Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Page 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2020
Met eru eitt. Titlar annað.
Auðvitað hefur það kitlað
metnaðargirni Jürgens Klopps
og lærisveina hans að klára úr-
valsdeildina án taps en úr því
tapið er komið getur liðið lagt
enn meiri áherslu á Meistara-
deild Evrópu. Það er ekki eins
og Englandsmeistaratitillinn sé
í uppnámi. Öðru nær.
Eins og við þekkjum á Liver-
pool titil að verja í Evrópu og
„sá eyrnastóri“ færi ljómandi
vel með Englandsbikarnum í
þéttskipuðum bikaraskápnum
á Anfield. Eins blóðugt og tap-
ið óvænta gegn Watford var
skal fullyrt hér að það hefur
aukið líkurnar á tvennunni hjá
Liverpool á þessum sögulega
vetri. Auðvitað er langur
vegur í mark en for-
skotið í deildinni gefur
Klopp
tæki-
færi til
að for-
gangsraða
verkefnum á næstu vik-
um. Og hver myndi ekki
fórna stiga- og sigramet-
um í úrvalsdeildinni fyrir eitt
stykki Evrópubikar?
Synd væri að segja að Klopp
hafi sett bikarkeppnirnar
heima fyrir í forgang í vetur. Sá
þýski tefldi að mestu fram
óhörðnuðum ungmennum í
deildarbikarnum, sem sum
hver voru varla komin úr mút-
um. Það lið komst þó alla leið í
átta liða úrslit.
Sterkara lið mætti til leiks í
bikarkeppni enska knatt-
spyrnusambandsins, FA-
bikarnum, eins og
hann er iðulega
nefndur, en þeirri
vegferð lauk á
Stamford Bridge í
vikunni; þar sem
Klopp leyfði
sér að hvíla
nokkra
lykilmenn
eða hafa
þá á
bekkn-
um. Það
var
raunsætt
mat.
LIVERPOOL BERST Á FLEIRI VÍGSTÖÐVUM
Hvað um tvennuna?
Hershöfðinginn:
Jürgen Klopp.
Baráttan um Englandsbikarinní knattspyrnu hefur sjaldaneða aldrei verið eins óspenn-
andi og í vetur. Til þess er Rauði
herinn frá Bítlaborginni Liverpool
með alltof sterkt lið fyrir hin nítján
sem eiga sæti í úrvalsdeildinni; þar
með talið ofurlið og meistara síðustu
tveggja ára, Manchester City. Þeir
heiðbláu sátu bara agndofa eftir með
reyk í vitum og heilu þökurnar í
fanginu, eftir að þeir Kloppungar
spóluðu fram úr þeim þegar í upp-
hafi móts.
Nú er það þannig að óvígur her
manna úti um allan heim hefur at-
vinnu af því að tala og skrifa um
ensku knattspyrnuna; fyrir utan alla
hina sem gera það glaðir í bragði
kauplaust. Þess vegna urðu menn að
finna sér eitthvað annað að fjalla um
þegar enga þýðingu hafði lengur að
velta fyrir sér hvar sjálfur Eng-
landsbikarinn myndi enda.
Þá blasti við að einblína á tapleysi
Liverpool, sem vann lengi vel alla
leiki, ef frá er talið jafntefli í Leik-
húsi draumanna. Önnur eins stiga-
söfnun hefur ekki sést á byggðu bóli.
Tvisvar í sögunni hafa lið farið tap-
laus gegnum Englandsmótið, efstu
deild; Preston North End 1888-89
og Arsenal 2003-04. Allt benti til
þess að Liverpool hefði burði til að
leika þann leik eftir en sá draumur
er úti, alltént að sinni, eftir óvænt
tap gegn Watford á Vicarage Road
um liðna helgi, í leik númer 28.
Ekki nóg með það; Liverpool var
líka farið að þefa duglega að öðru
meti, sem Arsenal á einnig, 49 leiki í
röð án taps í efstu deild. Watford-
leikurinn var númer 45.
Auðvitað eru þetta vonbrigði fyrir
Rauða herinn en mín spá er sú að
mannskapurinn hristi það fljótt af
sér enda meistaratitillinn sjálfur það
sem öllu máli skiptir; ekki síst þegar
menn eru búnir að halda í sér í þrjá-
tíu ár. Þrátt fyrir ósigurinn gegn
Watford teljum við nú tímann þang-
að til bikarinn langþráði verður í
höfn í dögum en ekki vikum. Og það
er bara 8. mars!
Fellur sigrametið?
