Morgunblaðið - 14.04.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2020
Keflvíkingar skýrðu frá því um
páskana að enski körfuboltamaðurinn
Deane Williams myndi leika áfram
með þeim á næsta tímabili. Williams
er 23 ára gamall framherji og er frá
Bristol en lék með Augusta-háskóla í
Bandaríkjunum í fjögur ár áður en
hann kom til Íslands. Williams lék alla
leiki Keflavíkur í vetur og var að með-
altali með 15,6 stig og 9,9 fráköst í
leik. Hann tók næstflest fráköst allra
leikmanna deildarinnar og var fimmti
efstur að meðaltali.
Hvítrússneski fótboltinn hélt áfram
um páskana en það er eina deildin í
Evrópu sem er í gangi. Willum Þór
Willumsson var á varamannabekknum
allan tímann þegar BATE Borisov vann
Minsk 3:0 á útivelli. Þetta er fyrsti
leikurinn af fjórum á tímabilinu þar
sem Willum tekur ekki þátt en lið hans
hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur
til þessa og hann hefur skorað eitt
mark.
Spænska knattspyrnufélagið Real
Sociedad er hætt við að hefja æfingar
á ný í dag eins og til stóð. Út-
göngubanni verður að hluta til aflétt á
Spáni í dag og Real ætlaði að fara
strax af stað en dró í land eftir að
ákvörðunin reitti marga stuðnings-
menn liðsins til reiði.
Kenny Dalglish, einn þekktasti leik-
maður Liverpool og síðar knatt-
spyrnustjóri félagsins, er kominn heim
af sjúkrahúsi. Þangað fór hann vegna
nýrnasteina en greindist þá með kór-
ónuveiruna. Hún lagðist ekki þungt á
hann og Dalglish hefur skýrt frá því að
hann sé við ágæta heilsu.
Toshiro Muto, forseti fram-
kvæmdastjórnar Ólympíuleikanna í
Tókýó, sagði við fréttamenn um
páskana að hann væri ekki lengur viss
um að leikarnir gætu farið fram sum-
arið 2021, enda þótt þeim hefði þegar
verið frestað um eitt ár. „Ég held að
enginn geti fullyrt hvort búið verði að
ná stjórn á veirunni í júlí á næsta ári.
Það eina sem við getum gert er að
vinna hart að undirbúningi fyrir leik-
ana,“ sagði Muto.
Markvörðurinn Peter Bonetti,
næstleikjahæsti leikmaðurinn í sögu
enska knattspyrnufélagsins Chelsea,
lést á páskadag, 78 ára að aldri, eftir
langvarandi veikindi. Bonetti, sem
gekk undir viðurnefninu Kötturinn
vegna snerpu sinnar, lék 729 leiki í
marki Chelsea á árunum 1960 til 1979.
Hann var lengi í landsliðshópi Eng-
lands, m.a. þegar Englendingar urðu
heimsmeistarar árið 1966, en lék þó
aðeins sjö landsleiki. Bonetti starfaði
lengi sem markvarðaþjálfari, m.a. hjá
Chelsea, Newcastle, Fulham, Man-
chester City og enska landsliðinu.
Frjálsíþróttamaðurinn Jóhann
Björn Sigurbjörnsson frá
Sauðárkróki og landsliðs-
maður úr UMSS, skýrði
frá því í Feyki um
páskana að hann hefði
greinst með eitla-
krabbamein og yrði
því ekki með á
komandi keppn-
istímabili. Jóhann, sem er
25 ára spretthlaupari,
hefur verið í fremstu röð
hér á landi í 100 og 200
m hlaupum undanfarin ár
og keppti fyrir Íslands hönd
á Smáþjóðaleikunum og í
Evrópubikarnum á síðasta
ári.
Eitt
ogannað
DANMÖRK
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Landsliðskonan Rut Jónsdóttir upp-
lifir skringilega tíma eins og flestallt
íþróttafólk á þessum tímum. Á síð-
asta ári varð hún danskur meistari,
fyrst íslenskra handboltakvenna,
með Esbjerg eftir æsispennandi úr-
slitarimmu. Í ár varð hún aftur
meistari, annað árið í röð, en þó
verður ekki annað sagt en að fagn-
aðarlætin og gleðin hafi verið heldur
endasleppt miðað við í fyrra.
