Morgunblaðið - 20.03.2020, Side 20

Morgunblaðið - 20.03.2020, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 ✝ Þórarinn Jó-hannesson fæddist 23. ágúst 1957 í Reykjavík. Hann lést 11. mars 2020 á gjörgæslu- deild Sjúkrahúss- ins á Akureyri. Foreldrar hans voru hjónin Jó- hannes Guðmunds- son húsasmiður frá Sunnuhvoli á Stokkseyri, f. 3.2. 1923, d. 19.4. 2018, og Anna Jónína Þórarinsdóttir frá Fljótsbakka í Eiðaþinghá, f. 3.2. 1925, d. 5.3. 2012. Systkin Þórarins eru Guð- ríður, f. 3.2. 1949, Jóhanna Matthea, f. 12.2. 1951, Guð- mundur, f. 18.6. 1953, og Ósk- ar, f. 9.12. 1958. þeirra eru Daníel og Elísabet Anna. Barnabörn Þórarins og Önnu eru tíu og ein langafa- stelpa. Þórarinn lærði húsasmíði hjá föður sínum og vann við smíðar allt þar til hann gekk til liðs við lögregluna á Akur- eyri 1985. Af og til vann hann einnig við smíðar meðfram lögreglustarfinu. Þórarinn, eða Tolli eins og hann var jafnan kallaður, stundaði fót- bolta frá unga aldri og lék með Knattspyrnufélaginu Fram frá yngri flokkum og upp í meist- aradeild. Sumarið 1979 fór hann til Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri og síðar spilaði hann einnig með Reyni Árskógssandi. Hann var öfl- ugur liðsmaður í félagsstörfum Lögreglufélags Akureyrar, ekki síst þegar kom að fram- kvæmdum og viðhaldi. Þór- arinn var enn í starfi hjá Lög- reglunni á Norðurlandi eystra þegar hann lést. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu er útförin lokuð. Þórarinn kvænt- ist eftirlifandi konu sinni Önnu Fr. Blöndal 6. júlí 1990. Dóttir Þór- arins og Elsu Jennýjar Halldórs- dóttur er Anna Borg, f. 16. desem- ber 1983, maki Vigfús Ólafur Bjarkason, börn þeirra eru Emma Marín og Jenný Björk, Alex- ander og Kristín Dögg og barnabarn Aldís Lilja. Börn Önnu og fósturbörn Þórarins eru Agnes Björk, maki Eiríkur H. Hauksson, börn þeirra eru Ragnar Þór og Auður Anna, Jónas Friðrik, börn hans eru Aurora og Reynir og Elísabet, maki Daníel Daníelsson, börn Elskan mín og besti vinur er farinn og eftir sitjum við ástvin- ir hans með ólýsanlega sorg og söknuð í hjarta og sál, það sýn- ist svo ósanngjarnt að einhver svo fullur af lífi og orku skuli svo fljótt vera lagður að velli. Þeim tilfinningum er e.t.v. best lýst með ljóði W.H. Auden: Norður, suður, austur, vestur var hann mér. Mín vinnuvika, sunnudagur hver. Mín nótt, minn dagur með líf og leik. Ég leit þá ást sem væri hún eilíf, ég óð reyk. Hver þarf nú stjörnur, lát myrkvast himins hjól. Pakkið saman tungli, hlutið sundur sól. Sturtið niður sjónum, sópið trjám burt. Um svona hluti verður aldrei framar spurt. En þegar verstu hamförunum slotar og birtan brýst í gegnum sortann með minningarnar finn- um við sem syrgjum hann svo sárt styrk til að halda áfram. Við áttum saman nærri þrjátíu og tvö yndisleg ár og nutum þess að lifa, fyrir þann tíma er ég af öllu hjarta þakklát. Við bárum gæfu til að elta draumana okkar, gera það sem okkur langaði þegar okkur lang- aði til og þær myndir raðast nú upp eins og perlur á bandi. Glaðar stundir með fjölskyldu og vinum heima og í bústað, ferðalög og útilegur. Að hittast og borða saman góðan mat, spilakvöld, jólapúsl eða bara laugardagsgrautur – allt þetta smáa og stóra sem við gerum saman. Gönguferðir og ferðalög um náttúru Íslands eða erlendis, tvö ein eða í félagsskap við börnin okkar, tengdabörn og barnabörn, fjölskyldu eða vini. Við byggingu á draumahúsinu okkar, gróðursetningu og garð- vinnu – að hlúa að lífi okkar og tilveru. Í þessari ferð um minn- ingarnar virðist eins og það hafi verið sífellt sumar. Tolli var mikill ástríðumaður í öllu sem hann hafði áhuga á. Fótboltaástríðan var dvínandi þegar okkar samvera hófst en veiðieðlið vaknað. Hann stund- aði skotveiðar af miklu kappi og hafði mikla unun af útiveru og samveru með vinum í þeim veiðiferðum eða einn úti í nátt- úrunni. Stangveiðinni kynntist hann síðan eftir