Morgunblaðið - 20.03.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020
kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800
Vandaðar vörur þurfa hágæða umbúðir til að komast ferskar í hendur
kröfuharðra kaupenda. Hver sem varan þín er þá höfum við umbúðirnar sem
henta henni.
Áralöng reynsla og sérþekking okkar tryggir að við finnum bestu lausnina
sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt og örugglega. Við bjóðum breitt úrval
umbúða frá traustum og öflugum samstarfsaðilum. Þannig getum við tryggt
þér lausnir sem auka árangur þinn í rekstri, í sátt við umhverfi og náttúru.
Ef þú hefur spurningar varðandi umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu
samband eða kíktu í kaffi og leyfðu okkur að hjálpa þér að finna
lausnirnar sem henta þínum þörfum. Spjöllum um umbúðir.
UmBúÐiR eRu oKkAr fAg
Athyglisverðasta efni Við-skiptablaðsins þessa vikuna,
að ýmsu öðru ágætu efni ólöstuðu,
eru þrjár auglýsingar frá 36 fyr-
irtækjum undir yfirskriftinni
Lækkum skatta.
Í auglýsing-unum segir:
„Áður óþekktur
tekjusamdráttur
verður í íslensku
atvinnulífi á
næstu mánuðum.
Mörg annars líf-
vænleg fyrirtæki
verða í bráðri
hættu og lífsviðurværi tugþúsunda
í uppnámi. Það er lífsnauðsynlegt
fyrir íslensk fyrirtæki að skattar og
gjöld verði lækkuð og afnumin
tímabundið, svo þau þrauki og
verði reiðubúin í uppbygging-
arstarfið sem bíður. Til þess hefur
hið opinbera óvenju mikið svigrúm
nú og það þarf að nota þegar í
stað.“
Hægt er að taka undir hvert orðí þessari auglýsingu. Líklega
það eina jákvæða sem hægt er að
segja um kórónufaraldurinn, að því
marki sem hægt er að finna nokkuð
jákvætt til að segja um hann, er að
hann kemur á heppilegum tíma
fyrir Ísland.
Ríkissjóður stendur vel, skuldireru hóflegar og erlend staða
þjóðarbúsins er sterk.
Þessu tilviðbótar eru skattar há-ir, þannig að augljóst er að
mikið svigrúm er til að létta undir
með fyrirtækjum sem nú glíma við
áður óþekktan tekjusamdrátt, eins
og það er réttilega orðað í fyrr-
nefndum auglýsingum.
Það er ekki eftir neinu að bíða.
Óþolinmæði er
stundum dyggð
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samninganefndir stéttarfélaga starfsmanna í ál-
veri Ísal í Straumsvík og viðsemjendur þeirra hafa
undirritað nýjan kjarasamning. Verkfallsaðgerð-
um sem hefjast áttu 24. mars hefur verið frestað
um tvær vikur. Nýju álverssamningarnir eru
afturvirkir og gilda frá 1. júní á síðasta ári og til
31. mars á næsta ári, eða í alls 22 mánuði.
Samkvæmt upplýsingum Kolbeins Gunnars-
sonar, formanns verkalýðsfélagsins Hlífar, byggir
samningur félagsins í öllum meginatriðum á þeim
kjarasamningum sem gerðir hafa verið á umliðnu
ári. Því til viðbótar hafi náðst inn að hluta leiðrétt-
ingar á ýmsu, þar sem laun starfsfólks í álverinu
hafi dregist aftur úr öðrum samningum frá 2015.
Kolbeinn segir menn hafa beðið í tvo mánuði
eftir að ljúka þessari vinnu því félagið hafi verið
sátt við þau drög sem lágu fyrir í janúar en fyrir-
tækið hafi ekki fengið heimild frá Rio Tinto til að
skrifa undir. Á þriðjudag kom svo staðfesting frá
Rio Tinto og skrifað var undir á miðvikudag.
Þrýstingur vegna verkfallsaðgerða virðist því hafa
skilað árangri. Gert er ráð fyrir að kosningu um
samningana verði lokið 27. mars. omfr@mbl.is
Samningar náðust í álveri Ísal
Verkfallsaðgerðum
frestað um tvær vikur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Álverið í Straumsvík Náðst hafa kjarasamningar.
Fulltrúar stéttarfélaganna Fram-
sýnar, Starfsmannafélags Húsa-
víkur og Framhaldsskólans á
Húsavík gættu fyllsta öryggis
vegna smithættu í veirufaraldr-
inum þegar þau komu saman síð-
astliðinn miðvikudag til að und-
irrita nýja stofnanasamninga.
Báru þau andlitsgrímur og notuðu
hanska við undirritunina og voru
að sjálfsögðu með sprittbrúsa á
milli sín.
Aðalsteinn Á. Baldursson, for-
maður Framsýnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að þetta hefði
verið afar sérstætt og kjarasamn-
ingafólk hefði áreiðanlega aldrei
fyrr komið saman svona útbúið til
að skrifa undir kjarasamninga.
Viðræður hafa staðið yfir að
undanförnu milli stéttarfélaganna
um endurskoðun á stofnanasamn-
ingum við Framhaldsskólann á
Húsavík sem hafa að mestu farið
fram í gegnum netið vegna að-
stæðna í þjóðfélaginu. Þegar end-
anlegir samningar lágu fyrir
komu þau síðan saman Valgerður
Gunnarsdóttir, skólameistari
Framhaldsskólans á Húsavík, Að-
alsteinn og Arna Ýr Arnarsdóttir,
skrifstofu- og fjármálastjóri skól-
ans, til að skrifa undir. Í stað þess
að takast í hendur eins og venja
er innsigluðu þau samkomulagið
með lófaklappi. omfr@mbl.is
Gættu fyllstu varúðar
við undirskriftina
Ljósmynd/Framsýn
Aðgát Arna Ýr, Valgerður og Aðalsteinn innsigla samkomulagið.