Morgunblaðið - 20.03.2020, Side 19

Morgunblaðið - 20.03.2020, Side 19
Erla var jákvæð að eðlisfari og sá alltaf björtu hliðarnar ef upp komu verkefni eða vanda- mál. Hún átti einlæga trú á Jesú Krist og fól sig og sína í hans hendur. Erla stóð eins og klett- ur við hlið Helga, ekki síst eftir að veikindi tóku að hrjá hann og taka sinn toll. Um tíma flúðu þau kalda íslenska vetur, sem fóru illa í Helga eftir veikindin, og höfðu vetursetu á Spáni. Okkur auðnaðist að heimsækja þau þangað og eiga með þeim ógleymanlegar stundir. Samband Erlu og barna hennar var einkar fallegt og finnst mér aðdáunarvert hvað þau sinntu mömmu sinni vel. Þau heimsóttu hana reglulega eða tóku hana með sér í lengri og styttri ferðir. Eins var oft skroppið á kaffihús eða uppá- haldsveitingastaðinn Laugaás. Erla kunni vel að njóta lífsins og gleðjast í stóru sem smáu. Hún naut þess að vera með fjöl- skyldu sinni. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir öll árin sem við áttum saman og allar góðu stundirnar. Guð blessi minningu Þuríðar Erlu Erlingsdóttur. Guðni Einarsson. Það er með þakklæti í hjarta sem ég minnist elsku Erlu ömmu minnar sem nú hefur kvatt okkur. Amma var einstaklega já- kvæð kona og brosmild. Þegar ég var lítil og stundaði nám í Ís- aksskóla sótti amma mig stund- um eftir skólann. Mér þótti það nú alltaf gaman, bæði vegna þess að vinkonur mínar héldu oft að amma mín væri mamma mín, af því að hún var svo ung- leg og mikil skvísa, og líka vegna þess að krakkarnir þekktu hana úr skólasundinu í Sundhöllinni þar sem hún starf- aði sem sundkennari og þótti þeim hún langskemmtilegasti kennarinn. Bæði Erla amma og Helgi afi voru dugleg í að koma á skóla- sýningar, tónleika í tónlistar- skólanum eða mæta á ýmsa við- burði sem við barnabörnin tókum þátt í. Það þótti manni alltaf vænt um. Þau glöddust yfir því sem vel gekk í lífi barna sinna og barna- barna og það breyttist ekkert eftir að afi kvaddi árið 2008, amma hélt því áfram. Amma sýndi nýjasta verkefni okkar fjölskyldunnar mikinn áhuga, en við fórum út í þær framkvæmdir árið 2018 að byggja okkur hús. Amma kom oft í bíltúr með foreldrum mín- um að fylgjast með framkvæmd- unum og svo auðvitað kíkti hún oft við í kaffibolla eftir að við fluttum inn. Ég er þakklát fyrir það að dætur mínar fengu að kynnast langömmu sinni sem þær minn- ast með hlýju og sérstaklega þakklát fyrir sumarfríið þegar amma kom með okkur fjölskyld- unni ásamt mömmu minni og yngri systur til Spánar. Þar átt- um við notalega daga í hitanum og sólinni. Amma naut þess að sitja í sólinni og fá spænska brúnku á líkama og sál ásamt því að slaka á í sundlauginni enda mikil sundkona frá unga aldri. Hvíl í friði elsku amma. Lína Guðnadóttir. Við systkinin höfum margar góðar minningar um Erlu ömmu. Sem lítil börn vorum við alltaf spennt að fara í heimsókn að hitta ömmu og afa, þá skemmdi alls ekki fyrir að við fengum alltaf vasapening í þess- um heimsóknum. Það var eitt- hvað sem amma hefur fengið frá mömmu sinni, að gefa af sér, sérstaklega til þeirra sem minna máttu sín, en langamma hýsti útigangsmenn Reykjavíkur og gaf þeim