Austri - 02.12.1993, Blaðsíða 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum, 2. desember 1993.
Austraspurning
Ertu byrjaður/uð að kaupa
jólagjafir?
Unnið í nóvember af Helgu Svanlaug
Garðarsdóttur sem er í starfskynningu hér
á blaðinu
Björn Pálsson. Nei, en ég þarf að
fara að kaupa gjöf handa dóttur minni
sem er úti að læra.
Angelika Guðmundsdóttir. Já, ég
er búin að kaupa eina.
Heiða Sigrún Andrésdóttir. Nei.
mér líst vel á að fresta jólunum um
eitt ár.
Guðjón Bragi Stefánsson. Ég er
ekki búinn að kaupa neinar jólagjafir.
Ásgrímur Þór Ásgrímsson. Nei, ég
ætla að kaupa þær á Þorláksmessu.
Þorbjörn Björnsson. Nei, nei, það
er ennþá bara nóvember.
t
MINNING
Björg Gunnarsdóttir
Fædd 18. desember 1917 dáin 14. nóvember 1993
Stirðnuð er haga höndin þín
gjörð til að laga allt úr öllu,
eins létt og draga hvítt á völlu
smámeyjar fagurspunnið lín.
Jónas Hallgrímsson
Hún Björg er dáin, hún lést á
sjúkrahúsinu á Egilsstöðum sunnu-
daginn 14. nóvember. Björg var
dóttir Bergljótar Stefánsdóttur og
Gunnars Sigurðssonar, sem bjuggu
á Egilsstöðum í Fljótsdal, þar
fæddist hún og ólst upp í stómm
systkinahópi.
Handlagni og listfengi hefur ver-
ið aðaleinkenni þessa fólks, og
fékk Björg stóran skerf af þeim
eiginleikum. Ung að árum fór hún
að vinna við fatasaum, og vann í
nokkur ár á saumastofum í Kefla-
vík og á Reyðarfirði, en saumaskap
stundaði hún alla sína æfi meðan
stætt var.
Á öllu sem hún gerði var snilld-
arhandbragð sem fátítt er að sjá, og
þess báru vott ótaldar flíkurnar sem
hún saumaði fyrir okkur og börn
okkar, en þau hændust að henni, og
hún var óþreytandi við að segja
þeim sögur eða skemmta þeim á
annan hátt.
Áratugum saman dvaldi hún
hluta ársins að Dvergasteini á
Reyðarfirði, og var oft kennd við
þann stað til jafns við heimili sitt í
Fljótsdal. Á Reyðarfirði vann hún
lengst í sláturhúsinu og einnig við
síldarsöltun á meðan heilsan leyfði.
Síðustu árin voru Björgu erfið,
þrekið minnkaði jafnt og þétt og
hún dvaldi langdvölum á sjúkra-
húsum, lengst á Egilsstöðum.
Aldrei kvartaði hún og hugurinn
var bundinn við að fá heilsuna aft-
ur, hún fylgdist stöðugt með tísk-
unni, og því nýjasta í fatagerð, en
það var hennar helsta áhugamál.
Að leiðarlokum hrannast minn-
ingarnar upp, efst í huga hjá okkur
er þakklæti til hennar og kveðju
viljum við senda með ljóðinu
“Heim” eftir Jörgen E. Kjerúlf.
Landsmet eða “heimsmet”
í 42 tbl. Austra var frétt frá Sig-
urði Lárussyni sem fjallaði um ó-
venju afurðamikla á frá Gilsá í
Breiðdal. Ærin var þrflembd í vor og
vógu lömbin samtals við slátrun í
haust 54,9 kg. I lok fréttarinnar sló
64 kg. Samtals lífþungi 217 kg.
Gimbrarnar voru látnar lifa en hrútn-
um slátrað og vó skrokkurinn af
honum 28 kg, sem þýðir að kjötpró-
senta var 43,75. Nú er vitað að
gimbrar hafa yfirleitt hærri kjötpró-
“Heimsmethafinn” Maga með lömbin sínfjögur.
