Morgunblaðið - 20.03.2020, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell
ADifferent Kind of Disaster Movie.
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN
ÓSKARSTILNEFNINGAR2 BESTA ERLENDA MYNDINBESTA LE IKARI : ANTONIO BANDERAS
SÝND MEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI
★★★★
San Francisco Chronicle
★★★★
Indiewire
★★★★
Hollywood reporter
Spánverjinn Pedro Almodóv-ar er með merkustu núlif-andi kvikmyndaleikstjórumheims og áhrif hans á kvik-
myndagerð eru mikil. Almodóvar er
nú orðinn sjötugur en hann kvaddi
sér eftirminnilega hljóðs með sinni
fyrstu kvikmynd, Pepi, Luci, Bom
árið 1980, fimm árum eftir andlát
einræðisherrans Francisco Franco.
Var þá ritskoðun aflétt á Spáni og
listin tók að blómstra á ný og ekki
síst í kvikmyndagerð. Almodóvar
fór fyrir hópi nýrra leikstjóra sem
fóru sínar eigin leiðir og fögnuðu
menningarlegu og kynferðislegu
frjálsræði. Hann dansaði oft á línu
hins ósmekklega og má nefna sem
dæmi að í hans fyrstu kvikmynd má
sjá svokallaða gullna sturtu. Förum
ekki nánar út í þá sálma.
Alþjóðlega hylli hlaut hann með
hinni merku kvikmynd Mujeres al
borde de un ataque de nervios, eða
Konur á barmi taugaáfalls árið 1988
en í henni, líkt og svo mörgum öðr-
um kvikmynda hans, eru konur í að-
alhlutverkum og þar að auki vel
mótaðar persónur og ekki skapaðar
til þess eins að styðja við eða tala
um karlmenn.
Síðan eru liðin mörg ár og Almo-
dóvar hefur breyst mikið sem kvik-
myndagerðarmaður þó að enn megi
sjá mörg einkenni hans í nýjustu
kvikmyndinni, Dolor y gloria eða
Sársauki og dýrð. Þær ýkjur og
spaug sem einkenndu fyrstu kvik-
myndir hans eru löngu horfnar og
miklu dramatískari leikstjóri stig-
inn fram. Enn má þó sjá margt það
sem alltaf hefur einkennt kvik-
myndir Almodóvars, til dæmis
sterka liti, eftirminnilegar og vel
mótaðar persónur og ólgandi
ástríðu.
Sársauki og dýrð er að hluta ævi-
sögulegt verk. Segir í myndinni af
kvikmyndaleikstjóra um sextugt,
Salvador Mallo, sem nýtur mikillar
virðingar en hefur ekki leikstýrt til
fjölda ára vegna veikinda. Mallo
glímir við mikla verki í baki og
höfði, astma og einkennilega and-
nauð sem ekki er vitað hvað veldur
framan af mynd.
Í áhrifamiklu upphafsatriði kafar
áhorfandinn ofan í sundlaug, rennir
augum eftir botninum þar til við
blasir maður. Líkaminn er slakur,
fætur snerta botninn og augun eru
lokuð. Eftir hryggjarsúlunni ber
hann langt ör, hefur greinilega
gengist undir mikla skurðaðgerð.
Út frá því er rennt aftur til fortíðar,
ungur drengur fylgist með konum
við þvott á árbakka. Móðir hans
bendir honum á einkennilegan fisk
og segir „Sjáðu, Salvador, sjáðu
fiskinn, hvað hann er fallegur!“
Þarna er leikstjórinn kominn, barn
að aldri, þegar lífið var fallegra, ein-
faldara og hann laus við krónískan
sársauka og tíðan fylgifisk hans
þunglyndið. Sólin skín og konurnar
syngja við störf sín. Þetta er falleg
minning, líkt og aðrar sem koma í
reglulegum afturlitum leikstjórans í
myndinni. Salvador er skarpur
drengur sem vill alls ekki verða
prestur en þar sem hann á fátæka
foreldra er ekki annað í boði en að
þiggja þá menntun sem kaþólska
kirkjan býður upp á. Hann kennir
ungum verkamanni að lesa og
skrifa og kynhvötin lætur á sér
kræla í fyrsta sinn þegar hann sér
verkamanninn baða sig. Leikstjór-
inn er samkynhneigður, líkt og
Almodóvar, og margt annað í mynd-
inni minnir á ævi hans. Almodóvar
hefur sjálfur sagt að kvikmyndin sé
skáldskapur, ítrekaði það m.a. í við-
tali í dagblaðinu Guardian í fyrra en
bætti svo við að hann væri að reyna
að sannfæra sjálfan sig um að svo
væri, þó undir niðri væri honum
ljóst að myndin fjallaði um hann
sjálfan. Salvador er því einhvers
konar blendingur af Almodóvar og
öðrum manni sem hann hefur mót-
að listilega.
