Morgunblaðið - 20.03.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020
þá yrði gríðarlega erfitt að fresta
leikunum fram á næsta sumar sem
dæmi. Eins yrði það mikið fjárhags-
legt högg fyrir Japani og allt hag-
kerfið þeirra í raun. Þetta eru bara
svo hrikalega stórir leikar sem snú-
ast einfaldlega um svo miklu meira
en bara íþróttir. Við erum samt öll
sammála um að þetta muni einhvern
tíma ganga yfir en það er bara tíma-
spursmál hvenær það gerist.“
Vonast til að leikarnir fari fram
Líney viðurkennir að höggið yrði
mikið fyrir íþróttafólkið ef leikunum
yrði frestað.
„Mesta höggið, ef leikunum yrði
frestað, væri fyrir íþróttafólkið, ekki
bara fjárhagslega heldur líka bara
andlega og líkamlega því það hefur
undirbúið sig fyrir Ólympíuleikana í
nokkur ár. ÍSÍ hefur hvatt íslenskt
íþróttafólk til þess að halda áfram að
æfa af fullum krafti. Það er ekki út-
göngubann á Íslandi enn sem komið
er, ólíkt mörgum öðrum löndum í
kringum okkur, og íslenskt íþrótta-
fólk getur því æft vel eins og staðan
er í dag. Sjálf vonast ég auðvitað til
þess að leikarnir fari fram. Það væri
ekki bara frábært upp á Ólympíu-
leikana að gera heldur myndi það
líka þýða að við værum að sigrast á
þessari vá sem þessi veira er,“ sagði
Líney Rut.
Undirbúningurinn í uppnámi
Þríþrautarkonan Guðlaug Edda
Hannesdóttir undirbýr sig nú af
krafti fyrir Ólympíuleikana í Tókýó
en kórónuveirufaraldurinn hefur
haft mikil áhrif á undirbúning henn-
ar fyrir leikana.
„Heilt á litið hefur undirbúning-
urinn gengið nokkuð vel. Ég skipti
um þjálfara, fékk Bandaríkjamann-
inn Ian O’Brian, um mitt síðasta ár
og síðan þá hefur þetta allt verið á
réttri leið hjá mér. Vissulega hefur
kórónuveiran sett undirbúninginn í
ákveðið uppnám því ég hef bara náð
einni stórri keppni eftir áramót. Ég
fékk að vísu mjög mörg stig fyrir
hana en undir eðlilegum kringum-
stæðum hefði ég verið að taka þátt í
einhverjum sex til sjö keppnum vítt
og breitt um heiminn. Þríþrautar-
sambandið gaf það út á dögunum að
öllum keppnum hefði verið frestað
út apríl og þeir ætla svo að byrja aft-
ur af fullum krafti eftir það. Hlut-
irnir breytast hratt þessa dagna en á
meðan mörg lönd hafa sem dæmi
lokað landamærum sínum vegna
veirunnar er erfitt að sjá keppnis-
tímabilið hefjast á nýjan leik strax í
maí.“
Guðlaug Edda tók þátt í heimsbik-
armótinu í Mooloolaba í Ástralíu um
síðustu helgi þar sem hún hafnaði í
24. sæti og skilaði það henni mikil-
vægum heimslista- og ólympíu-
stigum.
Alveg á mörkunum
„Það hefur eitthvað verið í um-
ræðunni að fjölga sætum á leikunum
í ár sem myndi henta mér ágætlega.
Eins og staðan er núna þá er ég
númer 56 á Ólympíulista en eins og
er þá komast 55 efstu inn á leikana.
Ég þyrfti helst aðra keppni til þess
að gulltryggja ólympíusætið en ef
allt helst óbreytt þá er ég alveg á
mörkunum að komast inn. Það er
samt erfitt að sjá það fyrir sér að Ól-
ympíuleikarnir verði haldnir yfirhöf-
uð. Auðvitað vona ég að leikarnir
verði haldnir en eins og þetta blasir
við manni verður hrikalega erfitt að
halda þá í sumar. Þú ert með fullt af
íþróttafólki frá t.d Ítalíu, Frakklandi
og Spáni sem getur ekki einu sinni
æft þessa dagana vegna útgöngu-
banns. Maður hefur heyrt að veiran
eigi ennþá eftir að ná hámarki bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum en auð-
vitað vonar maður það besta. Þegar
allt kemur til alls þá er þetta fyrst og
fremst alþjóðalegur viðburður og ef
fólk frá öllum heimshornum kemst
ekki þá á að fresta þessu.“
Get ekki æft með þjálfaranum
Guðlaug Edda var á leið til Banda-
ríkjanna frá Ástralíu í æfingabúðir
en ákvað að snúa aftur heim til Ís-
lands vegna óvissuástandsins sem
nú geisar í heiminum.
