Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Page 19
Hefur sjaldan keypt húsgögn Una Margrét Jónsdóttir, rithöfundur og dagskrárgerðarmaður á RÚV, býr ásamt eiginmanni sínum, Hólmsteini Eiði Hólmssteinssyni, við Ásvallagötu í Reykjavík. Á heimili þeirra er lítið verið að hrófla við hlutum og er nýtni í forgrunni. Una segir að hún sé alin upp af peningalitlum listamönnum og því hefur ákveðinn hugsunarháttur fylgt henni alla tíð. Marta María mm@mbl.is Ásvallagatan er fyrsta íbúðin sem UnaMargrét keypti en fram að þeim tímahafði hún búið í foreldrahúsum, leigt með vinkonu sinni og búið í París. Það var árið 1996 sem hún hnaut um íbúðina sem uppfyllti þau skilyrði sem hún var að leitast eftir. Á þess- um tíma var hún einhleyp og ólofuð. „Mig langaði til að vera í Vesturbænum, mið- bænum eða Þingholtunum eða í 101 eins og sagt er. Ég var alin upp í gamla Vesturbænum og vildi gjarnan vera nálægt foreldrum mínum. Ég er alin upp í gömlu húsi og vildi búa í gömlu húsi. Ég er hrædd við bruna þess vegna vildi ég steypt hús. Ég er svo eldhrædd að ég þori varla að kveikja á eldspýtu,“ segir Una Margrét. Þannig að þú hefur aldrei reykt? „Nei, það hef ég ekki gert. Við erum með lítið tóbakshorn í íbúðinni en það reykir enginn þar. Það var í rauninni ekki sett upp til þess að reykja í því heldur af því að við eignuðumst óvart ýmislegt sem tengdist reykingum: pípu og tóbaksdós föður Eiðs, eldspýtustokka frá ýms- um löndum og gamla pípuauglýsingu í ramma. Við settum þetta í tóbakshornið sem eins konar sýningargripi,“ segir hún en þótt öll tól og tæki séu til staðar til reykinga í tóbakshorninu þá er ekki reykt þar. „Það eru svo breyttir tímar og fólk fer að sjálfsdáðum út ef það þarf að reykja. Þetta er ekki eins og á uppvaxtarárunum mínum þegar allir reyktu alls staðar. Tvisvar á hverju ári fór ég í rútu á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Við vorum alltaf á sumrin á Akureyri hjá ömmu minni og afasystur sem bjuggu saman í íbúð. Stundum vorum við þar á jólunum líka. Í þess- um rútuferðum var reykt svo mikið að ég þurfti að kasta upp,“ segir Una Margrét og minnist þess að þegar hún var að fara í þessar fyrstu rútuferðir tók heilan dag að fara á milli Akur- eyrar og Reykjavíkur. Þegar kom að því að finna réttu íbúðina var Una Margrét með ákveðnar kröfur. Ein af þeim var að íbúðin væri á annarri hæð. „Þegar ég rakst á þessa íbúð, sem var af al- veg mátulegri stærð, þá var rétta íbúðin fundin. Þetta er skemmtileg íbúð en í þessum gömlu verkamannabústöðum við Ásvallagötu sem voru byggðir 1937 og teiknaðir af Gunnlaugi Hall- dórssyni arkitekt, eru mjög góðar íbúðir. Mér fannst þessi tilvalin. Hún kostaði 5,2 milljónir, en þetta var rétt áður en verð á íbúðum hækk- aði upp úr öllu valdi. Ég fékk aðstoð frá for- eldrum mínum þegar ég keypti íbúðina og mamma fékk lengi að nota bókaherbergið sem vinnuherbergið. Svo afhenti hún það okkur að lokum,“ segir Una Margrét. Fyrst til að byrja með bjó Una Margrét ein í íbúðinni en svo kom Hólmsteinn Eiður, eigin- maður, hennar til sögunnar, en hún kallar hann Eið. Þau Eiður gengu í hjónaband 1999. Að- spurð hvort smekkur þeirra hjóna sé svipaður kemur í ljós að þau eiga margt sameiginlegt annað en að finnast gömul húsgögn falleg. „Við höfum svipaðan smekk og erum bæði frekar gamaldags. Svo erum við bæði svolítið sérvitur. Þess vegna náðum við saman. Við er- um mikið fyrir bækur. Það er okkar besta skemmtun en eini gallinn er að bækur taka svo mikið pláss,“ segir hún. Kom Eiður ekki með nein húsgögn með sér þegar hann flutti inn? „Nei, hann flutti ekki inn með nein húsgögn og við höfum keypt afskaplega lítið. Borðstofu- borðið er frá ömmu minni og var áður í eigu langömmu minnar. Sófinn í stofunni kemur frá Bergljótu Haraldsdóttur sem starfaði með mér á þeim tíma sem ég keypti íbúðina. Sófinn kom frá bernskuheimili hennar, en enginn í hennar fjölskyldu gat nýtt sér hann. Það fyndnasta eru eiginlega bókahillurnar í stofunni. Þær voru áður í eigu Félags bifreiða- eigenda sem okkur finnst fyndið því við eigum ekki bíl. Maðurinn í fjölskyldunni minni sem út- vegaði okkur hillurnar hafði verið leigubílstjóri í mörg ár en hann reddaði okkur þeim. Ég er alin upp við nýtni því foreldrar mínir voru auralitlir listamenn. Af því að ég er mikið fyrir það gamla hefði ég viljað hafa upprunalegar innréttingar í eldhúsi. En innréttingarnar höfðu verið endur- nýjaðar áður en ég flutti inn. Þessi eldhúsinn- rétting sem við erum með er þægileg,“ segir hún. Þegar ég spyr Unu Margréti hvort hún hafi í hyggju að skipta eldhúsinnréttingunni út fyrir svarta innréttingu og mála veggina í gráum lit segir hún það ekki vera á stefnuskránni. Hún segist fagna fjölbreytni í litum og henni finnst of mikil einhæfni í þeim heimilum sem mest fá að sjást í blöðum og tímaritum, þar sem litirnir hvítt, grátt og svart eru algengastir, og míni- malismi ráðandi, en margir innanhúss- „Þrjár af þessum dúkkum og tveir bangsar eru frá því að ég var lítil, en hitt hef ég allt eignast eftir að við Eiður tókum saman. Það var alveg óvart, ég ætlaði ekki að fara að safna dúkkum og böngsum. En þegar ég sé dúkku eða bangsa sem mér finnst hafa persónuleika finnst mér stundum eins og þau horfi á mig og biðji mig að kaupa sig. Sumt hefur mér verið gefið. Og allt í einu var kominn þessi fjöldi. Þau hafa öll nöfn,“ segir hún. Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður á RÚV og rithöfundur býr ásamt eiginmanni sínum við Ásvallagötu í Reykjavík. Morgunblaði/Arnþór Birkisson 8.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19  AFSLÁTTUR 20% ALLAR DANSKAR VÖRUR* * Gildir ekki af sérpöntunum og einungis af völdum vörum frá Skovby.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.