Morgunblaðið - 20.03.2020, Qupperneq 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020
Aðalfundur
Ákveðið hefur verið að fresta aðalfundi
Hampiðjunnar, sem til stóð að yrði
haldinn föstudaginn 27. mars,
um óákveðinn tíma þar til
aðstæður til fundarhalda batna
og smithætta minnkar.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
Þegar ákvörðun um nýjan fundartíma
liggur fyrir verður fundurinn auglýstur
með tilskildum 14 daga fyrirvara.
Hluthöfum og öðrum áhugasömum
er bent á að ársreikningur
samstæðu Hampiðjunnar 2019
er aðgengilegur á heimasíðu félagsins
og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Teitur Gissurarson
Jón Pétur Jónsson
Ljóst þykir að kórónuveiran sem
veldur COVID-19 sjúkdómnum er
að sækja í sig veðrið og fjölgaði
greindum smitum talsvert í gær
miðað við undanfarna daga. „Við er-
um komin af stað upp brekkuna í
kúrfunni, það er augljóst.“ Þetta
sagði Víðir Reynisson, yfirlögreglu-
þjónn hjá almannavarnadeild Rík-
islögreglustjóra, um mikla fjölgun
kórónuveirusmita hér á landi á
blaðamannafundi í gær.
Alls voru 80 ný smit greind sólar-
hringinn á undan og voru því smitin
orðin 330, samkvæmt upplýsinga-
síðunni covid.is, þegar Morgunblað-
ið fór í prentun í gærkvöld. „Við er-
um búin að vera að horfa á þetta
trend síðustu daga og reiknilíkönin
sem við höfum verið að skoða sýna
að við erum í brekkunni og það er
augljóslega þannig í dag,“ sagði
Víðir.
Engar stórar breytingar
Aðspurður sagði Víðir að mikil
fjölgun greindra smita yrði þó ekki
til þess að aðgerðum vegna veirunn-
ar yrði breytt í stórum atriðum. „Við
erum að skoða einstök tilfelli og ein-
staka aðgerðir en í heildina er engra
stórra breytinga að vænta næstu
daga.“ Sagði hann enn fremur að út-
göngubann, líkt og hefur verið tekið
upp í sumum löndum í Evrópu, hefði
ekki verið rætt og væri því ekki í
spilunum.
Eins og vanalegt er orðið voru á
fundinum ásamt Víði Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir og Alma
D. Möller landlæknir og nutu þau í
þetta sinn liðsinnis Ævars Pálma
Pálmasonar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns og yfirmanns smitrakningar-
teymis almannavarnadeildar ríkis-
lögreglustjóra og sóttvarnalæknis.
Alma landlæknir hóf mál sitt á því
að segja frá því að ferðamaðurinn
sem var smitaður af kórónuveirunni
og lést fyrr í vikunni hefði líklega
látist af völdum sjúkdómsins. „Það
eru miklar líkur á því að maðurinn
hafi látist af völdum COVID-19,“
sagði Alma en gerði þann fyrirvara
að ekki væri þó hægt að staðfesta
það endanlega. Bætti hún við að ein-
kenni mannsins hefðu verið ódæmi-
gerð fyrir sjúkdóminn. Sagði hún
hug allra vera hjá aðstandendum
mannsins.
Aukinheldur ræddi Alma um spá-
líkan sem spáir fyrir um hvert álag á
heilbrigðiskerfið gæti orðið nú þeg-
ar kórónuveirufaraldurinn ríður yf-
ir. Sagði hún meðalspá benda til að
faraldurinn næði hámarki 7. apríl,
þá yrðu 40 sjúklingar á sjúkrahúsi.
Verri spá gerði hins vegar ráð fyrir
110 sjúklingum á sjúkrahúsi. Ef
gjörgæsluinnlagnir væru sérstak-
lega skoðaðar þá yrðu innlagnir alls
sjö 14. apríl miðað við meðalspá en
30 miðað við verri spána. Sagði hún
spána þó taka mið af tölum liðinna
daga og að mögulega þyrfti að upp-
færa hana. Stöðugt þyrfti að endur-
skoða og endurreikna.
Breytist oft á dag
Ævar Pálmi, yfirmaður smitrakn-
ingarteymis, sagði að umfang verk-
efnisins sem teymið stendur frammi
fyrir ykist dag frá degi. Sagði hann
að í teyminu væru 40 starfsmenn, 16
heilbrigðisstarfsmenn og 22 frá lög-
reglu, og að lögreglan hefði reynslu
af því að rekja ferðir og finna tengsl
og það væri blandað reynslu heil-
brigðiskerfisins. „Verkefnið hefur
tekið breytingum oft á dag,“ sagði
hann.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir ræddi einnig almennt um
stöðuna og sagði frá því að sjö lægju
inni á Landspítalanum með kórónu-
veiruna, þar af einn á gjörgæslu,
sem væri þó ekki í öndundarvél.
Sagði hann einnig frá því að jákvæð
sýni sem greinst hefðu á veirufræði-
deild Landspítalans hefðu sólar-
hringinn áður verið 73 talsins og
hlutfall sýktra, af þeim sem hefðu
verið rannsakaðir, hefði því farið úr
um 10 prósentum í 15. Þannig hefði
orðið stökk í staðfestum smitum á
veirufræðideildinni sem væri merki
um að veiran væri að ná sér „á flug“.
