Fréttablaðið - 06.10.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 1 4 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.hekla.is/volkswagensalur
Vertu klár í veturinn
Volkswagen T6.1
Sendibílar, pallbílar, smáir vinnubílar og stórir
SELTJARNARNES Meirihluti Sjálfstæð-
isflokksins á Seltjarnarnesi myndi
falla í fyrsta skiptið á lýðveldistím-
anum ef gengið væri til kosninga í
dag samkvæmt nýrri könnun. 41
prósent myndi kjósa f lokkinn en
aðeins 26 prósent eru ánægð með
stjórnun bæjarins og sama hlutfall
treystir bæjarstjóranum Ásgerði
Halldórsdóttur.
„Það er greinilegt að hluti Sjálf-
stæðismanna er óánægður,“ segir
Þóra Ásgeirsdóttir hjá Maskínu sem
framkvæmdi könnunina fyrir Félag
Viðreisnarfólks á Seltjarnarnesi. Alls
treysta 44 prósent bæjarbúa bæjar-
stjóranum illa og 42,5 prósent eru
óánægð með stjórnun bæjarins.
Flestir nefna fjármálin sem mikil-
vægasta þáttinn en hallarekstur bæj-
arins hefur mikið verið til umræðu
að undanförnu. – khg / sjá síðu 6
Óánægju gætir
á Seltjarnarnesi
Sjórinn var óvenju hlýr í gær að mati sjósundfólks í Nauthólsvík í gær. Sjósund nýtur sívaxandi vinsælda. Þó að kalt hafi verið úti og napur vindur þá var talsvert af fólki í sjónum. Þessi
vaski sundmaður var í hópi sem var á leið inn að ylströndinni, til að komast þangað þarf að synda yfir steina og þara, það lét hann ekkert á sig fá og var örsnöggur í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
COVID-19 Evrópusambandið hefur
til skoðunar að koma á fót sam-
ræmdu kerfi til að auðvelda frjálsa
för ferðamanna innan ESB og EES-
svæðisins. Þjóðverjar fara nú með
forsæti í ráðherraráði Evrópusam-
bandsins og hafa lagt til litakóða
fyrir frjálsa för milli landa ESB
og EES á meðan á heimsfaraldri
COVID-19 stendur. Grænt land mið-
ast við færri en 25 tilfelli á hverja
100 þúsund íbúa 14 daga á undan.
Rauð lönd væru þar sem f leiri en
50 tilfelli hefðu greinst á hverja 100
þúsund íbúa 14 daga á undan.
Óvíst er hvort eða þá hvenær
kerfið taki gildi.
Ísland sendi frá sér athugasemdir
til sambandsins vegna málsins í
gær. „Við höfum farið þá leið að
skima á landamærum og myndum
vilja halda því áfram í einhverri
mynd þar sem við höfum getuna
til þess,“ segir Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra.
„Við munum svo sjá hver lokaniður-
staða Evrópusambandsins verður í
þessu til að koma á samræmingu á
umferð á innri landamærunum.“
Tilgangurinn með tillögum ESB
er að einfalda og samræma reglur
milli landa. Reglurnar yrðu ekki
bindandi og myndu ekki ná til vöru-
bílstjóra, sjófarenda eða annarra
sem ferðast vegna starfa sinna.
Íslenska ríkisstjórnin hefur þegar
gefið út að fyrirkomulag skimana
vegna COVID-19 á landamærum
verði óbreytt til 1. desember næst-
komandi, nema að tilefni gefist til
endurskoðunar fyrr. Áslaug Arna
útilokar ekki að fyrirkomulaginu
verði breytt ef tillögur Þjóðverja ná
fram að ganga. Ljóst sé að í áfram-
haldandi baráttu við veiruna verði
að taka mið af meðalhófi hverju
sinni og mikilvægt sé að endur-
skoða ákvarðanir mjög reglulega.
„Það er mikilvægt að til framtíðar
sé frjáls för fólks innan svæðisins
tryggð, eins og verið hefur.“ – ab
Gætu liðkað fyrir ferðalögum
Evrópusambandið skoðar að koma á fót samræmdu kerfi til að auðvelda ferðalög í heimsfaraldrinum.
Dómsmálaráðherra útilokar ekki að kerfið leiði til breytinga á fyrirkomulagi landamæraskimana.
Við höfum farið þá
leið að skima á
landamærum og myndum
vilja halda því áfram í
einhverri mynd þar sem við
höfum getuna til þess.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir,
dómsmálaráð-
herra