Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 32
Bandaríski söngvarinn og lagahöfundurinn Gavin
DeGraw heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu 17. ágúst.
DeGraw á að baki ýmsa smelli og af þeim helstu má
nefna „Chariot“, „I Don’t Want to Be“, „Best I Ever
Had“ og „In Love with a Girl“. Fyrsta plata DeGraw
kom út árið 2003 og naut mikilla vinsælda og hefur
hann gefið út sex aðrar að auki.
Miðasala á tónleikana hefst í næstu viku, fimmtu-
daginn 26. mars.
Gavin DeGraw heldur tónleika í
Silfurbergi í Hörpu í ágúst
FÖSTUDAGUR 20. MARS 80. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Guðlaug Edda Hannesdóttir þríþrautarkona er einu
sæti frá því að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í
Tókýó í sumar. Hún er komin heim vegna óvissu-
ástandsins og kveðst eiga erfitt með að sjá fyrir sér
að leikarnir verði haldnir í sumar. Líney Rut Halldórs-
dóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, vonast til þess að leik-
arnir geti farið fram, enda myndi það þýða að við
værum að sigrast á kórónuveirunni. „Mesta höggið ef
leikunum yrði frestað væri fyrir íþróttafólkið sjálft,“
segir Líney. »27
Einu sæti frá Ólympíuleikunum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hildigunnur Hjálmarsdóttir er 100
ára í dag. „Strákarnir senda tertu
hingað og ég borða hana með starfs-
fólkinu,“ segir hún. „Mér finnst
skelfilegt að veiran skuli vera komin
til Íslands og er skíthrædd um að
hún komist inn á Grund en samt er
ég ekki og hef aldrei verið sjúk-
dómahrædd, var aldrei persónulega
hrædd við berklana.“
Hildigunnur fæddist í Stykk-
ishólmi, ólst upp hjá móður sinni,
Soffíu Emelíu Gunnarsdóttur, syst-
ur Gunnars skálds, í Norska húsinu
þar til hún var átta ára. Þá fluttu
þær suður og bjuggu fyrst í Fjala-
kettinum í Aðalstræti 8 í Reykjavík.
Faðir hennar, Hjálmar Sigurðsson,
kaupmaður og útgerðarmaður, lést í
kjölfar aðgerðar og sá aldrei dóttur
sína. Hún var einbirni og ólst upp
hjá einstæðri móður. „Ég tók því
eins og sjálfsögðum hlut,“ segir hún.
„Ég átti margar og góðar vinkonur.
Við stofnuðum saumaklúbb ungar
og hann var starfandi nær alla æv-
ina, en nú er ég ein eftir.“
Bók fyrir 13 árum
Eiginmaður Hildigunnar var
bókavörðurinn og leikritaskáldið
Agnar Þórðarson, sonur Þórðar
Sveinssonar, yfirlæknis á Kleppi, og
Ellenar Kaaber. Hann andaðist
2006. Kleppsspítali átti 100 ára af-
mæli 2007 og af því tilefni kom út
bókin Danska frúin á Kleppi eftir
Hildigunni. Bókin fjallar um
tengdamóður hennar og hennar
fólk. Hildigunnur þýddi líka efni,
sem birtist í Morgunblaðinu og Les-
bók Moggans. Þar kom sér vel mála-
kunnátta hennar en eftir að hafa
verið í vinnu í áratugi skellti hún sér
í Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í
frönsku og dönsku. „Annars hef ég
lítið fengist við skriftir. Ég hefði
gjarnan viljað skrifa meira en
ástæðurnar voru þannig að ég þurfti
að vinna fyrir heimilinu. Agnar hafði
verið berklaveikur sem ungur mað-
ur og ég var alltaf hrædd um að
berklarnir tækju sig upp. Ég hafði
gott starf hjá ríkisspítölunum og
mér þótti óskynsamlegt að sleppa
því.“
Ellen var menningarlega sinnuð
og Hildigunni góð tengdamóðir.
„Það var svo margt gott við hana
Ellen. Hún var til dæmis svo bjart-
sýn og gerði alltaf gott úr öllu. Það
má vel vera að hún hafi verið mín
fyrirmynd að einhverju leyti.“ Hún
bætir við að hún hafi alla tíð haft
mikinn áhuga á menningu. „Þegar
við vorum erlendis sóttist ég mikið
eftir því að komast á söfn.“ Því hafi
verið ákaflega ánægjulegt að vera á
Ítalíu. „París er náttúrlega minn
uppáhaldsstaður og ég hef nokkrum
sinnum farið þangað. Ég hef líka
ferðast töluvert á seinni hluta æv-
innar og kannski má segja að ég sé
heimskona. Ég held að margir af
minni kynslóð hafi ekki átt kost á að
ferðast eins mikið og ég.“
Hildigunnur er hress og hefur frá
mörgu að segja. „Ég hef notið góðr-
ar heilsu alla tíð, hef lifað hófsam-
legu lífi.“ Hún hefur búið á Grund
undanfarin rúm þrjú ár og þar ætl-
aði hún að vera með veislu í dag. „Ég
var búin að fá leigðan sal hér uppi á
lofti,“ segir hún. Afkomendur og vin-
ir heima og erlendis hafi boðað komu
sína, en hún og Agnar eiga þrjá syni,
sjö barnabörn og fimm barna-
barnabörn. „Það verður ekkert úr
þessu í bili en vonandi verður ein-
hvern tíma hægt að halda stóra
veislu.“ Hún leggur samt áherslu á
að sér líði ágætlega. „Vel er hugsað
um okkur. Starfsfólkið er frábært.
Það vill allt fyrir okkur gera. Ég er
mjög þakklát þessu góða fólki sem
annast mig hér. Ég er líka þakklát
fyrir þetta langa, góða líf. Mér finnst
ég hafa átt mjög skemmtilegt líf.“
Ánægð og lífsreynd
heimskona á Grund
Tímamót Hildigunnur Hjálmars-
dóttir varð 80 ára stúdent í fyrra.
Hildigunnur Hjálmarsdóttir hefur átt skemmtilegt líf í 100 ár
Í Austurstræti Agnar og Hildigunnur kunnu vel við sig í miðbænum.
MTvær konur 100 ára í dag »11
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
KIPLING model 3088
L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,-
L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-