Morgunblaðið - 20.03.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.03.2020, Qupperneq 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 Rafræn atkvæðagreiðsla hefst kl. 12 á hádegi mánudaginn 23. mars 2020. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12 á hádegi föstudaginn 27. mars 2020. Þann 23. mars nk., kl. 12 á hádegi, hefst rafræn atkvæða- greiðsla um nýjan kjarasamning Eflingar – stéttarfélags og Reykjavíkurborgar. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12 á hádegi föstudaginn 27. mars. Atkvæðisrétt eiga félagsmenn Eflingar sem vinna hjá Reykjavíkurborg. Fái einnhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki aðgang að atkvæðagreiðslunni, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar fram til loka kjörfundar, og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram nauðsynleg gögn. Sjá nánari upplýsingar á www.efling.is Reykjavík, 19. mars 2020. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags ATKVÆÐAGREIÐSLA um nýjan kjarasamning Eflingar við Reykjavíkurborg Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við erum í rauninni að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Aðgerðir okkar eru í samræmi við það sem landlæknir hefur gefið út,“ segir Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grund- ar, dvalar- og hjúkrunarheimila. Vísar hann í máli sínu til greinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Í greininni er rætt við Birgi Guðjóns- son, fv. yfirlækni á Hrafnistu og fv. aðstoðarprófessor við Yale-háskóla. Segir Birgir að heimsóknarbann á hjúkrunarheimili hér á landi stand- ist ekki skoðun, hvorki læknisfræði- lega skoðun né út frá heilbrigðri skynsemi. Reyna að minnka líkur á smiti Að sögn Gísla er ráðstöfunin gerð til að koma í veg fyrir smit við- kvæmra hópa. Þá hafi, auk fram- angreindrar ráðstöfunar, verið grip- ið til veigamikilla aðgerða. „Við erum að hólfa niður húsið til að minnka líkur á smiti. Ég er ekki al- veg sammála því að þetta standist ekki læknisfræðilega skoðun. Við getum ekki komið í veg fyrir að starfsfólk okkar gangi inn og út úr húsi, en með því að hleypa aðstand- endum ekki inn erum við að reyna að minnka líkur á smiti sem mest,“ segir Gísli sem kveðst þó að vissu leyti geta tekið undir sjónarmið Birgis. „Við gerum okkur grein fyr- ir að við komum ekki alveg í veg fyrir smit með þessu. En við erum að þessu til að reyna eftir fremsta megni að minnka þessa umræddu kúrfu. Það er alveg sjónarmið að fólk geti komið í heimsókn en eins og ég segi þá eykur það líkur á smiti,“ segir Gísli. Erfitt að útfæra heimsóknir Meðal þess sem Birgir gagnrýndi einna harðast var lítill fyrirvari lok- unar hjúkrunarheimilanna. Þar hafi hvorki aðstandendur né íbúar heim- ilanna getað undirbúið sig. Að sögn Gísla hefði fyrirvari breytinganna mátt vera meiri. „Eftir á að hyggja hefðum við átt að veita meiri fyr- irvara og maður biðst afsökunar á því. Þessi ákvörðun var hins vegar tekin í framhaldi af lokun Landspít- alans. Við vorum ekki að finna þetta upp hjá okkur heldur var þetta í samræmi við það sem landlæknir gaf út,“ segir Gísli og bætir við að erfitt sé að finna útfærslur heim- sókna þar sem aðstandendur geti með góðu móti haldið góðri fjar- lægð. Því hafi verið ákveðið að leggja bann við heimsóknum inn á hjúkrunarheimilin með einni undan- tekningu þó. „Það er illframkvæm- anlegt að útbúa aðstæður þar sem aðstandendur geta komið í heim- sókn og haldið nægri fjarlægð. Það er eiginlega alveg útilokað þar sem fólk sem er með minnisglöp eða veikt fer ekkert endilega eftir fyr- irmælum. Sé fólk hins vegar í lífs- lokameðferð þá veitum við að sjálf- sögðu undanþágu,“ segir Gísli. Tekur á andlegu hliðina Talsvert hefur verið í umræðunni að undanförnu að með mikilli ein- veru hraki andlegri líðan fólks. Með heimsóknarbanni á hjúkrunarheim- ilin kunni þetta nú að ágerast. Spurður um málið segir Gísli að vissulega hafi hann orðið var við kvíða og sorg meðal fólks. Hann bindi þó vonir við að þetta jafni sig þegar faraldurinn er genginn yfir. „Auðvitað finnur maður fyrir áhyggjum, kvíða og sorg hjá fólki, en það er allt mjög eðlilegt. Ef mað- ur setur sig sjálfur í þeirra spor þá er þetta ekki mjög gott,“ segir Gísli sem kveðst sjálfur hafa takmarkað samneyti við fjölmarga fjölskyldu- meðlimi. Spurður hvort einstaklingar sem búa á hjúkrunarheimilum kunni að þróa með sér andlega sjúkdóma segist Gísli síður eiga von á því. Hann eigi þó erfitt með að fullyrða um það. „Ég á von á því að þetta jafni sig á endanum. Ég á ekki von á því að fólk þrói með sér nýja and- lega sjúkdóma þó að maður geti að sjálfsögðu ekki fullyrt um það.