Austri - 04.02.1993, Blaðsíða 1
BOKADEILD
Útsala á bókum frá Skjaldborg,
yfir 150 titlar.
Komið og gerið góð kaup.
Opið mán. - fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-19, lau. kl. 10-14.
Kaupfélag Héraðsbúa
Egilsstöðum
Seyðisfjörður:
Egilsstaðir:
Loðnan að glæðast
Eldri borgarar komnir
Mjög góð loðnuveiði var við
Austurland í síðustu viku og sums-
staðar löndunarbið. Nánast ekkert
hefur veiðst af loðnu það sem af er
árinu og þessi aflahrota því kær-
komin, þótt ekki færi hjá því að
nokkur áhrif hefði hún á þáttöku
manna í þorrablótum sem haldinn
voru um þessa helgi bæði á Seyðis-
firði og í Neskaupsstað. Mestu
hefur verið landað á hjá SR á Seyð-
isfirði, en þar lönduðu 17 skip fyrir
helgina og voru á þriðjudagsmorg-
un komin þar á land um 10,700
tonn. Síldarvinnslan í Neskaupstað
hafði á sama tíma tekið á móti
5,800 tonnum. Til SR á Reyðar-
firði höfðu borist 5,500 tonn og til
Eskifjarðar 5,300 og Fiskimjöls-
verksmiðjan Lón á Vopnafirði
hafði tekið á móti rúmum 1100
tonnum. Til Oseyrar á Homafirði
hefur engin loðna borist í þessari
hrotu þar sem innsiglingin um
Homafjarðarós hefur verið illfær.
AÞ
Loðnuveiðin hefur heldur betur glœðst. Allt loðnupláss er aðfyllast. Sigurður VE15 í höfn á Reyðarfiði um helgina. Mynd: MM
Nýr vegur yfir
Möðrudalsöræfi
Hugmyndir hafa verið settar fram
um að færa veginn á Möðrudalsöræf-
um norðar en hann er í dag og jafn-
framt að gera hann að heilsársvegi.
Áætlaður kostnaður við gerð hans
yrði um 730 milljónir. Endurbætur á
gamla veginum er taldar kosta 1
milljarð. Eins og kunnugt er þá sagði
Halldór Blöndal, samgönguráðherra,
á fundi norður á Húsavík í síðustu
viku, að þessi vegur yrði næsta stór-
verkefni á eftir jarðgangagerð á Vest-
fjörðum.
Núverandi leið frá Egilsstöðum til
Akureyrar er um 273 km. og mesta
hæð 660 m. y.s. Þrjár hugmyndir eru
uppi í dag um endurbætur á veginum.
I fyrsta lagi að þegar komið yrði upp
úr Jökuldal, (við Ármótasel) myndi
vegurinn liggja norður Jökuldals-
heiði, um Hárekstaði, Grímsstaðadal
eystri, yfir Einbúasand og í suður-
hluta Dimmafjallgarðs. Vegalengdin
á milli Egilsst. og Akureyrar yrði
nánast sú sama ( styttast um 3 km.).
Þar af nýbygging 59 km. Talað hefur
verið um að kostnaður við nýbygg-
inguna yrði um 730 milljónir. Ef far-
ið verður út í að endurbyggja núver-
andi veg frá Reykjahlíð niður að Jök-
uldal (113 km.) er áætlað að það
kosti 1200 milljónir og yrði nýi veg-
urinn inní því dæmi. Endurbygging
á núverandi vegi er talinn kosta 200
milljónum minna.
í öðru lagi myndi vegurinn liggja
norður Jökuldalsheiði (Háreksstaði)
um Langasand og Einbúasand. Sú
leið yrði jafn löng (270 km). Þar af
53 km. nýbyggður vegur.
Þriðja leiðin um Háreksstaði -
Langadal - og um Vegskarð. Þessi
leið yrði lengst, þ.a.e.s. 276 km. og
þar af 28 km. nýbyggður vegur.