að við hófum sambúð og tók hana með trompi eins og allt annað. Hann var fóstri barnanna minna í fallegustu og bestu merkingu þess orðs hann elskaði þau eins og væru þau hans eigin og með honum varð hún Anna Borg hans okkar. Eins og hann sagði sjálfur „það eru ekkert mín og hennar, þau eru okkar börn“ ef spurt var og þessi ást og væntumþykja var sannarlega gagnkvæm. Með árunum breytast áhersl- urnar og þegar barnabörnin komu eitt af öðru var komið nýtt hlutverk, afahlutverkið. Kannski var það besta hlutverkið af þeim öllum og við hvert barn sem bættist við jókst ríkidæmið okk- ar, afi Tolli var bestur. Reyndar hændust öll börn að Tolla. Eftirlaunaárin okkar nálguð- ust og við biðum þeirra með mikilli tilhlökkun, að hafa allan tímann í heiminum til að gera allt þetta skemmtilega sem við áttum eftir að gera, sjá og upp- lifa. Við ætluðum að taka for- skot á plönin og ganga Jakobs- veginn saman í vor – nú er hann lagður af stað án mín. Farðu í friði vinur minn, við hittumst á veginum þegar minn tími kem- ur. Höfuðið veit en hjartað með- tekur ekki að kletturinn í lífi mínu með hlýja faðminn sinn muni aldrei framar ganga inn um dyrnar. Anna. Það er þung sorg í hjartanu mínu, því fóstri minn er látinn. Það eru ekki allir jafn heppnir að fá inn í líf sitt manneskju sem er jafn uppfull af ljósi og hann Tolli var. Strax á fyrsta degi tók hann okkur systkinun- um sem sínum eigin, við vorum líka börnin hans frá fyrsta degi og barnabörnin voru gleði hans og hamingja. Ég verð ævinlega þakklát fyrir þann tíma sem við fengum að fylgja honum í þessu lífi, fyrir allar ferðirnar, öll sam- tölin og góðmennskuna, faðm- lögin, spjallið og hjálpina. Tolli var einstaklega hjálpsamur og bóngóður. Eitt sinn fengum við þá hugmynd að byggja aukahús við sumarbústaðinn okkar og Tolli, alltaf hjálpsamur, eyddi fríinu sínu á Suðurlandinu í að smíða húsið og vildi enga þókn- un aðra en að fá að taka þátt í verkefninu og setjast niður á kvöldin með rauðvínsglas og góðan mat og spila. Hann hafði unun af því að vera með fjöl- skyldunni, að brasa með barna- börnunum, ferðast og njóta lífs- ins. Því hann naut lífsins, hann hafði fundið sálufélagann sinn og besta vin þegar hann fann mömmu, og það var lukkan okk- ar. Lukkan okkar sem fengum að fylgja honum í gegnum lífið. Eftir standa óteljandi minning- ar sem eru sveipaðar gleði og hamingju. Það er sárt að hugsa um þessar minningar á þessari stundu því það er svo mikið óréttlæti að hann hafi verið tek- inn frá okkur, en þær búa á sér- stökum stað í hjartanu mínu um ókomna framtíð og munu með tímanum vera mér huggun og hlýja og ég mun hugsa til þeirra með þakklæti. Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Spámaðurinn) Ég er þakklát fyrir að börnin mín fengu að njóta þess að eiga Tolla fyrir afa, hann var afi af einstakri gerð, með hjarta úr gulli og þolinmæði í bílförmum. Tolli var stoltur af börnunum sínum og barnabörnum og ég er stolt að kalla mig dóttur hans. Nú grætur sorg mín gengnum vonum yfir, genginni von, sem fyrrum átti þrótt, því slíkum dauða drúpir allt sem lifir, er dagur ljóssins verður svartanótt. Hið tæra ljóð, það óx þér innst við hjarta, sem ástin hrein það barst í sál mér inn. Og nú, þótt dauðinn signi svip þinn bjarta, þú syngur ennþá gleði í huga minn. Ó, minning þín er minning hreinna ljóða, er minning þess, sem veit hvað tárið er. Við barm þinn greru blómstur alls hins góða. Ég bið minn guð að vaka yfir þér. (Vilhjálmur frá Skáholti) Hvíldu í friði, elsku Tolli, við sjáumst í draumalandinu. Elísabet Blöndal. Í dag kveðjum við Tolla. Það hvarflaði aldrei að mér að ég ætti eftir að sitja hér í dag og skrifa minningarorð um elsku Tolla minn. Það átti ekki að ger- ast fyrr en eftir þrjátíu ár hið minnsta. Ég var unglingur þegar mamma sagði mér í óspurðum fréttum að hún hefði rekist á mann sem hún þekkti úti í búð og ekki leið á