Austri - 21.06.1990, Qupperneq 1
NYTT „ Ekta pizza
að ítölskum hætti.
SKÁLAPIZZA
bökuð á staðnum.
Neytið á staðnum
eða takið með heim.
SÖluskálÍ KHB Egilsstöðum
17. júní á Seyðisfirði
Pað er að verða hefð á Seyðisfirði, að hleypa af
einu púðurskoti úr þessari gömlu fallbyssu frá 1852
17. júní. Hér ríður skotið af með feiknalegum hvelli
og jörðin nötrar í kring. Það er Jóhann Sveinbjörns-
son, bæjargjaldkeri og fallbyssuskytta, sem hleypt
hefur af byssunni, þar sem hún stendur framan við
bæjarskrifstofurnar, en myndirnar tók Albert Geirs-
son við upphaf hátíðarhaldanna þann 17. júní sl.
Að sögn Jóhanns er notað svart fljótbrennandi
púður í byssuna og hampur og blöð í forhlaðið, sem
þeytist úr byssunni við skotið.
Á minni myndinni hér til hliðar eru Jóhann og
Sófus, sonur hans, að hlaða byssuna og gera hana
klára fyrir skotið.
Næg atvinna á Breiðdalsvík
Næg atvinna hefur verið að
undanförnu í Hraðfrystihúsi
Breiðdælinga á Breiðdalsvík að
sögn verkstjóra, er Austri hafði
samband við.
Togarinn Hafnarey, sem gerður
er út frá Breiðdalsvík, landaði þar
6. júní sl. rúmlega 83 tonnum af
fiski. Þar af voru um 36 tonn
þorskur, en afgangurinn aðallega
ufsi og ýsa. Kláraðist að vinna
þann afla síðastliðinn föstudag, en
togarinn var væntanlegur inn til
löndunar aftur sl. mánudag. Um
30 manns vinna nú hjá hraðfrysti-
húsinu og er hluti af því skólafólk.
Hefur skólafólk þar allt getað
fengið vinnu. Byrjað er að vinna
kl. 6 á morgnana, þegar mikill
fiskur er, en helst ekki unnið
lengur en til kl. 17 á daginn.
Útlit er fyrir að næg atvinna
verði í fiskvinnslunni á Breiðdals-
vík í sumar að sögn verkstjóra við
frystihúsið. Afli trillubáta hefur þó
verið heldur tregur það sem af er,
en einn línubátur og tveir hand-
færabátar hafa lagt upp afla hjá
hraðfrystihúsinu að undanförnu.
Annars eru ýmsir trillukarlar ekki
byrjaðir veiðar ennþá.
Andeyjan hinn togari þeirra
Breiðdælinga landaði sl. þriðjudag
1970 kössum af flökum, og var það
mest ufsi, en aflinn er flakaður um
borð. Er aflinn síðan sendur beint
til útlanda í gámum.
G.I.
írsk skúta á
Seyðisfirði
Þessi gamla skúta með rauðbrúnum seglum
kom til Seyðisfjarðar nýlega og var þar m.a. 17.
júní, þegar þessi mynd var tekin. Á skútunní eru
írar, sem komu til Seyðisfjarðar á leið sinni til
Jan Mayen og þaðan til Murmansk á Colaskaga.
Skútan er byggð árið 1909, en mun hafa verið
endurbyggð að hluta. Hafa skipverjar verið að
bíða eftir góðu veðri, áður en þeir halda ferðinni
áfram til Jan Mayen. Þeir sigldu skammt frá landi
og svöruðu fallbyssuskoti Seyðfirðinga 17. júní
með heiðursskoti úr stórum veiðiriffli, sem þeir
hafa meðferðis til öryggis, ef þeir skyldu mæta
ísbirni á leið sínni í norðurhöfum. Austram./Aibert.
Flj ótsdalsvirkj un:
Vegagerð fyrir 40
milljónir í sumar
Ákveðið hefur verið að hefja
undirbúningsframkvæmdir vegna
Fljótsdalsvirkjunar í byrjun júlí,
eftir heimildum sem blaðið hefur
frá Landsvirkjun. Þetta kom m.a.
fram á fundi Halldórs Ásgríms-
sonar og Jóns Kristjánssonar í
Végarði í Fljótsdal síðastliðinn
fimmtudag þar sem þessi mál
voru til umræðu.
