Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Page 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2020 og bætir við að þeir hafi yfirleitt skemmt sér stórvel við gerð þáttanna, þótt stundum hafi það ekki verið auðvelt að vera með nýtt og ferskt efni í viku hverri. „Það var gaman og við vorum allir svo góðir vinir. Þetta var dásamlegt tímabil,“ segir hann. „Þetta áttu í upphafi að vera fjórir þættir en endaði í áratugum, í raun heilu ævistarfi. Við erum allir mjög ólíkir einstaklingar og bætum hver annan upp. Stjörnurnar voru okkur hlið- hollar þegar valdist í þennan hóp,“ segir hann og segir þá félaga enn hittast af og til. Pálmi segir að hann eigi í raun ekki sér uppá- halds karakter úr Spaugstofunni. „Ég lenti svolítið í því að herma eftir. Ekki vegna þess að ég hefði einhverja sérstaka hæfi- leika í það, en hinir gátu bara ekkert hermt eftir,“ segir Pálmi og hlær. „Mér fannst alltaf gaman að leika Steingrím Hermannsson, þann mikla höfðingja sem ég bar mikla virðingu fyrir,“ segir Pálmi og segir að langflestir alþingismenn og ráðherrar hafi kunnað vel að meta húmorinn. „Þó var einn sem var mjög ósáttur við mig. Hann reyndi að fá útvarpsstjóra til að taka þátt- inn af dagskrá. Við höfðum heilmikil áhrif og ef út í það er farið heilmikil völd. Þetta var ekki bara eitthvert sprell. Þetta var beitt gagnrýni og það kom fyrir að fólk hringdi í okkur til að klaga einhvern og reyna að fá okkur til að gera ákveðna hluti,“ segir Pálmi og ákveður að upp- lýsa ekki meir um það. „Í dag ætti að vera eitthvað sem væri ígildi Spaugstofunnar. Það vantar tilfinnanlega svona þátt; flestar þjóðir eru með svona þætti. Þetta er eins og hirðfíflin í gamla daga, í svona þætti má fólk segja sannleikann án þess að vera háls- höggvið.“ Hvort á betur við þig, drama eða gaman- leikur? „Mér finnst alltaf gaman að gera sitt lítið að hverju. Og vera í leikhúsi, kvikmyndum og sjón- varpi. Það kemur kannski einhverjum á óvart að í grunninn er ég dramatískur leikari og það hefur verið mitt hlutskipti hér í leikhúsinu. En það er gaman að leika gaman og drama jöfnum höndum.“ Smellpassar í hlutverkið Pálmi hefur leikið í á annað hundrað leikverkum á ferlinum. Það er því af nógu að taka þegar blaðamaður biður hann um að nefna það sem stendur upp úr; kannski allt of miklu! „Það er svolítið margt! Nú stendur það upp úr sem ég er að gera núna. En það er af ýmsu að taka, en eðli þessa starfs er þannig að leikari fær kannski aldrei hlutverk alla sína ævi sem gjörsamlega hentar honum. Kannski gerist það einu sinni eða tvisvar. 80-90% af starfi leikarans fara í að glíma við eitthvað sem hann á kannski ekkert auðvelt með. Þess vegna er mikilvægt að vel sé kastað í rullurnar.“ Manstu eftir svoleiðis hlutverki, sem passaði þér fullkomlega? „Já, mér finnst ég eiga heima í þessari Út- sendingu. Þessi saga og þessi texti höfðaði mjög til mín. Þessar ræður sem hann flytur hefði ég geta verið að flytja sjálfur; það er mikill munur ef maður getur talað frá hjartanu,“ segir hann. „Þetta hlutverk náði strax til mín þegar ég fór að lesa það. Ég man eftir myndinni á sínum tíma en það hafði nú fennt yfir það. Þegar ég las þetta fannst mér þetta hitta í mark. Svo er frá- bær hópur sem stendur að þessu og frábært að vinna með Góa. Hann er mikill listamaður og svo er hann bara svo góð manneskja og skemmtilegur, sem er nú það sem ég kann best að meta í fari fólks.