Það er heldur ekki eins og tapleysið
hafi verið eina metið í augsýn. Sókn
er besta vörnin, segir máltækið, og
Liverpool á góða möguleika á að slá
metið yfir flesta sigra á einu tímabil,
32. Þeim magnaða árangri hefur
Manchester City í tvígang náð í 38-
leikja deild, 2017-18 og 2018-19. Þeg-
ar tíu umferðir eru óleiknar er Liv-
erpool þegar komið með 26 sigra og
á því mjög góða möguleika á að slá
metið. Það yrði þá þriðja árið í röð
sem sigrametið yrði annaðhvort
slegið eða jafnað. Það segir okkur
margt um hæfni Jürgens Klopps og
Peps Guardiolas.
Til samanburðar má nefna að Ars-
enal vann (ekki nema) 26 leiki þegar
það fór taplaust gegnum mótið;
gerði tólf jafntefli. Liverpool er
komið með eitt jafntefli núna.
Stigametið í Englandi er ekki
nema tveggja ára gamalt en Man-
chester City rauf fyrst liða 100 stiga
múrinn veturinn 2017-18, fékk slétt
100 stig. Næstbesti árangurinn er 98
stig, City í fyrra, en sem frægt er
fékk Liverpool þá 97 stig – án þess
að verða meistari. Ég leyfi mér að
fullyrða að það muni aldrei gerast
aftur; alltént ekki meðan við sem er-
um komin á miðjan aldur lifum.
Liverpool er með 79 stig eftir 28
leiki. Það þýðir að 30 stig eru ennþá í
pottinum. Hæst getur Liverpool
sumsé farið í 109 stig. 22 stig þarf til
að slá metið. Það eru til dæmis sex
sigrar og fjögur jafntefli. Nú eða
bara átta sigrar. Vel viðráðanlegt í
ljósi þess hvernig þeir Kloppungar
hafa leikið í vetur.
Frá jafnteflinu gegn Manchester
United í haust og að tapinu gegn
Watford vann Liverpool átján deild-
arleiki í röð, sem er metjöfnun. Man-
chester City gerði það líka leiktíðina
2017-18.
Langt í markametið
Liverpool hefur enn tækifæri til að
slá metin yfir flesta sigra heima og
úti. Chelsea (2005-06), Manchester
United (2010-11) og Manchester
City (2011-12 og 2018-19) deila met-
inu yfir sigra á heimavelli, 18. Liver-
pool hefur unnið alla heimaleiki sína
til þessa í vetur og gæti orðið fyrsta
liðið í sögunni til að ljúka mótinu
með fullt hús þar. Liverpool er raun-
ar þegar búið að tryggja sér metið
yfir flesta heimasigra í röð í úrvals-
deildinni; þeir eru nú 21, að síðasta
tímabili meðtöldu, og eiga að
óbreyttu eftir að verða fleiri.
Manchester City (2017-18) situr
eitt að metinu yfir flesta sigra á
útivelli, 16. Til að slá það þarf
Liverpool að vinna alla fimm úti-
leiki sína sem eftir eru fram á vor.
Ólíklegt er að metið yfir flest
skoruð mörk á einum vetri sé í
hættu. Manchester City á það; kom
tuðrunni 106 sinnum í netið 2017-18.
Liverpool hefur gert 64 mörk núna
og þarf því að skora að meðaltali 4,2
mörk í leikjunum sem eftir eru til að
jafna það. Það verður strembið en
alls ekki útilokað. Liðið hefur gert
2,3 mörk að meðaltali í leikjum sín-
um til þessa.
Þrátt fyrir frábæran varnarleik á
Liverpool ekki lengur möguleika á
metinu yfir fæst mörk fengin á sig.
Það setti Chelsea leiktíðina 2004-05;
þegar liðið fékk aðeins á sig fimmtán
mörk. Liverpool hefur þegar fengið
á sig 20 mörk í vetur.
Metið yfir hagstæðasta marka-
muninn mun að öllum líkindum einn-
ig halda. Manchester City var með
hvorki fleiri né færri en 79 mörk í
plús eftir veturinn 2017-18. Marka-
tala Liverpool er í dag hagstæð sem
nemur 44 mörkum.
Spólað inn í
sögubækurnar
Enda þótt Liverpool hafi tapað sínum fyrsta leik í
úrvalsdeildinni í vetur á dögunum eru ennþá góð
tækifæri fyrir þá Kloppunga til að skrifa sig inn í
sögubækurnar, t.d. blasa sigra- og stigametið við.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Jordan Henderson, Georginio Wijnaldum, Mohamed Salah og Roberto Firmino fagna einu af mörgum mörkum Liver-
pool í vetur. Fyrirliðinn Henderson á nú við meiðsli að stríða og virðist það í fljótu bragði hafa veikt liðið um stund.
AFP
OPIÐ
11:30–22:00
ALLADAGA
KOMDU VIÐ
Í HVER
Við tökum vel á móti þér.
Girnilegur matseðill með
réttum úr fersku, úrvals
hráefni úr héraðinu.
BORÐAPANTANIR
483 4700 | www.hverrestaurant.is
Breiðumörk 1 C, 810 Hveragerði