Morgunblaðið - 14.04.2020, Page 28

Morgunblaðið - 14.04.2020, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2020 FÁST Í BYGGINGA- VÖRUVERSLUNUM Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is Bestu undirstöðurnar fyrir SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA DVERGARNIR R NAGGUR H: 120 cm PURKUR H: 60 cm TEITUR H: 80 cm ÁLFUR H: 30 cm Frábær hönnun, styrkur og léttleiki tryggja betri undirstöðu og festu í jarðvegi. Skoðið nýju heimas íðuna islands hus.is Farsælt líf fyrir ungt fólk Heillaspor fjallar um gildin sem leggja grunn að farsælu lífi fyrir ungt fólk og fjölskyldur þess. Gleði, þakklæti, vinátta, hugrekki, sam- líðun, fyrirgefn- ing, virðing og náttúruást koma við sögu. Texti, myndir og hugarljós eiga að hjálpa lesand- anum að finna svörin til að stíga heillaspor í lífinu. Hugarljós sem birt eru í bókinni eru stuttar nútvit- undaræfingar til að lifa sig betur inn í hugtökin. Eitt af markmiðum bók- arinnar er að hún skapi samræður og samtal milli kynslóða um lífs- gildin. Börn og unglingar hugsa um til- finningar sínar og taka þátt í að rækta þær ásamt nánustu aðstand- endum og vinum. Smátt og smátt læra þau að tala um þær, styrkja mannkosti sína og setja sig í spor annarra. Það mun reynast þeim gæfuspor á lífsleiðinni. Gildin sem fjallað er um eru mannleg verðmæti, þau eru tilfinn- ingar, dyggðir og afstaða til hlut- anna. Til að stíga heillaspor í lífinu þarf að læra gildin sem samfélagið vill hafa í heiðri. Þá opnast vegir til framtíðar. Það er rétt að spyrja eins og barn: „Hvað er …? Hvað er ljós? Hvað er gott? Hvað er vinátta?“ „Hvað er …?“ spyr heimspekin ævinlega eins og barn. Hugarljós Við lærum dyggðir, tilfinningar og viðhorf með margvísum hætti. Í bókinni geta lesendur lifað sig inn í hugtökin með gjörhygli. Hér er dæmi: Lokaðu augunum og beindu at- hyglinni að önduninni. Hugsaðu: Er einhver manneskja í lífi mínu sem er mér góð en ég tek sjaldan eftir? Gefðu huganum tíma til að reika og finna nafn. Getur þú ákveðið að sýna henni meiri virðingu? Hvað getur þú gert? Andaðu rólega og leyfðu svarinu að birtast af sjálfu sér. Skrifaðu þessari manneskju svo bréf eða teiknaðu mynd. Um gleði og þakklæti Gleðin kemur við sögu í bókinni. Gleðin byrjar að innan, þrýstir sér út um líkamann og streymir til ann- arra. Börn þurfa ekki að læra að gleðjast, það er þeim eðlilegt. Gleði barnsins er ómenguð og leggur all- an líkamann undir sig. Hún gerir limina létta. Þakklæti er óviðjafnanlegt í alla staði. Þakklæti eflir sambandið á milli fólks. Þakklæti hefur töframátt því það hefur áhrif á þá sem þiggja það, eins og þeir breytist um stund og verði mildari. Þakklæti er heið- arleg tilfinning sem kallar á sam- líðun með öðrum. Vinátta Vinátta er opinn faðmur. Vinir og vinkonur eru ekki aðeins félagar heldur kærir félagar. Fátt er betra en góður vinur og vinkona. Fólk segir gjarnan að einhver sé besti vinur eða besta vinkona þess. Það þýðir að vera trúnaðarvinur – að hægt sé að trúa einhverjum fyrir andlegu lífi sínu og treysta á að það spyrjist ekki út. Vinum líður vel saman, sam- bandið milli þeirra vekur ekki kvíða, ekki óöryggi. Vinir geta hugsað og talað um hvað sem er, þeir geta opn- að hjarta sitt og eru ófeimnir að segja frá efa sínum, ótta, veikleikum og draumum. Þeim finnst gefandi að vera saman, jafnvel að þegja saman getur verið gott. Enginn verður hamingjusamur með því að hugsa einungis um sjálf- an sig – heldur með því að gefa af sér, gefa öðrum og sýna þeim góð- vild. Það er leyndardómurinn. Góðvild sem heillaspor Einn góðan veðurdag fyrir langa löngu birtist góðvildin og breytti hjartalagi fólks. Hún birtist sem löngun til að hjálpa ókunnugum. Engum bar skylda til að hjálpa og enginn bjóst við því en einn hópur fólks fyndi til með öðrum hóp sem átti bágt. Þau settu sig í spor þeirra, ímynduðu sér hvernig þeim liði og spurðu sig: „Hvað get ég gert til að þeim líði betur?