Fréttablaðið - 06.10.2020, Síða 12
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Eftir viku fann
ég greinilegan
mun á mér og
eftir mánuð var
vandamálið
horfið.“FRÉTTA-
BLAÐIÐ/EYÞÓR
Engifer- og túrmerikrætur hafa í árþúsund verið notaðar í lækningaskyni. Þessar rætur
eru náskyldar og eru enn þann dag
í dag notaðar bæði í kínverskum
og indverskum náttúrulækn-
ingum. Bromelain er ensím, unnið
úr ananasplöntunni, sem getur
haft bæði góð áhrif á meltingu og
bólgur og vísbendingar eru um
mun víðtækari heilsufarsleg áhrif.
Þessi þrjú náttúrulegu efni eru
saman komin í Ginger, Turmeric &
Bromelain bætiefninu frá Natures
Aid og eru vinsældir þess sífellt að
aukast.
Fann mun eftir viku
Þrymur Sveinsson hefur notað
Ginger, Turmeric & Bromelain um
þó nokkurt skeið með ótrúlegum
árangri. Hann hafði þetta að segja:
„Fyrst þegar Ginger, Turmeric &
Bromelain fékk umfjöllun í Frétta-
blaðinu fannst mér samsetningin í
bætiefninu vera áhugaverð. Ég las
mér betur til á netinu og þar sem
þær greinar sem ég fann um efnin
gáfu sömu niðurstöðu ákvað ég að
kaupa glas til reynslu. Ástæðan er
sú að allt frá unga aldri hafði ég átt
við vandamál í öndunarfærum að
stríða sem lýsti sér meðal annars
í stífluðu nefi. Engin lausn fannst
þrátt fyrir heimsóknir til lækna
og sérfræðinga sem skoðuðu mig
vandlega, þeir fundu enga ástæðu.
Vandamálið versnaði stöðugt og
ég var farinn að nota nefúða allt
að fjórum sinnum á dag þegar
ég var sem verstur. Eftir að hafa
notað Ginger, Turmeric & Brom-
elain í rúma viku fann ég greini-
legan mun á mér og eftir mánuð
var vandamálið horfið, ég gat
dregið andann áreynslulaust, án
hjálparefna í fyrsta skipti síðan á
unglingsaldri. Ég hef notað Ginger,
Turmeric & Bromelain að staðaldri
síðan en gæði þessa náttúrulyfs
eru ótvíræð.
Getur bætt meltingu
og minnkar bólgur
Engifer er afar vinsæll
í bæði asískri og ind-
verskri matargerð
ásamt því að vera not-
aður þar í lækninga-
skyni. Margar rann-
sóknir hafa verið gerðar
á engiferi*1 enda talinn
hafa góð áhrif gegn ógleði,
verkjum og bólgum. Engifer getur
einnig haft vatnslosandi áhrif og
jafnað blóðsykur. Það má neyta
engifers á ýmsa vegu, en við fáum
sjaldnast nóg í matnum þrátt fyrir
að hann gefi gott bragð. Það má
Framhald af forsíðu ➛
þó bæta það upp með inntöku á
rótinni einni og sér. Engiferrót er
góð rifin í vatn/te, sem nýpressað-
ur safi eða til að taka sem bætiefni.
Þessi magnaða rót hefur þó enn
fleiri kosti en hún er talin sérlega
góð fyrir meltinguna þar sem hún
dregur úr meltingarónotum
og hefur jákvæð áhrif
á ákveðnar tegundir
meltingarensíma með
því að auka eða bæta
flæðið gegnum melt-
ingarveginn. Engifer
hitar okkur innan frá
og því gott að fá sér
til dæmis te þegar við
fáum kvef og svo bendir
ýmislegt til þess að hann
hafi góð áhrif á vöðvaverki sem
skýrist sennilega af bólgueyðandi
áhrifum hans.