“ Gagnrýnendur á Íslandi hafa verið að deila um hvort þessi saga eigi erindi í dag. Hvað finnst þér? „Ég næ ekki alltaf þessari leiklistarumfjöllun hér. Mér finnst þetta vera algjörlega „spot on“. Og þótt við séum í klæðaburði frá áttunda ára- tugnum er galið að vantreysta áhorfendum og halda að þeir geti ekki sett þetta í samhengi. Það er hægt að yfirfæra þessa hugmyndafræði yfir á samfélagsmiðlana í nútímanum og ef fólk getur það ekki hefur það ekki mikið hugmynda- flug. Mér hefur alltaf fundist þetta liggja lóð- beint við,“ segir Pálmi og bendir á að í dag stýri Trump öllum heiminum á twitter. „Þetta er svipað og þegar við setjum upp Shakespeare, Lé konung til dæmis. Þar má finna alla galla og breyskleika mannsins, dauða- syndir eins og hégóma og græðgi,“ segir Pálmi og segir þessi klassísku leikrit alltaf eiga vel við. „Það er oft sagt að tímarnir breytist og mennirnir með. Mér finnst það bara della. Tímarnir breytast en mennirnir ekki.“ Skjárinn ræður örlögum „Þannig að mér finnst Útsendingin kallast á við allt sem er að gerast í dag; alla þessa mötun og falsfréttir. Fólk er farið að láta samfélagsmiðla segja sér hvernig því eigi að líða og hvað það eigi að gera. Og þá er ég að vitna beint í minn mann,“ segir Pálmi. „Howard Beale er orðinn pínulítið tæpur en þá getur maður líka spurt; hver er tæpur, hann eða allir í kringum hann? Eða allur heimurinn? Áhorfið er farið niður á við og honum er sagt upp; hann missir konuna sína og er farinn að drekka. Hann hefur trúlega verið í áratugi að segja fréttir sem voru í raun lygar. Hann var alltaf að ljúga að fólki en svo byrjar hann að segja fólki hvað honum virkilega finnst. Þessar aðstæður knýja hann til þess,“ segir Pálmi og segir sjónvarpið mikið valdatæki. „Ef ég vitna í hann þá segir hann: „þessi skjár er í augum fólks boðberi heilags sannleika. Þessi skjár er hin æðsta opinberun. Þessi skjár getur ráðið örlögum forseta, páfa, forsætisráð- herra. Þessi skjár er mesta ægivald sem fyrir- finnst í öllum þessum guðlausa heimi. Og aum- ingja við ef yfirráðin yfir þessu tæki lenda þar sem síst skyldi,“ “segir hann og heimfærir þessa línur yfir á nútímann. „Við vitum alveg af hverju Trump var kosinn, við sjáum popúlista rísa upp víða um heim. Þetta er ákveðin heilaþvottur. Fólk er svo fljótt að trúa og auðvelt er að planta einhverju inn hjá fólki. Og það gera fjölmiðlar og það er það sem hann er að tala um. Skjáir í dag segja okkur hvernig við eigum að klæða okkur, borða, ala upp krakkana. Þessi nútímaveröld okkar bygg- ist á þessum stanslausa áróðri.“ Þyrmir yfir mann Hvernig horfir þú til framtíðar með heimsmálin, ertu pólitískur? „Já, ég er svolítið pólitískur. Stundum þyrmir yfir mann. Ég velti því fyrir mér, og kannski er mannkynið svo ungt, en við virðumst aldrei læra neitt. Það er svo magnað; endalaus stríð og þessi græðgi. Allir vilja skara eld að eigin köku. Það hrundi hér allt og allt fór til andskotans en það hefur enginn lært af því, það er allt í sama farinu aftur. Með sama fólkinu,“ segir Pálmi. „Sjáðu Evrópu, þar eru hægri fasistar að poppa upp og mikið hatur. Og svo stjórnar Trump heiminum! Hvernig gat það gerst að sá hálfviti yrði valdamesti maður heims? Þar held ég að miðlarnir og algóritmarnir hafi haft áhrif á fólk í gegnum samfélagsmiðla.