Austri


Austri - 25.11.1999, Qupperneq 4

Austri - 25.11.1999, Qupperneq 4
4 AUSTRI Egilsstöðum, 25. nóvember 1999 Könnun á högum og viðhorfum framhaldskólanema í þremur framhaldskólum: Menntaskólinn á Egilsstöðum með góða útkomu Nemendur við ME vinna minna með námi en vaka lengur en nemendur í hinum skólunum Fáar kannanir hafa verið gerðar um málefni framhaldsskóla- nemenda á Islandi. Þegar gerðar eru stórkannanir á högum lands- manna, á borð við þær sem Gallup og Félagsvísindastofnun Háskóla Is- lands framkvæma, koma oft í ljós hagir ákveðinna aldurshópa en þar er ekki gerður greinarmunur á skólafólki eða vinnandi ung- mennum og er því ómögulegt að sjá hagi þessara hópa sérstætt né bera saman hagi ungs skólafólks eftir skólum eða landshlutum. Nokkrir framhaldsskólakennarar í félagsfræðigreinum, sem áttu það sammerkt að hafa um tíma látið nemendur sína gera ýmiskonar kannanir í tengslum við námið, sáu þörf á gerð könnunar sem tækju til ofangreindra þátta. A vorönn 1998 ákváðu síðan Hannes I. Olafsson í Fjölbrautarskólanum við Ármúla (FÁ), Jón Ingi Sigurbjörnsson í Menntaskólanum á Egilsstöðum (ME) og Garðar Gíslason í Menntaskólan- um í Kópavogi (MK), að vinna að sameiginlegu verkefni fyrir nemendur í lokaáfanga félagsfræði. Verkefnið var að kanna viðhorf og hagi nemenda í skólunum þremur. Með könnuninni átti að ná fram marktækum niðurstöðum um ýmis einkenni nemenda í framhalds- skólunum þremur. Afhennimádraga almennar ályktanir um hagi og viðhorf íslenskra framhaldskólanema, auk þess sem könnunin sýnir hvað þessir þættir geta verið mismunandi. Skólamir þrír eru afar mismunandi að stærð og gerð t.d. eru MK og FÁ báðir með verknám á námsframboði sínu en ME er eingöngu bóknáms- skóli. Þá eru nemendur við ME 250- 300 á móti 700-1000 í FÁ og MK. Auk þessa býður Menntaskólinn á Eg- ilsstöðum bæði upp á heimavist og mötuneyti sem er ekki í hinum skól- unum. I febrúar og mars 1998 gerðu nem- endur spumingalista, undir hand- leiðslu kennara sinna, og komust að samkomulagi um listana milli skólanna. Um var að ræða 59 spum- ingar sem áttu að gera könnunina sem ítarlegasta. Spumingamar vom síðan lagðar fyrir 1148 nemenda úrtak úr skólunum þremur, og sáu nemendur í félagsfræðiáfanga um aðferðafræði um framkvæmdina ásamt því að slá inn gögn að hluta til. Könnunin var hluti af lokaverkefni nemendanna og hafði þannig kennslufræðilegt gildi. Niðurstöður könnunarinnar voru síðan birtar í ágúst síðastliðnum og verður hér á eftir farið yfir útkomuna á hundavaði en bent er á að hægt er að náigast niðurstöður könnunarinnar í heild hjá höfundum hennar. Jón Ingi Sigurbjömsson var blaðamanni Austra innan handar við túlkun einstakra þátta könnunarinnar og mun verða vitnað til hans hér í framhaldinu. Bakgrunnur nemenda og áform þeirra Könnuninni var skipt í sex hluta og bar sá fyrsti þessa fyrirsögn og saman- stóð af þrettán spumingum. Gaf kaflinn glögga mynd af aðstæð- um og áformum nemendanna almennt og bentu jafnframt á ýmsa þætti sem vom ólíkir milli skólanna. Kom meðal annars í ljós að fæstir nemendur við ME höfðu stundað nám í öðmm fram- haldskóla á meðan tæplega 60% nem- enda við FÁ höfðu stundað nám við annan framhaldskóla. Þetta má að nokkm leyti skýra með því að ME er Menntaskólinn á Egilsstöðum. einskonar svæðiskóli en FÁ er hins- vegar stærsti “landsbyggðarskólinn” á höfuðborgarsvæðinu, en