Austri - 02.12.1993, Síða 8
Ótrúlegt tilboð!
Hótel Borg, gisting í eina nótt kr. 9.900.-
miðað við tvo í herbergi.
Innifalið er flug fram og til baka, gisting í eina nótt, morgunverður
og farþegaskattur.
jr
Islandsflug
Egilsstaðir, sími 12333
Skrifstofuhjálp
Sími 97-41441
¥ Eldhús- og baðinnréttingar Trésmiðja
* Fataskápar Guðna J. Þórarinssonar
* Útihurðir o.fl. Másseli sími 11093
Egilsstaðir:
Róbert sýnir í Café Brazil
Dagana 3.-9. desember n.k.
sýnir Róbert Jónsson verk sín í
Café Brazil á Egilsstöðum. Þetta er
fyrsta einkasýning hans en hann
hefur áður tekið þátt í nokkrum
samsýningum. Róbert er fæddur
19. ágúst 1966 og búsettur á Egils-
stöðum. Hann hefur teiknað og
málað frá 18 ára aldri og er að
mestu sjálflærður í listinni. Sýning-
in á Café Brazil er sölusýning.
Myndimar eru 14 að tölu, þar af
eru 6 pennateikningar en aðrar
myndir eru unnar á fjölbreyttan hátt
s.s. með olíu, kolum, bleki og
blandaðri tækni. AÞ
Ein af pennateikningunum á sýningunni “Gamla tréð”. A innfeldu myndinni er Róbert
Jónsson.
Egilsstaðir:
Jólaljós tendruð á alþjóðlegum
degi fatlaðra
Á alþjóðlegum degi fatlaðra
þann 3. desember næstkomandi
verða tendruð ljós á jólatré á plan-
inu við Svæðisskrifstofu Austur-
lands við Tjamarbraut. Athöfnin
hefst klukkan 14:00 með því að
Séra Arngrímur Jónsson flytur
bæn. Þá mun Berit Johnsen flytja á-
varp og nemendur Tónskólans
leika. Við sama tækifæri ætlar
Skógrækt ríkisins að veita viður-
kenningu einum árgangi nemenda í
Egilsstaðaskóla, þar sem samvinna
hefur verið á milli fatlaðra og ófatl-
aðra nemenda og fær hver nemandi
eina íslenska greniplöntu sem tákn
um samstöðu. Sameinuðu þjóðirnar
hafa ákveðið að 3. desember ár
hvert skuli vera alþjóðlegur dagur
fatlaðra og er hann nú í fyrsta sinn
haldinn hátíðlegur. Með liðveislu
sinni vill Skógræktin leggja fötluð-
um lið og jafnframt hvetja fólk til
að kaupa íslensk jóltré fyrir jólin
og styrkja skógrækt á Islandi.
AÞ
jS|'?ífí(saS Úrval af skreytingarefni í aðventukransa. Jólastjörnur.
Pottaplöntur. Afskorin blóm. Gæludýr og gæludýravörur.
Miðvangi 31, Egilsstöðum 0pið: mánud>. iau„ard. iq-12 og 13-20. Sunnud. 13-20.
Sími12230
Múlaþing komið út
Út er komið 20. hefti Múlaþings
sem gefið er út af Héraðsnefnd
Múlasýslna. Efni í ritinu er fjöl-
breitt að venju og margir höfundar
koma við sögu. Á meðal efnis í rit-
inu er grein um nöfn Sunn-Mýlinga
1703-1845 eftir Gísla Jónsson,
Tveir þættir eftir Sigurð Magnús-
son frá Þórarinsstöðum, Brot úr æfi
Guðrúnar Helgu Björnsdóttur frá
Höskuldstaðaseli eftir Guðjón
Sveinsson, Um séra Guttorm Vig-
fússon í Stöð eftir Þórhall Gutt-
ormsson, Önnu Þorsteinsdóttur og
Þórólf Friðgeirsson, Guðlaugur
Valtýsson og Guðrún Brynjólfs-
dóttir skrifa Æviágrip Guðlaugar
Eiríksdóttur. Þá er að nefna þætt-
ina: Páskabylurinn 8. -10. apríl
1917 eftir Ingimar Sveinsson, Sum-
arferð eftir Ármann Halldórsson,
Fyrr var í Fjarðarseli eftir Guðnýju
Vigfúsdóttur, Fyrsti róðurinn eftir
Hermann Vilhjálmsson, Eiríks þátt
eftir Guðmund Eyjólfsson og
Evanger greinagerð um hús eftir
Hjálmar Vilhjálmsson. Hrafnkell
A. Jónsson skrifar hugleiðingar um
Sturlungasögu sem hann nefnir “Þú
átt eftir, en ek á ekki eftir”, Skúli S.