“ Heimur versnandi fer? „Já, að mörgu leyti en margt er að mörgu leyti betra. En uppgangur fasismans hræðir mig. Pútín situr endalaust og í Bandaríkjunum eru skýr merki þess að Trump sé að stýra dóm- stólum. Svo verður hann endurkosinn,“ segir Pálmi og hristir hausinn. Honum er mikið niðri fyrir að Íslendingar skuli ekki vera komnir með nýja stjórnarskrá. „Þjóðin kaus þetta. Ég held að það gerist ekkert af viti fyrr en við fáum nýja stjórnarskrá þar sem kveðið er á um að auðlindir séu í þjóðareign. Og að peningamenn geti ekki spilað eins og þeim dettur í hug með allan almenning. Við erum rík þjóð, af hverju er hér fullt af fá- tæku fólki? Þessir ríku verða sífellt ríkari. Svo ríkir hér virkjanagræðgi,“ segir Pálmi og bætir við: „Rétt eins og í Útsendingu, þá snýst það ekki bara um hann, heldur eru aðrir á sjón- varpsstöðinni sem notfæra sér veikleika hans. Þar gildir það: við sýnum bara það sem selur. Það er bara þannig. Og þó að það séu mannlegir harmleikir, þá á að sýna það sem selur. Og það kemur siðferði ekkert við, heldur bara gróða. Þannig að þessi saga, Útsendingin, hefur aldrei átt betur við en núna, aldrei. Hún á miklu betur við heldur en 1976 og ætti að höfða til mjög margra.“ Hef varla sleppt hamrinum Hvað er framundan? „Ég vona að ég fari að komast í frí. Þessi vet- ur er búinn að vera dálítið meira en meðalvetur. Strax eftir frumsýningu á Útsendingunni tók- um við aftur upp sýningar á Einræðisherran- um, og í haust var ég í Ör og Meistaranum og Margarítu. Þannig að þeir eru teljandi á fingr- um annarrar handar frídagarnir sem ég hef fengið síðan í ágúst eða september. Ég held að ég sé búinn að skila mínu í vetur. Ég fer vestur um páska og í sumar. Annars fer ég kannski minna vestur núna þegar ég þarf að lappa upp á húsið á heiðinni. Mér líður oft best þegar ég er að dunda við eitthvert handverk. Það var ekki þannig áður fyrr; þegar ég hætti í smíðinni og fór í þetta ætlaði ég aldrei að taka á hamri aftur. En svo gerðist það nú tveimur áratugum síðar, og þá kannski af illri nauðsyn að ég tók aftur upp hamarinn og hef varla sleppt honum síðan. Mér finnst handverk svo göfugt.“ Hvað gerir þú til að slaka á? „Ég á nú ekkert sérstaklega bágt með að vera til. Að vísu þegar maður kemur úr svona mikilli vinnu; svona hörðum „Smugutúrum“, þá þarf maður að passa sig fyrstu vikurnar að fara ekki á taugum því það tekur tíma að ná sér niður. Sumir þurfa alltaf að vera að gera eitt- hvað en ég er ekki þannig. Ég er mikið í úti- veru, bæði í göngum og hjólreiðum. Mér leiðist aldrei, þó að ég sé ekki að gera neitt nema að slaka á.“ Pálmi fær glimrandi dóma fyrir leik sinn í Útsendingunni og finnst honum hlutverkið smellpassa sér. ’Mér finnst þetta vera algjörlega „spot on“. Og þótt við séumí klæðaburði frá áttunda áratugnum er galið að vantreystaáhorfendum og halda að þeir geti ekki sett þetta í samhengi. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.