flestir nem- endur sem fara til náms í höfuðborg- inni velja FÁ. Þá kom í ljós að meðalaldur nem- enda er lægstur í ME af þessum þrem- ur skólum, sem skýrist af því að aldur þeirra sem stunda bóknám er yfirleitt lægri en þeirra sem stunda verknám. Yfír 90 % nemenda við ME hyggja á frekara nám eftir stúdentspróf á móti 80 % í hinum skólunum. Námsvenjur og viðhorf til skóla í öðmm kafla könnunarinnar var spurt um heimanám, líðan í skóla, tengslin við kennara og skóla- stjómenda auk þátttöku í félagslífi skólans. “ Einn þáttur sem vakið hefur tölu- verða athygli er hve nemendur verja litlum tíma til heimanáms en í ljós kemur að um 70% nemenda í skólun- um veiji minna en einni klukkustund til heimanáms á hveijum degi”. segir Jón Ingi. “ Þá kom á óvart hve fáir nemendur höfðu notað bókasöfn eða tölvuver skólanna”. Jón Ingi segir að svo virðist sem nemendur í ME séu virkari þátttakendur í skólastarfinu og séu almennt ánægðari með umhverfi skólans, kennara, stjómendur skólans og tengslin við umsjónarkennarann sinn en í hinum skólunum, þó munur- inn sé lítill. Nemendur telji sig jafn- framt vera virkari í ákvarðanatöku innan skólans auk þess sem þeir telja að skólinn komi til móts við þarfir þeirra almennt. Þetta má að miklu leyti skýra með því hve skólinn er lítill. Á þetta jafnt við um viðhorf til starfsfólks og aðstæðna. Viðhorf til mætingareglna eru svipuð eftir skólum, en um 20 % nem- enda em mjög ósáttir við þessar reglur á móti tæplega 50% sem em mjög sátt eða sátt við mætingarreglumar. Ekki þarf að koma á óvart að þátt- taka nemenda í félagslífi ME er með meira móti miðað við aðra skóla eða um 70 %, en næstur kemur MK með um 60 % þátttöku. Skýrist þetta væntanlega af því mikla framboði af- þreyingar sem er í boði á höfuðborg- arsvæðinu auk þess sem ME er minni en hinir skólamir. Líðan nemenda Þriðji þáttur þess sem könnunin náði yfir var líðan nemenda. Þar kom fram að 83 % nemenda við ME stunda fþróttir 1 klst eða meira á viku, en nemendur í hinum skólunum nota mun minni tíma til íþróttaiðkunar. Þá virtist hreysti og andlegt jafnvægi vera svipað eftir skólum en meirihluti nemenda taldi sig vera hrausta og í góðu jafnvægi, þó hefur vakið athygli hve margir nemendur missa stjóm á skapi sínu dag- lega. “ Mikill munur kom fram á svefntíma nemenda. Svo virðist vera að að hér í ME, sem er jú heimavistar- skóli og engir foreldrar til að reka nemendur í rúmið og þrátt fyrir ákveðnar reglur um næði og annað slíkt, virðist vera töluverður hópur nemenda sem fer seint að sofa og nemendur í ME vaka lengst. Um 7% prósent fara ekki að sofa fyrr en eftir 01:30 á nætuma og 28% fara að sofa eftir kl. 01:00. Þetta hlýtur að teljast talsvert umhugsunar- efni þegar menn eiga síðan að mæta í skólann kl. 8:00 á morgnana “, segir Jón Ingi. Tekjuöflun nemenda og neysla Fjórði og fimmti þáttur könnunar- innar tók til tekjuöflunar nemenda og neyslu þeirra. Komu fram nokkrir forvitnilegir þættir varð- andi vinnu með námi. Ástandinu lýsir Jón Ingi svo: “Það hefur oft verið talað um það að það sé eitt af vandamálunum í íslenska skólakerfmu að nemendur vinni með náminu, sem leiði til þess að þeir hafi ekki tíma til að stunda námið eins og sést á þeim tíma sem nemendur verja til heimanáms”. Þegar könnunin var gerð unnu um 40% nemenda við ME með skól- anum á móti 60-70% nemenda í hin- urn