“ Þau ákváðu að rétta hjálparhönd. Þessi hugsun, löngun. Allir sem vilja kynnast góðvild, finna hana í brjóstinu, rækta hana og æfa með öðrum og launin eru auðnuspor. Góðvild hefur svo góð áhrif að sumir efast um að hún sé raunveru- leg. Hún gengur undir mörgum nöfnum og er nefnd í ýmiskonar spekibókum og trúarritum í gegnum aldirnar. Það virðist þó ekki nægja því of fáir treysta á safaríkan kraft hennar. Góðvild hefur oft verið útilokuð og flokkuð með draumórum. Það hefur verið hlegið að henni og jafn- vel er óhætt að segja að hún hafi átt undir högg að sækja og orðið fyrir aðkasti. Fyrr á öldum var því jafn- vel haldið fram að góðvild væri að- eins fyrir konur en ekki karla, stelp- ur en ekki stráka. Mannkynið hefur því efast um og hunsað einn sinn allra besta kost, þann sem gerir fólk gott. Hvað er heiðarleiki? Heiðarleiki er mannkostur sem er mikils metinn. Allir vilja vera heiðarlegir. Flestallir vilja að minnsta kosti að aðrir haldi að þeir séu heiðarlegir. Stundum þarf hug- rekki til að vera heiðarlegur. Hvað er heiðarleiki og hvað ekki? Svindl, lygi, blekkingar, svik og prettir og að leika tveimur skjöldum er ekki heiðarleiki eða að segja hálf- an sannleikann. Það er ágætt að gera sér fyrst grein fyrir andstæð- unni sem nefnist einfaldlega óheið- arleiki. Heiðarleiki er eins og heiðskír himinn, fagurblár og á festingunni skín sól. Óheiðarleikinn er vafinn skýjum og enginn veit hvað er á bak við þau eða hvað felur sig í þeim. Heiðarleiki er fallegur kostur og segja má að fólk sé heiðarlegt frá blautu barnsbeini en þegar það líður á þroskann og samskipti við aðra verða flóknari, þá glatast þetta skín- andi grandaleysi. Fólk þarf því að læra upp á nýtt að vera heiðarlegt. Heiðarleiki er dyggð og dyggðir eru lærdómur og nám. Fyrsta skref- ið felst ætíð í því að vera trúr sjálf- um sér, öðlast sjálfstraust og styrk til að vera maður sjálfur. Hver vil ég vera? Hvernig vil ég vera? Við verð- um það sem við gerum og hugsum. Náttúruást Í bókinni er lagt upp úr ást til barnsins og ást til náttúrunnar. Allt tengist saman í einni jörð, undir ein- um himni, á einni tímarás, í einu lífi. Öll náttúra á hnettinum þarf á kær- leika og virðingu að halda til að lifa og dafna. Við getum elskað hvert annað og við getum elskað dýrin og aðrir geta elskað okkur á móti eða að minnsta kosti sýnt okkur væntumþykju. En getum við elskað náttúruna? Fjölbreytilegt og óvænt Lífið er svo fjölbreytilegt og óvænt að jafnvel sá og sú sem er hæfilega kærulaus lendir í miklum ævintýrum. Það er þó gott að velja sér áfangastað áður en lagt er af stað og það er líka gott að æfa dyggðirnar og rækta tilfinningar sínar. Það er gott að vita hvert ferðinni er heitið og mikilvægt að taka þátt í því að velja stefnuna, jafnvel þótt síðar sé skipt um skoðun og stefnu. Siðfræði bókarinnar snýst um að gera gott fólk úr börnum með dyggðum sem það tekur sjálft þátt í að velja. Sálfræði bókarinnar er um að hægt sé að sigrast á vanlíðan og breyta slæmri hegðun með því að efla styrkleika sína og læra að þykja vænt um sjálfan sig. Umræðuefni Hvað er virðing? Hún felur í sér væntumþykju gagnvart öðrum. Virðing er að meta aðra til jafns við sig sjálfan, hlusta á þá og vilja koma fram af vinsemd gagnvart öðrum. Hvað er virðing að þínu mati? Hvað er þakklæti? Að gefa og þiggja og sýna gleði yfir hvoru tveggja. Þakklæti er tilfinning um lánsemi í lífinu og vitneskja um hlut- deild annarra í henni. Hvað þakkar þú fyrir? Betri vinur? Einstaklingar kynn- ast og þeim líkar vel hver við annan. Það myndast vinaband og allir sem vilja halda í vini sína þurfa að deila með þeim hugsunum sínum og áhugamálum. Hvað getur þú gert til að vera betri vinur? Bókarkafli | Markmið bókarinnar Heillaspor – gildin okkar, eftir Gunn- ar Hersveinn rithöfund og hönnuðina Helgu Björgu Kjerúlf og Heru Guðmundsdóttur, er að vera hvatning og tæki fyrir ungt fólk og að- standendur þess til að hugsa og ræða um eig- inleika sína, dyggðir og tilfinningar og taka þátt í öflugu samfélagi. Af ást til barnsins Gleði Úr bókinni Heillaspor - gildin okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.