Fréttablaðið - 06.10.2020, Síða 46
ÞÁ ER HÆTT VIÐ ÞVÍ
AÐ RÚTÍNAN FARI ÚR
SKORÐUM OG FÓLK SÉ BARA
HEIMA HJÁ SÉR Á NÁTTFÖT-
UNUM FRAM EFTIR DEGI. ÞAÐ
GETUR AUÐVITAÐ HAFT ÁHRIF
Á LÍÐANINA.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
DALBY
hægindastóll
með skemli
Nettur og fallegur hægindastóll úr svörtu PU-leðri ásamt
skammeli, á frábæru verði. Fáanlegur bæði með krómuðum
fæti eða svörtum. Stærð: 125 x 72 H: 108 cm.
Fullt verð: 59.900 kr.
Aðeins 41.930 kr.
Við eigum afmæli
og nú er veisla
Láttu drauminn rætast
SENDUM
FRÍTT
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Við sendum þér vörurnar frítt hvort sem
þú kaupir á dorma.is eða í DORMA-verslun
Nature’s REST LUXURY
heilsurúm með Classic botni
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi (20 cm háir)
• 5 misjöfn lög af svampi
• Sterkur botn
• 320 gormar á m2
• Góðar kantstyrkingar
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
Verðdæmi á Nature’s Rest Luxury með Classic botni og fótum:
90 x 200 cm. Fullt verð: 69.900 Aðeins 55.920 kr.
160 x 200 cm. Fullt verð: 99.900 Aðeins 79.920 kr.
30%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
20%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Nú á dögunum kom ú t b a r n a b ó k i n Svefnfiðrildin eftir Erlu Björnsdóttur, en hún er sálfræð-ingur og doktor í líf-
og læknavísindum og sérhæfir sig í
rannsóknum á svefni og meðferð-
um gegn svefnleysi. Henni fannst
vanta efni fyrir börn um mikilvægi
svefns og hvíldar. Bókin fjallar um
fjöruga stelpu sem heitir Sunna.
„Ég hef unnið með svefn og við
svefnrannsóknir mjög lengi og
hef mikið barist fyrir því að auka
fræðslu um svefn. Þú sérð bara í
menntakerfinu að það er rosalega
lítil áhersla á svefn. Börn byrja
strax í fyrsta bekk í heimilisfræði
og íþróttum. Þau byrja að læra um
næringu og hreyfingu en læra lítið
um svefn, sem er þó alveg jafn mik-
ilvægur. Mig langaði með bókinni
að leggja mitt á vogarskálarnar til
að auka fræðslu um svefn fyrir
börn,“ segir Erla.
Svefninn er mystískur
Sjálf á Erla sex ára strák.
„Hann var fimm ára þegar ég var
að skrifa bókina og ég spjallaði þá
heilmikið við hann um svefn. Börn
eru náttúrulega eins og svampar á
þessum aldri. Þeim finnst þetta allt
svo spennandi. Svefninn er auð-
vitað mjög mystískur. Það er margt
sem gerist í svefni sem börnum
finnst mjög áhugavert. Þannig kom
hugmyndin, að flétta þessa fræðslu
um mikilvægi svefns inn í eitthvert
skemmtilegt ævintýri. “
Í lok bókarinnar er svo fræðsla
sérstaklega ætluð foreldrum.
„Þar fer ég yfir það hvað er mikil-
vægt fyrir þau að hafa í huga þegar
það kemur að svefni barna þeirra.
Síðan er líka dagbók sem fólk getur
fyllt út með börnunum. Þar er til
dæmis hægt að setja sér jákvæð
markmið eins og að fara nógu
snemma að sofa og að sofa í eigin
rúmi.“
Svef nf iðr ild in ha fa feng ið
jákvæðar viðtökur, í það minnsta
frá syni Erlu og börnum vinkvenna
hennar.
„Ég hef fengið skemmtileg við-
brögð hingað til og er spennt að
heyra hvað börnum finnst um
þetta. Ég hef ekki mikið unnið með
börnum í mínu klíníska starfi þann-
ig að það var gaman að fá að koma
inn á þennan aldur líka. Þetta var
góð tilbreyting frá því að vera að
skrifa f lóknar og erfiðar vísinda-
greinar,“ segir hún.
Urðu að fresta ráðstefnu
Árið 2017 gaf Erla út almenna fræði-
bók um svefn sem heitir einfaldlega
Svefn. Erla stofnaði líka vefsíðuna
Betri svefn. Nú í október stóð til
að halda ráðstefnu um svefn og fá
hinn heimsþekkta vísindamann
Mat thew Walker til landsins, en
hann er höfundur metsölubókar-
innar Why We Sleep. Því miður
varð að fresta komu Matthews og
ráðstefnunni vegna heimsfaraldurs
COVID-19.
„Við erum búin að fresta ráðstefn-
unni til 1. febrúar. Hver veit hvort
það gangi eftir? Við vonum það alla-
vega. Við ætlum að halda þennan
fyrirlestur um leið og það verður
hægt. Matthew er orðinn heims-
þekktur fyrirlesari og hefur náð að
koma með ótrúlega skemmtilegan
vinkil á svefninn. Það er ótrúlega
gaman að hlusta á hann. Hann er
smá orðinn eins og poppstjarna í
þessum fræðum,“ segir Erla og hlær.
Það sé því draumur að fyrirlestur-
inn fari fram um leið og færi gefst.
„Ráðstefnan er fyrir alla. Við
höfum líka mikið verið að vinna
með fyrirtækjum sem eru í meira
mæli að átta sig á mikilvægi þess að
starfsfólk fái góðan svefn. Lélegur
svefn starfsfólks getur bitnað
mikið á starfseminni. Þetta hefur
svo mikil áhrif á framleiðni fólks
í vinnu og veikindadögum fjölgar
hjá starfsmönnum. Ónæmiskerfið
bælist til dæmis fái fólk ekki nægan
svefn,“ segir Erla.
Áhrifin sjást síðar
Nýlega komu nýjar tölur frá Emb-
ætti landlæknis sem sýna að börn
og unglingar hafi náð betri svefni
á meðan heimsfaraldurinn hefur
staðið yfir.
„Þetta gæti stafað að því að minna
er um félagslega dagskrá og tóm-
stundir og ef börn eru í fjarnámi
þá fer minni tími í ferðalög á milli
staða. Það er að sjálfsögðu jákvætt
ef börn og ungmenni eru að hvílast
betur nú en áður en við myndum
vilja sjá varanlega bætingu á svefn-
venjum. Að sama skapi má leiða
líkur að því að fyrir suma geti
reynst erfiðara að halda reglulegri
rútínu og ef til vill frekar hætt við
því í heimavinnu að fólk sé í nátt-
fötum fram eftir degi og að óregla
verði á hefðbundinni rútínu og
svefnvenjum. En þetta er þarf að
rannsaka nánar í framtíðinni,“ segir
hún.
Bókin Svefnfiðrildin fæst í öllum
helstu bókabúðum.
steingerdur@frettabladid.is
Ævintýri um svefn
Bókin Svefnfiðrildin eftir Erlu Björnsdóttur er komin út.
Í henni fléttar hún fræðslu um svefn fyrir börn og fullorðna
í skemmtilegt ævintýri um hina fjörugu Sunnu.
Erla hefur starfað lengi við rannsóknir á sviði svefns. Hún gaf út bókina Svefn árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bókin Svefnfiðrildin er mynd-
skreytt af Auði Ómarsdóttur.
6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð