Morgunblaðið - 20.03.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.03.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Heiðargerði 7-8, Flóahreppur, fnr. 234-6926 , þingl. eig. Fóðurstöð Suðurlands ehf., gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Flóahreppur, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:00. Hafnargata 9, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 219-9810 , þingl. eig. Nónhólar ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:40. Hafnargata 9, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 226-3937 , þingl. eig. Nónhólar ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:40. Hafnargata 9, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 226-3935 , þingl. eig. Nónhólar ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:40. Hafnargata 9, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 226-3938 , þingl. eig. Nónhólar ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:40. Hafnargata 9, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 227-6997 , þingl. eig. Nónhólar ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:40. Hafnargata 9, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 227-6999 , þingl. eig. Nónhólar ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:40. Hafnargata 9, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 227-7002 , þingl. eig. Nónhólar ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóri, miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 10:40. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 19. mars 2020 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Skipholt 7, Reykjavík, fnr. 222-8488 , þingl. eig. Hjalti Sigurðarson, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 10:00. Eyjarslóð 7, Reykjavík, fnr. 223-5367 , þingl. eig. Hífandi ehf., gerðar- beiðendur Arion banki hf., Reykjavíkurborg, Orkuveita Reykjavíkur- vatns sf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 11:00. Eyjarslóð 7, Reykjavík, fnr. 200-0092 , þingl. eig. Hífandi ehf., gerðar- beiðendur Arion banki hf., Reykjavíkurborg, Orkuveita Reykjavíkur- vatns sf., Faxaflóahafnir sf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 11:10. Brekkutangi 4, Mosfellsbær, 50% ehl., fnr. 208-3178 , þingl. eig. Karl Guðni Erlingsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 13:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 19. mars 2020 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Draupnisgata 4, Akureyri, fnr. 214-5626 , þingl. eig. Þrír K fasteignir ehf., gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf. og Akureyrarbær, þriðju- daginn 24. mars nk. kl. 10:15. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 19. mars 2020 Félagsstarf eldri borgara Garðabæ Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á vegum Garðabæjar, s.s. í Jónshúsi, Smiðjunni, Litlakoti, íþróttahúsinu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið. Starfsemi hjá FEBG og FEBÁ fellur einnig niður tímabundið. Korpúlfar Allt félagssstarf á vegum Korpúlfa fellur niður vegna Kórónaveirufaraldurs nema gönguhópar Korpúlfa, gengið er frá kl. 10:00 mánudaga, frá Borgum, Grafarvogskirkju og í Egilshöll. Á miðvikudögum og föstudögum kl. 10:00 frá Borgum og inni í Egilshöll. Hvetjum alla til að halda áfram heilsueflingu og passa upp á hvert annað með því