Morgunblaðið - 14.04.2020, Síða 32
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bolir með slagorðunum „Ég hlýði
Víði“ og „Verum öll Almannavarnir
– veiruna burt!“, þar sem vakin er
athygli á „Alma“ í öðrum lit, hafa
selst vel, en allur ágóði rennur til
Vonar, félags sem starfsmenn gjör-
gæsludeildar stofnuðu á sínum
tíma til
styrktar
skjólstæð-
ingum gjör-
gæsludeildar
Landspít-
alans.
Maðurinn á
bak við fyrra
slagorðið er
Birgir Óm-
arsson, eða Biggi Ómars, eins og
hann er kallaður, grafískur hönn-
uður og hugmyndasmiður. Í seinna
slagorðinu hafði hann auglýsingu
Landlæknis, „Við erum öll al-
mannavarnir“ til hliðsjónar, dró
orðið Alma út og bjó til lógó. Hann
rekur Auglýsingastofuna Kaktus
og segir að í samdrættinum í kjöl-
far samgöngubannsins hafi hann
leitt hugann að máli málanna. „Eft-
ir því sem vinnan dróst saman
hafði ég meiri tíma til að velta
þessu fyrir mér,“ segir hann um
þróun fyrrnefndu slagorðanna.
Byrjaði sem stríðni
Þríeykið er á allra vörum. Birgir
segist hafa unnið fyrir Víði Reynis-
son yfirlögregluþjón og þekkja
hann ágætlega. Slagorðið hafi byrj-
að sem stríðni. „Hann er frekar
hógvær og vill ekki troða sér fram
þannig að mér fannst þetta eiga
vel við!“ Eftir að hafa sett slag-
orðið „Ég hlýði Víði“ á vefinn hjá
sér hafi viðbrögðin ekki látið á sér
standa. Hann hafi þá útfært hug-
myndina enn frekar og sett á
Facebook-síðu sína. „Myndirnar
dreifðust um allt rétt eins og kór-
ónuveiran,“ segir hann. Félagi sinn
hafi stungið upp á að sniðugt gæti
verið að láta útbúa boli með áletr-
uninni og fyrirtækið Margt smátt
hafi tekið verkið að sér. „Ég hef
nokkrum sinnum unnið fyrir
styrktarfélagið Von og þar sem
þetta er framlínufólkið okkar –
þeir sem fara verst út úr sjúk-
dómnum lenda hjá því á gjörgæslu
– fannst mér gott að geta látið gott
af mér leiða með því að styrkja
það.“
Birgir hefur lengi starfað í
skátunum og björgunar-
sveitum. „Ég var góður að
teikna og skrautritaði mikið
fyrir skátana,“ segir
hann spurður um
hvers vegna grafísk
hönnun hafi orðið
fyrir valinu, en
hann hefur unnið
við það síðan hann lærði
og lauk prófi í Bandaríkjunum
fyrir margt löngu. „Ég ákvað
snemma að vinna við áhugamálið
mitt,“ segir hann.
Þekktasta slagorð Birgis þar til
„Ég hlýði Víði“ kom til sögunnar
er „Ekki gera ekki neitt“. Hann
gerði það fyrir Intrum, nú Motus,
og segir að mönnum hafi ekki litist
á það í fyrstu en það hafi slegið í
gegn. „Sama gerðist í Færeyjum,“
segir hann og vísar til þess að slag-
orðið hafi verið þýtt á færeysku,
„Ikki gera ikki nakað“, heimamenn
hafi ekki haft trú á því í fyrstu en
það hafi engu að síður náð vinsæld-
um og verið mikið notað.
Birgir hefur unnið mikið fyrir
Landsbjörg í ýmsum fjáröflunar-
verkefnum. „Ég þekki vel til þeirra
mála og hef sterkar taugar til
björgunarsveitanna eins og skát-
anna.“
Bolir með áletruninni „Verum öll
ALMAnnavarnir – veiruna burt!“
fóru í sölu fyrir viku, en Þór-
ólfur hefur vafist fyrir
Birgi. „Ég hef lagt höf-
uðið í bleyti og til þessa
er „Það verður gaman í
folfi með Þórólfi“ og „Ég
hlakka til að taka
Þórólf með í frisbí-
golf“ það eina sem
mér hefur dottið í
hug,“ segir hug-
myndasmiðurinn,
sem er í forsvari
fyrir frisbígolf hér-
lendis og leikur líka
golf. Auðveldara hafi verið að eiga
við Harald Briem sem sóttvarna-
lækni. „Þá varð til „Haraldur far-
aldur“ en við sjáum til með Þór-
ólf.“
Slagorðin slá í gegn
Samheldni Birgir Ómarsson í bol með áletruninni sem beint er til allra.
Bolir með slagorðum tengdum þríeykinu seldir til styrktar Von,
styrktarfélagi gjörgæslu Landspítalans Hugmyndasmiðurinn alsæll
Frisbí Birgir Ómarsson tengir Þór-
ólf sóttvarnalækni við íþróttina.
PURUSNAKK
Lág
kolvetna
Þar sem gestir geta ekki heimsótt Ljósmyndasafn
Reykjavíkur þessar vikurnar hafa stjórnendur safnsins
ákveðið að færa hluta safnkostsins út í hverfi borg-
arinnar. Sýningin „Mynd um hverfi“ birtist nú borgar-
búum á strætisvagnaskýlum og kynningarstöndum
víða um borgina. Á hverju skilti er að finna myndir úr
viðkomandi hverfi allt frá upphafsárum þess til dagsins
í dag, en hvert hverfi á sína sögu, kennileiti og sérstöðu
sem móta hverfisandann og líf íbúa. Fyrstu myndaskilt-
in voru sett upp um helgina og sjást fleiri á næstunni.
Ljósmyndasafnið sýnir myndir
úr hverfunum á strætóskýlum
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 105. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Knattspyrnumaðurinn Aron Bjarnason sem leikur með
ungverska liðinu Újpest æfir um þessar mundir úti í
garði ásamt nokkrum liðsfélögum. Hann er að ljúka
fyrsta tímabilinu eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára
samning síðasta sumar en er óviss um hvernig fram-
haldið verði hjá sér og viðurkennir að hann hafi verið
farinn að líta í kringum sig, áður en kringumstæðurnar
í heimsfótboltanum breyttust verulega. » 26
Æfir úti í garði í Ungverjalandi
ásamt nokkrum liðsfélögum
ÍÞRÓTTIR MENNING