Allir þessir vegir færu hæst í 600
m. yfir sjó. Ennfremur yrði um jafn-
ara land að fara. Okostimir eru að
leiðin liggur fjarri þeirri strjálu
byggð (Möðrudalur, Víðidalur). Úr-
koman er talin meiri utar á heiðinni
en þar sem núverandi vegur liggur,
en eins og fyrr segir er um jafnara
land að fara og því minna um staði
þar sem snjór safnast fyrir.
Með tilkomu þessa vegar myndi
leiðin frá Egilsstöðum til Vopna-
fjarðar styttast um 40 km. Núver-
andi leið er 178 km. Ef farið verður
í gerð jarðgangna í Hellisheiði
(Torfastaðir - Frökkudalur), mun sú
leið verða 85 km. löng.
MM
á gönguskóna
Félagsmálaráð á Egilsstöðum
efndi til gönguferðar fyrir eldri
borgara síðastliðinn föstudags-
morgun og hefur verið ákveðið að
slíkar gönguferðir verði fastur liður
í félagsstarfi eldri borgara hvem
föstudag í vetur. Lagt er upp í
gönguna kl. 10:30 árdegis undir
stjóm Helgu Alfreðsdóttur, íþrótta-
kennara, en henni til aðstoðar verð-
ur Þuríður Bachman, hjúkrunar-
fræðingur. Til að byrja með verður
farið hægt af stað en seinna er fyr-
irhugað að skipta hópnum eftir
getu, svo hægt sé að velja um mis-
munandi vegalengd og göngu-
hraða. Að lokinni gönguferð verða
teknar liðkandi teygjuæfingar.
Mæting í fyrstu gönguferðina lof-
aði góðu, í henni tóku þátt 14
manns, en allir sem áhuga hafa eru
velkomnir í hópinn. Eldri borgur-
um á Egilsstöðum og í nágrenni
sendur til boða fjölbreytt félags og
tómstundastarf. Á þriðjudögum
er boðið upp á ýmiss konar föndur
og handavinnu og er kaffihléið þá
að hluta notað fyrir létta leikfimi.
Á fimmtudögum fyrir hádegi er
unnið við leirmunagerð og tvisvar
í viku er komið saman eftir hádegið
í félagsaðstöðunni við Miðvang og
gripið í spil. Auk þess sem hér
hefur verið talið er mestan hluta
ársins líflegt starf á vegum Félags
eldri borgara á Héraði. AÞ
Eldri borgarar í léttri sveiflu.
Mynd: Jónas Þór.
Núna geta sjúkra-
liðar klárað
verklegt nám hér
á Austurlandi
Verklegt nám sjúkraliða er nú
hægt að klára í Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað. Þegar
Sjúkraliðaskóli íslands var lagður
niður, var nám flutt inní framhalds-
skóla. Samfara því var reglum
breytt. Kom í ljós að erfitt reyndist
að koma öllum þeim nemendum, er
stunda sjúkraliðanám, fyrir á þeim
sjúkrahúsum, er til þess höfðu ver-
ið viðurkennd sem kennslustofnan-
ir og var þá ákveðið að fjölga þeim.
Upp úr því óskuðu stjómendur
framhaldsskóla, er hafa sjúkraliða-
nám með höndum, eftir því hvort
allt starfsnám nemenda í sjúkra-
stofnunum, gæti farið fram í
heimabyggð, á sjúkrahúsum og
hjúkrunarheimilum.
Heilbrigðis- og Tryggingamála-
ráðuneytið lét gera könnun á því
hvort ekki væri hægt að viðurkenna
fleiri sjúkrastofnanir sem gætu tek-
ið við nemum í verklegt nám. Upp
úr því var svo óskað eftir því að
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað tæki við sjúkraliðanemendum í
allt verknám. Þetta ætti að auð-
velda þeim nemum, er hugsa þurfa
um heimili samfara námi að stunda
það í heimabyggð.
MM
Vj5l
Ég heimta tvíbreiöan veg, svo að
ég komist í Sjallann.