Krónískar bólgur
Túrmerik (Curcuma longa) er
eitt öflugasta andoxunarefnið
á markaðnum og það er ekkert
náttúrulegt efni sem hefur verið
rannsakað jafn mikið. Það getur
unnið vel gegn bólgum en eins
og bráðar (skammtíma) bólgur í
líkamanum eru nauðsynlegar eru
langvarandi/krónískar bólgur að
sama skapi mjög slæmar. Krón-
ískar bólgur eru rótin að mörgum
lífsstílssjúkdómum og hafa rann-
sóknir*2 sýnt að kúrkúm-
ín geti dregið úr líkum
á þessum bólgum.
Bromelain fyrir
ennis- og kinnholur
Bromelain er ensím
úr ananasplöntunni
en þetta ensím
brýtur niður prótein
og getur því nýst
fólki með meltingar-
vandamál, rétt eins
og meltingarensím.
Fjöldi rannsókna
hefur verið gerður
og benda til marg-
víslegs ávinnings af
neyslu náttúrulega
efnisins bromelain,
meðal annars að
það geti haft jákvæð
áhrif á nefslímubólg-
ur í ennis- og kinn-
holum, geti hjálpað
fólki með liðverki og dregið úr
almennum bólgum. Einnig hafa
rannsóknir*3 bent til þess að efnið
hafi góð áhrif á frjókornaofnæmi.
Gott fyrir heilsuna
Erfitt er í stuttu máli að telja upp
kosti þeirra efna sem þetta bætiefni
inniheldur. Kúrkúmín sem er virka
efnið í túrmerik er talið vernda
liðina þar sem það eykur náttúru-
lega framleiðslu kortisóns
sem getur haft bólgu-
eyðandi áhrif. Rann-
sóknir*4 benda til þess
að engifer sé blóðþynn-
andi og auki blóðflæði
ásamt því að geta
dregið úr bólgum,
verið vatnslosandi,
jafnað blóðsykur
og minnkað ógleði.
Einnig hafa báðar
þessar rætur jákvæð
áhrif á ónæmis-
kerfið. Þriðja efnið
í blöndunni er
ensímið bromelain
sem er meðal annars
græðandi, hefur góð
áhrif á meltinguna
og virðist geta
unnið á ýmsum
bólguvandamálum
í ennis- og kinn-
holum.
Mælt er með að neytendur leiti
álits læknis eða annars fagfólks
áður en þeir ákveða að taka inn
vítamín eða fæðubótarefni. Sér-
staklega á þetta við um barns-
hafandi konur, konur sem eru
með barn á brjósti, fólk sem er
að glíma við sjúkdóma og tekur
lyf að staðaldri eða hefur undir-
liggjandi sjúkdóma á borð við
flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og
sykursýki.
Ekki ráðlagt fyrir ófrískar
konur, eða konur með barn á
brjósti, þá sem eru á blóðþynn-
andi lyfjum eða hafa fengið
gallsteina.
n 1. Gingerols & shogaols:
Important nutraceutical prin-
ciples from ginger
https://www.ncbi.nlm.nih.
gov/pubmed/26228533
n 2. Bólgueyðandi eiginleikar
kúrkúmíns
https://www.ncbi.nlm.nih.
gov/pubmed/19594223
n 3. Verkun og þol bromelains í
langvarandi nefslímubólgum
https://www.ncbi.nlm.nih.
gov/pubmed/24273953
n 4. The amazing and mighty
ginger
https://www.ncbi.nlm.nih.
gov/books/NBK92775/?log$=-
activity
Eftir að hafa notað
Ginger, Turmeric &
Bromelain í rúma viku
fann ég greinilegan mun
á mér og eftir mánuð var
vandamálið horfið.
Sölustaðir:
Flest apótek,
heilsubúðir
og heilsuhillur
verslana
2-3ja
mánaða skammtur í hverju glasi„Ég upplifi enga verki í dag og er aftur farinn
að njóta þess að styðja við heilsu mína með
hreyfingu, þökk sé Nutrilenk.“
Kristófer Valdimarsson, 81 árs.
Mest selda liðbætiefni á Íslandi
LIÐVERKIR – STIRÐLEIKI – EÐA BRAK Í LIÐUM?
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R