„Þetta er auðvitað ótrúlega skrít-
ið og allt öðruvísi en í fyrra. Það var
svo mikil stemning í kringum úr-
slitaleikinn, þetta er ekki alveg það
sama,“ sagði Rut í samtali við Morg-
unblaðið um páskana. Keppni í Dan-
mörku var aflýst vegna kórónuveir-
unnar, eins og víða í Evrópu, og lið
Esbjerg úrskurðað meistari þar sem
það sat í efsta sæti þegar keppni var
hætt, með fjögurra stiga forskot á
Odense þegar þremur umferðum
var ólokið.
Óvissa hvort verði spilað
Eftir að hafa glímt við meiðsli fyr-
ir áramót var Rut búin að spila vel
undanfarið og því full tilhlökkunar
fyrir toppbaráttuna, sem og átta liða
úrslitin í Meistaradeild Evrópu en
nú er alls óvíst hvort og hvenær þeir
leikir fara fram. Þar á Esbjerg að
mæta Buducnost frá Svartfjalla-
landi og sem stendur eiga þeir að
vera leiknir 17. og 20. júní, sam-
kvæmt núgildandi dagskrá.
„Þetta var svo ótrúlega skemmti-
legt í fyrra, að fagna deildarsigr-
inum. Okkur hefur svo gengið rosa-
lega vel í deildinni í ár og það hefði
verið frábært að enda þetta eins. Við
eigum svo eftir átta liða úrslitin í
Meistaradeildinni og við erum enn
þá að bíða eftir upplýsingum um
hvort við séum að fara spila þar eða
hvort við förum beint í undanúrslit,
þar sem við erum í öðru sæti í riðl-
inum. Þessir leikir áttu að fara fram
í síðustu viku og nú er búið að færa
undanúrslitin fram í september. Því
miður er þetta svona. Það er auðvit-
að margt annað sem er mikilvægara
en handbolti akkúrat núna.“
Ekki útilokað að koma heim
Samningur Rutar við Esbjerg
gildir til 30. júní og þá er kærasti
hennar, Ólafur Gústafsson, á förum
frá Kolding í sumar. Þau ætluðu því
ekki að vera um kyrrt en Rut segir
enga ákvörðun tekna um framtíðina
á meðan þetta óvissuástand ríki.
„Nei, við ætluðum ekki að vera
áfram. En eins og staðan er núna, þá
er búið að setja allt á smá pásu. Við
erum að skoða okkar möguleika og
ég get í rauninni lítið sagt. Við vor-
um búin að skoða það að koma heim,
það er alls ekki útilokað. En við ætl-
um aðeins að meta stöðuna og bíðum
átekta á meðan ástandið er svona.
Við erum í rauninni opin fyrir öllu.“
Ýmislegt þarf að ganga upp
Það væri henni til sárrar hryggð-
ar að missa af tækifærinu að spila í
undanúrslitum Meistaradeild-
arinnar, eitthvað sem Rut á enn eft-
ir þó að hún hafi upplifað margt á
sínum handboltaferli. „Þetta er al-
veg mjög leiðinlegt en svona er
þetta. Ég mun reyna að gera það
besta í stöðunni; það væri alveg æð-
islegt að geta spilað í Meistaradeild-
inni en ég veit ekki hvort það er
möguleiki. Við erum tvö hérna í
handbolta, bæði ég og kærasti minn,
og það er ýmislegt sem þarf að
ganga upp,“ sagði Rut sem hefur
leikið í Danmörku í tólf ár, eða frá 18
ára aldri. Fyrst með Tvis Holstebro
í sex ár, síðan með Randers og Midt-
jylland áður en hún gekk til liðs við
Esbjerg árið 2017. Hún lék þó ekk-
ert með liðinu tímabilið 2017-18 en
þá eignuðust þau Ólafur soninn
Gústaf Bjarka.
Hvort sem draumurinn um und-
anúrslitin getur orðið að veruleika
eða ekki, er Rut stolt af því að hafa
fengið að vera hluti af þessu liði
Esbjerg undanfarin tvö ár.