„Planið var að fara til Bandaríkj-
anna í æfingabúðir en ég ákvað að
koma heim til Íslands út af öllu því
sem er í gangi núna og maður veit
ekkert hvenær öllum landamærum
verður hreinlega lokað. Það versta
við að koma heim er auðvitað sú
staðreynd að ég get ekki æft með
þjálfaranum mínum. Þá eru að-
stæður hér heima ekki jafn góðar og
í Bandaríkjunum þótt það sé vissu-
lega alltaf gott að koma heim. Núna
taka við hálfgerðar inniæfingar hjá
mér næstu fjórtán dagana í það
minnsta þar sem ég er á leið í
sóttkví. Ég er heppin með það að
það er ekki útgöngubann hér, þann-
ig að ég má allavega hjóla og hlaupa.
Maður heldur sig bara út af fyrir sig
næstu daga sem er svo sem ekki
mikil breyting enda hefur maður svo
gott sem æft þannig síðan veiran
blossaði upp,“ bætti Guðlaug Edda
við.
Frestun yrði mesta högg-
ið fyrir íþróttafólkið
Óvissa um Ólympíuleikana ÍSÍ fundaði með forseta IOC sem stefnir fullum
fetum á að leikarnir verði haldnir Guðlaug Edda sneri heim vegna ástandsins
Ljósmynd/Þríþrautarsamband Íslands
Nálægt Guðlaug Edda Hannesdóttir er afar nálægt því að tryggja sér sæti í
þríþrautarkeppninni á Ólympíuleikunum í Tókýó.
ÓLYMPÍULEIKAR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Margir íþróttamenn hafa kallað eftir
því að Ólympíuleikunum 2020, sem
eiga að fara fram í Tókýó í Japan í
sumar, verði frestað vegna kórónu-
veirunnar. Leikarnir eiga að fara
fram dagana 24. júlí til 9. ágúst en
forsætisráðherra Japans, Shinzo
Abe, greindi frá því á dögunum að
ekki kæmi til greina að fresta leik-
unum.
Í fyrradag sátu forráðamenn ÍSÍ
fjarfund með Thomasi Bach, forseta
Alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC,
en Bach hefur fundað með öllum 206
ólympíunefndum heimsins undan-
farna daga og biðlað til þeirra að
gera allt sem í þeirra valdi stendur
til þess að koma í veg fyrir út-
breiðslu kórónuveirunnar.
Á fundinum kom einnig fram að
Alþjóðaólympíunefndin stefndi
ótrauð að því að leikarnir yrðu að
veruleika í ár og að engar ákvarð-
anir um frestun eða eitthvað slíkt
yrðu teknar á þessum tímapunkti.
Því ætti allt íþróttafólk að halda
áfram undirbúningi sínum fyrir leik-
ana af fullum krafti.
„Það eru miklir
óvissutímar í
gangi og við von-
umst að sjálf-
sögðu til þess að
þetta gangi yfir,“
sagði Líney Rut
Halldórsdóttir,
framkvæmda-
stjóri ÍSÍ, í sam-
tali við Morg-
unblaðið í gær.
„Við áttum góðan
fund í gær þar sem fólk vill halda í
jákvæðnina og stefna ótrautt áfram
á leikana. ÍSÍ mun fyrst og fremst
fylgja tilmælum íslenskra stjórn-
valda og landlæknis þegar þar að
kemur. Ef þau mæla gegn því að fólk
ferðist til Asíu á þessum tíma þá
munum við ekki fara þangað og
stofna íþróttafólki okkar í hættu því
það er alltaf heilsa íþróttafólksins
sem er í fyrsta sæti.“
Hvetur íþróttafólk áfram
Eins og áður sagði gaf Shinzo
Abe, forsætisráðherra Japans, það
út á dögunum að leikunum yrði ekki
frestað og Líney viðurkennir að það
hafi verið stór orð hjá ráðherranum.
„Þetta eru mjög stór orð hjá for-
sætisráðherra Japans, það er alveg á
hreinu. Eins og þetta blasir við hon-
um þá eru leikarnir bara á dagskrá í
júlí og hann auðvitað vonast til þess
að faraldurinn gangi yfir, eins og all-
ir aðrir. Út frá öllum flækjustigum
Líney Rut
Halldórsdóttir
frestað og að keppnin í ár verði
mögulega felld niður en eins og
staðan er núna eru ekki miklar
líkur á að sú keppni fari fram.
Niðurstaða fundarins er því
eftirfarandi:
Byrjun Íslandsmóta karla og
kvenna og bikarkeppnum seink-
að þar til um miðjan maí.
Keppni í Lengjubikarnum er
lokið og ekki verður krýndur
meistari.
Meistarakeppni KSÍ frestað
og keppnin í ár mögulega felld
niður.