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 4 19
Útlönd 0 4
Austurland 0 22
Höfuðborgarsvæði 287 2.595
Suðurnes 12 142
Norðurland vestra 1 238
Norðurland eystra 2 177
Suðurland 24 462
Vestfirðir 0 17
Vesturland 0 49
Smit
Sóttkví
Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar
28.2. 29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3. 17.3. 18.3.
Upplýsingar eru fengnar af
Uppruni smits
Innanlands Erlendis
Óþekktur
26%33%
41%
330 smit voru staðfest
í gær kl. 11.00
3.718 hafa verið settir í sóttkví 7.833
sýni hafa
verið tekin
9 einstaklingar hafa náð bata
532 hafa lokið sóttkví
3 einstaklingar eru á sjúkrahúsi
330 manns eru í einangrun
300
250
200
150
100
50
330
Komin af stað „upp brekkuna“
330 smitaðir hér á landi Dánarorsök ferðamannsins líklega kórónuveiran Hámarkið hér á landi
gæti orðið eftir um þrjár vikur Meðalspá gerir ráð fyrir fjörutíu á sjúkrahúsi þegar mest verður
Ljósmynd/Lögreglan
Framlínan Víðir, Þórólfur og Alma á sínum vanalegu stöðum. Lengst til hægri er Ævar Pálmi á fundinum í gær.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við reiknum með að geta hafið
skólastarf í næstu viku, svo framar-
lega sem það heltast ekki fleiri úr
lestinni. Það fór nú einn í sóttkví í
dag,“ segir Sævar Þór Helgason,
skólastjóri grunnskólans í Hvera-
gerði. Þar í bæ eru hátt í þrjú hundr-
uð manns í sóttkví, flestir starfs-
menn og nemendur grunnskólans.
Óhætt er að segja að smit af völd-
um kórónuveirunnar, dvöl í sóttkví
og samkomubann sem gekk í gildi í
byrjun vikunnar hafi sett svip sinn á
skólastarf víða um land.
Þrír leikskólar eru lokaðir í
Reykjavík vegna kórónuveirunnar,
Stakkaborg við Stakkahlíð, Lauf-
skálar í Grafarvogi og Nóaborg í
Hlíðunum. Þá er Háteigsskóli lokað-
ur vegna þriggja smita meðal starfs-
manna. Klettaskóla hefur sömuleiðis
verið lokað um óákveðinn tíma vegna
smits hjá starfsmanni.
Í Mosfellsbæ hefur einum leik-
skóla, Hlaðhömrum, verið lokað til
miðvikudagsins 25. mars en aðrir
leik- og grunnskólar eru opnir með
takmörkunum. Ekki hefur komið til
lokana í Hafnarfirði, Kópavogi,
Garðabæ eða á Seltjarnarnesi vegna
kórónuveirunnar.
Allir nemendur og starfsmenn
Grunnskóla Húnaþings vestra á
Hvammstanga hafa verið settir í
sóttkví eftir að starfsmaður þar
greindist með kórónuveirusmit.
Verður fólkið í sóttkví til 30. mars.
Í Vestmannaeyjum hefur leikskól-
anum Sóla verið lokað eftir að starfs-
maður greindist með veiruna. Sam-
kvæmt niðurstöðum rakningar-
teymis fara 27 af 29 starfskonum
Sóla í sóttkví og nemendur af einum
kjarna hans. Auk þess eru þrír kenn-
arar í grunnskóla bæjarins og einn
stuðningsfulltrúi í sóttkví.
Hafa þurft að
loka vegna smita
Kórónuveiran heftir skólastarf víða
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Seljaskóli Passað er upp á þrifin.
Búist er við því að
fyrir lok maí 2020
hafi 1.000 manns
verið greindir með
kórónuveiruna á
Íslandi, en talan
gæti náð rúmlega
2.000 samkvæmt
svartsýnustu
spám. Þetta eru
fyrstu niðurstöður
spálíkans sem unnið hefur verið af vís-
indamönnum frá Háskóla Íslands,
Embætti landlæknis og Landspítala.
Aðrar helstu niðurstöður eru að bú-
ist er við að fjöldi greindra ein-
staklinga með virkan sjúkdóm nái há-
marki í fyrstu vikum apríl og verði
sennilega 600 manns, en gæti náð
1.200 manns samkvæmt svartsýnustu
spám. Þá er búist við að um 60 manns
muni þarfnast aðhlynningar í innlögn
á sjúkrahúsi, en alls 200 samkvæmt
svartsýnustu spám.
Sóttvarnalæknir kallaði saman hóp
vísindamanna til að gera umrætt spá-
líkan sem nýst gæti við ákvarðanatöku
um viðbrögð og skipulag heilbrigð-
isþjónustu meðan kórónuveirufarald-
urinn ríður yfir.
Spá því að
um 1.000
smitist
60 manns gætu
þurft sjúkrahúspláss
Heilbrigðisstarfs-
maður við störf.