að borða, jafnvel þó að maðurinn hennar hafi verið yfir- lögregluþjónn Reykjavíkur. Við gátum alltaf treyst á ömmu og afa ef okkur vantaði eitthvað, þó að það væri ekki nema mjólkurdreitill eða að fá far heim af æfingu. Þegar afi dó tók við erfitt tímabil, en amma var svo sterk og það leið ekki á löngu þar til hún fór að geta rifjað upp skemmtilegar minningar og sagt okkur sögur af Helga afa skip- herra. Í einni af heimsóknum okkar til þín sagðir þú okkur frá frænda okkar og ljóðskáldi, hon- um Þorsteini Erlingssyni. Þá sagðirðu okkur að þú hefðir samið ljóð á barnaskólaárum þínum, það vildum við auðvitað hlýða á og hljóðaði svo: Nú glitrar Ísland á klæðin þín vötnin eru heiðblá og vorloftið hlýtt svo tekur hún sólin á móti þér blítt ó mitt ástkæra fósturland frítt. Þegar heilsa hennar ömmu fór að dala flutti hún á Hrafn- istu, hún fór fljótlega að styðjast við göngugrind og vildi láta rúlla sér um í hólastól. Fyrir okkur leit hún út fyrir að vera svo heilsuhraust og þurfa ekki þessi hjálpartæki. Það var samt sama hvað við spurðum hana hvort hún vildi ekki bara ganga að hún vildi það nú alls ekki. Við skildum það alveg en sjón og heyrn var byrjað að hraka. Það er okkur því minnisstætt eitt skiptið þegar við komum í heim- sókn og það var messa í holinu rétt við herbergið hennar svo að gangurinn var fullur af fólki sem sat upp við vegginn og engin leið að komast framhjá með göngugrindina. Viti menn, amma lyfti göngugrindinni upp í loftið og lyfti fótunum hátt upp í hverju skrefi svo hún komst yfir fæturna á þeim sem sátu með- fram ganginum. Við minnumst þess öll hvað hún var lífsglöð og aldrei langt í hláturinn. Hún gat séð kímnina í öllu og erum við heppin að hafa átt svona yndislega og góða ömmu. Við elskum þig Erla amma og söknum þín. Þuríður Erla Helgadóttir, Sigurjón Páll Helgason og Lilja Lind Helgadóttir. Elsku Erla amma, ég fékk ekki að kveðja þig en ég er þakklát fyrir það að ég hafi ver- ið á Íslandi í janúar og hitt þig þá. Þegar ég var komin aftur til Sviss hringdi ég í þig og þú sagðir mér frá því að strákur sem vann á Hrafnistu þar sem þú bjóst spurði þig hvernig stæði á því að þú værir svona veikburða þegar barnabarnið þitt væri svona sterkt. Svona varstu alltaf að slá mér gull- hamra og aldrei langt í kímni og grín. Þú tókst alltaf svo vel á móti mér: „Er það ekki hún Þuríður Erla, nafna mín“ og á eftir fylgdi hrós: „Dúxinn minn“ eða „Íslandsmeistarinn minn“ eða eitthvað í þá áttina. Þér tókst alltaf að láta mér líða vel með sjálfa mig og sú tilhugsun hlýjar mér að þú hafir verið stolt af mér. Það var alltaf svo gaman að fara í heimsókn til þín og Helga afa, það var alltaf til nóg af Apa- ís og Tomma&Jenna til að glápa á. Þið komuð á fótboltaleiki sem ég spilaði sem barn og hvöttuð mig áfram á fimleikamótum og frjálsíþróttamótum. Það þótti mér alltaf ótrúlega vænt um. Þú kenndir mér að synda og stór hluti af áhuga mínum á hreyfingu og íþróttum kemur frá þér. Ég hef alltaf litið upp til þín og þú verður alltaf mikil fyr- irmynd fyrir mig. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og kennt mér. Ég bið að heilsa Helga afa, ég elska þig. Þuríður Erla Helgadóttir. Erla var ein af mínum sex eldri systrum og sú fjórða í röð- inni og ég sú yngsta. Mínar fyrstu minningar um hana eru því ekki fyrr en hún var tán- ingur. Erla var mjög hugmynda- rík, uppátækjasöm og mikill leikari. Við bjuggum á Bjargi við Sundlaugaveg þar sem lítið var byggt í þá daga. Á Bjargi var bú og þar var meðal annars hesturinn Gráni sem var vagn- hestur og ávallt vel tiltækur. Erla nýtti sér það ófá jólin þeg- ar henni datt í hug að setja á hann kerru, klæða sig upp og fara um hverfið og gleðja börnin með því að leika jólasvein. Hún og Ásta heitin systir okkar sem var sú sjötta í röðinni voru góð- ar vinkonur, báðar voru þær miklir húmoristar og góðir leik- arar. Þær áttu það til að búa til sínar eigin persónur og setja upp heimatilbúið uppistand fyrir fjölskyldu, ættingja og vini þar sem allir lágu úr hlátri og skemmtu sér vel. Erla hafði hæfileika til að geta orðið góð leikkona, en á Bjargi var sundí- þróttin í hávegum höfð og Erla sem var einnig mikil íþrótta- og sundkona valdi frekar að fara í íþróttakennaraskólann, sem leiddi til þess að íþrótta- og sundkennsla varð hennar ævi- starf. Lengst vann hún sem sundkennari í Sundhöll Reykja- víkur þar sem hún hafði það orð á sér að vera ljúfur og góður kennari. Erla var mér ávallt góð systir en vegna aldursmunar þá urðu okkar samskipti meiri með ár- unum. Ekki síst eftir að við báð- ar vorum komnar með fjölskyld- ur og ég flutt aftur til Reykjavíkur. En þá var Erla flutt í fallegt einbýlishús við Lyngheiði í Kópavogi, þar sem alltaf var heitt kaffi á könnunni og ávallt gott að koma. Yfir æv- ina fórum við Erla saman í þrjár utanlandsferðir og varð Ítalía ávallt fyrir valinu þar sem margt var skoðað og mikið spjallað og þaðan á ég margar góðar minningar með skemmti- legri og yndislegri systur. Nú er elsku Erla mín farin og hennar er sárt saknað. Ég votta börnum hennar, tengdabörnum og barnabörnum mína dýpstu samúð. Hulda Erlingsdóttir. Notalegrar yfirvegunar gætti í fari Erlu, móðursystur minnar, um leið og hún var mjög opin og jákvæð. Hún hlustaði vel, gerði andartaks hlé á máli sínu en kom síðan með meitlaðar at- hugasemdir. Ég var alltaf full aðdáunar á því hvernig hún hafði spilað úr lífi sínu, gift manni í ábyrgð- arstöðu á sjó, var heimavinnandi mörg fyrstu ár barnanna, fór svo í fullt starf og sá þá jafn- hliða um börn og bú. Ekki vantaði sköpunarkraft- inn. Í sjö systra hópi var hún ásamt Ástu grínistinn og átti til með að bregða sér í hlutverk þeirra kynlegu kvista sem þær systurnar hittu í gömlu laug- unum. Ekkert vol og víl yfir ágengri athyglinni. Erla var okkur systrabörnum sínum kær. Þegar við Úlla frænka fórum nýlega að heim- sækja hana, rifjaði hún upp síld- arárin á Sigló og Parísarferðina, sem henni var boðið í ungri að árum. Frásögnin var nákvæm- lega tíunduð og sveipuð ljóma. Við vorum sem uppnumdar og fjarri því að vita að kveðju- stundin væri skammt undan. Ég kveð hana með orðum Jakobs Jóhannessonar Smára: Langt er flug til fjarra stranda, fýkur löður, stormur hvín. Eins og fugl, sem leitar landa, leita ég, ó, Guð, til þín. Blessuð sé minning Þuríðar Erlu Erlingsdóttur. Fanny Ingvarsdóttir. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 ✝ Jóhanna Guð-rún Brynjólfs- dóttir fæddist á Borðeyri við Hrúta- fjörð 8. febrúar 1948. Hún lést á Tene- rife 21. febrúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Brynjólfur Sæmundsson vöru- bílstjóri og Guðrún Lilja Jóhannesdóttir húsfreyja. Systur Jóhönnu eru Dagmar Brynjólfsdóttir og Jóna Pálína Brynjólfsdóttir. Jóhanna giftist Sveinbirni Jónssyni hinn 10. desember 1977, og bjuggu þau allan sinn búskap í Skálholtsvík, Hrútafirði. Þau eignuðust þrjú börn; Brynjólf Sveinbjörnsson 1969, Guðrúnu Lilju Sveinbjörnsdóttur 1972, og Sigríði Sveinbjörnsdóttur 1970. Fyrir átti Sveinbjörn einn son; Ágúst, fæddan 1966, enn hann lést árið 1974. Eiginmaður Sig- ríðar Sveinbjörns- dóttur er Trausti Bjarnason og eiga þau 4 börn; Svein- björn Traustason, Bjarna Traustason, Jóhönnu Trausta- dóttur og Ágúst Loga Traustason. Jóhanna Guðrún ólst upp á Borðeyri, fór í Héraðsskólann á Reykjum og svo í Húsmæðra- skólann á Varmalandi. Árið 1970 fluttist hún til Skálholtsvíkur og þar bjó hún til æviloka ásamt eiginmanni sínum. Með búrekstrinum vann hún í nokkur ár sem matráður í Barnaskóla Borðeyrar, í slátur- húsi á haustin og svo í Brúar- skála, síðar Staðarskála. Einnig var hún í félagsmálum; verka- lýðsfélagi og ungmennafélagi. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu fer útför Jóhönnu fram í lok- aðri athöfn. Ég hafði heyrt margt fallegt um heimsins bestu ömmu áður en við hittumst fyrst. Mikið sem ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, þó ég hefði viljað margfalt meiri tíma. Takk fyrir hvað þú varst yndisleg og góð- hjörtuð og hvað þú hugsaðir vel um fólkið þitt. Hvíldu í friði, elsku- leg. Pála Margrét Það er með trega sem við systk- inin kveðjum hana ömmu okkar. Á sama tíma minnumst við hennar fyrir allan þann kærleik sem hún bjó yfir. Hún amma heilsaði og kvaddi okkur alltaf skælbrosandi og talaði reglulega um hversu rík hún væri að eiga okkur öll að. Hún kenndi okkur að brosa framan í lífið og njóta þess. Hún kenndi okkur að fjölskyldan og vinir ættu ávallt að vera í fyrsta sæti. Þetta munum við taka til okkar og gera, líkt og amma okkar var fræg fyrir. Hvíldu í friði, elsku amma, og takk fyrir allar góðu minningarn- ar. Sveinbjörn, Bjarni, Jóhanna og Ágúst Logi. Það var þungt höggið sem fylgdi þeirri frétt að Jóa okkar, Jóhanna Guðrún Brynjólfsdóttir frá Skálholtsvík, hefði orðið bráð- kvödd á Tenerife. En eigi má sköpum renna. Haustið 1966 hóf glaðvær og röskur hópur ungra stúlkna nám við Hússtjórnarskóla Borgfirð- inga, Varmalandi. Þar á meðal var Jóa. Þá níu mánuði sem við dvöld- um þar mynduðust órjúfanleg tengsl, vinátta og væntumþykja sem allar götur síðan hafa fylgt okkur. Það sem einkenndi Jóu var hennar létta og glaða lund og góð- ur húmor fyrir því spaugilega, ekki síst sjálfri sér. Þarna var oft glatt á hjalla og til urðu margar ógleymanlegar minningar sem hafa verið rifjaðar upp aftur og aftur í áranna rás. Við skólasystur höfum haldið þétt hópinn og komið saman, þá ekki