Morgunblaðið - 20.03.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
Gítarar
Frábært úrv
al
„OG SVO EIN SPURNING AÐ LOKUM –
HVERSU LANGT Á ÉG EFTIR?”
„ÉG ÆTLA AÐ TAKA MEÐ MÉR STÓRAN AF
KAFFI. PASSAÐU AÐ LOKIÐ SÉ KIRFILEGA
FEST.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að dansa saman við
ljúfa tóna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SÆLL, KÖTTUR. ÉG HEF
ÁKVEÐIÐ AÐ VERÐA
ALVARLEGRI
HVERNIG VAR
ÞETTA? GOTT,
EKKI SATT?!
ÞÚ NÁÐIR AÐ
GABBA MIG
ANDARTAK
ÉG ÁTTI YNDISLEGT
KVÖLD MEÐ ÞÉR! ÞÚ ERT EINN AF
MILLJÓN!
ÞAÐ ÞÝÐIR ÞÁ LÍKLEGA AÐ ÞAÐ SÉ NOKKUÐ
LANGT Í AÐ ÉG HITTI HANA AFTUR …
formaður frá 2010-2014, þá hefur
hann verið formaður skipulags-
nefndar í Garðabæ frá árinu 2014.
„Ég hef áhuga á veiði og skíðum
og við hjónin förum árlega á skíði er-
lendis og eins eru ávallt skipulagðar
nokkrar veiðiferðir á hverju sumri
með fjölskyldu og vinum. Ber þar
yfirleitt hæst stórskemmtilega veiði-
ferð Stjörnuveiðimanna í byrjun
september ár hvert.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Þórunn
Anna Árnadóttir, f. 5.8. 1976, sviðs-
stjóri hjá Neytendastofu. Foreldrar
hennar: Hjónin Lára K. Guðmunds-
dóttir, f. 3.3. 1950, skrifstofustjóri,
og Árni Pétursson, f. 4.2. 1941, d.
9.10. 1996. Barnsmóðir Sigurðar er
Svala Hilmarsdóttir, f. 15.2. 1968,
lögfræðingur hjá Ríkisskattstjóra.
Börn Sigurðar og Svölu eru
Daníel Garðar Sigurðarson, f. 13.9.
2001, nemi í FG, og Ólöf Sara Sig-
urðardóttir, f. 11.3. 2004, nemi í
Garðaskóla. Dóttir Sigurðar og Þór-
unnar er Björg Sigurðardóttir, f.
31.5. 2013, nemi í Flataskóla. Stjúp-
sonur Sigurðar og sonur Þórunnar
er Árni Eyþór Hreiðarsson, f. 24.9.
2001, nemi í Verzlunarskóla Íslands.
Systkini Sigurðar eru Einar
Gunnar Guðmundsson, f. 9.6. 1972,
rafvirki, búsettur í Garðabæ, og
Margrét Björg Guðmundsdóttir, f.
31.10. 1980, bókari hjá NTC, búsett í
Garðabæ.
Foreldrar Sigurðar: Hjónin Guð-
mundur Einarsson, f. 7.3. 1945, raf-
virkjameistari í Garðabæ, og Ólöf
Sigurðardóttir, f. 22.11. 1947, d. 17.9.
1995, bókari hjá Sjóvá-Almennum.
Seinni eiginkona Guðmundar er
Lilja Jónasdóttir, f. 4.4. 1950, ferða-
ráðgjafi hjá Vita.
Sigurður
Guðmundsson
Guðrún Kristólína Jónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ólafur Jón Jóhannsson
kaupmaður í Reykjavík
Friðbjörg Ólafsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Sigurður Guðmundsson
verkamaður á Melavelli í Reykjavík
Ólöf Sigurðardóttir
bókari í Garðabæ
Ólöf Kristjánsdóttir
húsmóðir í Görðum
Guðmundur Brynjólfsson
bóndi í Görðum í Staðarsveit, Snæf.
Ingigerður Sigurðardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ágúst Guðmundsson
bifreiðarstjóri í Reykjavik
Margrét Sigríður Ágústsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Einar Gunnar Guðmundsson
aðalbókari í Reykjavík
GuðnýÁsbjörnsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Guðmundur Einarsson
kirkjugarðsvörður í Reykjavík
Úr frændgarði Sigurðar Guðmundssonar
Guðmundur Einarsson
rafvirkjameistari í Garðabæ
Helgi Zimsen yrkir á Leir:Heimskringlu hrellir nú Kovid,
í hugsunum víða er þó vit,
þótt bylji í tunnum
tómum og þunnum
kommenta-kerfanna óvit.
Páll Imsland heilsar leirliði í og
utan einangrunar og fer með limru
í tilefni ástandsins:
Covid er krúttlegust veira,
kringlótt og þaðan af meira.
Hún er ættuð frá Kína
hvar keisarans skína.
Þeir segja’ hana engu þó eira.
Sigurlín Hermannsdóttir segir
að nú séu allir orðnir veirusérfræð-
ingar, þökk sé netinu, og hvetur
fólk til að fara varlega á óvissutím-
um:
Á interneti óvitar
öllum stundum hanga.
Koma nú fram kóvitar
og kenningarnar ganga.
Davíð Hjálmar í Davíðshaga
kvartar yfir, að nú séu engir
íþróttaviðburðir og fátt að sjá í
íþróttaþætti sjónvarpsins.
Af íþróttum er frekar fátt
að frétta, það er miður.
Ég horfði á tvo og hálfan þátt
um hlaup sem fellt var niður.
Síðan segir Davíð Hjálmar að
ekki sé einleikið hve Íslendingar
eru kvartsárir þegar veðrið á í
hlut:
Fylgi þér, góa, frost og hríð,
frenjast og kvarta gumar.
Vilja þeir frekar vetrartíð
að vori og næsta sumar?
Pétur Stefánsson segir að von-
andi sjái fyrir endann á þessum
leiðindavetri:
Herská Góa herðir kraft,
hríð hún þróað getur.
Eg hef nógan ama haft
af þér snjóavetur.
Sigmundur Benediktsson yrkir
dýrt:
Yfir glugga aukast skuggar,
ólund bruggar sumum hjá.
Hríðarmugga hugsun ruggar,
hefur stuggað sólu frá.
Fyrir helgina sagði Jón Atli Ját-
varðarson: „Þar sem öllum vær-
ingum milli okkar Indriða á Skjald-
fönn er nú lokið þá er þessi vísa til
sátta ort og engum leiðindum frek-
ar við harðan vetur hjá Indriða að
bæta.“
Vertu kátur vinur minn,
vorið kemst í dalinn þinn.
Strokið verður stofugólf
og stuggað fé á beitarhólf.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kovid og fátt um íþróttir