Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 Heill frumskógur af gæludýrum... Í fiskana mig langar svo að setja í búrið stóra mamma segir þú færð tvo en pabbi segir fjóra. Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18 L i f and i v e r s l un kíktu í heimsókn Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr 60 ára Hákon er frá Haga á Barðaströnd og er með sitt annað heimili þar en býr líka í Reykjavík. Hann er menntaður húsasmið- ur og ökukennari en rekur eigið ferðaþjón- ustufyrirtæki. Maki: Birna Jóhanna Jónasdóttir, f. 1956, kennari. Dætur: María Katrín, f. 1982, Björg, f. 1992, og Guðrún Anna, f. 1994. Dætra- synirnir eru orðnir fimm. Foreldrar: Bjarni Hákonarson, f. 1932, d. 2018, bóndi í Haga, og Kristín Ingunn Haraldsdóttir, f. 1936, fv. bóndi í Haga, dvelur á Patreksfirði. Hákon Bjarnason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú drífur aðra áfram og tekur málin föstum tökum, einmitt það sem fólk vill. Þó að þú lendir á milli tannanna á fólki veistu fyrir hvað þú stendur. 20. apríl - 20. maí  Naut Forvitni þín vaknar og ímyndunaraflið fer á flug. Sá sem þú lítur upp til dettur af stallinum og þú þarft að endurmeta hlutina upp á nýtt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Trúðu nánum vini fyrir innstu draumum þínum og þrám, viðbrögðin gætu komið þér á óvart. Gakktu úr skugga um að vinum líði vel. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Tækifæri til aukinnar menntunar eru ofarlega í huga þér núna. Hvernig væri að taka stökkið? Taktu af öll tvímæli um til hvers þú ætlast af heimilisfólki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gefðu þig alla/n í allt sem þú gerir, þannig nærðu árangri. Þér finnst þú utan- veltu í vinahópnum en það er tímabundið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er sætt hversu tilfinninga- næm/ur þú ert og kannt að tárast á réttu augnablikunum. Hver er sinnar gæfu smiður. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hertu þig upp og leitaðu réttar þíns þótt það kosti átök og smá pening. Ekki tala í hálfkveðnum vísum. Hreinskilni borg- ar sig til langs tíma litið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það léttir lífið að hafa gaman- semina alltaf við höndina. Fólk virðist bæði geðstirt og óútreiknanlegt núna og erfitt er að reikna út í hvorn fótinn skal stíga. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Taktu höndum saman með öðr- um til þess að láta hjólin snúast. Settu þína eigin heilsu ofar öllu öðru því að öðrum kosti áttu á hættu að finna fyrir kulnun. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt maður laðist að fólki sem er ólíkt manni getur verið erfitt að vinna með því. Eigðu frumkvæðið í þetta sinn og bjóddu vinunum heim til þín. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur búið svo um hnútana að fátt á að geta komið þér í opna skjöldu. Enginn fer í gegnum lífið án gagnrýni frá öðrum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það getur reynst hættulegt að hlaupa til og kaupa bara til þess að kaupa. Forðastu fólk sem rignir upp í nefið á. þar af formaður 1996 og í stjórn full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ frá 1996 til 1998. Hann var varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn kjörtímabilið 1998-2002 og aftur frá 2010-2014 en frá þeim tíma hefur hann setið sem stjóri viðskiptatengsla hjá eMerchantpay.“ Sigurður hefur sinnt margvís- legum störfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í Garðabæ, var í stjórn Hugins, félags ungra sjálfstæðis- manna í Garðabæ frá 1994 til 1999, S igurður Guðmundsson fæddist 20. mars 1970 í Reykjavík en flutti 5 ára í Garðabæ og hefur búið þar allar götur síðan. „Ég var í sveit hluta úr sumri frá 7 til 14 ára aldurs á Þorgautsstöðum í Hvítarásíðu hjá þeim heið- urshjónum Katli og Sögu,“ segir Sigurður. Sigurður hóf strax að æfa knatt- spyrnu með Stjörnunni þegar hann flutti í Garðabæinn og gerði til 26 ára aldurs og eftir það þjálfaði hann hjá Stjörnunni í 10 ár. „Í gegnum Stjörnuna kynntist ég mínum bestu vinum og við hittumst félagarnir alla föstudaga milli kl. 16 og 18 á Mat- húsi Garðabæjar og ræðum ekki síst málefni Stjörnunnar, en flestir reyn- um við að skila einhverju til baka til félagsins. Við sjáum um þorrablótið í Garðabæ og erum í bakvarðasveit fyrir knattspyrnudeildina, einnig ræðum við ensku knattspyrnuna en þar fer þrautagöngu minna manna í Liverpool að ljúka fljótlega. Ég fór í þessa hefðbundnu grunn- skóla í Garðabæ, Hofsstaðaskóla, Flataskóla og Garðaskóla en ákvað síðan að fara í Verzlunarskóla Ís- lands og á mjög skemmtilegan og góðan vinahóp frá tíma mínum þar en ég útskrifaðist þaðan 1990.“ Sig- urður hóf síðan nám við Háskóla Ís- lands og útskrifaðist hann sem lög- fræðingur (cand. jur.) þaðan árið 1996. „Samhliða námi við lagadeild- ina og eftir útskrift til 1998 starfaði ég á Lögfræðistofu Suðurnesja hjá þeim Ásbirni Jónssyni heitnum og Lárentsínusi Kristjánssyni og þar var virkilega gott að hefja starfsfer- ilinn og á ég þeim mikið að þakka.“ Þaðan lá leiðin í Húsnæðisstofnun ríksins og til Tollstjórans í Reykja- vík en árið 2002 hóf hann störf hjá Borgun og starfaði þar til 2017 sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og alþjóðasviðs mestan tímann. „Það var sérlega skemmtilegur tími og gaman að starfa í síbreytilegum heimi greiðslumiðlunar. Í framhaldi af starfi mínu hjá Borgun hóf ég að vinna við ráðgjöf í greiðslumiðlun í gegnum eigið félag mest erlendis og í dag starfa ég sem framkvæmda- aðalmaður í bæjarstjórn Garða- bæjar og flest árin jafnframt í bæjarráði, í dag er hann forseti bæj- arstjórnar Garðabæjar. Sigurður sat í stjórn Íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar frá 1998-2006, þar af formaður 1998-2002 og aftur sem Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar – 50 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Árni Eyþór, Þórunn, Sigurður, Lára Björg, Ólöf Sara og Daníel Garðar. Harður Garðbæingur í 45 ár Á skíðum Fjölskyldan stödd í Austurríki fyrir nokkrum árum. Á veiðum Sigurður í Dalsárósi í Víðidalsá 2019. 40 ára Kristinn er Sauðkrækingur, fædd- ur og uppalinn og Sauðárkróki og hefur ávallt átt heima þar. Hann er húsasmíða- meistari að mennt og er húsasmiður hjá Friðriki Jónssyni ehf. Maki: Sunna Björk Atladóttir, f. 1989, lögmaður hjá Pacta lögmönnum. Sonur: Björgvin Skúli, f. 2019. Foreldrar: Jófríður Tobíasdóttir, f. 1939, húsmóðir, búsett á Sauðárkróki, og Björgvin Jónsson, f. 1929, d. 2000, skrif- stofumaður hjá Mjólkursamlagi Sauðár- króks. Kristinn Tobías Björgvinsson Til hamingju með daginn Sauðárkrókur Björg- vin Skúli Kristinsson fæddist 8. nóvember 2019. Hann vó 3.735 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Kristinn Tobías Björg- vinsson og Sunna Björk Atladóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.