síst á stórum afmælisárum, nú síðast 2017 að Reykholti í Borgarfirði. Þaðan eigum við nú myndir og góðar minningar til að leita í við þessa óvæntu og sorg- legu staðreynd að vinkona okkar verður ekki oftar með okkur. Á dögum endurfunda skiptumst við á frásögnum af okkar lífshlaupi og ekki síst í seinni tíð frásögnum af afkomendum, barnabörnunum og öðru því sem hjartanu stóð næst. Jóa bjó sér heimili í sinni sveit ásamt manni sínum og börnum. Bæjarhreppurinn var hennar sveit og íbúar hans hennar fólk. Þar átti hún sínar sælustu stundir. Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið þér en geymd í hugskoti slípast hún eins og perla í skel við hverja hugsun sem hvarflar til þín. (Hrafn Andrés Harðarson) En nú er komið að leiðarlokum. Missir ástvina Jóu er mestur. Við skólasystur vottum Sveinbirni, Binna, Siggu og Gunnu, barna- börnunum, augasteinum Jóu, systrum hennar og öðrum ástvin- um okkar dýpstu samúð. Góð kona er gengin. Við Varmalandssystur kveðj- um með kærri þökk fyrir sam- fylgdina. Minningin lifir. Sigrún Guðmundsdóttir. Við fæðumst og deyjum, það er gangur lífsins og kemur yfirleitt ekki á óvart þegar fólk fer, því flestir deyja saddir lífdaga. En eigi má sköpum renna. Við göng- um yfirleitt að flestum hlutum vís- um. Við teljum okkur trú um að lífið og tilveran séu að mestu meitluð í stein, að lífið gangi sinn vanagang. Svo koma frávikin. Frávikin gera það að verkum að lífið og tilveran taka óvænta stefnu, stundum sem betur fer. Frávikin valda oft sorg og depurð þegar dauðinn á í hlut, þegar fólk deyr skyndilega um aldur fram. Þannig varð það þegar Jóa okkar var tekin frá okkur. Jóa frænka í Skálholtsvík var fastur punktur í tilverunni hjá okkur hjónunum á sumrin. Þegar við mættum með hjólhýsið á Ing- hólinn á vorin tóku Jóa og Sveinki á móti okkur með sinni yndislegu hlýju og væntumþykju. Jóa sagði oft að vorið kæmi ekki fyrr en hjólhýsið væri komið á hólinn. Ég grínaðist oft með það að við Björg ættum þá bara að koma með hjól- hýsið í mars til að flýta sumar- komunni. Jóa var yndisleg kona sem ég hef þekkt allt mitt líf. Fyrst sem stelpuskott á Borðeyri, nokkrum árum eldri mér og síðar húsfrú og bóndi í Skálholtsvík. Okkur Jóu varð vel til vina og sátum við ósjaldan við eldhúsborðið yfir kaffibolla að spjalla um lífið og til- veruna. Jóa var hlý í viðmóti og tjáði tilfinningar sínar frá hjart- anu. Skopskynið var á sínum stað og oft sá hún spaugilega hlið á málum sem öðrum var hulin. Hún tjáði yfirleitt sína skoðun umbúða- laust, meinti það sem hún sagði. Ég og allir sem þekktum Jóu viss- um alltaf hvar við höfðum hana. Góð kona er farin yfir á annað tilverustig. Í mínum huga er það ekki spurning, hún mun bæta allt sem hún kemur nálægt, hér eða í öðrum heimum. Við Björg munum sakna Jóu og nærveru hennar um aldur og ævi. Í vor þegar við mæt- um í Skálholtsvík, á Inghólinn, verður eitthvað sem vantar. Við vitum öll hvað það er. Megi algóð- ur guð halda utan um Jóu og hennar nánustu. Hugga og styrkja Sveinka, Binna, Siggu og fjölskyldu, Gunnu, systur hennar og alla aðra vini og ættingja. Magnús og Björg. Elsku Jóa