Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 2
Til hamingju með annað sætið!
Takk, við erum mjög ánægðir með silfrið. Þetta var
gríðarlega skemmtilegt.
Ertu búinn að ná þér niður?
Ég var svo sem ekkert að básúna það en ég var veik-
ur á úrslitakeppninni. Vaknaði um morguninn með
hása rödd. En ég fann sem betur fer ekki fyrir því
þegar ég flutti lagið.
Þú ert bæði rokkari og töframaður;
hvernig fer það saman?
Það fer mjög vel saman. Hvort tveggja eru skapandi
sviðslistir þar sem hægt er að fá útrás fyrir sköpunar-
þörfina og tjáningu. Ég vinn svo í skiltagerð á daginn;
það er mitt öryggi. Það þarf víst að borga reikninga.
Hvenær kviknaði áhuginn á töfrabrögðum?
Ég sá fyrst töfrabrögð í sjónvarpinu þegar ég var sex
ára. Mér fannst þetta svo magnað að ég sá að þetta var
eitthvað sem ég vildi gera. Svo um tíu ára sá ég Baldur
Brjánsson í sjónvarpinu og hafði samband við hann.
Sagði að við kollegarnir þyrftum að hittast. Hann tók vel
í það og tók mig undir sinn verndarvæng.
Hverju mega áhorfendur á sunnudag
búast við?
Hugsanalestri, rakvélablöðum og sjónhverfingum.
Hvað ertu að gera með þessi
rakvélablöð?
Ég gleypi þau með tvinna og dreg þau svo út úr mér
með rakvélablöðunum þræddum á. Þetta er ákveðin
áskorun.
Morgunblaðið/Eggert
INGÓ GEIRDAL
SITUR FYRIR SVÖRUM
Gleypi
rakvélablöð
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2020
Allt hefur sinn tíma og komið er að kveðjustund hér á Morgunblaðinunú þegar Ragnar Axelsson hættir eftir margra áratuga starf. Égvarð þeirrar gæfu aðnjótandi að detta inn í hóp frábærra ljósmynd-
ara sumarið 1995, fyrir aldarfjórðungi. Þegar ég kom þarna blaut á bak við
eyrun hafði Raxi starfað þar nánast síðan 1974 og varð fljótt góður vinur og
mikil fyrirmynd.
Ljósmyndadeildin á þessum árum var uppi á sitt besta og ekki skorti þá fé
til að sinna skemmtilegum og sögulega merkilegum verkefnum.
Raxi var þar alltaf fremstur í
flokki og í mínum huga er það engin
spurning að þar fer besti ljósmynd-
ari Íslandssögunnar. Nú ætlar hann
að taka flugið án Moggans og þótt
hans verði sárt saknað verður
spennandi að fylgjast með honum
elta sína drauma.
Allir sem þekkja Raxa vita að
hann er stríðnispúki hinn mesti.
Hefur undirrituð fengið að kenna á
því í 25 ár. Hversu oft hef ég ekki
gengið um ganga Morgunblaðsins
með blað sem hann hafði límt á bakið
á mér og skrifuð voru á velvalin orð,
eins og „passið ykkur á mér, ég er á
lausu“, „ég er ein heima í kvöld, bankið fast,“ eða einhver álíka skilaboð!
Við kollegar hans reyndum margsinnis að borga til baka fyrir öll prakk-
arastrikin með misjöfnum árangri. Í eitt skipti tókst okkur vel upp!
Það var í kringum 2006 og farsímar voru orðnir nokkuð góðir. Nýjung var
þá í boði, hægt var að búa til sinn eigin hringitón; syngja inn á símann, tala
eða hljóðrita hvað sem var.
Við Golli ljósmyndari fengum snilldarhugmynd og stálum símanum hans
Raxa þegar hann sá ekki til. Við lokuðum okkur inni í litlu herbergi, Golli
stillti á „record“ og ég stundi sem mest ég mátti. „Ohhh, Raxi …“ og fleira
sem ekki er birtingarhæft hér. Við skiluðum svo símanum og Raxi hentist út í
myndatöku. Hann átti að mynda fund með háttsettum ráðamönnum í Höfða,
eða þannig minnir mig að sagan sé. Um það bil sem við áætluðum að Raxi
væri kominn þar inn, hringdum við að sjálfsögðu í símann. Úr vasa Raxa
mátti heyra vel leiknar kynlífsstunur sem tóku engan enda. Það voru sér-
kennilegar augngotur sem Raxi fékk þar frá ráðamönnum þjóðarinnar.
Við Golli hringdum óspart í hann allan daginn. Og næstu daga, því hann
kunni ekkert að breyta þessu!
Takk, Raxi, fyrir allar ódauðlegu myndirnar. Og öll prakkarastrikin!
Takk fyrir öll
prakkarastrikin!
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Úr vasa Raxa máttiheyra vel leiknarkynlífsstunur sem tókuengan enda. Það voru sér-
kennilegar augngotur sem
Raxi fékk þar frá ráða-
mönnum þjóðarinnar.
Sigurbjörg Þráinsdóttir
Ég óttast það ekki en ég held það
muni trúlega gerast.
SPURNING
DAGSINS
Óttast þú
að lenda í
sóttkví?
Gunnar Birgisson
Ég er að fara utan í næstu viku og er
ekki smeykur en maður tekst bara á
við það ef það gerist.
Hólmfríður Ólafsdóttir
Ég gæti lent í sóttkví af því að ég
vinn í kirkju þar sem margt fólk
kemur saman.
Sigurður Þór Þórðarson
Já. Ég tel miklar líkur á því.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Ingvarsson
Töframaðurinn og rokkarinn Ingó Geirdal sýnir í Salnum í
Kópavogi töfrabrögð á heimsmælikvarða á sunnudag, 8.
mars, klukkan 16. Miðar fást á tix.is.
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
KLASSÍSK TÓNLEIKARÖÐ
Nánar á harpa.is/sigildir
Kammermúsík-
klúbburinn
Strokkvartettinn Siggi
8. mars kl.16
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is