að hringja hvert í annað og fylgjast vel með á samfélagsmiðlum takk Norðurbrún 1 Félagsstarfið liggur liggur niðri vegna COVID-19 smits. Seltjarnarnes Allt félags og tómstundastarf hjá eldri borgurum á Seltjarnarnesi liggur niðri vegna COID19. Við hjá félagsstarfinu gerum allt sem í okkar valdi stendur til að upplýsa og vera til staðar. Hægt er að vera í sambandi á fb síðunni eldri borgarar á Seltjarnarnesi með ábendingar eða leyta upplýsinga. Einnig má hringja í Kristínu í síma 8939800 eða senda póst á kristin.hannesdottir@seltjarnarnes.is Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er lokað um óákveðin tíma vegna Covid-19 smits innanlands Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Faglærður Húsasmiður. Húsasmiður/einyrki með mikla reynslu óskar eftir vinnu. S.7820040 Þjónusta Málningarþjónusta Upplýsingar í síma 782 6034. Bílar Nissan Micra árg. 2016 til sölu Ekinn 71 þús. km. Bíll í mjög góðu standi. Verð kr. 890.000. Upplýsingar í síma 822 6554. Vantar þig fagmann? FINNA.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Smá- og raðauglýsingar HINSTA KVEÐJA Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Eva Kristín. Hér er minning hrein og þýð er hjartað geymir alla tíð. Aldrei skal gleymast ástvin kær þótt okkar tíma sé hann fjær. Þeim er á jörðu flytur frið fagnandi Drottinn tekur við. Þannig Guðs loforð ljúfast er, sem ljós í mannahjörtu ber. Öll skal nú þakka árin blíð, allt sem gladdi á fyrri tíð. Liðinnar ævi stutt er stund stefnum við öll á Drottins fund. (Rósa B. Blöndals) Kristín. ✝ Magnús Guð-mundsson fædd- ist í Reykjavík 9. des- ember 1937. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 6. mars 2020. Foreldrar hans voru Áslaug Magn- úsdóttir húsmóðir, f. 9. nóvember 1913, d. 17. ágúst 1997, og Guðmundur Frið- finnsson pípulagningameistari, f. 23. ágúst 1910, d. 12. apríl 1971. Hálfsystir Magnúsar, honum sam- feðra, er Kolfinna, f. 1. ágúst 1950. Magnús kvæntist Kristínu Jóhannesdóttur, f. 26. maí 1948, árið 1994 en þau voru í sambúð á árunum 1986-2001. Sonur þeirra er Guðmundur Ás Magnússon, f. 20. júní 1988. Systkin Guðmundar Áss, sammæðra, eru Reynir Reyn- isson, f. 1967, Guðbjörg Arndal, f. 1969, Jóhann R. Arnarsson, f. 1971, Stefanía M. Arndal, f. 1977 og Eva Kristín Arndal, f. 1983. Magnús fór utan til náms rétt fyrir tvítugt og nam blómaskreyt- ingar. Hann lærði fyrst hjá dönsk- um meistara en fór síðan til Þýska- meðferðir þar. Hann var líka með heilsunudd og æfingar í Sunnuhlíð í Kópavogi. Um alda- mótin bjó Magnús á Hellissandi og starfaði þar við heilsu- meðferðir, byggingavinnu og fleira. Magnús ferðaðist mikið og var alla ævi áhugasamur og fróð- leiksfús um fjölmargt, til dæmis heilsu, mataræði og menningu annarra þjóða. Hann bjó og starf- aði í Noregi í nokkur ár, var með meðferðir og vann við blóma- skreytingar og fleira. Eftir að hann flutti heim bauð hann upp á heilsumeðferðir og hjálpaði mörgum sem áttu við vanheilsu að stríða. Þá tók Magnús sig til og lærði frönsku á seinustu ár- um, fór til Frakklands og dvaldi þar um skeið. Blómaskreytingar og allt sem þeim tengdist var Magnúsi alltaf ofarlega í huga og hann bætti við kunnáttu sína í þeim efnum ævina á enda. Þegar hann kenndi heilsubrests fyrir liðlega ári hugðist hann leita sér náttúrulækninga og hafði leit- að sér upplýsinga um slíkar lækn- ingar í