Salvador fær þær fréttir að sýna
eigi kvikmynd sem hann gerði fyrir
32 árum í endurbættri útgáfu í
listabíói í Madríd og fer á fund aðal-
leikara myndarinnar sem hann hef-
ur ekki rætt við frá því þeim sinn-
aðist við gerð myndarinnar. Þeir
sættast og leikarinn tekur fram
heróín. Salvador spyr hvort hann
megi prófa og finnur í heróíninu
flótta undan sársaukanum. Í
vímunni svífur hann á vit minning-
anna, til æskunnar og móður sinnar
sem er látin og síðar til hennar
hinstu daga. Þegar líður á kvik-
myndina bætist svo við þriðja lag
frásagnarinnar þegar gamall elsk-
hugi knýr dyra.
Sársauki og dýrð er líklega per-
sónulegasta kvikmynd Almodóvars
til þessa þó oft hafi hann skrifað út
frá eigin reynslu og reynsluheimi og
þá sérstaklega í La mala educacíon
og La ley del deseo. Frásögnin er
lágstemmd, á yfirborðinu virðist lít-
ið gerast en undir niðri býr heil-
mikil saga af ást, fortíðarþrá, eftir-
sjá og sektarkennd. Þetta er
áhrifamikið portrett af manni og
Almodóvar kastar líka fram spurn-
ingunni um hversu áreiðanlegar
minningar okkar séu. Hvernig hann
gerir það er best að láta ósagt,
nægir að segja að mörk skáld-
skapar og veruleika verða óljós þar
líkt og þegar kemur að aðalpersón-
unni sjálfri; hversu stór hluti af
henni er Almodóvar og hversu stór
hluti hennar er sköpunarverk hans
og skáldskapur? Ísland kemur líka
skemmtilega við sögu þegar Salva-
dor furðar sig á vinsældum sínum
hér á landi eftir að hafa fengið boð
um að sækja hér kvikmyndahátíð.
Antonio Banderas er virkilega
góður í hlutverki Salvador Mallo,
leikurinn er hárfínn og aðrir leik-
arar eru að sama skapi eftirminni-
legir, ekki síst Asier Etxeandia í
hlutverki leikarans og heróínfíkils-
ins Alberto Crespo. Penelope Cruz
er að vanda vel leikstýrt af Almo-
dóvar og Asier Flores heillandi í
hlutverki hins unga Salvador.
Sviðsmyndir eru úthugsaðar og
mikið augnayndi og myndatakan er
óaðfinnanleg. Innrömmun töku-
manns vekur oftar en ekki athygli,
t.d. þegar horft er á sjónvarp sem
rammað er inn af bókaskápum með
athyglisverðum hætti og speglar at-
riðið annað þar sem leikari flytur
einleik eftir Salvador frammi fyrir
stórum skjá.
Sterkir, heitir litir eru áberandi
líkt og í fyrri myndum Almodóvars,
einkum þó æpandi rauður sem má
til dæmis sjá á eldhúsinnréttingu á
heimili leikstjórans við sægrænar
flísar. Rauður er litur ástríðu en
líka hættu og hins forboðna eða
bannaða en blár er litur róarinnar,
eins og sjá má í upphafsatriðinu
fyrrnefnda. Búningar eru líka litrík-
ir og minna fötin sem Salvador er í
oft á fötin sem maður hefur séð
Almodóvar klæðast. Einhvers stað-
ar las ég að þetta væru í raun og
veru föt Almodóvars og íbúðin eft-
irmynd af íbúð leikstjórans. Frum-
samin tónlist Alberto Iglesias fellur
svo fullkomlega að kvikmyndinni,
hún er kannski ekki frumlega eða
óvenjuleg en alltaf falleg.
Litadýrð Antonio Banderas í hlutverki Salvador Mallo í litríku eldhúsi heimilis síns í Dolor y gloria.
Óljós mörk
Bíó Paradís og
Sambíóin Kringlunni
Dolor y gloria bbbbm
Leikstjórn og handrit: Pedro Almodóvar.
Aðalleikarar: Antonio Banderas, Asier
Etxeandia, Leonardo Sbaraglia, Nora
Navas, César Vicente, Asier Flores og
Penélope Cruz. Spánn, 2019. 113 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Fjallað er um Dolor y gloria í nýj-
asta þætti kvikmyndahlaðvarps
mbl.is, BÍÓ, á undirsíðunni Fólk.