Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 17
Núna væri hún í senn dygð og líftrygging, dagamunur
og drjúgt umræðuefni. Og þessi hópur á það inni að
hann sé ekki skilinn eftir í angist á berangri.
Uppnám og pat
er nú raunveruleikinn
Á svona tal má auðvitað blása með athugasemdum um
að þar sé verið að þrengja sér inn á svið sem aðrir séu
færari að véla um.
En það er nú vandinn að þótt allir reyni af fremsta
megni að fylgja bendingum vísindanna og yfirvalda á
hverju sviði, hvar sem festa má hendi á þeim, þá eru
skilaboðin þaðan óþægilega misvísandi, ekki síður en
hjá venjulegum kaffihúsaspekingum. Og á meðan ekki
er haldið nægilega fast um og eiginleg forysta veitt á
válegum tíma eykst óvissan.
Frægir menn og virtir, með alla pappíra stimplaða,
skrifa nú og því er slegið upp í fínustu fjölmiðlum
heims, að stærsti þáttur þess tjóns sem kórónuveiran
muni ná að valda, til viðbótar því manntjóni sem gisk-
að er á, stafi af uppnáminu og hóflausum og að mestu
óþörfum hræðsluviðbrögðum. En hlutabréf í helstu
kauphöllum eru ekki að hrynja af þessum ástæðum.
Það hrun er í rauninni ágætlega ígrundað mat.
Stærsta innanlandsflugfélag Stóra-Bretlands, sem
ríkið var nýbúið með mikilli innspýtingu að koma á
kopp á ný, kollsteyptist vegna kórónuveirunnar. Mörg
þúsund störf eru í uppnámi. Þegar Kína lokast að
mestu leyti rofna bönd framleiðslunnar um allan heim
þar sem lykileiningar, kannski smáar, vantar skyndi-
lega og það stöðvar hvert einasta færiband í öðrum
álfum. Ferðamannaiðnaðurinn? Þarf að ræða hann?
Það tekur tímann sinn að gangsetja hann. Hverjir eru
að panta sér far með skemmtiferðaskipum núna?
Gerist hratt
Einn maður í miðríkjum Ameríku greinist með kór-
ónuveiruna og sá hafði ekki komið langt að. Eftir svo
sem fjórtán daga frá því að hann er settur í einangrun,
án þess að hafa getað bent á nokkurn smitbera, eru
140 manneskjur á leið í greiningu og viku síðar 140
sinnum það.
Í fréttum hér var haft eftir yfirvöldum þegar verið
var að ferja Íslendinga heim í gegnum flughöfnina í
Verona að það væri ekki hættuspil því að flughöfnin
sjálf væri smitlaus (!) og flugvélin yrði „sótthreinsuð
eftir að heim væri komið“.
Það er auðvelt að hengja hatt sinn á slíka hluti, því
allur heimurinn er að þreifa sig áfram. En þetta hefur
þó verið sagt í bjartsýniskasti. Versta pest nútíðar,
Spænska veikin, barst út hingað þótt tengingar við
umheiminn væru fáar og afar fátíðar, miðað við það
sem síðar varð.
Fordæmið vonda
Það dóu margir á Spáni en það land var þó, þrátt fyrir
nafnið, hvorki upphaf né endir þeirrar pestar. Spán-
verjar kölluðu pestina frönsku veikina því þaðan kom
hún til þeirra. Uppflettiforritin segja byrjunina hafa
verið Kansas í Bandaríkjunum og hún hafi breiðst út á
herstöðvum fyrra stríðs með hermönnum sem þaðan
komu til Evrópu.
En vegna stríðsins var ritskoðun og pestin var þögg-
uð niður til að draga ekki niður móralinn í baráttunni.
En Spánn var hlutlaus og þar var veikin rædd op-
inskátt, ekki síst eftir að konungur landsins veiktist og
það situr að ósekju uppi með nafngiftina. Heimsstyrj-
öldin fyrri var mannskæðasta bál fram til þess tíma
(16 milljónir féllu) en hún var þó sem hátíð hjá
Spænsku veikinni (50 milljónir). Spænska veikin
breytti sér og stökkbreytt varð hún enn verri viður-
eignar og hún eins og heimsstyrjöldin lagðist ekki síst
á fólk í blóma lífsins. Sagt er að pest sem gekk nokkr-
um árum eða áratugum fyrr hefði reynst nægjanleg
trygging þeim sem fengu hana þá, sem viðspyrna
gegn Spænsku veikinni.
Frá leikmanni horft hlýtur þó niðurstaðan að vera
sú að gera verði allt sem í valdi okkar stendur til að
einangra veiruna frá okkur eða okkur frá henni. Ríkis-
stjórnin verður að sjást. Hún verður að taka foryst-
una, rétt eins og forseti og varaforseti Bandaríkjanna
hafa gert. Hinn almenni fróðleikur, sem ekki hefur
verið dreginn í efa, segir okkur að fái veiran ekki
framhaldslíf með því að berast frá manni til annars
þorni hún upp og verði úr sögunni. Okkur ber öllum
skylda til að gera allt til þess að beina henni úr núinu
og yfir í söguna. En það má engan tíma missa.
Og það má enginn skera sig úr leik
Síst þeir sem sýna eiga forystu.
Allra síst þeir.
Morgunblaðið/RAX
8.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17