Bandaríkjunum. Fram á síðustu daga ævi sinnar var hann staðráðinn í því að ferðast vestur um haf og fá bót meina sinna með þeim hætti. Banamein hans var krabbamein í brisi. Útförin fer fram frá Háteigs- kirkju í dag, 20. mars 2020, klukkan 13. lands þar sem hann bætti við þekkingu sína og vann þar við fagið. Eftir heim- komuna rak hann blóma- og gjafa- verslun í Reykjavík um nokkurra ára skeið. Síðar vann Magnús hjá Póst- inum í nokkur ár en samtímis við blóma- skreytingar. Magnús fékk snemma mikinn áhuga á óhefðbundnum lækn- ingum og ýmiss konar með- ferðum til heilsubótar. Hann var langt á undan samtíð sinni í mörgu því sem sneri að matar- æði, heilsunuddi og náttúru- lækningum og sótti sér margs konar þekkingu í þeim efnum. Hann lærði sogæðanudd í Þýskalandi, svæðanudd í Dan- mörku sem og ungbarnanudd og ungbarnasund. Einnig lærði hann höfuðbeina- og spjald- hryggsnudd, bæði hér heima og erlendis, sem og heilsubóta- rnudd. Magnús var mjög góður heilari og bjó lengi á Mánabraut í Kópavogi og bauð upp á heilsu- Láttu hug þinn aldrei eldast eða hjartað. Vinur aftansólar sértu, sonur morgunroðans vertu. (Stephan G. Stephansson) Í dag kveðjum við frænda okk- ar Magnús Guðmundsson, Magga frænda. Magnús var sonur hjónanna Áslaugar Magnúsdótt- ur og Guðmundar Friðfinnssonar. Hann var fyrsta barnabarn þá- verandi Kjaransstaðahjóna, Frið- finns og Jóhönnu, og því nokkur aldursmunur á okkur frænd- systkinunum, þar sem Maggi var nær föður okkar í aldri en okkur. Hálfsystir Magnúsar er Kol- finna Guðmundsdóttir. Okkur systkinunum barst sú gæfa í fang að kynnast honum, mismikið þó. Það þótti eðlilegt og sjálfsagt að börn og unglingar þeirra tíma sem höfðu heimilis- festi á „mölinni“ væru send í sveit yfir sumartímann. Þar var Magnús engin undantekning. Hann minntist oft þeirra sumra þar sem hann var í uppeldi for- eldra okkar og sagðist hafa lært að jarðtengja sig á Kjarans- stöðum. Maggi var listhneigður og lærði blómaskreytingar bæði í Danmörku og Þýskalandi. Hann starfaði víða í Evrópu eftir námið en kom að lokum heim og stofnaði blómabúðina Merkúr. Hann hafði næmt auga fyrir skreytingum og hélt vinsæl námskeið fyrir land- ann í umgengni við blóm og í blómaskreytingum. Það bar snemma á því að Maggi var andlega sinnaður og eignaðist með árunum stóran hóp aðstoðarmanna að handan. Hann gerði sér snemma grein fyrir mik- ilvægi þess að ástunda heilbrigt líferni og næra sig af ábyrgð. Á þeim sviðum var hann virkilega á undan sinni samtíð. Hann lærði svæðanudd og sogæðanudd ásamt öðrum heilsuaðferðum og var meðferðaraðili af guðs náð. Hann starfaði við það að ein- hverju leyti fram undir síðustu stund. Það var öðruvísi að koma á bekkinn hjá honum en flestum öðrum. Hann tjáði manni iðulega að fyrra bragði af hverju maður var komin til hans. Það brást ekki að út fór maður betri manneskja en áður. Maggi kvæntist Kristínu Jóhannesdóttur og eignaðist með henni einn son, Guðmund Ás. Fyrir átti Kristín fimm börn. Þau slitu samvistir. Við vottum öllum aðstandendum samúð okkar og Magga frænda blessunar í Sumarlandinu. Fyrir hönd systkinanna frá Kjaransstöðum í Dýrafirði, Hanna Laufey Elísdóttir. Ég kynntist Magnúsi fyrst fyr- ir um það bil 35 árum í Heilunar- skóla Jyttu Eiríksson. Alla tíð síð- an höfum við verið í sambandi, þrátt fyrir að hafa ekki hist oft hin síðari ár, öðruvísi en í gegnum síma, eða hist á förnum vegi, og byrjaði hann oft samtalið á „Bonjour Madame!