hefur nú kvatt okkur og það er óendanlega sárt að hugsa til þess að eiga ekki fleiri stundir með henni. Það var alltaf svo gott að vera í kringum Jóu, hún var kjarni í lífinu sem náði manni alltaf niður á jörðina og minnti mann á hvað í raun og veru skiptir máli, fólkið í kringum mann. Ég var mörg ár í Skálholtsvík sem barn og það var mikið stuð í sveitinni alla daga. Jóa og Svein- björn voru oft með öll sín börn heima og nokkur aukabörn í sveit. Mér fannst þetta sjálfsagður hlut- ur þá en þegar ég lít til baka þá sé ég að Jóa var í raun og veru ofur- kona. Að vera með svona marga í heimili hefur ekki verið neitt smá mál, elda ofan í alla, baka til að hafa með kaffinu, þrífa heimili, þvo þvott og taka þátt í bústörfum. Sauðburðurinn var annasamur tími í sveitinni og þá var mikið um að vera. Ég var svo heppin að eiga margar stundir með Jóu í fjárhús- unum. Henni þótti svo vænt um skepnurnar sínar, fór mjúkum höndum um þær og sýndi þeim sömu virðingu og öllum öðrum í lífinu. Jóa var einstaklega lagin við fæðingarhjálpina og kenndi okkur hvernig ætti að bera sig að, sýndi okkur hvernig ætti að lífga við lömbin, gefa þeim og umgang- ast féð. Jóa hafði alveg einstaklega rúmgott hjarta. Fjölskyldan var henni mjög mikilvæg, þau Svein- björn voru alltaf dugleg að taka Gunnu heim bæði um sumar og jól og henni fannst ekkert betra held- ur en þegar Sigga og fjölskylda voru líka komin. Hún naut þess út í fingurgóma að dekra við barna- börnin sín og hafa þau í kringum sig. Ofan á það ræktaði hún frændfólkið sitt einstaklega vel sem sést vel á því hversu náin hún var þeim. Jóa átti börnin sín, barnabörnin og svo okkur öll hin, börnin sem eyddum mörgum sumrum í sveit í Skálholtsvík. Hún átti stóran hlut í okkur, kenndi okkur margt og mótaði líf okkar á einstakan hátt. Hún gerði okkur öll að betra fólki. Jóa var einfald- lega klettur í lífi allra sem þekktu hana. Síðustu ár hef ég tengt aftur við æskustöðvarnar og eytt meiri tíma í Skálholtsvíkinni minni en árin á undan. Eitt af því fyrsta sem maður hefur alltaf gert þegar komið er í Víkina er að kíkja yfir til Jóu og Sveinbjörns. Þá sett- umst við ávallt niður í eldhúsinu til að spjalla um lífið og tilveruna. Þar voru margar sögur sagðar og mikið hlegið enda stutt í húmorinn hjá heimilisfólkinu og alltaf gam- an að vera í kringum þau. Og þeg- ar maður fór frá Skálholtsvík var síðasta stoppið alltaf eldhúsið hjá Jóu. Ekki hefði mig grunað um síðustu jól þegar við komum til að kveðja að þetta yrði í síðasta skipti sem við yrðum öll saman. Við stöldruðum við aðeins lengur en við ætluðum því það var einfald- lega of skemmtilegt og hlýjan svo mikil að maður tímdi ekki að fara. Mikið er ég glöð að við gáfum okk- ur tíma. Og mikið er ég glöð að við höfum átt fleiri stundir saman í Skálholtsvík síðustu árin. Elsku Sveinbjörn, Binni, Gunna, Sigga, Trausti, Svein- björn, Bjarni, Jóhanna og Ágúst, innilegar samúðarkveðjur til ykk- ar allra á þessum erfiðum tímum. Elsku Jóa, takk fyrir allt. Megir þú hvíla í friði. Fura Ösp Jóhannesdóttir. Jóhanna Guðrún Brynjólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.