Knattspyrnusamband Íslands
samþykkti á stjórnarfundi í gær
að fresta Íslandsmótum karla og
kvenna þar til um miðjan maí.
Með því er gert ráð fyrir að
hæfilegur tími líði frá lokum
samkomubanns þar til keppni
getur hafist í öllum mótum. Fari
hins vegar svo að samkomub-
annið hér á landi verði lengt,
mun sambandið þurfa að end-
urmeta stöðuna.
Fyrsti leikur í efstu deild
karla, Pepsi Max-deildinni, átti
að vera spilaður 22. apríl og átta
dögum síðar átti fyrsti leikur í
Pepsi Max-deild kvenna að fara
fram. Þá er einnig búið að
fresta fyrstu umferðum Mjólk-
urbikarsins. Mjólkurbikar
kvenna átti að fara af stað 8.
apríl og Mjólkurbikar karla 29.
apríl.
Stjórn sambandsins samþykkti
einnig að keppni í Lengjubik-
arnum væri lokið og að ekki
yrðu krýndir meistarar 2020. Þá
var samþykkt að Meistarakeppni
KSÍ, þar sem Íslandsmeistarar
mæta bikarmeisturum, verði
Íslandsmótunum frestað fram í maí
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
KSÍ Guðni Bergsson er formaður
Knattspyrnusambands Íslands.
Handknattleiksdeild Fram fram-
lengdi í gær samning sinn við Þorgrím
Smára Ólafsson, einn besta leikmann
liðsins. Nýi samningurinn gildir næstu
tvö árin, eða til ársins 2022. Þor-
grímur er markahæsti leikmaður Fram
í úrvalsdeildinni á leiktíðinni með 107
mörk í 20 leikjum. Liðið er í níunda
sæti deildarinnar, einu stigi frá Stjörn-
unni, í baráttunni um sæti í úr-
slitakeppninni. Félagið samdi um
helgina við Sebastian Alexandersson
og mun hann þjálfa Fram frá og með
næstu leiktíð.
Norska knattspyrnufélagið Aale-
sund, þar sem þrír íslenskir leikmenn
spila, tilkynnti í gær að það hefði af-
lýst allri íþróttastarfsemi sinni um
óákveðinn tíma. Með liðinu leika þeir
Hólmbert Aron Friðjónsson, Davíð
Kristján Ólafsson og Daníel Leó Grét-
arsson en Aalesund vann norsku B-
deildina með miklum yfirburðum á
síðasta tímabili og vann sér úrvals-
deildarsæti eftir tveggja ára fjarveru. Í
yfirlýsingu frá Aalesund segir meðal
annars að leikmenn liðsins séu í veik-
indaleyfi þar sem þeir hafi verið settir
í sóttkví á löglegan hátt af yfirvöldum.
Velska knattspyrnufélagið Cardiff
City hefur tilkynnt að Peter Whitt-
ingham, einn leikjahæsti leikmaður fé-
lagsins á seinni árum, sé látinn, 35 ára
að aldri. Whittingham slasaðist í vik-
unni þegar hann féll á höfuðið á veit-
ingahúsi í borginni Barry í Wales og
höfuðmeiðsli sem hann varð fyrir voru
það alvarleg að hann lést á sjúkrahúsi
í Barry. Hann lætur eftir sig eiginkonu
og ungan son.
Martin Schwalb, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Rhein-Neckar
Löwen, hefur greinst með kórónuveir-
una. Ýmir Örn Gíslason og Alexander
Petersson leika með liðinu. Leikmenn-
irnir Mads Mensah Larsen og Jannik
Kohlbacher greindust fyrr í vikunni og
þá hafa fleiri ónafngreindir leikmenn
einnig greinst með veiruna. Allt liðið er
nú í sóttkví vegna þessa.
Búið er að fresta öllum helstu
íþróttadeildum Tyrklands um ótiltek-
inn tíma. Þetta staðfesti Mehmet Kas-
poglu, íþróttamálaráðherra Tyrklands,
á blaðamannafundi í gær. Viðar Örn
Kjartansson er leikmaður Yeni Mala-
tyaspor í efstu deild og Theodór ELm-
ar Bjarnason leikur með Akhisarspor í
B-deildinni.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn
Willian hefur boðist til þess að klára
tímabilið með Chelsea, jafnvel þótt
hann yrði samningslaus áður en tíma-
bilinu lýkur. „Samning-
urinn minn rennur út í
júlí og ef ég þarf að
spila eftir að hann
rennur út er það ekk-
ert mál. Félagið
hefur alltaf staðið
vel við bakið á
mér, sagði Willian
við Esporte Interativo
í heimalandinu. Willian
hefur rætt við Chelsea
um nýjan samning síð-
ustu mánuði en hann vill
þriggja ára samning á
meðan Chelsea er aðeins
reiðubúið að bjóða honum
tveggja ára samning.
Eitt
ogannað