skólunum. Trúlega spilar þar stór- an þátt aðstæður á vinnumarkaði hér fyrir austan þar sem framboð vinnu og eftirspum eftir vinnuafli er miklu meira á höfuðborgar- svæðinu en hér. Hins vegar kemur í ljós að nemendur við ME greiða stærra hlutfall af námskostnaði sínum en nemendur í hinum skól- unum. T.d. greiða um 70 % nemenda við ME námsbækur sínar sjálfir á móti 40 % í MK. í heildina virðast nem- endur á landsbyggðinni og þá í ME hafa minna fjármagn handa á milli og eyða minnu. Þá kemur einnig í ljós að nemendur í ME eiga færri bfla en ungmenni fyrir sunnan og fara sjaldn- ar í utanlandsferðir, en 40-45% nem- enda við framhaldskólanna á höfuð- borgarsvæðinu hafa farið 6 sinnum eða oftar til útlanda á móti 12 % hjá nemendum ME. Menningar- heimur nemenda I sjöunda og síðasta lið könnunarinnar kem- ur í ljós ýmislegt varð- andi fjölmiðlanotkun, skemmtanalíf og stjóm- málaáhuga. “ Það kom okkur sem stóðum að könnuninni á óvart hve fáir nemendur em að lesa eitthvað ann- að en það sem tilheyrir námsefninu en um 60% nemenda lesa ekkert annað.”segir Jón Ingi. Hins vegar horfðu margir mikið á vídeo og fóm í bíó, en fáir fara oft í leikhús eða á listasýningar. Gaman er að vekja at- hygli á því að ekki er um að ræða mik- inn mun milli landsbyggðar og höfuð- borgarinnar hvað varðar bíó- og leik- húsferðir né ferðir á listasýningar, þó framboð þessarar afþreyingar sé miklu meira á höfuð- borgarsvæðinu. Athygli vekur að einungis á milli 30-40% nemenda hafa aðgang að veraldarvefnum heima við. I könnuninni var spurt um stjóm- málaáhuga og er hann ákaflega lítill, en u.þ.b 15% nemenda í skólunum fylgjast mikið með stjómmálum. Hvergi var samt eins afgerandi munur á ME miðað við hina tvo skólanna þegar spurt var hvað nemendur myndu kjósa ef kosið væri til Alþing- is daginn sem könnunin var gerð. 43% nemenda við Menntaskólann á Egils- stöðum sögðust mundu kjósa Fram- sóknarflokkinn á meðan ungmenni á höfuðborgarsvæðinu hölluðu sér held- ur að Sjálfstæðisflokknum eða tæplega 40 %. “ Þessi niðurstaða vakti mikla athygli samstarfskennara minna að þessari könnun og spurðu þeir mig meðal annars hvort það héngi mynd af Halldóri Ásgrímssyni í hverri kennslu- stofu og auðvitað jánkaði ég því!” ,sagði Jón Ingi. Hefur vakið athygli á æðri stöðum Er það áht manna að þessi könnun sé mjög marktæk, bæði vegna úrtaks- ins sem vissulega er nokkuð stórt og líka vegna góðrar svörunar nemenda. Hefur framtakið og niðurstöður könn- unarinnar vakið athygli og áhuga menntamálayfirvalda og hefur menntamálaráðuneytið farið fram á nánari úrvinnslu úr könnuninni. Jafh- vel hefur verið rætt um að endurtaka hana og þá á fleiri skólum og skóla- gerðum, t.d. hefðbundum bekkjaskóla en þeir skólar sem teknir voru fyrir í þessari könnun vom allir með svoköll- uðu fjölbrautarsniði. Jafnframt hefur verið rætt um að nota könnunina til samanburðar á skólum í útlöndum, t.d. á Norðurlöndunum. Austri/if Mynd/Skarphéðinn Þórisson Sambandið við umsjónarkennara • Spurt var: Finnst þér þú vera í nægilega góðu samabndi við umsjónarkennarann þinn? Þátttaka í félagslífi skóla Spurt var: Tekur þú virkan þátt í félagslífi skólans? 79pe% MfiOK SOfiOK «JWK 30fiO% tOfiOK OfiM Spurt var: Stundar þú launaða vinnu með námi? Greiðsla námsbóka Spurt var: Kostar þú námsbækur þínar sjálf(ur)?

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.