Fréttablaðið - 06.10.2020, Side 31
Á hraðhleðslustöð
mun hann geta
hlaðið 480 km drægi á
aðeins 20 mínútum.
Reykjafell.is
Fullkomin yfirsýn
í notendavænu appi
Hleðslu stjórnað
með appi
Staða mæla og
reikningar í appi
Mælingar
í skýinu
22 kW
hleðslugeta
Aflmiklar
hleðslustöðvar
Hleðslustöðvarnar frá ABL eru sérlega vandaðar og henta fyrirtækjum
og fjölbýli fullkomlega. Þær eru álagsstýrðar, með nauðsynlegum varnar-
búnaði og stýrt með appi eða RFID dropa. Ýmsir greiðslu möguleikar í
boði á bakenda kerfisins sem einfalda húsfélögum innheimtu.
Skoðaðu úrval hleðslustöðva fyrir rafbíla á Reykjafell.is
Toyota ætlar að þróa sinn eiginn
hugbúnað og tæknibúnað fyrir
sjálfkeyrandi bíla á næstu árum.
Að sögn heimildarmanns Frétta-
blaðsins í Japan er Toyota að ráða
mikið af vel menntuðu starfsfólki
í þá deild sína sem fer ört stækk-
andi. Er stefnan sett á að þróa
kerfi sem talar við ökumanninn
og tengist öllu upplýsingakerfi
bílsins.
Meðal samstarfsaðila Toyota
í þessu verkefni er MIT AgeLad
í Massachusetts. Þar er verið að
þróa gervigreind í sjálfkeyrandi
bíla sem gerir bílnum kleift að
læra betur á umhverfi sitt í hverri
ferð.
Eins og hjá öðrum sem þróa
næstu kynslóð sjálfkeyrandi öku-
tækja byggir tæknin á útbreiðslu
5G-kerfis fyrir farsíma og því er
talsvert í að við förum að sjá slík
ökutæki eins og hér er lýst, og þó?
Toyota þróar
sjálfkeyrandi bíla
Mynd úr myndbandi sem sýnir
hvernig tækni Toyota virkar.
Stutt er síðan Lucid Air rafbíll-
inn var frumsýndur en hann er
væntanlegur á markað innan
nokkurra mánaða.
Tækniupplýsingar bílsins
hafa vakið mikla athygli enda
fáheyrðar, og má þar nefna allt að
810 km drægi og 1.080 hestöfl með
tveimur rafmótorum í Air Dream
Edition-útgáfunni. Mun það gera
bílnum kleift að komast í hundr-
aðið á aðeins 2,5 sekúndum og er
hámarkshraðinn 270 km á klst.
Hefur Lucid Air háð einvígi við
Tesla Model S Plaid undanfarinn
mánuð um hraðasta hringinn á
Laguna Seca-brautinni. Fyrst náði
Lucid Air besta tíma brautarinnar
með tímanum 1 mínútu og 41 sek-
úndu en tjúnuð útgáfa Tesla Model
3 bætti þann tíma fyrir mánuði og
fór á 1 mínútu, 35,79 sekúndum.
Tesla Model S Plaid bætti svo um
betur fyrir skömmu og náði 1
mínútu og 30 sekúndum en við
prófanir í vikunni náði Lucid Air
tímanum 1 mínútu, 31,3 sekúndum
sem er ansi nálægt tíma Tesla.
Besti hleðslutíminn
Rafhlaðan er 113 kWst og mun
geta hlaðið bílinn með hraða sem
ekki hefur sést áður. Á hrað-
hleðslustöð mun hann geta hlaðið
32 km af drægi á mínútu sem er
480 km á aðeins 20 mínútum. Það
er hraðasta hleðsla sem sést hefur
í fjöldaframleiddum raf bíl hingað
til.
Um mitt næsta ár kemur Air
Grand Touring útgáfan með
enn meira drægi, eða 832 km, en
hestöflin fara niður í 800 talsins.
Grunnútgáfan mun kallast Air
Touring og verður 620 hestöfl og
með 650 km drægi.
Lucid Air líka með hröðustu hleðsluna
Lucid Air er með lægsta vindstuðul lúxusbíla, aðeins 0,21, og ásamt þeim 1.080 hestöflum sem hann hefur úr að spila gefur það hámarkshraðann 270 km/klst.
BÍLAR 7 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 ÞRIÐJUDAGUR