“ Bannið til að forðast smit  Með lokun hjúkrunarheimila er verið að fórna minni hagsmunum fyrir meiri  Fyrirvari aðgerðanna hugsanlega of lítill  Viðkvæmir eru taldir í mestri hættu Ljósmynd/Hreinn Magnússon Hjúkrunarheimili Til að létta lund heimilisfólks sungu tónlistarmenn fyrir utan Ísafold í Garðabæ á miðvikudag. Þrír starfsmenn Alþingis hafa verið greindir með kórónuveirusmit og eru komnir í einangrun. Tveir þeirra höfðu verið í sóttkví vegna sam- skipta við þann þriðja, sem fyrst greindist með smit. Vinna þeir allir í sömu starfsstöð Alþingis, Skúlahúsi við Kirkjustræti. Smitun er eftir því sem best er vit- að eingöngu bundin við það hús. Annað starfsfólk hefur ekki verið sett í sóttkví af smitrakningarteymi Almannavarna. Af þessum sökum hefur Alþingi tekið starfsáætlun sína úr sambandi til og með 20. apríl nk. Einungis verður boðað til þingfunda um mál sem tengjast kórónuveirufaraldrin- um. Þetta samþykkti forsætisnefnd í gær. Hefðbundin fundaáætlun fasta- nefnda Alþingis hefur sömuleiðis verið tekin úr sambandi. Eingöngu verður boðað til funda í þeim nefnd- um sem tengjast viðbrögðum við far- aldrinum. Sækja þarf sérstaklega um leyfi til forseta nefndasviðs til að aðrar fastanefndir komi saman. aronthordur@mbl.is Þrír á þingi með kórónu- veirusmit  Alþingi breytir starfsáætlun sinni „Það hefur gengið ágætlega að koma fólki heim. Flestir sem við höfum talað við eru um það bil að komast til landsins,“ segir María Mjöll Jóns- dóttir, upplýsingafulltrúi utanríkis- ráðuneytisins, í samtali við Morgun- blaðið. Að hennar sögn eru um 6.200 ein- staklingar með skráðan heimferð- ardag í dag eða á næstu dögum. „Margir eru auðvitað komnir án þess að við vitum um það. Þannig eiga allir sem vilja komast heim að geta komist,“ segir María. Allir eiga að komast heim Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fjögur skemmtiferðaskip sem áttu að koma til Reykjavíkur í vor hafa aflýst komu sinni. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segist reikna með að afbókunum muni fjölga hratt á næstunni vegna kór- ónuveirunnar og að töluverð röskun geti orðið a.m.k. fram í júní. Hann segir að skipafélög víða um heim hafi aflýst flestum ferðum á næst- unni og 30-60 daga siglingahlé hafi verið algengt hjá félögunum frá byrjun marsmánaðar. Gísli segir að ekki sé við því að búast að staðan skýrist fyrr en um eða eftir páska. Þróun faraldursins, ákvarðanir um ferðabann og staðan hjá einstökum fyrirtækjum ráði þar mestu. Hann segist reikna með röskun á komu skipa eitthvað fram í júní, einhver muni hætta við og önn- ur breyta tímasetningum. Menn séu að búa sig undir slíkar breytingar, en dekksta sviðsmyndin sé að hing- að til lands komi engin skemmti- ferðaskip í sumar. Skemmtiferðaskipið Magellan kom til Reykjavíkur 9. mars og von var á Astoria í þessari viku, en ekk- ert varð af komu skipsins. Ekkert skip var væntanlegt í apríl, en þegar eru farnar að berast afbókanir vegna komu skipa í maí. Háönn í komu farþegaskipa til landsins er frá júníbyrjun og fram eftir ágúst- mánuði. Gæti orðið talsvert tekjutap Alls var reiknað með 190 komum skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur í ár. Mörg þeirra sigla jafnframt á aðrar hafnir eins og til Ísafjarðar og Akureyrar, en einnig hafa Grundar- fjörður, Seyðisfjörður og Vest- mannaeyjar verið vaxandi í þessari þjónustu. Gísli segir að fyrir tveimur árum hafi efnahagsáhrifin fyrir þjóðarbú- ið í heild verið metin um 15 millj- arðar króna og er þá allt talið; hafn- ir, viðskiptaaðilar og hið opinbera. Lauslega áætlað hefðu tekjur hafn- anna í heild á þessu ári orðið eitt- hvað yfir einn milljarð og fyrir Faxaflóahafnir hefðu brúttótekjur í ár getað numið hátt í 500 milljónum miðað við komu 190 skipa. Reiknað með mörgum afbókunum farþegaskipa  Dekksta sviðsmyndin að engin skip komi hingað í sumar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Magellan Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom í skugga kórónuveirunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.