Þessar framkvæmdir eru þrí-
þættar, vegagerð, rannsóknir og
aðrar undirbúningsframkvæmdir.
Vegagerð á vinnusvæði
Áformað er að byggja upp
hluta varanlegs vegar frá Grenis-
öldu að Eyjabakkastíflu. í sumar
er ráðgert að byggja upp 13 kíló-
metra vegarins að Axará. Jafn-
framt er áformað að byggja upp
vinnuvegi frá Eyjabakkabraut að
gangamunnunum við Axará og á
Teigsbjargi samtals um 12 km.
Loks verður byggður varan-
legur vegur að gangamunna
aðkomuganga niður í Fljótsdal og
er sá vegur 1 km.
Stefnt er að því að bjóða þessar
framkvæmdir út í byrjun júlí og
er áætlaður kostnaður vegna vega-
gerðarinnar á árinu um 40 mill-
jónir króna.
Rannsóknir
Unnið verður við kjarnabor-
anir á gangaleiðinni og boraðar
8 holur og samtals boraðir um
1200 metrar. Unnið verður jafn-
óðum að rannsóknum og
prófunum á staðnum. Ennfremur
verður unnið að rannsóknum við
Eyjabakka þ.e. með borunum og
prufuholum á stíflusvæði og efnis-
námum. Auk þess verður unnið
að leiðréttingum á grunnkortum
við Eyjabakka og vestan Snæfells.
Þessar rannsóknir munu hefjast
í byrjun júlí.
Annað
Gert er ráð fyrir því að sprengt
verði fyrir á gangamunnum við
Axará og á Teigsbjargi í haust
og sprengja þarf munna og fyrstu
tugi metra aðkomuganga, ef unnt
á að vera að hefja vinnu á
staðnum í mars eða apríl á næsta
ári. Auk þess verður hafinn
undirbúningur að uppsetningu
vinnubúða við aðkomugöng og
færanlegar vinnubúðir smíðaðar
til notkunar við framkvæmdir
ársins.
Hjá Landsvirkjun er áætlað að
20-25 menn vinni við byggingu
vega og 12-15 manns við rann-
sóknir þannig að alls verði um 40
manns við vinnu á svæðinu í
sumar.
Áætlað er að þessar fram-
kvæmdir kosti 228 milljónir króna
og skiptist sú upphæð þannig að
101 milljón verður varið til ráð-
gjafarstarfa, 8 milljónum til rann-
sókna og mælinga, 23 milljónum
til kjarnaborunar, 39 milljónum
til vegagerðar, 47 milljónum til
aðkomuganga og 10 milljónum
til annarrar aðstöðu.
Vegagerð verður
hafin í Heiðarendanum
í sumar
Vegurinn um svokallaðan
Heiðarenda á Héraði hefur verið
slæmur yfirferðar í vor og hefur
verið mikill áhugi á því á Hérað-
inu að flýta uppbyggingu hans.
Þingmenn Austurlands ákváðu á
fundi sínum með Vegagerðar-
mönnum á Egilsstöðum á
dögunum að samþykkja fyrir sitt
leyti að framkvæmdir verði
hafnar fyrir lánsfé í ár, út á fjár-
veitingar næsta ár, og einnig verði
viðhaldsfé notað að hluta.
Gert er ráð fyrir að byrja að
norðan skammt frá Jökulsár-
brúnni, og leggja veginn í einum
sveig upp á heiðarendann að
vegamótum þar sem vegurinn
liggur upp á Jökuldal. Við þetta
styttist leiðin um einn kílómetra.
Þessi framkvæmd er byrjun á því
verki sem framundan er að byggja
upp varanlegan veg á milli Lag-
arfljóts og Jökulsár á Dal, en
umferð og þar á meðal þunga-
flutningar hafa aukist mjög á
þessum vegarkafla.
fallbyssuleyfi til sýslumannsins
á Seyðisfirði.