“ á sinn gletti- lega hátt (líklega því neðangreind var í París í eitt ár forðum). Spurðum hvort annað frétta. Við vorum lengi, er þau Kristín bjuggu á Reykjavíkursvæðinu, í heilunarhóp, eftir námið, ásamt félögum, sem mörg mynduðu litla hópa, sumir voru menntaðir hjúkrunarfræðingar, kennarar, og garðyrkjufólk, jafnvel hár- greiðslumeistari … hugleiddum með ákveðinni tónlist (með viss- um heilunaráhrifum) og sendum (vorum milliliðir) lækningaorku til þeirra sem þess báðu, og fyrir friði í heiminum öllum. Eftir hug- leiðslu og fjarheilun bauð Jytta eða dóttir hennar Rakel upp á „jarðtengingu“ súkkulaðibita eða litla kexköku! Gefandi stundir. Magnús kvæntist Kristínu Jóhannesdóttur, sem var einnig í Heilunarskólanum, kær vinkona mín. Við, þessi góði hópur hennar Jyttu, fórum saman í ferðalög á sumrin, þá á staði þar sem vitað var um einstaka orku, til dæmis gistum við að Hellnum á Snæfells- nesi, litum jökulinn, fundum kraftinn, æfðum orkutækni, hlustuðum á fyrirlestra. Fórum einnig á Þingvöll, klöngruðumst yfir Spöngina og settumst í hring í hugleiðslu. Magnús og Kristín eignuðust soninn Guðmund Ás, af fyrra hjónabandi átti Kristín fimm börn, var nú með fjögur börn, myndarlegur og stór hópur, þar sem Magnús tók við föður- hlutverki með alúð, en mikil við- brigði líklega, þá kominn á fimm- tugsaldur, sjálfur einbirni. Hann og Kristín voru saman í 15 ár. Ég og vinkona okkar, Guðrún heitin Georgsdóttir, urðum þess heiðurs aðnjótandi að vera „svarakonur“ í fallegri lítilli kirkju við Hellissand hjá þeim fyrrverandi hjónum, ásamt Ró- berti, syni Kristínar og Munda litla, fjögurra eða fimm ára syn- inum. Maggi starfaði á ýmsum stofn- unum við heilsu-sjúkranudd, var einnig um tíma með eigin nudd- stofu, meðal annars á Hellissandi og í Kópavogi. – Hann hafði átt eigin blómabúð, en á erfiðum tím- um í þjóðfélaginu hafði hann þurft að hætta rekstri hennar, honum mjög erfitt. Blómaskreytingar hafði hann m.a. lært í Danmörku, en útskrifaðist áður við það nám að Reykjum, Garðyrkjuskólanum í Ölfusi. Hve undurfagrar voru skreyt- ingar hans í fermingarveislum barnanna, þeirra sem þegar voru ekki fermd. Eða við útför móður hans, þar sem hann sá um allar skreytingar, bæði í kirkjunni og í erfidrykkjunni, hvít og fögur blóm. Hve hún hefði verið ánægð að sjá þetta kærleiksríka hand- bragð sonarins. Magnús var ekki allra, hann kom víða við, við hittumst oft á hinum ýmsu fræðslufundum um hin og þessi heilbrigðismál, hann lét sér ekkert óviðkomandi í sam- bandi við þau mál, ekki síst krabbamein og kynnti sér ýmis- legt, lærði sogæðanudd í Þýska- landi o.fl. og las og fékk send fréttablöð þaðan, sem hann oft þýddi og sendi vinum, m.a. mér. Hann mælti mikið með engiferrót vegna bólgusjúkdóma, og mörgu fleira sem ekki verður talið upp í kveðju hér. Ég kvaddi Magnús Guðmunds- son á líknardeild 4.3. en 6.3. lést hann. Þar sem Kristín og sonur þeirra, Guðmundur Ás, og upp- eldisbörn voru viðstödd. Mikill friður lýsti af andliti hans látnum, var mér tjáð. Ég kveð þennan einstaka mann, náttúrubarn, einfara, fag- urkera, og votta syni hans, Guð- mundi, og uppeldisbörnum Evu, Stefaníu, Guðbjörgu og Róberti, ættingjum og vinum öllum, ekki síst Kristínu, dýpstu samúð. Norma. Magnús Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.