„Þó að ég sé búin að upplifa margt
á mínum ferli þá væri það algjör
draumur að fá að upplifa undan-
úrslit í Meistaradeild. Maður er bú-
inn að vera hluti af þessu og þetta er
auðvitað svekkjandi, en ég er ótrú-
lega stolt af liðinu og það er búið að
vera gaman að vera hluti af þessu.“
Undanúrslit í Meistara-
deild væru algjör draumur
Rut aftur danskur meistari með Esbjerg en núna á öðruvísi hátt en í fyrra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Rut Jónsdóttir er með leikjahæstu leikmönnum íslenska landsliðsins sem á eftir að spila fjóra leiki í und-
ankeppni EM og átti að mæta Tyrkjum í lok mars. Rut hefur leikið 94 landsleiki og skorað í þeim 191 mark.
Bandaríski kylfingurinn Doug
Sanders, sem er frægastur fyrir að
hafa klúðrað dauðafæri til að vinna
Jack Nicklaus og þar með breska
mótið The Open árið 1970, er lát-
inn, 86 ára að aldri.
Sanders vann 20 PGA-mót á ferl-
inum en náði aldrei að sigra á stór-
móti þar sem hann endaði fjórum
sinnum í öðru sæti. Aldrei var hann
eins nálægt sigri og á ofangreindu
móti á St. Andrews þar sem hann
þurfti aðeins að setja niður þriggja
feta pútt til að vinna hinn fræga
Nicklaus.
Doug Sanders
er fallinn frá
AFP
Kylfingur Doug Sanders vann 20
PGA-mót á ferlinum.
Enska knattspyrnufélagið Totten-
ham hefur hætt við að þiggja rík-
isaðstoð til þess að greiða 80%
launa almennra starfsmanna fé-
lagsins. Félagið var harðlega gagn-
rýnt fyrir að ætla að nýta sér að-
stoð breskra stjórnvalda, sem bjóða
fyrirtækjum neyðaraðstoð vegna
kórónuveirunnar. Fetar Tottenham
með þessu í fótspor Liverpool, sem
einnig ætlaði að nýta sér ríkisað-
stoð, en hætti snarlega við eftir
harða gagnrýni. Félög eins og
Newcastle og Bournemouoth ætla
að nýta sér aðstoðina.
Tottenham fetaði í
fótspor Liverpool
AFP
Stjórnarformaður Daniel Levy
ræður ríkjum hjá Tottenham.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hugmyndin um að ljúka keppn-
istímabilinu í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu á einum og sama
staðnum, án áhorfenda en beint í
sjónvarpi, virðist vera að fá aukið
fylgi meðal félaganna í deildinni.
Í gær kom fram í enskum fjöl-
miðlum að úrvalsdeildinni stæði til
boða báðir þeir leikvangar sem eru
í umsjón enska knattspyrnu-
sambandsins, Wembley í London og
St. George’s Park í Burton, ef for-
ráðamenn deildarinnar vildu nýta
þá til að ljúka keppni.
St. George’s Park þykir henta
sérstaklega vel fyrir slíkt fyrir-
komulag. Það er æfingamiðstöð
ensku landsliðanna, ný og glæsileg
aðstaða sem var tekin í notkun árið
2012 en þar geta öll 28 landslið
Englands í öllum aldursflokkum
æft og dvalið á sama tíma. Þar lék
t.d. U21 árs landslið Íslands í karla-
flokki vináttulandsleik gegn Eng-
lendingum í júnímánuði sumarið
2017.
Þar er mögulegt að spila marga
leiki á sama degi og til staðar er
fullkomin gistiaðstaða fyrir leik-
menn, dómara og aðra sem tengjast
mótshaldinu og ferðalögum í kring-
um keppnina væri því haldið í al-
gjöru lágmarki.
Níu umferðum er ólokið í
úrvalsdeildinni og mögulegt væri
að ljúka keppni á um það bil fimm
vikum með því að spila þétt. Talað
er um þetta sem „Fótboltahátíð“.
Reiknað er með að þetta gæti
skýrst betur á fundi félaganna
næsta föstudag en allar ráðagerð-
irnar standa þó og falla með fram-
gangi kórónuveirunnar sem hefur
leikið Breta sérstaklega grátt á
undanförnum vikum.
Mótinu lokið í æfingamiðstöð ensku landsliðanna?