Sigurður því fram að gaman væri að
fá fréttir af, ef menn vissu um aðrar
ær afurðarmeiri. Sigurði hefur held-
ur betur orðið að ósk sinni, Því blað-
inu hafa borist heimildir um 8 ær,
allar í Skaftafellssýslu, sem skilað
hafa meiri kjötþunga. Frá Benedikt
Stefánssyni barst eftirfarandi bréf
undir yfirskriftinni:
“Er það landsmet, eða heimsmet’’?
“ í 42. tbl. Austra segir Sigurður
Lárusson frá Gilsá í Breiðdal frá ó-
venju afurðamikilli á þar á bæ, skil-
aði ærin á síðastliðnu hausti 54,9 kg
af kjöti. Segir Sigurður, að gaman
væri að frétta af, ef vitað væri um á
sem skilað hefði meiri afurðum, em
því þessar línur sendar. Dóttir mín
Kristín hefur fáeinar ær sér til á-
nægjuauka. Þann 1. maí vorið ‘92
átti Maga hennar sem þá var fjögra
ára 4 lömb, 3 gimbrar og 1 hrút.
Ærin gekk í túni um sumarið og
lömbin fengu ekki mjólk nema úr
móðurinni. I byrjun október voru
lömbin vegin og vigtuðu gimbramar
50 kg, 50kg, og 53 kg og hrúturinn
sentu en hrútar, en þar sem ekki er
um aðra viðmiðun að ræða, þá nota
ég prósentu hrútsins til að finna
kjötþunga gimbranna og verður þá
kjötið af þeim samtals 67 kg og þá
samtals af öllum lömbunum 95 kg”.
Benedikt sló síðan botninn í bréf
sitt með sömu tilmælum og Sigurður
og bað menn að láta frá sér heyra
hefðu þeir fregnir af afurðarmeiri
kind. Þá sendi Sverrir Aðalsteins-
son blaðinu úrklippu af frétt sem
birtist í Tímanum 8./10. 1980. Þar
segir frá þrílembdri á, sem skilaði
70,2 kg kjötþunga og vógu lömbin
21,6 kg, 25 kg og 23,6 kg. Ána átti
Sigurjón Jónsson bóndi á Smyrla-
björgum og fylgir það sögunni að
hún hafi verið ófyrirleitin túnrolla
að art og gengið sumarlangt á
slægjulöndum graskögglaverksmiðj-
unnar í Flatey. En það eru ekki bara
túnrollur sem gefa af sér góðar af-
urðir á Smyrlabjörgum. Snorri Jóns-
son á Höfn hafði samband við blað-
ið og sagði að samkvæmt ærbókum
bænda þar yfir 9 ára tímabil hefðu 7
ær gefið af sér kjötþunga frá 55,2 kg
upp í 70,2 kg.
Hvar sem ég fer um fold,
Fljótsdalinn kýs ég mér,
sólvermd hin svarta mold,
sumarsins skrautið ber.
Þar leit ég bláust blóm
bjartasta lilju skraut,
þar á ég helgidóm
hverri í skógarlaut.
Sigrún og Vigfús.
Þá hefur hún Björg frænka okk-
ar fengið hvíldina. Eftir áralöng
veikindi hefur guð tekið hana til sín
og hjá honum mun hún dveljast um
eilífð. Meinin eru burt og fjötrar
líkamans hefta hana aldrei meir.