Guðmundsson fjallar um tíðarfar
og fénaðarhöld. Þá eiga þeir Sig-
urður Kristinsson og Egill Guð-
mundsson þátt í ritinu þar sem seg-
ir frá Víðidalsfeðgum og birtur er
þáttur Sigmundar M. Long: Frá
Seyðisfirði til Ameríku. Þá er ótal-
in ferðasaga skráð eftir Ragnari
Péturssyni á Rannveigarstöðum af
Guðmundi Björnssyni frá Múla.
Múlaþing er prentað hjá Héraðs-
prent s/f á Egilsstöðum. Það er
rúmar 200 blaðsíður og prýtt fjölda
mynda. Ritstjóri er Ármann Hall-
dórsson, aðrir í ritnefnd eru: Hrafn-
kell A. Jónsson, Eskifirði, Ingimar
Sveinsson, Djúpavogi, Kristján Ró-
bertsson, Seyðisfirði, Sigurður Ó.
Pálsson, Egilsstöðum, Smári Geirs-
son, Neskaupsstað. Afgreiðslu rits-
ins hefur Guðlaug Ólafsdóttir á Eg-
ilsstöðum með höndum.
AÞ
0
I
1
1
1
i
I
1
I
I
1
1
I
I
I
I
1
I
I
I
I
1
I
I
I
I
I
I
I
1
1
1
I
I
I.
á jólakortum og
stækkunum til jóla.
FRÍ filma
Filma ársins
iTB
SupeiG
fylgir hverri
framköllun hjá okkur.
Umboðsmenn um allt
Austurland.
MEIRIGÆÐI - BETRA VERÐ
Dynskógum 4,
Egilsstöðum,
sími 11699
MÉlMMölMÉUölMÉUÉlMSMÉUSMÉiMigJ
KURL
Gísli Einarsson alþingismað-
ur á Vesturlandi, flutti á Al-
þingi fyrirspurn varðandi horm-
óna í íslensku kjöti. Þetta var í
svokölluðu óundirbúnum fyrir-
spurnartíma og sagði Gísli og
Landbúnaðarráðherra sömu-
leiðis í svarinu að hann vissi
ekki hvað væri rétt eða rangt í
þessu máli. J.K. sagði þá:
Svarið var ekki ýkja langt
né efnismikið í þetta sinn
vissi ekki hvað var rétt eða rangt
rétt eins og fyrirspyrjandinn.
Ágústa á Refstað var að taka
til í pappadrasli og fann þetta:
Gamansögur, sagðar á árshá-
tíð K.V.V. 1984
Einar Pálsson, sem einu sinni
var starfsmaður hjá KHB var
frægur fyrir fyndin tilsvör. Eitt
sinn var Einar að raða drullu-
sokkum upp í hillu, þegar inn
snarast bóndi ekki mjög óá-
nægður með sig. Bóndi sér
hvað Einar er að gera og gellur
þá í honum: nei, Einar minn.
ertu farinn að selja nafna þína.
Einar leit út undan sér á bónda
og svaraði: já. Björn rninn, alls
staðar eruð þið frændur að
þvælast.
Gunnlaugur verslunarstjóri
K.N.Þ. á Kópaskeri þótti mjög
góður verslunarstjóri. og hafa
ótrúlegt úrval í versluninni.
Eitt sinn hringdi hann í raf-
magnsdeild vélad. SIS og bað
um tvö stk. af ódýru hollensku
straujárnunum. Sölumaður
benti Gunnlaugi á að þessi
straujárn væru mjög léleg og
bauð önnur betri og dýrari.
Nei, bara þessi ódýru, þau selj-
ast illa, hef átt eitt í heilt ár,
það seldist í gær, en á meðan
ég á svona járn í búðinni, geta
frúrnar ekki kvartað um skort á
straujárnum og ég þarf ekki
alltaf að vera að panta, svaraði
Gunnlaugur.
Sendið jólakort með eigin mynd.
Ljósrituð mynd,
persónuleg jólagjöf.
m. M
Umboðsmenn á Austurlandi:
Bókaverslun Brynjars, Neskaupstað,
Shell-skálinn, Eskifirði, Kaupfélagið Djúpavogi,
Lykill, Reyðarfirði, Kaupfélagið Breiðdalsvík,
Söluskáli Stefáns Jónssonar, Fáskrúðsfirði,
Kaupfélagið Stöðvarfirði,
Bókaverslun AB og ES, Seyðisfirði,
Hótel Tangi, Vopnafirði.
Eigum myndaramma
í miklu úrvali!
Miðvangi 2-4, Egilsstöðum, sími 11777
Opið á laugardögum til kl. 14:00