Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stundum vefstþað fyrir aðtrúa þótt rík- ur vilji standi til þess. Og það væri kraftaverki líkast ef Kína tækist að halda kórónuveirunni afmark- aðri á tiltölulega afmörkuðu svæði, þar sem upphaf hennar var. Í fréttum í gær sagði að ný smit væru vart merkjanleg þar. Og hitt, sem var jafnvel enn ótrúlegra, var að dauðsföll af völdum veirunnar væru nú orð- in fleiri á Ítalíu en í Kína og hefðu á 5. hundrað manna látist þar á síðasta sólarhring. Birtar tölur segja að 3.245 manneskjur hafi fallið í val veir- unnar í Kína, en 3.405 á Ítalíu. Allar tölur um útbreiðslu á veirusmitinu eru reistar á veik- um grunni enda lítt samræmdar tökur á sýnum á milli landa. Dánartölur á Ítalíu og tölur um fjölda smitaðra sýna að fjarri lætur að allir smitaðir séu skráðir. Skimun á borð við þá sem Íslensk erfðagreining gerir er sennilega besta hjálpartækið til að draga upp mynd af fjölda smitaðra. Í fréttum er bent á að ítalska þjóðin sé næstelsta þjóð í heimi og aðeins sú japanska sé eldri og vitað sé að veiran nái að valda mestum skaða í elsta hópi íbúa og þá einkum hjá þeim sem búi við veiklaða mótstöðu. En sé að marka fréttirnar frá Kína og öðrum þjóðum sem virðast hafa haldið best utan um sín mál, má kannski vænta þess að fyrr muni draga úr faraldrinum en áður var ætlað. Skal þó fátt fullyrt í þeim efnum. En það ýtir undir slíkar vonir að skoða upplýsingar frá Singapúr, Taív- an og Hong Kong. Nú berjast flestar þjóðir á tvennum vígstöðvum. Annars vegar er reynt að tryggja að árásir á varnarmúr heilbrigðis- kerfisins verði ekki samstundis gerðar af „ofurefli“ sjúklinga sem veiran hefur þá heltekið, svo að við fátt verði ráðið. Það má þó gæta sín á að vekja ekki óvart of mikinn ótta með hópn- um sem talinn er standa veik- astur fyrir. Sérfræðingar benda á að þannig sé það ekki. Í fyrsta lagi þá muni stór hluti þessa hóps, sem þannig er skil- greindur, verða fær um, þótt hann smitist, að standa hætt- una af sér, án meiriháttar af- skipta sjúkraliðs. Og þeir sömu hafa einnig bent á að takist að koma í veg fyrir að álagið á þessar stéttir fari úr öllum böndum, þá séu fjölmörg úr- ræði til staðar til að bæta víg- stöðu þeirra sem veikjast alvar- lega. Ekki er ástæða til að draga þetta í efa. Sama gildir um hina barátt- una sem rekin er samhliða þess- ari. Hún snýst um efnahagslega af- komu þjóðar allt þar til að rofar til og misserin á eftir. Í þeim löndum sem hafa þegar gengið langt í að loka eða hægja á starfsemi sinni til að höggva eins stór skörð í leið smitsins og má hafa þegar verið ræddar mjög mildandi aðgerðir í þágu atvinnulífsins. Þar gera menn sér glögga grein fyrir því að ákvarðanir yfirvalda voru ekki viðbrögð við vondum eða óá- byrgum rekstri. Veiran er ör- lagavaldurinn. Hún er „force majeure“. Ófyrirsjáanlegur veikindafaraldur sem tekur til allrar heimsbyggðarinnar. Á henni ber enginn formlega ábyrgð, sem kalla má eftir. Viðbrögðin við henni af hálfu hins opinbera valds er ekki „force majeure“ með sama hætti. Leiðtogar landanna eiga vart annað val en að bregðast harkalega við. Andvaraleysi kallar á enn meira tjón. En al- mannavaldið á hverjum stað á þó nokkurt val um það til hvers konar viðbragða er gripið. Og það veit að ákvarðanir þeirra muni valda einstaklingum og fyrirtækjum ómældu tjóni. Leiðtogar allra helstu ríkja hafa því látið fögur fyrirheit falla um að bætt verði úr þessu tjóni eða að minnsta kosti að dregið úr verstu afleiðingum ákvarðana ríkisvaldsins. Þá hafa seðlabankar hvar- vetna lækkað stýrivexti sína, síðast Englandsbanki fyrir fáum dögum í 0,5% og svo í 0,1%. Sömu sögu er að segja frá öðrum bönkum, stórum