löngu þar til Tolla fór að bregða fyrir heima hjá okkur. Ég var tortryggin til að byrja með og leist ekkert á þetta en áður en ég vissi af var hann orðinn ómissandi hluti af fjölskyldunni. Þau mamma voru sálufélagar, hún var írafárið og hann var ljósið og lognið. Hann var kletturinn okkar og kjölfest- an í lífinu. Frá fyrsta degi vor- um við systkinin líka börnin hans og ég verð í hjarta mínu ævinlega þakklát fyrir þann tíma sem við fengum að fylgja honum í gegnum lífið. Hann kunni svo vel að njóta lífsins og njóta þess einfalda í hversdagslífinu, litlu einföldu hlutanna sem maður tekur alltof oft sem sjálfsögðum hlut. Hann sá svo vel hvað það er sem skiptir máli í lífinu og lifði í sam- ræmi við það. Hann var hlýr og góður, traustur og trúr, glað- lyndur og gamansamur og hafði alltaf tíma fyrir barnabörnin sín og okkur hin líka. Hann var allt- af að brasa eitthvað, alltaf með einhver verkefni í gangi og tók öllu sem að höndum bar með sömu róseminni, vandamál voru ekki til, bara verkefni til að leysa. Betri fyrirmynd í lífinu er ekki hægt að hugsa sér. Ég er afar þakklát fyrir að börnin mín hafi notið þeirra for- réttinda að hafa búið nánast alla sína ævi í næsta nágrenni við afa Tolla og ömmu, en samt svo sorgmædd yfir því að þau hafi ekki fengið meiri tíma með hon- um. Hann var svo stoltur af öll- um barnabörnunum og hafði alltaf svo einlægan áhuga á því sem afabörnin tóku sér fyrir hendur, sóttist eftir félagsskap þeirra og hafði af svo miklu að miðla til þeirra. Barnabörnin voru hans líf og yndi, og hann var alltaf eitthvað að brasa með þeim, fara á ísrúnt, fara í bakarí, spila eða horfa á leikinn og ræða lífið og tilveruna. Alltaf þegar upp komu vandamál eða einhver krísa þá var lausnin sú að hringja í afa, því afi vissi alltaf hvað skyldi gera. Eins þegar eitthvað skemmtilegt eða óvænt gerðist, þá þurfti líka að hringja í afa. Tolli og mamma áttu eftir að byggja húsið sitt við hliðina á mínu húsi, svo það væri hægt að labba á inniskónum á milli húsa. Þar ætluðu þau að verða gömul saman og þar ætluðum við að sitja með þeim á pallinum þeirra eða í eldhúsinu þeirra, í morg- unkaffi eða kvöldkaffi, og njóta hversdagsins. Lífið verður tóm- legt án hans. Hvíl í friði, elsku Tolli. Agnes. Það er hálf nöturlegt að bregða sér af bæ í jólafrí og fara til útlanda með sínum nán- ustu og eiga ekki afturkvæmt í sitt hefðbundna líf á nýju ári. Fyrir mér er Tolli nánast bara enn í jólafríi en manni verður það ávallt ljósara að hlutirnir hafa breyst og honum mun ekki bregða fyrir á löggustöðinni á Akureyri aftur. Minningin lifir um einn af máttarstólpum hinna ýmsu verka sem þar hafa verið unnin undanfarna áratugi og ekki síst er kemur að hand- verki, hvort sem það var fyrir embættið og ekki síður er teng- ist orlofseignum okkar lögreglu- manna í Eyjafirði. Ýmislegt er hægt að draga fram þegar Tolli er nefndur og ávallt er nú létt yfirbragð yfir því. Ódrepandi áhugi hans á smíðum fyrir félagsskap okkar verður vart leikinn eftir og ekki var nú Anna til að draga úr því, lagði okkur til hæfileika sína með teikningum og hugmyndum sem voru óþrjótandi. Tolli var búinn að vera nokk- ur ár í löggunni þegar ég kom þar inn og tilheyrði hann þar merkri vakt sem Ingimar Skjól- dal stýrði og var oftar en ekki nefnd „helvítis B-vaktin“. Vaktin Þórarinn Jóhannesson Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Birting minningagreina Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði. Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur um birtingu á minningargreinum. Minningagreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð og samhug. Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í kyrrþey. Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningargreina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins. ICQC 2020-2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.