritstjórn eru
ekki nokkuð jöfn“.
Andrés bendir áað um áratuga-
skeið hafi verið kynjahalli í stétt
blaðamanna og þróun í átt að minni
halla hafi verið afar hæg.
Þá spyr hann hvernig Íslands-banki vilji að fjölmiðlarnir
bregðist við. Hann bendir á að
reksturinn sé þröngur þannig að
ósennilegt sé að þeir fjölgi stöðu-
gildum til að jafna hallann og spyr
hvort að bankinn ætlist til að karl-
mönnum verði sagt upp til að þókn-
ast bankanum.
Hann bendir líka á að kynja-hlutföll á ritstjórnum séu nán-
ast nákvæmlega þau sömu og hlut-
föll starfandi í fullu starfi á
vinnumarkaðnum í heild sinni og
veltir því upp hvort „bankinn krefji
fjölmiðla um starfsmannastefnu,
sem þeim kann að vera ómögulegt
að uppfylla?“
Þetta eru ábendingar sem skiptamáli. Enn þýðingarmeira í
þessu sambandi er þó að það er
hvorki eðlilegt né æskilegt að banki
beiti fjárhagslegum styrk sínum til
að þvinga fram skoðanir sínar,
hvorki í jafnréttismálum né öðrum.
Eða hvar ætlar bankinn aðdraga mörkin? Ætlar hann að
bjóða fram í næstu þingkosningum?
Andrés
Magnússon
Pólitískur banki?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skil skattframtala einstaklinga
hafa gengið mjög vel samkvæmt
upplýsingum embættis ríkisskatt-
stjóra. Síðastliðinn þriðjudagur
var seinasti skiladagur almennra
skattframtala og höfðu þá ríflega
182 þúsund skilað inn framtali sem
eru tæplega 60% þeirra sem eru á
skattgrunnskrá og þurfa að standa
að skattskilum að því er fram
kemur á vefsíðunni Skatturinn.
Þeir framteljendur sem sóttu um
frest til að skila framtali þurfa að
skila því í seinasta lagi í dag, 13.
mars. Samkvæmt upplýsingum
Ríkisskattstjóra sóttu um 58 þús-
und framteljendur um frest til að
skila síðar.
„Framtalsskil eru betri en þau
voru á sama tíma 2019 en þá voru
skilin einnig mjög góð og höfðu
aukist umtalsvert milli ára,“ segir
í frétt á vef embættisins.
Fram hefur komið að endur-
skoðendur, bókarar og aðrir fag-
aðilar hafa frest fram í apríl til að
skila skattframtölum fyrir við-
skiptavini sína. ,,Fresturinn er
mislangur eftir því hvort um er að
ræða einstakling sem stundar at-
vinnurekstur eða ekki, þ.e. til 14.
apríl vegna þeirra fyrrnefndu og
22. apríl vegna þeirra síðar-
nefndu.“ omfr@mbl.is
60% skiluðu framtali á réttum tíma
Skattskil einstaklinga betri en í fyrra
Frestur til að skila síðar rennur út í dag
Morgunblaðið/Eggert
Störf Telja þarf fram tekjur og
eignir. Skilafrestur er að renna út.
Stöðugt fleiri samkomum er frestað
vegna kórónuveirunnar. Mörg fé-
lagasamtök hafa einnig blásið af
fundahöld til vors, eins og t.d. Frí-
múrarar og Oddfellowar, og mörg
önnur félög takmarkað sitt funda-
hald. Hætt hefur verið við ýmis
íþróttamót ungmenna, en þannig
hefur KKÍ aflýst öllum mótum yngri
flokka í marsmánuði.
Músíktilraunir áttu að fara fram
dagana 21.-28. mars í Hörpu en þeim
hefur verið frestað fram í júní.
Landssamband slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna hefur „vegna
almannavarnaástands út af kór-
ónuveirunni“ frestað þingi sínu, sem
átti að fara fram 24. til 25. apríl nk.,
til 24. til 25. september í haust.
Karlakór Reykjavíkur sendir
landsmönnum baráttukveðjur
Fjöldi kóra hefur frestað eða af-
lýst vortónleikum sínum, eins og
Karlakórinn Heimir í Skagafirði,
sem ætlaði að vera með tónleika í
Langholtskirkju í Reykjavík í kvöld.
Þá tilkynnti Karlakór Reykjavíkur í
gær að æfingum kórsins og tónleika-
haldi hefði verið frestað um sinn.
Þannig munu vortónleikar kórsins
færast til hausts. Í tilkynningu frá
kórnum sagði m.a.:
„Við sendum landsmönnum öllum
baráttukveðjur á þessum tímum
fannar, farsótta og jarðhræringa og
minnum á að alltaf birtir til.“
Afhending á Íslensku vefverð-
laununum átti að fara fram í dag,
föstudag, en hefur verið frestað. Áð-
ur hafði ráðstefnunni IceWeb verið
frestað til 30. september nk.
Þá var tónleikum Björgvins Hall-
dórssonar í Salnum í Kópavogi, sem
vera áttu í gærkvöldi, frestað á síð-
ustu stundu. Verða þeir haldnir 10.
september í haust.
Fundum og tón-
leikahaldi frestað
Kórónuveiran hef-
ur sífellt meiri áhrif
á samkomuhald
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Frestun Karlakór Reykjavíkur er
meðal þeirra sem taka sér hlé.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Gerið verðsamanburð
FULL BÚÐ AF
NÝJUM OG
FALLEGUM
VÖRUM
7.990 kr.
Kápa
5.990 kr.
Kjóll
8.990 kr.
Kjóll