Fréttablaðið - 06.10.2020, Síða 46

Fréttablaðið - 06.10.2020, Síða 46
ÞÁ ER HÆTT VIÐ ÞVÍ AÐ RÚTÍNAN FARI ÚR SKORÐUM OG FÓLK SÉ BARA HEIMA HJÁ SÉR Á NÁTTFÖT- UNUM FRAM EFTIR DEGI. ÞAÐ GETUR AUÐVITAÐ HAFT ÁHRIF Á LÍÐANINA. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is DALBY hægindastóll með skemli Nettur og fallegur hægindastóll úr svörtu PU-leðri ásamt skammeli, á frábæru verði. Fáanlegur bæði með krómuðum fæti eða svörtum. Stærð: 125 x 72 H: 108 cm. Fullt verð: 59.900 kr. Aðeins 41.930 kr. Við eigum afmæli og nú er veisla Láttu drauminn rætast SENDUM FRÍTT Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Við sendum þér vörurnar frítt hvort sem þú kaupir á dorma.is eða í DORMA-verslun Nature’s REST LUXURY heilsurúm með Classic botni • Svæðaskipt poka- gormakerfi (20 cm háir) • 5 misjöfn lög af svampi • Sterkur botn • 320 gormar á m2 • Góðar kantstyrkingar Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. Verðdæmi á Nature’s Rest Luxury með Classic botni og fótum: 90 x 200 cm. Fullt verð: 69.900 Aðeins 55.920 kr. 160 x 200 cm. Fullt verð: 99.900 Aðeins 79.920 kr. 30% AFSLÁTTUR AFMÆLIS 20% AFSLÁTTUR AFMÆLIS FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut Nú á dögunum kom ú t b a r n a b ó k i n Svefnfiðrildin eftir Erlu Björnsdóttur, en hún er sálfræð-ingur og doktor í líf- og læknavísindum og sérhæfir sig í rannsóknum á svefni og meðferð- um gegn svefnleysi. Henni fannst vanta efni fyrir börn um mikilvægi svefns og hvíldar. Bókin fjallar um fjöruga stelpu sem heitir Sunna. „Ég hef unnið með svefn og við svefnrannsóknir mjög lengi og hef mikið barist fyrir því að auka fræðslu um svefn. Þú sérð bara í menntakerfinu að það er rosalega lítil áhersla á svefn. Börn byrja strax í fyrsta bekk í heimilisfræði og íþróttum. Þau byrja að læra um næringu og hreyfingu en læra lítið um svefn, sem er þó alveg jafn mik- ilvægur. Mig langaði með bókinni að leggja mitt á vogarskálarnar til að auka fræðslu um svefn fyrir börn,“ segir Erla. Svefninn er mystískur Sjálf á Erla sex ára strák. „Hann var fimm ára þegar ég var að skrifa bókina og ég spjallaði þá heilmikið við hann um svefn. Börn eru náttúrulega eins og svampar á þessum aldri. Þeim finnst þetta allt svo spennandi. Svefninn er auð- vitað mjög mystískur. Það er margt sem gerist í svefni sem börnum finnst mjög áhugavert. Þannig kom hugmyndin, að flétta þessa fræðslu um mikilvægi svefns inn í eitthvert skemmtilegt ævintýri. “ Í lok bókarinnar er svo fræðsla sérstaklega ætluð foreldrum. „Þar fer ég yfir það hvað er mikil- vægt fyrir þau að hafa í huga þegar það kemur að svefni barna þeirra. Síðan er líka dagbók sem fólk getur fyllt út með börnunum. Þar er til dæmis hægt að setja sér jákvæð markmið eins og að fara nógu snemma að sofa og að sofa í eigin rúmi.“ Svef nf iðr ild in ha fa feng ið jákvæðar viðtökur, í það minnsta frá syni Erlu og börnum vinkvenna hennar. „Ég hef fengið skemmtileg við- brögð hingað til og er spennt að heyra hvað börnum finnst um þetta. Ég hef ekki mikið unnið með börnum í mínu klíníska starfi þann- ig að það var gaman að fá að koma inn á þennan aldur líka. Þetta var góð tilbreyting frá því að vera að skrifa f lóknar og erfiðar vísinda- greinar,“ segir hún. Urðu að fresta ráðstefnu Árið 2017 gaf Erla út almenna fræði- bók um svefn sem heitir einfaldlega Svefn. Erla stofnaði líka vefsíðuna Betri svefn. Nú í október stóð til að halda ráðstefnu um svefn og fá hinn heimsþekkta vísindamann Mat thew Walker til landsins, en hann er höfundur metsölubókar- innar Why We Sleep. Því miður varð að fresta komu Matthews og ráðstefnunni vegna heimsfaraldurs COVID-19. „Við erum búin að fresta ráðstefn- unni til 1. febrúar. Hver veit hvort það gangi eftir? Við vonum það alla- vega. Við ætlum að halda þennan fyrirlestur um leið og það verður hægt. Matthew er orðinn heims- þekktur fyrirlesari og hefur náð að koma með ótrúlega skemmtilegan vinkil á svefninn. Það er ótrúlega gaman að hlusta á hann. Hann er smá orðinn eins og poppstjarna í þessum fræðum,“ segir Erla og hlær. Það sé því draumur að fyrirlestur- inn fari fram um leið og færi gefst. „Ráðstefnan er fyrir alla. Við höfum líka mikið verið að vinna með fyrirtækjum sem eru í meira mæli að átta sig á mikilvægi þess að starfsfólk fái góðan svefn. Lélegur svefn starfsfólks getur bitnað mikið á starfseminni. Þetta hefur svo mikil áhrif á framleiðni fólks í vinnu og veikindadögum fjölgar hjá starfsmönnum. Ónæmiskerfið bælist til dæmis fái fólk ekki nægan svefn,“ segir Erla. Áhrifin sjást síðar Nýlega komu nýjar tölur frá Emb- ætti landlæknis sem sýna að börn og unglingar hafi náð betri svefni á meðan heimsfaraldurinn hefur staðið yfir. „Þetta gæti stafað að því að minna er um félagslega dagskrá og tóm- stundir og ef börn eru í fjarnámi þá fer minni tími í ferðalög á milli staða. Það er að sjálfsögðu jákvætt ef börn og ungmenni eru að hvílast betur nú en áður en við myndum vilja sjá varanlega bætingu á svefn- venjum. Að sama skapi má leiða líkur að því að fyrir suma geti reynst erfiðara að halda reglulegri rútínu og ef til vill frekar hætt við því í heimavinnu að fólk sé í nátt- fötum fram eftir degi og að óregla verði á hefðbundinni rútínu og svefnvenjum. En þetta er þarf að rannsaka nánar í framtíðinni,“ segir hún. Bókin Svefnfiðrildin fæst í öllum helstu bókabúðum. steingerdur@frettabladid.is Ævintýri um svefn Bókin Svefnfiðrildin eftir Erlu Björnsdóttur er komin út. Í henni fléttar hún fræðslu um svefn fyrir börn og fullorðna í skemmtilegt ævintýri um hina fjörugu Sunnu. Erla hefur starfað lengi við rannsóknir á sviði svefns. Hún gaf út bókina Svefn árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Bókin Svefnfiðrildin er mynd- skreytt af Auði Ómarsdóttur. 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.