Það er óhjákvæmilegt að upp í
hugann komi minningabrot frá
liðnum árum. Minningabrot um
samvistir okkar við Björgu í þessu
lífi. Við minnumst þess þegar hún
kom ofan úr Fljótsdal, niður á
Reyðarfjörð og dvaldi í Dverga-
steini hjá afa og Mæju. Við sjáum í
anda þegar við mættum henni á
götu á leið til vinnu sinnar í slátur-
húsinu, kvika í hreyfingum og
hressa í bragði. Það var sama hvað
hún tók sér fyrir hendur alltaf gust-
aði af henni og maður komst ekki
hjá því að hrífast með. Þó gat hún
alltaf gefið sér tíma til að setjast
niður og spjalla við okkur. Greið-
lega leysti hún úr þeim spurningum
sem komu upp í bamshugann og
alltaf var hún tilbúin að spauga og
taka þátt í sprelli með okkur. Þá var
stutt í hláturinn, þennan dillandi
hlátur sem fyllti hýbýlin og smitaði
út frá sér.
Hún Björg var hrein galdrakona
við saumavélina. Það var sama
hvað kom upp, hvort flíkur gáfu sig
í hita leiksins eða sauma þurfti nýj-
ar, alltaf var hún til taks. Einhvem
veginn tókst henni að koma til
móts við alla hugsanlega duttlunga
okkar, aðeins þurfti að skýra laus-
lega út hvernig hlutirnir ættu að
vera og á örskotstundu hafði hún
galdrað fram flíkur sem okkur
fannst nálgast fullkomnun. Allt lék
í höndunum á henni, ekkert virtist
vera henni um megn við saumavél-
ina.
Þegar við uxum úr grasi og flutt-
um að heiman urðu samverustund-
irnar færri og styttri. Að austan
fréttum við að Björg hefði veikst af
Parkisonsveiki sem smám saman
væri að lama þrótt hennar. Og
vissulega var okkur brugðið í hvert
sinn sem við hittum hana og sáum
hversu henni hafði farið aftur. En
veikindin höfðu ekki náð að hefta
hug hennar. Greinilegt var að hún
fylgdist vel með, hvort sem hún var
að velta fyrir sér nýjustu tísku eða
leita frétta af okkur og fjölskyldum
okkar. Þó að hún ætti erfitt með
mál síðustu mánuðina og gæti ekki
gantast við okkur eins og áður, var
það okkur mikils virði að heim-
sækja hana og sjá glettnisblikið
koma upp í augun þegar slegið var
á létta strengi, því þannig verður
hennar minnst.
Vissulega nkir söknuður í
brjóstum okkar að Björgu genginni,
en efst í huga hlýtur þó að vera
þakklæti fyrir fjölmargar ánægju-
stundir í áranna rás.
Ólafur Vigfússon og fjölskylda
Vigfús Már Vigfússon
og fjölskylda
Þórhallur Vigfússon
og fjölskylda
Valgerður Vigfúsdóttir
,vá.etðarinenn' LInuveiðio,
^ Fiskin lína á lægra
verði lofar góðu.
Höfum fyrirliggjandi norska fiskilínu í öllum
sverleikum frá 4 til 8 mm og sterka ábót á góðu verði.
Okkar verð er ennþá betra.
Netanaust sími 91-689030
Finnskt parket í hæsta gæðaflokki.
.--------nérsrm h*klinfllirinn.
Gott VGfÖ* ) bæklingurinn.
‘ ^ Ymiss froðleikur um parket.
Liggur frammi í verslun okkar.
Til á lager
Eik rustik II. fl.
staðgreitt 2.642
Eik Europe
staðgreitt 2.875
Beyki country
staðgreitt 2.934
Opið 13-18 virka daga.
Laugardaga 10-16.
Einnig eftir samkomulagi.
EYÞÓR ÓLAFSSON
Tjamarási 8 - Egilsstöðum
VS. 97-11290 HS. 97-11116
Höfum hafið sölu fyrir
Pfaff í Borgartúni
á eftirfarandi vörumerkjum
C~JtUUty//*7/&7/k7
BRfiun -Ariete
starmíx
Iðnaðarryksugur
VARAHLUTAVERSLUNIN Lyngásii3
r 700 Egilsstaðir
VIKINGUR l.Lv