og smáum. Viðbrögð „markaða“ ollu vonbrigðum á hverjum stað því að þeir rúlluðu áfram niður rennibrautina. En það þýðir ekki að ákvarðanirnar hafi ver- ið rangar. Það verður fyrst þeg- ar rofar til sem slíkar ákvarð- anir skila hugsanlega árangri. Meðvitundarlaus maður snýr sér ekki að matnum, en það er hugsanlegt að ilmurinn af rétt- unum ýti undir að það rjátlist af honum. Sumir talsmenn ríkisvalds á meginlandinu virðast telja að rétt sé að þjóðnýta atvinnu- starfsemi í slíkum vanda. En aðrir minna á illan endi slíks og á að annað form sé líklegra til að skila fjárveitingum til þrautavara aftur til ríkisvalds- ins og það jafnvel með sæmi- legri ávöxtun. Takist þjóð, eins og okkar, að halda sæmilega á svo alvar- legum og viðkvæmum þáttum er alls ekki útilokað að við get- um öll, þrátt fyrir allt, horft sæmilega sátt til baka, áður en varir. Það glittir í margar efnilegar máls- greinar þótt enn séu ekki kaflaskil} Barist á tvennum vígstöðvum N ú þarf stórar og fordæmalausar ákvarðanir sem taka þarf strax. Þúsundir landsmanna bíða nú með öndina í hálsinum hvort þeir missi vinnuna og enn aðrir sjá fram á að missa sinn rekstur og um leið sitt lifibrauð. Ríkisstjórnin hefur þegar lagt fram ákveðnar tillögur sem, þegar þetta er ritað, eru til meðferðar í þingnefnd. Ríkisstjórnin mun ekki ein geta ráðið fram úr því ástandi sem nú er, því munum við styðja við þeirra góðu tillögur, leggja til breytingar þar sem þarf og benda á nýjar eða aðrar leiðir. Betur sjá augu en auga. Við þurfum að vera djörf við aðstæður sem þessar og taka margar ákvarðanir og þá einfaldlega breyta og bæta þær sem ekki virka eða ganga of langt. Nú þarf að ganga langt. Fyrirtæki og heimili eru undirstaðan og þeim verður að bjarga með öllum ráðum. Sem betur fer var ráðist í miklar aðgerðir á árunum 2013-2016 sem við búum enn að. Ríkissjóður stendur vel og skuldir heim- ilanna hafa verið viðráðanlegar. Allt getur þetta breyst ef ekki er gripið kröftuglega í taumana. Við þessar aðstæður má sú staða ekki koma upp að lánveitendur eða ríkisstofnanir velji hvaða fyrirtækjum sé bjargað og hverjum ekki. Allir eiga að fá greiðslu- skjól í nokkra mánuði í þessari fordæmalausu stöðu. Það gengur heldur ekki að rétta fyrirtækjum helming launa starfsmanna ef þau eiga ekki fyrir hinum helm- ingnum. Það gengur heldur ekki að foreldrar sem eru heima með börnum vegna lokunar skóla eða vegna þess að þau eru í áhættuhópi fái ekki greidd full laun. Við eigum að vera viðbúin því að þurfa að afnema eða frysta verðtryggða vexti hús- næðislána og við eigum að hvetja fólk til að velja íslenskt. Nú þarf að spara gjaldeyri. Koma verður í veg fyrir sjálfvirkar hækk- anir vísitölutengdra liða og koma í veg fyrir hækkanir á vörum og þjónustu. Við eigum að lækka strax skatta, afnema trygginga- gjaldið og jafnvel virðisaukaskatt á mat- vælum. Skv. fjölmiðlum hefur Evrópusambandið lokað á útflutning til Íslands og fleiri landa á nauðsynlegum heilbrigðisvörum. Það hefði ekki átt að koma á óvart m.v. hvernig sam- bandið brást við óskum Ítala um aðstoð. Ítalir fengu hinsvegar aðstoð frá Kína sem var til fyrirmyndar. Eflaust fer ákvörðun ESB í bága við EES-samninginn en undirstrikar að þegar hagsmunir þjóða(r) eru undir þá taka menn ákvarðanir út frá því. Munum það. Í gær birti Miðflokkurinn nokkrar leiðir til að vinna á þessari erfiðu stöðu sem er uppi. Almennar stórar að- gerðir. Við leggjum þær fram því taka þarf ákvarðanir hratt og strax. Ef á þeim eru gallar þá lögum við þá eftir á. Áhrifin eru um allt okkar samfélag. Enginn sleppur alveg en sumir betur en aðrir. Við erum tilbúin að vinna með stjórnarflokkunum að lausnum sem virka. Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Tökum stórar ákvarðanir strax Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og vara- formaður Miðflokksins. gunnarbragi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Dregið hefur úr áhættu-drykkju og ölvun lands-manna milli áranna 2018og 2019, mest í yngsta aldurshópi karla. Enn er ölvun al- gengari meðal karla en kvenna í öll- um aldurshópum. Þetta má lesa út úr könnun embættis landlæknis á áhrifaþáttum heilbrigðis meðal landsmanna, 18 ára og eldri. Landlæknir hefur frá 2014 látið framkvæma slíkar kannanir til að fylgjast með notkun áfengis og tób- aks, hreyfingu, mataræði, líðan og ofbeldi. Könnun ársins 2019 var birt á dögunum, en niðurstöður hennar eru byggðar á svörum ríflega tíu þúsund manns. Þátttökuhlutfall var um 46%. Fjórðungur drekkur sig fullan Í könnuninni kemur fram að árið 2019 sögðust um það bil 86% fullorð- inna Íslendinga hafa drukkið að minnsta kosti eitt glas af áfengum drykk á liðnum 12 mánuðum. 34% kváðust drekka áfengi í hverri viku og 26% höfðu orðið ölvuð einu sinni í mánuði eða oftar á síðustu tólf mán- uðum. Í umfjöllun landlæknis segir að þar með falli um fjórðungur landsmanna undir þá skilgreiningu að vera með skaðlegt neyslu- mynstur áfengis, eða áhættu- drykkju. Fækkun um fimm þúsund Ef rýnt er nánar í þetta kemur í ljós að í fyrra féllu 25% karla og 22% kvenna undir umrædda skilgrein- ingu. Hlutfallið var óbreytt frá 2018 hjá konum en hafði lækkað hjá körl- um, úr 29% í 25%. „Sé þetta hlutfall heimfært upp á þjóðina alla má gera ráð fyrir að karlmönnum með skað- legt neyslumynstur hafi fækkað um 5 þúsund milli þessara tveggja ára eða farið úr um 40 þúsund niður í 35 þúsund. Ætla má að um 30 þúsund konur séu með skaðlegt neyslu- mynstur áfengis,“ segir í umfjöllun landlæknis. Þá hafði sömuleiðis dregið úr ölvunardrykkju karla. Ár- ið 2018 drukku að jafnaði 42% karla sig ölvaða einu sinni í mánuði eða oftar. Í fyrra var þetta hlutfall kom- ið niður í 34%. Um 19% fullorðinna kvenna gerðu slíkt hið sama í fyrra. Enn dregur úr reykingum fullorð- inna. Árið 2019 mældust þær 11% samkvæmt könnuninni. Þar af sögð- ust 8% aðspurðra reykja daglega en 3% sjaldnar en daglega. Árið áður reyktu 9% daglega og 4% sjaldnar en daglega. Hlutfallsleg notkun á rafrettum stóð í stað milli ára og var um 7% árin 2018 og 2019. Um þrír af hverjum fjórum sögðust hafa notað rafrettur til þess að hætta að reykja eða hætta að nota tóbak í vör. Á það jafnt við um konur og karla. Algeng- ara var að einstaklingar 35 ára eða eldri sem notuðu rafrettur hefðu áð- ur reykt eða notað tóbak í vör. Notkun á tóbaki í vör jókst hins vegar lítillega, fór úr 5% árið 2018 í 7% árið 2019, en samkvæmt því má gera ráð fyrir að um nítján þúsund fullorðnir noti tóbak í vör. Notkunin er mest meðal karla. Hún jókst í aldurshópnum 18-34 ára; fór úr 21% árið 2018 í 24% árið 2019. Jafnframt vekur athygli að umtalsverð aukn- ing hefur orðið á notkun tóbaks í vör hjá körlum á aldrinum 35-54 ára. Notkunin fór úr 5% árið 2018 í 11% árið 2019. Dregur úr áhættu- drykkju hérlendis Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vínbúðin Karlmönnum með skaðlegt neyslumynstur hér á landi fækkaði um 5 þúsund milli ára, úr um 40 þúsund niður í 35 þúsund, samkvæmt könnun. 29% 22% 13% 11% 7% 7% 5% 7% 25% 22% Áfengis- og tóbaksnotkun 2018 og 2019 Áhættudrykkja Notkun tóbaks og rafretta 2018 2019 2018 2019 Karlar Konur 2018 2019 2018 2019 2018 2019 Reykingar Rafrettur Tóbak í vör Heimild: Embætti landlæknis Samtals hlutfall þeirra sem nota tóbak eða rafrettur daglega og sjaldnar en daglega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.